Lesbók Morgunblaðsins - 03.08.1996, Qupperneq 6
ARTHUS-BERTRAND gerir sig kláran i slaginn en eins og glöggt má sjá á forsíðumynd
Lesbókarinnar eru afturdyr þyrlunnar fjarlægðar og Ijósmyndarinn hangir f gættinni
fyrir tilstilli sérstaks öryggisbúnaðar. Honum til aðstoðar á myndinni eru Jón K. Björns-
son þyrluflugmaður og Óttar Sigurðsson leiðsögumaður.
í VÖGGU
VERALDAR
Jöróin úr lofti kaHastverkefni sem franski Ijósmyndar-
inn Yann Arthus-Bertrand hefur tekist á hendur og
gengur út á aó varpa Ijósi á ástand jaróar þegar
ný öld er í sjónmáli. ORRl PALL ORMARSSON ræddi
vió þennan ævintýramann þegar hann var staddur
hér á landi í lióinni viku og komst meóal annars aó
því aó hann lítur á sig sem vitni — ekki listamann.
Morgunblaðió/Golli
„ÍSLAND er feikilega svipmikið og fallegt land og mér finnst eins og ég sé staddur í
vöggu veraldar," segir Arthus-Bertrand, sem hér hringsólar í þyrlu yfir Þingvöllum.
MÓÐUR jörð eru marg-
víslegar hættur bún-
ar. Mengun, meðal
annars frá iðnaði og
samgöngutækjum, er
sívaxandi vandamál
og ört gengur á gróð-
urlendi vegna at-
hafna mannsins. Umhverfísspjöll eru víða unnin
og hefur því jafnvel verið haldið fram að voðin
sé vís verði ekki gripið í taumana. Umhverfis-
ráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Ríó fyrir tveim-
ur árum er til vitnis um að jarðarbúar séu að
vakna til vitundar um vandann — en betur má
ef duga skal.
Einn þeirra sem látið hafa sig málið varða
er franski ljósmyndarinn Yann Arthus-Bertrand
sem hrundið hefur af stokkunum verkefninu
Jörðin úr lofti í samvinnu við Menningarmála-
stofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og ljós-
myndafyrirtækið Fujifilm. Markmiðið er að
vekja athygli jarðarbúa á ástandi heimkynna
þeirra þegar ný öld nálgast óðfluga. MiðiIIinn
er loftmyndir og hefur Arthus-Bertrand komið
víða við — nú síðast á íslandi.
„Ég lít ekki á mig sem listamann, heldur
vitni sem birtir almenningi staðreyndir," segir
þessi glaðbeitti ævintýramaður sem þykir einn
fremsti Ijósmyndari sinnar kynslóðar. „Vinnu-
brögð mín eru hlutlæg og í Jörðinni úr lofti
felst engin gagnrýni. Hugmyndin er einfaldlega
sú að draga upp raunsæja mynd af ástandi
jarðarinnar okkar í dag.“
Yann Arthus-Bertrand er fimmtugur að aldri.
Ferill hans sem ljósmyndara hófst fyrir tveimur
áratugum þegar hann dvaldist á náttúruvemd-
arsvæðunum í Kenýa, meðal annars við rann-
sóknir á hegðun ljóna. í kjölfarið sendi hann
frá sér sína fyrstu Ijósmyndabók, Ljón. Þar
með var akurinn plægður og Arthus-Bertrand
hefur starfað sem ljósmyndari síðan. Sérsvið
hans hafa verið náttúra, íþróttir og ævintýri.
Ef lirsóttur Ijósmyndari
Á undanfomum níu árum hefur Arthus-
Bertrand sérhæft sig í æ ríkari mæli í ljós-
myndatöku úr lofti og árið 1991 setti hann á
laggimar umboðsfyrirtækið Altitude. Hann er
í hópi eftirsóttustu ljósmyndara heims og með-
al aðila sem hann hefur starfað fyrir má nefna
Life, National Geographic, Elle, Paris-Match,
Oggi, Figaro Magazine og Stem.
