Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1996, Page 10
BRYNHILDUR Þorgeirsdóttir
myndhöggvari og list hennar
er viðfangsefni Sjónþings
Menningarmiðstöðvarinnar
Gerðubergs á sunnudaginn.
Brynhildur ræðir um sjálfa sig
og list sína og sýndar verða
ljtskyggnur úr lífi hennar og
istarfí. Auður Ólafsdóttir listfræðingur og
Svava Bjömsdóttir myndhöggvari beina spurn-
ingum til Brynhildar og áheyrendur eiga þess
einnig kost að spyija. Það er yfirlýstur tilgang-
ur Sjónþinganna að veita innsýn í feril þekktra
íslenskra samtímalistamanna með því að skoða
á ný og meta framlag þeirra og rifja upp liðið.
„Þetta er uppruninn," segir Brynhildur Þor-
geirsdóttir þegar myndum af foreldrum hennar
og Hrafnkelsstöðum í Hrunamannahreppi, er
brugðið upp á tjald, en þar fæddist hún 1.
maí 1955. „Ég er af Reykja- og Tungufells-
ætt, alin upp á Hrafnkelsstöðum."
Af fimm systkinum tengjast þrjú myndlist
með einhveijum hætti. í bamaskólanum á
í’lúðum hafði Biynhildur heppnina með sér því
að þar kenndi henni teikningu Heiga Þorsteins-
dóttir. Hún fór í Myndlista- og handíðaskólann
í Reykjavík vegna þess að móðir hennar vildi
að hún yrði teiknikennari og útskrifaðist þaðan
1978. I skólanum „útskýrði Bragi Ásgeirsson
allt“ og þar var líka Hildur Hákonardóttir.
Fleiri kennarar áttu eftir að skipta máli fyrir
Brynhildi, meðal þeirra Marvin Lipofsky í
Kalifomíu („spurning hvort hann var heill á
geðsmunum") og Svíinn Bertil Valinse í Was-
hington.
GADDARNIR
UPPREISNIN
OG MÝKTIN
Brynhildur Þorgeirsdóttir er talin hafg brotió blaó
í íslenskri höggmyndalist. Hún hefur lagt á sig
strangt nám og mikla vinnu til aö ná tilætluóum
árangri. JQHANN HJALMARSSON forvitnaóist um
feril Brynhildar í tilefni Sjónþings um hana og verk
hennar í Geróubergi á morgun.
Morgunblaóið/Kristinn
(ÉG ER orðin leið á frekjuímyndinni. Ég er meinlaus sveitastúlka", segir Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari. Með henni
á myndinni eru Auður Ólafsdóttir listfræðingur og Svava Björnsdóttir myndhöggvari
Frosin augnablik — töf rasteinninn
Meðan á skyggnimyndasýningunni stendur
rifjar Brynhildur upp ýmislegt frá ferlinum og
gerir sínar athugasemdir þótt þær séu ekki
allar í réttri tímaröð hér: „Lipofsky vildi ekki
sjá nemendavinnu og krafðist þess af okkur
að við ynnum tíu tíma á dag — hann var ekki
alslæmur.“ „Ég vann með rúðugler, gerði ljóð-
ræn verk, frosin augnablik." „Gler er háð tak-
mörkunum." „í lok fyrsta árs var komin upp-
reisn — blóð í galleríinu, þó ekki alvörublóð —
braut upp verkið, rís upp á lappirnar og geng
út úr salnum." „Ég sný verkinu við og verurn-
ar koma í ljós — verður að vera gaman að
þessu." „Þarna fann ég loksins eitthvað (um
ferð á slóðir Inka í Perú 1982), sandsteypt
gler sem ég hef notað síðan.“ „Flyt til Is-
lands, fann húsnæði við Hringbraut — Gull-
ströndin andar.“ „Fólk úr gifsi og litadufti.
