Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1996, Page 8
Roberto Matta er eini eft-
irlifandi meistari súrreal-
istahópsins en hann er
fæddur í Chile órió 1911.
Þrótt fyrir hóan aldur er
hann hins vegar síungur í
list sinni og heldur ófram
aó reyng ó þanþol henn-
gr. ÞRÖSTUR HELGASON
ræddi við Alain Sayag
sem hefur valió verk ó
sýningu sem Matta opnar
ó Kjarvalsstöóum í dag.
Sayag, sem er safnvöróur
vió Pompidou-safnió í
París, segir fró markmió-
um listar Matta, súrrealis-
manum, samvinnu Matta
og Errós og verkunum ó
sýningunni.
LISTAMENN eru alltaf að glíma við
sama vandamálið," segir Alain Say-
ag sýningarstjóri, „að endurskapa
heiminn. Maðurinn er mótaður af
tímanum og rúminu sem hann lifir
í en hann mótar þau einnig. Við
skynjum heiminn á mismunandi
hátt; ég sé hann ekki sömu augum
og þú — eða flugan hérna í gluggakistunni.
Skynjunin skapar. Þess vegna eru iistaverkin
eins og litlir gluggar á landslaginu í kringum
okkur, gluggar þar sem við fáum að líta nýja
heima. Ut á þetta gengur listin, að færa okkur
GLUGGAR UTINYJA H
„SEGJA má að meginmarkmið Matta hafi verið að draga upp mynd af þessum nýja og tæknivædda heimi sem hann hefur alltaf
haft óbeit á,“ segir Alain Sayag sem stýrir sýningu á verkum súrrealistans, Roberto Matta, sem er opnuð á Kjarvalsstöðum í dag.
nýja heima, heiminn í nýju ljósi; út á þetta geng-
ur súrrealisminn og út á þetta gengur list Ro-
bertos Matta.“
Myndir af nýjum heimi
Roberto Matta er eini eftirlifandi meistari
súrrealistahópsins. Verk hans eru til sýnis í öllum
helstu listasöfnum heims, auk þess sem verk
hans, myndir og textar hafa verið gefin út í Qölda
bóka í gegnum tíðina. Matta fæddist í Chile
árið 1911 en fluttist til Evrópu árið 1930 eftir
að hafa stundað nám í arkitektúr. Hann komst
fljótlega í kynni við myndlistarmanninn Magritte
og fékk vinnu á teiknistofu Le Corbusier. Það
er hins vegar ekki fyrr en árið 1937 að Matta
byijar að mála. Myndir hans vekja strax at-
hygli listamanna á borð við Dalí, Picassó og
André Breton, forsprakka súrrealistahópsins
sem Matta fær inngöngu í þetta sama ár. Matta
dvaldi í Bandaríkjunum alla seinni heimsstyijöld-
ina. Árið 1948 var hann rekinn úr súrrealista-
hópnum og fluttist þá aftur til Evrópu þar sem
hann tók virkan þátt í andófí gegn „mannskemm-
andi iðnaðarsamfélagi samtímans“.
„Segja má að meginmarkmið Matta hafi ver-
ið að draga upp mynd af þessum nýja og tækniv-
ædda heimi sem hann hefur alltaf haft óbeit á,“
segir Sayag. „Hann vill opna augu fólks fyrir
þessum heimi, sýna hliðar á honum sem það
vissi ekki að væru til. Og honum tókst það. I
verkum hans birtist ný tilfinning fyrir heiminum,
í þeim skynjar maður tímann og rúmið sem við
lifum í á nýjan og nýjan hátt.“
Hrein sjálfvirkni
Súrrealistar snerust gegn vitsmunalegu við-
horfí til listsköpunar og leituðust við að tjá það
sem dulvitundin hafði að geyma. í stefnuyfirlýs-
ingu súrrealismans árið 1924 skilgreinir André
Breton súrrealismann sem „hreina sjálfvirkni
þar sem gerandinn tjáir, í orðum eða á annan
hátt, virkni hugsunarinnar. Súrrealisminn er
hugsanafiæði utan við skynsemi og dómgreind,
utan við fagurfræðilega og móralska afskipta-
semi“. Kannski var Matta rekinn úr hreyfing-
unni vegna þess að hann fór að taka afstöðu
til samfélagsmála í æ ríkari mæli eftir seinna
stríð. Sífelld óeining virðist raunar hafa ríkt inn-
an hópsins.
Sayag segir það ekki mikilvægt hvers vegna
Matta var rekinn úr hópnum. „Menn voru mis-
lengi í honum og Matta aðeins í tíu ár. Það sem
skiptir máli eru þau áhrif sem súrrealisminn
hafði á myndlistina, sá nýi heimur sem hann
leiddi okkur fyrir sjónir. Og eins og áður sagði
er þetta enn þá markmið Matta. Hann er enn
þá ungur þrátt fyrir háan aldur, hann er ungur
eins og Iistamenn eru yfirleitt. Hann er sífellt
að reyna á þanþol listarinnar. Þetta ætti ekki
að fara fram hjá neinum sem sækir sýninguna
hér á Kjarvalsstöðum."
Samstarf vió Erró
* Matta hefur löngum haft yndi af því að vera
í sainbandi við yngri listamenn og þaðan sækir
hann ef til vill kraft sinn. Á sjötta áratugnum
kynntist hann Erró sem þá var nýkominn til
Parísar. Þeir unnu saman nokkrar myndaraðir
þar sem þeir skiptast á að teikna upp myndbygg-
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. SEPTEMBER 1996