Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1996, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1996, Blaðsíða 2
Sumarkvöld við orgelið EITT frægasta orgelverk sögunnar, Tokkata og fúga í d-moll eftir Bach, verður á efnis- skrá Ragnars Björnssonar á 5. tónleikum í röðinni Sumarkvöld við orgelið í Hallgríms- kirkju annaðkvöld, sunnudágskvöld, kl.20.30. Margir halda því fram að Tokkata og fúga í d-moll sé í raun ekki tokkata, senni- lega ekki upphaflega í d- moll eftir Bach, heldur um- skrifun á verki fyrir fiðlu og ganga sumir jafnvel svo langt að telja umskrifunina ekki eftir Bach. Eftir stend- ur sem áður að nálega hvert mannsbarn kannast við tignarlegt upphafsstef verksins, sem hefur orðið seinni tíma tónlistarmönnum efniviður í djass og popp. Ragnar mun að auki flytja tvö önnur þekkt og áheyrileg orgelverk. Annað er Gotnesk svíta eftir Léon Boelimann, sem taiinn var mikill orgelsnillingur. Hann afka- staði miklu á stuttri ævi en ekkert verka hans hefur náð viðlíka vinsældum eins og Gotneska svítan. Hitt verkið er eftir Jehan Alain og nefnist Litanies. Alain var án efa efnilegasta tónskáld Frakka á fyrri hluta 20. aldar, en hann féll í síðari heimsstyrjöld- inni aðeins 29 ára gamall. Eftir hann liggur samt fjöldi verka, en um Litanies skrifaði höfundurinn m.a.: Þegar kristinn maður finnur ekki lengur ný orð í neyð sinni um miskunn Guðs, endurtekur hann stöðugt sömu orðin í ofsalegri trú.“ Önnur verk á efnisskránni eru Fantasia trionfale eftir Knut Nystedt, Réve Angelique eftir Artur Rubinstein, Sálmaforleikur eftir Þorkel Sigurbjörnsson yfir Lofið Guð eftir Pétur Guðjónsen og Fantasía funebre eftir Ragnar Björnsson sjálfan. Ragnar samdi verkið í minningu Jóhannesar Kjarvals árið 1972 og var það frumflutt við útför hans. Ragnar Björnsson er skólastjóri Nýja tón- listarskólans og hefur komið fram á tónleik- um víða um heim, bæði í Evrópu, Ameríku og Asíu. Morgunblaðið/Halldór AÐSTANDENDUR uppfærslunnar á Birtingi eftir Voltaire. Birtingur í Hafnarfirði FYRSTA sýning Hafnarfjarðarleikhússins Hermóðs og Háðvarar á komandi leikári _ verður leikgerð á Birtingi eftir Voltaire. í kynningu segir: „Birting þekkja margir og hafa eflaust skemmt sér vel yfir ævintýrun- um sem hann lendir í á ferð sinni um heim- inn. Hann hrekst heimsálfanna á milli með góðmennskuna eina að vopni í þeirri von að hitta æskuástina sina, Kúnígúnd hina fögru, á ný.“ Leikgerðina vinna Erling Jóhannesson og Hilmar Jónsson leikstjóri ásamt leik- hópnum. Leikmynd gerir Finnur Arnar Arnarson, búningar eru eftir Þórunni Jóns- dóttir, brúðugerð er í höndum Kristínar Þorvaldsdóttur, tónlist semur Hákon Leifs- son, ljósahönnuður er Björn Bergsteinn Guðmundsson og förðunarmeistari er Sig- ríður Rósa Bjarnadóttir. Leikendur eru Björk Jakobsdóttir, Haila Margrét Jóhann- esdóttir, Jóna Guðrún Jónsdóttir, Erling Jóhannesson, Gunnar Helgason, Jón Stefán Krisljánsson og Sigurþór Albert Heimisson. Frumsýning verður 