Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1996, Page 16
4
ASOMU
BRAUT
Starfsár Sinfóníuhljómsveitar Islands hefst með
uppákomum í Kringlunni í dag kl. 12.30 og 13.30.
Upphafstónleikarnir verða síðan í næstu viku og í
kjölfarió kemur fjölbreytt dagskrá, eins og ORRI
PALL ORMARSSON komst að raun um þegar hann
sötraði morgunkaffi með Runólfi Birgi Leifssyni fram-
kvæmdastjóra hljómsveitarinnar og Helgu Hauks-
dóttur tónleikastjóra.
Morgunblaóió/RAX
VETURINN leggst vel í Runólf Birgi Leifsson og Helgu Hauksdóttur framkvæmda-
og tónleikastjóra SÍ en dagskrá vetrarins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár.
STARFSARIÐ 1995-96 var eitt
hið glæsilegasta í sögu Sinfó-
níuhljómsveitar íslands. Fóru
þar saman vel sóttir tónleikar
hér heima og árangursríkar
tónleikaferðir til Bandaríkj-
anna og Danmerkur. Alls sáu
tæplega 58.000 manns hljóm-
' sveitina leika, þar af um 13.000 í Bandaríkj-
unum, eða fleiri en nokkru sinni fyrr og óhætt
er að fullyrða að fáar, ef nokkrar, hljómsveitir
frá borgum af sömu stærðargráðu og Reykja-
vík standi henni á sporði að þessu leyti. List-
rænn sigur vannst í Camegie Hall í New York,
ef marka má ummæli tónlistargagnrýnenda,
og þar með hefur vel heppnaðri geislaplötuút-
gáfu í samvinnu við BIS og Chandos verið
fylgt eftir. Og nú hefur samningur við eitt
stærsta útgáfufyrirtæki heims, Naxos, verið
undirritaður. Skyldi því engan undra að vetur-
inn leggist vel í Runólf Birgi Leifsson fram-
kvæmdastjóra og Helgu Hauksdóttur tónleika-
stjóra.
Segja þau að dagskrá vetrarins verði með
svipuðu sniði og undanfarin ár. Tónleikaraðirn-
ar hafi verið vel heppnaðar og ærin ástæða
sé til að halda áfram á sömu braut — og gera
jafnvel enn betur. Umfangsmestu raðirnar, sú
gula, sú rauða og sú græna, verða með sömu
áherslum og fyrr, en sú bláa tekur róttækum
breytingum — verður í vetur helguð tónlistar-
kynningu í víðum skilningi, þar sem tónskáld,
tónverk og hljómsveitin sjálf verða í brenni-
depli. Verður efnisskráin unnin í samvinnu við
Jónas Ingimundarson, sem jafnframt verður
kynnir.
Á liðnu starfsári var tekin upp sú nýbreytni
að beina sérstakri athygli að einu íslensku
tónskáldi. Verður sami háttur hafður á í vetur
og hefur Jón Nordal orðið fyrir valinu. Eftir
hann verða flutt þijú tónverk, Cellokonsert,
Bjarkamál og Leiðsla. Spanna þau tæpa þtjá
áratugi á tónskáldaferli Jóns, það elsta, Bjarka-
mál, var samið 1956_í tilefni af komu Friðriks
IX Danakonungs til íslands, Leiðsla var samið
árið 1973 fyrir hljómsveitina Harmonien í
Bergen en Cellokonsertinn rekur lestina, var
saminn 1983.
Þá tengist árið 1997 nafni tveggja höfuðtón-
skálda, sem eru Franz Schubert og Johannes
Brahms. Sá fyrrnefndi var fæddur árið 1797
en sá síðarnefndi andaðist öld síðar. Segir
Helga að efnisskrá Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands mun taka mið af þessum tímamótum á
þessu starfsári og því næsta.
Áskriftartónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands er skipt niður í Ijórar tónleikaraðir. Til-
gangurinn með því fyrirkomulagi er, að sögn
'Helgu, einkum sá að gefa áskrifendum færi á
að velja úr fjölbreytilegu verkefnavali hljóm-
sveitarinnar. Raðirnar eru nefndar eftir litum
regnbogans og minna þannig á að SÍ leitast
við að flytja áheyrendum sínum allt litasvið
tónbókmenntanna, segir Helga ennfremur.