Arthus-Bertrand hefur komið víða við og
meðal annars sent frá sér hátt á fjórða tug
bóka. Hann segir að ljósmyndarinn sé í sífellu
að leita að nýjum áskorunum og þegar hann
komi að ákveðnum punkti á ferlinum fari hann
að finna fyrir löngun til að gera eitthvað heild-
rænt — stórfenglegt.
Við slíkar kringumstæður kviknaði hugmynd-
in að Jörðinni úr lofti. „Ég gerði mér strax
grein fyrir því að þetta verkefni yrði afar stórt
í sniðum og ekki fyrir einstakling að hrinda í
framkvæmd. Ég leitaði því á náðir UNESCO
en það er einungis á færi alþjóðlegra samtaka,
með mikinn mannafla og háleit markmið á sviði
fræðslu og menntunar, að fjármagna verkefni
af þessari stærðargráðu. Þar var mér afar vel
tekið og upp frá því fór boltinn að rúlla,“ segir
Arthus-Bartrand.
Hann lét reyndar ekki þar við sitja heldur
kynnti hugmyndina jafnframt fyrir ljósmynda-
fyrirtækinu Fujifilm. Hlaut hún þar góðan
hljómgrunn og greiða þessir aðilar í sameiningu
götu hans. „í huga okkar hjá Fujifilm er Jörðin
úr lofti einkar áhugavert verkefni," segir Bret-
inn Peter Samwell, einn af höfuðpaurum Fuji-
film í Evrópu, sem var með í för til íslands.
„Okkur býðst oft að taka þátt í hinum ýmsu
verkefnum en látum sjaldan slag standa. En
þegar Yann viðraði sína hugmynd við okkur
fyrir tveimur árum sáum við strax að hún féll
nákvæmlega að hugmyndum okkar um um-
hverfísvemd. Sakir þess vorum við tilbúnir að
veita honum brautargengi og fylgjumst spennt-
ir með framvindu mála.“
Indverjar erf ióir
Arthus-Bertrand hefur lagt 25 lönd að baki
frá því hann fór fyrst í Ioftið árið 1995 og hefur
í hyggju að fljúga yfir öll lönd sem sýna verkefn-
inu áhuga. Landsvæði eru valin með það fyrir
augum að þau dragi upp raunsæja mynd af
umhverfinu. Æskilegt er að þau taki til sem
flestra náttúrulegra og mannlegra fyrirbæra,
þannig að þau endurspegli hina lífrænu breidd
jarðar, auk hugsanlegrar víxlverkunar manns
og náttúru.
Suma staðina — og jafnvel heilu löndin —
hefur Arthus-Bertrand verið fyrstur til að
mynda úr Iofti, nefnir hann í því samhengi
Sádí-Arabíu. En þótt flest ríki hafí verið boðin
og búin til að liðsinna honum hefur hugmyndin
ekki alls staðar fallið í frjóa jörð, má þar nefna
Kína og Indland. En til þessa hafa stjórnvöld
þar um slóðir skellt skollaeyrum við beiðni ljós-
myndarans. „Á þessu stigi málsins bind ég
vonir við að Kínverjar eigi eftir að skipta um
skoðun enda er ég kominn með góð sambönd
þar. Indverjar eiga hins vegar eftir að reynast
mér erfiður ljár í þúfu.“
En á ljósmyndarinn sér eitthvert uppáhalds-
land? „Nei, ekki beinlínis. Landið sem ég er að
mynda hverju sinni er alltaf í mestu uppáhaldi
og um þessar mundir er það ísland. Óll lönd
hafa sín sérkenni — ljót lönd eru ekki til, svo
mikið hef ég lært.“
Arthus-Bertrand ber íslandi vel söguna og
segir að landslagið hér um slóðir hafi komið sér
í opna skjöldu — það sé með því stórbrotnara
sem hann hafi augum litið. „ísland er feikilega
svipmikið og fallegt land og mér finnst eins og
ég sé staddur í vöggu veraldar. Ég er því stað-
ráðinn í að snúa fljótt aftur, helst um það leyti
sem fyrstu snjóar falla í haust. Þá hefði ég
ekkert á móti því að fylgjast með réttum úr
lofti.“
Ljósmyndarinn segir veðrið jafnframt hafa
komið sér á óvart. „Þegar ljóst var að ég myndi
fara til íslands dæsti ég, þar sem ég hélt að
ég yrði að bíða dögum saman eftir sólarglætu,
en eðli málsins samkvæmt þarf ég á mikilli
birtu að halda við vinnu mína, en mér til mikill-
ar undrunar hefur vart dregið fyrir sólu meðan
á dvöl minni hefur staðið.