13. september. LEIKIÐ TUNGUM TVEIM LEIKLIST Skcmmtihúsið ORMSTUNGA Ormstunga. Ástarsaga byggð á Gunnlaugs sögu Ormstungu. Leikendun Benedikt Erlings- son og Halldóra Geirharðsdóttir. Leikstjóri: Peter Engkvist. Aðstoðarleikstjóri: Bára L. Magnúsdóttir. Ljósahönnun: Þórður Orri Pét- ursson. Miðvikudagur 1. ágúst. SKEMMTIHÚS þeirra Brynju Benedikts- dóttur og Erlings Gíslasonar var vígt á mið- vikudagskvöldið með tveggja manna spuna- verki unnu upp úr Gunnlaugs sögu Orms- tungu og flutt af þeim Benedikt Erlingssyni og Halldóru Geirharðsdóttur. Hið nýja hús stóð sannarlega undir nafni þetta kvöld, sýn- ingin var bráðskemmtileg og frumleg og af leikurunum geislaði leik- og hugmyndagleði. Framan á leikskrá er mynd af Benedikt Erlingssyni með tvíklofna tungu að hætti snáka, en myndin getur allt eins vísað til þess klofnings tungunnar í fomt og nýtt sem leikararnir beita stöðugt í leik sínum með góðum árangri. Atburðarás leiksins fylgir söguþræði Gunnlaugs sögu Ormstungu nokk- um veginn en síðan spinna leikararnir við eftir því sem hugmyndaflugið blæs þeim í bijóst. Stöðugt er blandað saman beinum tilvitnunum úr fomsögunni og nútímamáli með vísunum til samtímans svo úr verður afar sérkennileg og bráðfyndin blanda. Vera kann að einhveijir kunni ekki að meta slíka „meðferð" á fornsögunum en flestir með ein- hvern vott af kímnigáfu ættu þó að geta skemmt sér prýðilega yfír þeirri „karnival- ísku“ afkrýningu á menningararfínum sem hérna er á ferðinni. Eins og áður er sagt em leikendur aðeins tveir og bregða þeir sér í öll þau hlutverk sem nauðsyn krefur. Þannig þurfti Benedikt stundum að leika tvær til þijár persónur „í einu“, þ.e. í einni og sömu senunni leikur hann tvo eða þijá aðila sem talast við - eða Morgunblaðið/Ásdís „BENEDIKT [Erlingsson] og Halldóra [Geirharðsdóttir] eru bæði leikarar sem búa yfir miklum „sjarma“ sem naut sín til fullnustu í þessari sýn- ingu,“ segir meðal annars í dómnum. jafnvel beijast. Þetta gerði Benedikt frábær- lega vel og með miklum húmor. Af sama öryggi lét Halldóra sig ekki muna um leika á tvær flautur í einu - jafnvel raddað. Benedikt og Halldóra eru bæði leikarar sem búa yfír miklum „sjarma" sem naut sín til fullnustu í þessari sýningú. Sérstaklega mikið mæddi á Benedikt sem hafði stærstan hluta textans á sinni könnu og er „á fullu“ allan tímann sem leikritinu vindur fram og tekur það tæpa tvo tíma í flutningi. Hann sneri sig laglega út úr örfáum textamissögn- um sem honum urðu á og fataðist aldrei flug- ið í spunanum. Reyndar má vel kalla frammi- stöðu Benedikts afrek nokkuð; hann missti aldrei dampinn, lék af krafti sýninguna út í gegn og tókst frábærlega upp í persónusköp- un þeirra mismunandi persóna sem hann lék. Halldóra fór ekki síður með sín hlutverk, eins og hún hefur áður sýnt er hún gaman- leikkona af guðsnáð og naut sá hæfileiki hennar sín vel í þessari sýningu. Samleikur Halldóru og Benedikts var og með miklum ágætum og fær leikstjóri það lof sem