Ekki manneskjur heldur einstaklingar (Korp-
úlfsstaðir 1984).“ „Drengirnir í Oxsmá — Stúd-
entaleikhús, umbreyttum Tjarnarbíói í geim-
stöð — Oxsmá var að mestu hljómsveit.“ „Svart
og sykurlaust — skrýmsli í Laugardalshöll —
atriði úr lífi Loðvíks fjórtánda á götum borgar-
innar — lífið komið úr böndunum.“ „New York
1984-1990 — Brooklyn, gat séð lestina fara
framhjá meðan beðið var eftir að sjónvarpið
jafnaði sig eftir titringinn. Þetta var verk-
smiðjuhverfi, en þar voru þijú gallerí engu að
síður. Var viðloðandi glerverkstæði allan tím-
ann. Lifði af byggingavinnu, við að gera upp
íbúðir." „Hefðarkona — síðan riddarasería,
riddarar fyrir áhrif frá amerískri bílamenn-
ingu, riddarar í pússaðri steinsteypu.“ „Korp-
úlfsstaðir" 87 — steypa og gler — Hún, rosa-
lega íslensk — gerði mér ekki grein fyrir því
— skrifaði Max Schmidt ljósmyndara og bað
hann að senda mér myndir af klaka, fer að
skoða ísland — lofa hlutum að taka völdin
þegar maður fer að þekkja þá. Hraunið form-
ast í hita og af fyrirstöðunni. Hervör víking-
ur, góð í að kveða niður drauga, með sverðið
Tyrfing." „1990. Sýning í New York í óklár-
uðu húsnæði. Landslagsmynd, steinar, klettar
og fjöll — vinnuaðstaða í New Jersey — sendi-
bíll fullur af gleri — bæjarfjall, farin að búa
til íslenska sveitabæinn." „Bjó fyrst á Korpúlfs-
stöðum — Myndhöggvarafélagið mikilvægur
þáttur — Kjarvalsstaðir yfirlitssýning innan
við fertugt." „Hún númer 2, 122 cm á hæð —
í Listasafninu í Gautaborg — Peter, latneskt,
steinn — peter og steindraugurinn, svart gler
með kopar, ijall — steinn frá 1992 úr litaðri
steypu — smávaxnir steinar — þetta er töfra-
steinninn." „1991 listahátíð í Straumi, langar
að fá tækifæri til að búa til útiverk — 1992
sex mánuðir í Sveaborg, fannst ég ameríkanis-
eruð, en aldrei leiðst eins og mikið og á þess-
ari fornminjasafnseyju Sveaborg. Eina góða
fallegu húsin í Helsingfors með múrhúðinni,
gekk um og skoðaði þau.“ „93 Nýlistasafn,
einkasýningin Strandhögg." „Kufungar, kuf-
ungamaðurinn — græna kristalsdrottningin —
tveir demantslagaðir steinar — Skúlptúr,
skúlptúr, skúlptúr — Listahátíð í Reykjavík —
Listasumar á Akureyri, „minnisvarðar um
framtíðina" á Akureyri— félagsmál, Mynd-
höggvarafélagið, stéttvís, það er til vandræða
hversu stéttvís ég er.“ „Starfslaun Reykjavík-
urborgar í þijú ár 1993 — í fyrra í Kjarvals-
stofu í París — Toppurinn Japan, boðið til
eyjarinnar Niijima, þar eru haldnar alþjóðlegar
glerlistahátíðir og einum erlendum listamanni
boðið — vann beint í náttúrlegan stein, vinn
fyrst í steininn, bý til mót og steypi síðan stein-
inn, þijú stykki skilin eftir í Niijima.“
Ekki lengur herská
í spjalli við Brynhildi og spyrla hennar, þær
Auði Ólafsdóttur og Svövu Björnsdóttur og
einnig Hannes Sigurðsson listfræðing, skipu-
leggjanda Sjónþinganna, er farið vítt og breitt
um ferilinn. Allir eru sammála um að sýningin
Gullströndin andar í JL-húsinu 1983 hafi verið
tímamótasýning. Tímamótin hafi kannski verið
meira áberandi í málverkinu, en Brynhildur
hafi komið með nýja vídd inn í skúlptúrinn.
Svava talar um sterk persónuleg einkenni.
Auður um innhverft og úthverft og að uppsetn-
ing verkanna skipti miklu máli.
Svava segir um verk Brynhildar að þau séu
soldið eins og leikhúsið, undraheimur og Bryn-
hildur bætir við: „Það er alltaf eitthvað í gangi,
umræður á milli para, hópar.“ Hannes telur það
forvitnilegt að sjá heildarþróunina og kynnast
persónunni Brynhildi, verk hennar geti verið
pönkuð vegna þess hve árásargjöm þau séu á
vissu tímabili, en síðan komi mýkra skeið.
Þetta gefur Brynhildi tilefni til að svara því
hvort hún sé herská: „Fólk var svo hrætt við
mig, enginn viidi tala við mann. Ennþá er fólk
með skelfingarglampa í augum eins og ég sé
alltaf að æsa mig.“ Brynhildur segist vera
orðin leið á frekjuímyndinni. „Ég er sveita-
stúlka. Þótt glerbroddar séu í myndunum eru
þeir meinlausir eins og ég sjálf.“
Auður ræðir um broddana í verkunum og
ljóðrænuna þrátt fyrir allt. Hún segir að Bryn-
hildur storki umhverfínu á hveijum stað. Ekki
séu broddar í verkunum frá Brooklyn, þeirra
sé ekki þörf þar. Brynhildur játar að hún hafi
skorið sig á broddunum, en þegar eitthvað
brotnar þá hrekkur hún ekki við lengur.
Allt eru þetta klisjur
Hannes talar um að ísland sé komið inn í
myndina. Auður segir að höggva megi á þá
klisju sem náttúra og landslag sé. Svava orðar
það þannig að Brynhildur hafi drukkið í sig
landið og sveitina í uppvextinum. Brynhildur
svarar „Þetta er hálfgerður spuni. Það er mikil-
vægt að koma sér í burtu, en nú fer maður
bara í vinnuferðir. Ég varð fyrir áhrifum í
Japan sem ég vinn úr í vetur. Þetta er eðlilegt."
