Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1996, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1996, Page 8
ÍSLENDINGAR í LÚXEMBORG var í Amsterdam varð árangurinn þar svo góður að Flugleiðaskrifstofan þar var valin „söluskrifstofa ársins" og sú velgengni hef- ur greinielga fylgt Emil til Lúxemborgar, því nú náðist beztur árangur þar og Emil hefur fengið þessa nafnbót tvívegis. Um framtíðarveru í Lúxemborg sagði Emil, að „við þessir „útilegumenn" erum ráðnir í 3-5 ár. Þá erum við fluttir annað.“ Emil Guðmundsson er ættaður frá ísafirði, en fæddur og uppalinn á Akranesi og hefur alltaf litið á sig sem Skagamann, segir hann. Hjá Flugmálastjóm fór hann að vinna 16 ára, síðan hjá Loftleiðum og Flugleiðum. Starfsferillinn er orðinn 40 ár, heima og erlendis. Um tíma vann hann i Kaupmannahöfn og í áratug var hann hótel- stjóri á Hótel Loftleiðum. Hann kveðst kunna vel við sig í Lúxemborg; aðalgallinn væri að vera ekki mæltur á tungu inn- fæddra. Aðspurður um muninn á þeim og Hollendingum, ef einhver væri, sagði Emil að sá munur væri vel sjáanlegur. Lúxarar séu talsvert lokaðir, en reynast ekki síður ágætis fólk þegar maður hefur kynnst þeim. Kona Emils er Sigurbjört Gústafsdóttir frá Vestmannaeyjum. Þau eiga tvo upp- komna syni: Ragnar rafmagnsverkfræðing hjá Orkubúi VestQarða; hann býr á ísafirði, - og Kjartan Þór, sem er flugumferðarstjóri og býr í Kópavogi. Bamabömin eru fjögur. Þau Emil og Sigurbjört búa í Itzid, þorpi milli flugvallarins og borgarinnar. Þar eru kýr á beit og sveitalegt um að litast, segir Emil. Mikil ferðalög fylgja þessu starfi og Sigurbjört fer með þegar Emil þarf að fara til Islands. Heima fýrir í Lúxemborg iðka þau hjólreiða- og gönguferðir í skógi vöxnu umhverfí í næsta nágrenni. Þráðlaus sími er allt sem þarf Eitt fyrirtækjanna sem íslendingar í Lúxemborg eru skráðir fyrir heitir Air ABC. Annar eigendanna, Þórður Sæmundsson, flugvirki, var heima hjá sér, þaðan sem hann stundar þennan rekstur. Raunar var hann að dunda í garð- inum því þessi dagur hafði boðað lang- þráða breytingu frá óvenjulegum kulda mestallan veturinn; raunar má telja að verið hafí fímbulvetur á þessum slóðum eftir því sem gerist. Þórður sagði að það væri í góðu lagi að dútla í garðinum, því hann væri með símann á sér og þráðlaus sími er allt sem þarf, sagði hann. Auk Þórðar voru það Birkir Baldvinsson og Paul Pauletto sem stofnuðu fyrirtækið 1981 og var talsverður ævintýrabragur á upphafinu. Cargolux tók þetta ár þátt í pílagrímaflugi í samstarfí við flugfélag í Nígeríu og Þórður var send- ur þangað „niðureftir" til þess að stjórna eftirliti með flugvélunum. Þar kynntist Þórður umsvifamiklum ævintýramanni sem rak fjölda fyrirtækja í Nígeríu og vildi gjarnan bæta við sig flugrekstri. Svo fór að Þórður og meðeigendur hans keyptu flugvél og leigðu þessum Dr. Hamza. Hann reyndist nokkuð lausbeizlaður og hafði ekki áhyggjur af smámunum eins og að gefa út stóra gúmmítékka eða standa við samninga. Svo fór að Dr. Hamza var sviptur flugrekstrarleyfinu, en flugvélin kyrrsett í Nígerðiu. Eftir margar þrauta- göngur í ráðuneyti fór svo að lokum að brottfararleyfí fékkst - það mátti bara ekki nota flugvöllinn. Þá tóku menn stóra áhættu; dembdu sér af stað og Stefán Jónsson flugstjóri rriarði á loft áður en innfæddir gátu hindrað það. Síðan er Birkir genginn út úr félags- skapnum, en Þórður hélt áfram að kaupa og selja flugvélar ásamt félaga sínum, þar til að á síðustu árum hafa þeir eingöngu verið í varahlutabransanum. „Þetta liggur í því“, sagði Þórður, „að komast að því ÞÓRÐUR Sæmundsson við íbúðar- hús sitt í Lúxemborg, þaðan sem hann útvegar