honum ber. Sýnilegt er að honum hefur tekist vel að virkja leikarana til að virkja hæfileika sína eins og kostur er. Peter Engkvist hefur áður leikstýrt hér á landi Lofthrædda ernin- um Örvari sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu í fyrra, og einnig leikstýrði hann Hamlet - en stand up sem sýnt var hér á Listahátíð 1992. Lýsingu annaðist Þórður Orri Pétursson, en ekki mæddi mikið á honum þar sem spuna- verk sem þetta gerir í sjálfu sér litlar kröfur til ytri umferðar eins og sviðsmyndar og lýs- ingar. Leikaramir, textinn og látbragðið er það sem sýningin byggist á. Þannig er þetta verk tilvalið til flutnings svo að segja hvar sem er og líklega er það tilgangur Ormst- ungu-hópsins að sýna verkið sem víðast. Það væri þá í samræmi við yfirlýstan tilgang Skemmtihússins sem fyrst og fremst er hugs- að sem smiðja fyrir leikarana. í leikskrá seg- ir: „I smiðju þessari fer fram sköpun nýrra og nýstárlegra verka. Héðan halda verkin til frekari kynningar út á landsbyggðina eða í stærri sali innanbæjar.“ Þessi sýning er sem sérsniðin fyrir framhaldsskólana. Hérna er orðfæri og látæði sem ætti að höfða til ungs •fólks og kitla hláturtaugar þess. Vert er að benda íslenskukennurum á þennan kost í vetur: Lesa með nemendum sínum Gunnlaugs sögu Ormstungu, fá sýninguna sem hluta námsefnis - og síðan mætti lesa tiltölulega nýlega skáldsögu eftir Guðmund Andra Thorsson, íslenska drauminn, sem hefur sömu grunnfléttu og Gunnlaugs saga og á marga snertifleti með fornsögunni. Þarna væri komið aldeilis skemmtilegt námskeið í íslenskum bókmenntum! Umfram allt frábær kvöldstund í Skemmti- húsinu sem ég hvet flesta til að fá að njóta. Soffía Auður Birgisdóttir MENNING/ LISTIR í NÆSTU VIKU MYNDLIST Ásmundarsafn Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar. Kjarvalsstaðir Náttúrusýn í íslenskri myndlist til 31. ágúst. Þjóðminjasafnið Sýning_ á silfri til septemberloka. Safn Ásgríms Jónssonar Sýning á úrvali verka Ásgríms til 31. ágúst. Gallerí Sævars Karls Iris Elfa Friðriksdóttir er með sýningu. Gallerí Stöðlakot Kristin Guðjónsdóttir sýnir til 18. ágúst. Listhús 39 Aðalsteinn Stefánsson, Hjörtur Hjartarson og Þóroddur Bjamason sýna til 18. ágúst. Nýlistasafnið Katrín Sigurðardóttir, Lind Völundardóttir og Pietertje van Splunter sýna í aðalsölum. I setu- stofunni stendur Nýlistasafnið fyrir kynningu á verkum kúbönsku myndlistakonunnunar Ana Mendieta (f. 1948 d. 1985). Sólon íslandus Ráðhildur Ingadóttir sýnir frá 1.-24. ágúst. Mokka Gunilla Möller sýnir til 10. ágúst. Listasafn Sigurjón Ólafssonar Höggmyndasýningin Vættatal með verkum eftir Siguijón Ólafsson og Pál Guðmundsson frá Húsafelli. Gallerí Laugavegur 20b Björn Birnir sýnir fram eftir sumri. Nemenda gallerí Búnaðarbankans v/Hlemm. Eirún Sigurðardóttir sýnir til 20. ágúst. Við Hamarinn Ásdís Pétursdóttir og Ingibjörg María Þor- valdsdóttir sýna frá 10.