Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1996, Page 7
Akureyri sem heitir Safalinn. Heildsalan er
heima, en vörumar selja þær hjá samsteyp-
unni Kaktus, á Bazar International og tveim-
ur verzlunum í Echternach og Grevemacher.
Þær dreifa bæklingum frá íslandi og auglýsa
stundum í blöðum. Viðskiptin eru eðlilega
að mestu leyti bundin við veturinn og þeim
fínnst gott að geta þá verið frjálsar að sumr-
inu. Þetta hefur verið hagstæður vetur fyrir
prjónles að því leyti að hann var óvenjulega
kaldur allsstaðar á meginlandi Evrópu; frost
vikum saman í Lúxemborg og elztu menn
muna ekki annan eins fimbulvetur.
Pétur Valbergsson er ósvikinn Gaflari eft-
ir því sem hann segir; fæddur í Firðinum,
en Valberg faðir hans var matsveinn og Sig-
rún Pétursdóttir, móðir hans, var ráðskona
á Bessastöðum. Ungur sneri Pétur sér að
fluginu og líkt og hjá fleirum bar það brátt
að þegar flutt var til Lúxemborgar. Það var
hringt í Pétur og spurt hvort hann gæti
komið snarlega og áður en hann svaraði,
kallaði hann til Bjargeyjar og spurði hvort
hún vildi flytja til Lúxemborgar. „Hvað
lengi“, spurði hún og Pétur svaraði: „Svona
í tvö ár“. Bjargey var til í það, en árin þar
ytra eru orðin 24. Pétur er á fullu í fluginu
og þau eru ekkert að flytjast heim; eiga þó
hús í Garðabæ, sem er athvarf þeirra í Is-
landsferðum.
Þau hjón leika bæði golf og Bjargey var
að koma úr sinni fyrstu golfkeppni þegar
mig bar að garði. Pétur sem er gamalreynd-
ur og snjall golfari, hefur alltaf golfsettið
með sér í fluginu og kveðst, þegar hann
getur, fara beint af flugvelli um á golfvöllinn.
Sigrún er elzt þriggja dætra þeirra hjóna,
gift Islendingi sem á og rekur ljósmyndunar-
þjónustu í Lúxemborg. Sú næstelzta, Dögg,
er sölumaður í Lúxemborg, en heimasætan
Tinna er í foreldrahúsum og stundar skóla-
nám.
EMIL Guðmundsson og einn af farkostum Flugleiða á Findel-flugvelli.
Gott fólk í Lúxemborg
Asöluskrifstofu Flugleiða inni í borginni
ræður Emil Guðmundsson ríkjum. Þar
er eins og vænta má afar íslandslegt
um að litast; fallegar myndir af þekktum stöð-
um á íslandi prýða veggi. Þar tók á móti mér
Valdemar Serrenho, portúgalskur Lúxem-
borgari og ágætlega mæltur á íslenzku. Hann
var búinn að starfa þarna í 18 ár og sölustjór-
inn, Anne Cerf, í 26 ár.
Emil er regional manager eins og það heit-
ir á ensku, eða svæðisstjóri. Áður gegndi
hann samskonar embætti á Flugleiðaskrifstof-
unni í Amsterdam í hálft fjórða ár og nú
búinn að vera í ár í Lúxemborg. Meðan hann
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27.APRÍL1996 7
Á COCKPITINN: Þrír landar kneifuðu ölið á Kockpit Inn þegar Lesbók bar
þar að garði. Aldursforsetinn lengst til hægri er Guðjón Guðjónsson, sem
verið hefur flugstjóri hjá Cargolux, en er nú kominn yfir aldursmörkin, sem
nú eru dregin við sextugsafmælið. Guðjón er þar að auki húsasmíðameistari
og kvaðst vera búinn að búa í Lúxemborg í 23 ár. Fyrir miðju situr Jón
Emil Claessen Guðbrandsson, aðstoðarkennari í Lúxemborg; kennir þar ensku
í menntaskóla og er búinn að vera á staðnum síðan í janúar síðastliðnum.
Lengst til vinstri situr Jónas Þórðarson rafvirki, sem búinn er að vera í
Lúxemborg í hálft annað ár og starfar sjálfstætt; mest þó fyrir tvö dönsk
byggingarfyrirtæki. Hann sagði að um 5 þúsund Danir byggju og störfuðu
í Lúxemborg.
GRÉTAR Hansson við einn af fólksflutningabílum AÍIrahanda á bílastæði í Lúxemborg.
Allrahanda akstur með
íslendinga um Evrópu
Það vekur athygli aðkomumanns frá ís-
landi að sjá á bílastæði við gistihúsið
Studio þijá stóra rútubíla, merkta
Allrahanda hópferðum og prýdda íslenzka
fánanum. Reyndar kemur nafnið ekki á óvart,
því Allrahanda er vel þekkt fyrirtæki í rútu-
bílabransanum á íslandi. Hitt vita kannski
ekki allir, að Grétar Hansson, sem er nánast
bæði bíll og bílstjóri í þessu fyrirtæki, hefur
verið með starfsemi í Lúxemborg síðan 1989.