og selur varahluti í flugvélar. Að ofan: íbúðarhús Þórð- ar og Drífu Sigurbjarnardóttur. hvar vantar varahluti í flugvélar og útvega þá síðan. Og það er eins og annarsstaðar, að þetta gengur út á að þekkja mann sem þekkir mann. Allur þessi bísnis gengur fyrir persónulegum kunningsskap“. Þeir eru hættir með varahlutalager; hann er allur kominn til Fort Lauderdale í Florida. Þórður er mestan part í því að kaupa varahluti og senda þá vestur. Þess- vegna getur hann starfað hvar sem er - maður þarf bara að hafa síma og fax. En hvað með gæðin og hugsanlegt svindl, sem komst í heimsfréttir í vetur eftir að flugvél- in fórst við Dóminíkanska lýðveldið. Þá var talað um áð varahlutir með vafasaman uppruna hefðu jafnvel verið settir í hana. Þórður sagði, að sjálfsögðu yrði maður að líta á þá varahluti sem keyptir væru, ann- ars væri hægt að gera stór mistök. Við þessi innkaup þarf mjög gott „heilbrigðis- vottorð". Menn hafa lent í fangelsi og feng- ið stórsektir fyrir að vera jafnvel að smíða eitthvað sjálfír og selja undir fölsku flaggi. Þess er svo að geta að lokum, að eigin- kona Þórðar er Drífa Sigurbjarnardóttir, ein þeirra sem eiga og reka Studio, og minnst er á annarstaðar hér. Þau hjónin reka auk þessa fyrirtækið Chapter 80; einnig það hefur með höndum varahluta- viðskipti vegna flugvéla. SIGURÐUR Lárusson deildarstjóri hjá Cargolux fyrir utan húsið.sem hann teiknaði sjálfur. Að neðan: Hluti fjölskyldunnar í stofunni: Sigurður, tvíbura- systkinin Móeiður Iða og Sigurður Orn og húsmóðirin Dúfa er lengst til hægri. Sigurður teiknaði húsið sjálfur A slendingarnir í Lúxemborg búa flestir eitthvað utan við borgina, sumir nán- ast úti í sveit. í úthverfabænum God- brange hafa hjónin Dúfa Ólafsdóttir og Sig- urður Lárusson byggt glæsilega yfir fjöl- skylduna. Sigurður er deildarstjóri Tækja- deildar Cargolux, Skagamaður að uppruna og þau hjón hafa búið í Lúxemborg síðan 1975. Dúfa er frá Skarfsstöðum í Dölum og er menntuð sem skurðstofuhjúkrunar- kona. Á sumrin hefur hún unnið í sínu fagi á Borgarspítalanum í Reykjavík, en erfítt hefur reynzt fyrir hana að fá viðurkenn- ingu á sínum pappírum í Lúxemborg. Það er þó breytt núna eftir inngöngu okkar í EES og stefnir Dúfa á það að fá vinnu á spítala í Lúxemborg. Böm þeirra hjóna eru fjögur. Elztur er sonurinn Ólafur Jóhann, sem er í verk- fræðinámi, en hefur starfað hjá Lands- virkjun á sumrin. Dóttirin Berglind Ýr er listmálari og hefur sýnt verk sín í Reykja- vík og eins og vænta má eru verk hennar einnig á veggjunum hjá foreldrum henn- ar, en fyrir utan listina er Berglind Ýr að læra bæði þýzka og franska lögfræði. Yngri eru svo tvíburasystkini Móeiður Iða og Sigurður Örn; þau eru í foreldrahúsum og námi. Það er sérkennilegt og ólíkt því sem gerst gæti hér á landi, að Sigurður teikn- aði sjálfur íbúðarhúsið og fékk sínar teikn- ingar stimplaðar og samþykktar eins og ekkert væri sjálfsagðara. Síðan vom fengnir dugnaðarforkar frá íslandi til að byggja það. Mátti skilja á húsráðendum þarna og fleiri íslendingum, að þeim þykja innlendir iðnaðarmenn æði hæggengir og þar að auki dýrir. Það er t.d. ekkert verið að klára verk, sem er alveg á lokastigi, ef klukkan segir að vinnutíma sé lokið. MORGUNBLAÐIÐ ER ómissandi og hluti af hinu daglega lífi /yá mörgum ís- lendingum í Lúxemborg. Það fæst á flugvellinum og tveimur bensínstöðvum, þar á meðal Essóstöðinni sem hér sést. Þar er blaðastandur þar sem heimsblöð- in fást, Le Soir þar á meðal, svo og Morgunblaðið. Grétar Hansson hjá flutninga- fyrirtækinu Allrahanda brá sér þangað inn til að ná sér í Moggann.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.