-25. ágúst. Á næstu grösum Halldóra Emilsdóttir og Ósk Vilhjálmsdóttir sýna ljósmyndir í matstofunni. Norræna húsið. Edda Jónsdóttir og Kolbrún Björgúlfsdóttir sýna til 11. ágúst. I anddyri íslensk náttúra, bækur Guðmundar P. Ólafs- sonar o.fl. til 14. ágúst. Listasafnið á Akureyri Karola Schlegelmijch sýnir. Gallerí AllraHanda, Ákureyri. Guðný G.H. Marinósdóttir sýnir veflist í Listagillinu á Akureyri til 16. ágúst. Laufey Pálsdóttir sýnir málverk í kaffihúsinu á Hótel Hjalteyri. Á Seyði - Seyðisfirði Samsýning til 25. ágúst. Galleríkeðjan - Sýnirými Sýnendur i ágúst: I sýniboxi: Áslaug Thorlac- ius. í barmi: Alda Sigurðardóttir. Berandi er: Einar Garibaldi Eiríksson. í hlust: Finnur Arn- ar Arnarson. Laugardagur 3. ágúst Sumartónleikar í Skálholtskirkju: Kl. 14 flytur Jónas Tómasson forspjall um messu sína. Kl. 15 frumflutningur messu eftir JónasTómasson fyrir sópran, fimm karlaraddir og barokkhljóð- færi. Kl. 17. Das Wohltemperierte Klavier eft- ir Bach, fyrri hluti. William Heiles, semball. Kl. 21. Das Wohltemperierte Klavier eftir Bach, seinni hluti. Sumartónleikar á Norður- landi: Fiðluleikarinn Elisabeth Zeuthen Schneider leikur tónleika í Reykjahlíðarkirkju v/Mývatn kl. 21. Hallgrímskirkja: Rganar Björnsson, orgelleikari, leikur í hálftíma kl. 12.03. Hádegistónleikar verða í Hallgríms- kirkju í júlí og ágúst kl. 12-12.30. Sunnudagur 4. ágúst Sumartónleikar í Skálholtskirkju: Kl. 15 endur- tekin messa Jónasar Tómassonar, sem frum- flutt var á laugardegi. kl. 17 messa með nor- rænum kirkjuverkum leiknum á harðangursf- iðlu. Stólvers eftir Ólaf Jónsson frá Söndum. Kl. 21 Tónverk frá Telemark. Alf Tveit, harð- angursfiðla. Kl. 22 Voces Thules flytja nátt- söng úr Þorlákstíðum. Sumartónleikar á Norð- urlandi: Eisabeth Zeuthen Schneider leikur tónleika í Akureyrarkirkju kl. 17. Hallgríms- kirkja: Ragnar Björnsson, orgelleikari leikur verk eftir Boellmann, Þorkel Sigurbjörnsson, Bach, Ragnar Björnsson, Alain, Rubinstein og Nystedt kl. 20.30. Mánudagur 5. ágúst Sumartónleikar í Skálholtskirkju: Kl. 15 Tón- verk frá Telemark. Alf Tveit leikur verk fyrir harðangursfiðlu. Þriðjudagur 6. ágúst Listasafn Siguijóns Ólafssonar, kl. 20.30. Ásdís Amardóttir, selló og Jón Sigurðsson, píanó. Sónötur eftir J.S. Bach og Beethoven, tslensk þjóðlög eftir Hafliða Hallgrímsson og verk eftir Ravel og Piazzolla. Elísabet Zeuthen Schneider, fiðla og Sólveig Anna Jónsdóttir, píanó. Verk eftir Mozart, Webem og Brahms. Fimmtudagur 8. ágúst NN leikur i hálftíma. LEIKLIST Loftkastalinn - Á sama tíma að ári laug. 10. ágúst. Skari skrípó fimmtudag 8. ágúst. Borgarleikhúsið - Stone Free fimmtudag 8. ágúst. Föstud. 9. ágúst, laugard. 10. ágúst. Light Nights - Tjarnarbíó - Öll kvöld nema sunnudagskvöld kl. 21; Leikþættir úr íslend- ingasögum og þjóðsögum. Flutt á ensku. Skemmtihúsið, Laufásvegi 22 - Ormstunga, ástarsaga. 3. sýn. fimmtudagur 8. ágúst. 4 sýn. föstudaginn 9. ágúst. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. ÁGÚST 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.