Síðan hef ég veitt því athygli að íslenskt
kvenfólk er afskaplega fallegt, þótt ég sé vita-
skuld orðinn alltof gamall til að spá í það!
Francoise hefur á hinn bóginn orðið fyrir von-
brigðum með karlpeninginn," segir Ijósmynd-
arinn og á þar við aðstoðarmann sinn sem bað-
ar út öllum öngum í mótmælaskyni. „Ég mynd-
aði mér þá skoðun áður en ég hitti ykkur,“
fullyrðir hún og beinir orðum sínum til blaða-
manns og Ijósmyndara Morgunblaðsins. Una
þeir sáttir við þá skýringu.
KókogCNN
Umboðsaðilar Fujifilm hafa jafnan verið
Arthus-Bertrand innan handar á ferðum hans
um heiminn en ljósmyndarinn leggur áherslu
á að skilvirk aðstoð geti skipt sköpum fyrir
sig. í því samhengi segir hann starfsmenn
Ljósmyndavara, sem er umboðsaðili Fujifilm á
Islandi, hafa staðið fyllilega undir væntingum.
Þar á bæ hafi menn verið boðnir og búnir til
að leggja sitt af mörkum.
Sagt hefur verið að heimurinn fari sífellt
minnkandi á tækniöld og undir það tekur Art-
hus-Bertrand í ljósi reynslu sinnar af ferðalög-
um tengdum Jörðinni úr lofti. „Ég var nýverið
á Amazon-svæðinu og þótt það sé í órafjar-
lægð frá Íslandi hef ég á báðum stöðum rekist
á menn við sömu iðju, að sötra kók og horfa
á CNN.“
Fyrirhugað er að tökum ljúki árið 2000, þó
svo Peter Samwell útiloki ekki að verkefnið
geti teygt anga sína inn á næstu öld. Á þess-
ari stundu er óljóst með hvaða hætti Jörðin
úr lofti verður kynnt en líkur eru á að gefin
verði út flokkur listrænna bóka sem jafnframt
munu hafa fræðslugildi. Mun þeim vera ætlað
að sýna þróun jarðar í hlutlægu Ijósi. Jafn-
framt er stefnt að því að efna til sýningar á
markverðustu myndunum í helstu borgum
heims áður en árið 2000 gengur í garð. Þá
verður viðamiklum gagnabanka komið upp,
sem leikir og lærðir, þeirra á meðal vísinda-
menn á vegum UNESCO, geta stuðst við á
komandi áratugum.
Jörðin úr lofti hefur farið vel af stað en ljóst
má vera að Arthus-Bertrand á engu að síður
ærið starf fyrir höndum. „Ég er afar stoltur
af þessu verkefni sem er hugsanlega verkefni
lífs míns. Ég vil því kosta kapps um að ná
eins góðum árangri og unnt er og þess vegna
mun ég gefa mér góðan tíma til að leysa það
af hendi. Hafi maðurinn einhvem tíma verið
í aðstöðu til að breyta heiminum er það nú, á
tækniöld — og ég er fullviss um að verkefni
á borð við Jörðina úr lofti getur átt eftir að
hafa verulegt gildi í framtíðinni."
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. ÁGÚST 1996