Grétar hafði verið með rútubílarekstur á
íslandi og hafði hug á að færa út kvíarnar á
meginlandi Evrópu, en ekkert var þá hægt
leyfislaust. Honum tókst þó að byija með leyfi
frá þýzku fyrirtæki, Wega Reisen, sem hann
starfar raunar með ennþá. Nú er hinsvegar
sú breyting á orðin eftir inngöngu okkar í
EES að starfsemi sem þessi er ekki háð leyf-
um.
Úti í Evrópu hét fyrirtækið Grétar Hanson
- Icetravel.En fyrir þremur árum sameinaði
Grétar íslenzku rútubílaútgerðina Allrahanda
og Icetravel. Nú lætur hann hjólin snúast
báðum megin Atlandsála; 25 bílar starfræktir
á íslandi, 5 flutningabílar með sérleyfi til
Vestfjarða og fyrir Samvinnuferðir og Ferð-
amiðstöð Austurlands tekur hann að sér hóp-
ferðir.
Nú hefur Grétar uppá vasann leyfi sam-
gönguráðuneytisins fýrir fólksflutningum í
Evrópu og sú starfsemi gengur allan ársins
hring. Um er að ræða akstur frá Lúxemborg
og vegna hans þarf Grétar 4-5 stóra rútubíla.
Það er enginn smáræðis ijöldi sem fer á hveij-
um vetri frá Islandi til sídðaiðkana einhvers-
staðar í Alpafjöllunum. Skíðafólkið flýgur til
Lúxemborgar og þaðan fer það í rútum frá
Allrahanda. Stundum þurfa keppnislið að
komast til landa Austur-Evrópu og þá er
Grétar reiðubúinn. Þar er betra að hafa var-
ann á og ekki má yfirgefa bílinn smástund,
þá er óðar búið að bijóta hann upp og stela
því sem hægt er að ná.
Fyrir utan þetta er um hefðbundinn akstur
að ræða fyrir Flugleiðir og ferðaskrifstofur á
Islandi. Brottfararstaðir eru þá oftast Lúxem-
borg, Hamborg, Frankfurt, Amsterdam og
Vínarborg. Oftast ekur Grétar sjálfur í þessum
ferðum og er úti í Evrópu stærstan hluta
ársins; þó heima á sumrin. Inn í þetta starf
hleypur ekki hver sem er, því það er rétt
meira en að segja það að rata allsstaðar.
Grétar telur sig rata beinustu leiðir, meira
að segja í öllum stórborgum meginlandsins.
Guðni sonur Grétars ekur einnig í Evrópu
og fleirii bílstjórar, þar á meðal íslenzkir lúx-
emborgarar. Hópferðabílar þeir sem nú eru í
förum eru í senn stórir og glæsilegir. Þeir eru
með sjónvarpstækjum, myndbandstækjum og
að sjálfsögðu salernum og kælibúnaði. Til
þessa hefur allt gengið vel og alltaf hafa far-
þegar náð sinu flugi. En álagið er stundum
mikið, ekki sízt að aka kannski þúsund km í
einni lotu. Með sérstökum leyfum sem hægt
er að kaupa, má aka þessum bílum á 100-110
km hraða.
Vegna EES-samninganna getur fyrirtækið
nú flutt bílana eftir verkefnum milli íslands
og Evrópu. Yfir vetrarmánuðina, þegar lítið
er að gera á íslandi, eru bílarnir fluttir til
Evrópu og á sumrin aftur til íslands. Fyrir
þessum tilflutningi hafa skipafélögin greitt,
segir Grétar Hansson.
EYJÓLFUR Hauksson í flugstjóragallanum.
Eiginkona Eyjólfs heitir Elsa María Wald-
erhaug og er frá Ólafsfirði. Þau eiga 5 börn.
Elzta dóttirin, Ragnhildur Edda, er tungu-
málakennari í Vínarborg, sú næstelzta,
Hrafnhildur Mary, vinnur hjá samgöngu-
ráðuneytinu í Lúxemborg, Haukur Albert er
að klára flugnám á íslandi, en Elísabet Lilly
og Alexander Jakob eru 8 og 6 ára. Um
barnaskólanám þeirra segir Eyjólfur að kröf-
urnar séu strangari en á íslandi. Þau verða
strax að fara í þýzkunám og frönsku frá 8
ára aldri og svo ensku. Lúxemborgísksu tala
börnin eins og innfædd, en að sjálfsögðu er
töluð íslerizka á heimilinu. Eldri börnin hafa
farið til Islands og tekið hluta af stúdents-
prófi sínu þaðan og með því hafa þau mynd-
að góð tengsl. Þau Eyjólfur og Elsa koma
til Islands tvisvar eða þrisvar á ári og eiga
íbúð þar.