Brynhildur er spurð um áhrifavalda og nefn-
ir nöfn listamanna sem hún hefur haft gaman
af, „en það sem þessir menn eru að gera hef-
ur ekkert að gera með það sem ég er að gera.“
Hannes segir að list Brynhildar sé líka við-
horf og lífsstíil hennar. Þetta kallar á viðbrögð
hjá henni. Hún segist vera mjög jákvæð, en
listamenn kvarti yfirleitt og kveini. „Ég get
allt sem ég vil og ég fæ allt sem ég vil,“ seg-
ir hún einbeitt en glettin og kemur með mild-
ari útgáfu fullyrðingarinnar: „Þetta hefst allt,
það sem þú ætlar þér að gera.“
Svava segir að frumorkan í Brynhildi sé
ofsaleg. Auður fer inn á feminískar brautir,
„leiðinlegan blett á íslensku samfélagi“ sem
sé sá að fólk verði helst að tilheyra kjarnafjöl-
skyldunni. „Það hefur aldrei þvælst fyir mér
að vera kona,“ segir Brynhildur.
Auður minnir á umsögn Guðbergs Bergsson-
ar um sýningu Brynhildar, en hann taldi verk-
in mjög kvenleg en unnin í karlmannleg efni.
Svava segir að verkin séu mjög kvenleg, gætu
ekki verið eftir karlmann.
Brynhildur segir þegar komið er að kynlífs-
hyggju verkanna að allt sé fullt af „inn og
út dæmum“, til dæmis kufungamyndirnar.
„Löngu uggaverkin blandast allavega, eru
bæði karllæg og kvenlæg", segir Auður. Svava
minnir á húmorinn í öllu eftir Brynhildi, lífs-
gleðina, og Brynhildur víkur enn að því að
hafa lífið skemmtilegt, „þetta er svo skemmti-
legt,“ segir hún brosandi.
Svava er með hugann við verk eftir Bryn-
hildi sem „geta ekki staðið og alls ekki geng-
ið, viðkvæm en sterk í sjálfum sér“. Hannes
segir að orða megi þróunina hjá Brynhildi
þannig að hún hafi dregið inn gaddana, sé
orðin meðvituð um landslagið, ekki síst vegna
áhrifa ljósmynda. Portrettin sem sýnd verði á
Sjónarhóli séu til að mynda ekki venjuleg port-
rett. Um það atriði segir Brynhildur að þetta
séu portrett af einstaklingum: „Það er allt lif-
andi hér á íslandi, hver steinn er álfasteinn,
já, líf í öllu landslagi." Hún afneitar ekki til-
vist álfa.
Hver er sérstaða Brynhildar?
Það er velt vöngum um listfræðileg efni,
talað um fjölbreyttan efnivið Brynhildar, járn,
sílíkon, steypu, hrosshár, sand og gler, vakn-
ingu í skúlptúr þar sem hún er fyrst með „nýj-
an andblæ“ kringum 1980-83. „Ég er bara
gamaldags styttugerðarkona," andmælir Bryn-
hildur.
Svava hefur margt að segja um tíma grósku
í þrívíddarverkum og innsetningum, síðan komi
nýja málverkið aftur, nýi skúlptúrinn. Á átt-
unda áratugnum varð sprenging sem jók fjöl-
breytnina í listum. „Áhorfandinn fer að vera
virkur," bætir Auður við.
„Þetta er allt klisja," segir Brynhildur þegar
blaðamaður fer að tala um klisjur og í klisjum,
um áhrif landsins og sveitarinnar og eins kon-
ar heimkomu Brynhildar í listinni, það sem
hún á sameiginlegt með öðrum listamönnum
sem þroskast með aldrinum. Sú klisja getur
þá gengið eins og aðrar.
Auk frumorkunnar sem býr í Brynhildi, ein-
hver kraftur sem er einkennandi fyrir hana,
er talað um dugnað hennar. Brynhildur þakkar
þetta sveitinni þar sem allir urðu að fara út
að vinna. Kannski er kvenfólk duglegra en
karlmenn. „Allt kvenfólk sem ég þekki er dug-
legra en eiginmenn þeirra," segir Auður mjög
sannfærandi. Brynhildur á hvorki eiginmann
né börn, en hefur eignast átta eðá níu lista-
börn á þessu ári að eigin sögn. Er hægt að
komast langt á íslandi? Nei. „Hér verður mað-
ur ekki frægur og ríkur.“
Brynhildur segist aldrei hafa skilið setning-
una: Ég hef ekki efni á að eiga vinnustofu.
„Ég var í myndlistamámi í sjö ár og manni
var kennt að haga sér eins og alvöru listamað-
ur; ég hef rétt til að gera það sem ég vil.“
Sjónþingið í Gerðubergi hefst kl. 14 á sunnu-
daginn. Aðgangseyrir er 300 kr. Á fyrstu og
annarri hæð Gerðubergs verða eldri verk Bryn-
hildar til sýnis. Sýning með nýjum verkum á
Sjónarhóli, Hverfísgötu 12, hefst kl. 17 að
loknu Sjónþingi.
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. SEPTEMBER 1996