Gula tónleikuröóin
Gula tónleikaröðin byggist á voldugum
hljómsveitarverkum og einleiksverkum þar sem
íslenskir einleikarar og söngvarar eru í aðal-
hlutverki. Verða sex tónleikar í þessari röð í
vetur. Tveir íslenskir einleikskonsertar munu
heyrast í fyrsta sinn í Reykjavík, Kiarinettkon-
rsert eftir Karólínu Eiríksdóttur og Píanókon-
sert eftir Snorra Sigfús Birgisson, en hann
mun jafnframt koma fram sjálfur sem einleik-
ari. Konsert Snorra verður frumfluttur á Akur-
eyri í ársbyijun 1997. Á tónleikum 5. desem-
ber mun konsertmeistari Sl, Guðný Guðmunds-
dóttir, flytja fiðlukonsert eftir Benjamin Britt-
en, en hann hefur ekki í annan tíma verið leik-
inn á tónleikum hér á landi. Af hljómsveitar-
verkum í gulu röðinni má nefna tónverk Ric-
hards Strauss, Svo mælti Zaraþústra, en það
krefst stærri hljómsveitar en venjulega er stillt
upp á sviði Háskólabíós. Auk þess munu hljóma
sinfóníur eftir Beethoven, Brahms, Bruckner,
Schumann og Tsjækovskíj. Hljómsveitarstjórar
í guiu röðinni koma víða að, en þrír þeirra
hafa stjórnað SÍ áður, Daninn Thomas
Dausgárd, Sidney Hart frá Bandaríkjunum og
Pólveijinn Antoni Wit. Aðrir hljómsveitarstjór-
ar verða Lani Shui, Robert Henderson og Petri
Sakari.
Rauóa tónleikaröóin
Sex tónleikar verða jafnframt í rauðu röð-
inni, þar sem lögð er áhersla á að fá til liðs
við hljómsveitina heimsþekkta erlenda einleik-
ara. Fyrstu áskriftartónleikar ársins eru í þess-
ari röð. Þá mun Erling Blöndal Bengtson leika
Cellokonsert Jóns Nordals, en i ár eru liðin
50 ár frá því Erling hélt sína fyrstu tónleika
hér á landi í Gamla bíói. Tónleikarnir verða
endurteknir á ísafirði. Trio Nordica mun fljtja
Þríleikskonsert eftir Beethoven, auk þess sem
tveir píanósnillingar eru væntanlegir á tónleika
rauðu raðarinnar, Rússarnir Andrei Gavrilov
og Dmitri Alexeev, sem leika mun Píanókon-
sert nr. 1 eftir Brahms. Þá kemur skoski slag-
verksleikarinn Evelyn Glennie á ný til landsins
í mars og mun flytja verk landa síns, James
McMillan, Veni, veni Emmanuel, sem farið
hefur sigurför um heiminn að undanfömu með
Glennie í broddi fylkingar. Á síðustu tónleikum
rauðu raðarinnar sameina krafta sína Áshildur
Haraldsdóttir flautuleikari og Anne Manson
hljómsveitarstjóri, sem stjórnaði SI fyrst
kvenna fyrir tveimur árum. Áðrir hljómsveitar-
stjórar raðarinnar eru Giora Bernstein frá
Bandaríkjunum, Bretinn Adrian I^eaper, Jerzy
Maksymiuk og Petri Sakari.
Græna tónleikaröðin
í grænu röðinni er flutt aðgengileg og vin-
sæl sígild tónlist og í vetur tilheyra femir tón-
leikar þeim flokki. Hinir fyrstu bera yfirskrift-
ina Boðið upp í dans og munu SÍ og Listdans-
skóli íslands koma þar fram undir stjórn rúss-
neska hljómsveitarstjórans Nicholas Uljanovs.
Vínartónleikarnir vinsælu eru jafnframt innan
ramma grænu raðarinnar og er ætlunin að
halda ferna tónleika í ár, þar af þrenna í
Reykjavík og eina á landsbyggðinni. Stjórn-
andi á tónleikunum verður Páll Pampichler
Pálsson og eipsöngvarar Rannveig Fríða
Bragadóttir og Ólafur Ámi Bjarnason. 6. mars
mun Bemharður Wilkinson í fyrsta sinn stjórna
áskriftartónleikum, en þá koma Gerður Gunn-
arsdóttir fiðluleikari og Hávarður Tryggvason
kontrabassaleikari jafnframt í fyrsta sinn fram
sem einleikarar með SÍ. Á lokatónleikum
grænu raðarinnar verða endurnýjuð kynni við
hinn fjölhæfa listamann Wayne Marshall, en
hann kemur jöfnum höndum fram sem píanó-
leikari, orgelleikari og hljómsveitarstjóri. Með
honum í för verða söngvararnir Kim Criswell
og Brent Barrett, en efnisskráin mun saman-
standa af lögum úr þekktum söngleikjum. í
fyrra seldist áskrift að grænu röðinni upp.
Bláa lónleikaröóin
Bláa röðin hefur tekið stakkaskiptum í gegn-
um tíðina. Upphaflega var hún vettvangur nýrri
tónsmíða, þá var hún röð kirkjutónleika en nú
á að byggja á kynntum tónleikum í víðum skiln-
ingi undir yfirskriftinni Skemmtun - fræðsla -
upplifun. Efnisskrá tónleikanna er unnin í ná-
inni samvinnu við Jónas Ingimundarson píanó-
leikara sem jafnframt verður kynnir þeirra.
Ekki er ætlunin að upplýsa efnisskrá hverra
tónleika fyrirfram en til að svala forvitni tón-
leikagesta má geta þess að meðal verka sem
flutt verða í bláu röðinni eru sinfónía Dvoráks,
Frá nýja heiminum, Boléro eftir Ravel og Geys-
ir Jóns Leifs. Þrennir tónleikar verða í röðinni
og verður þeim stjómað af Lev Markiz, Stefan
Sanderling og Keri Lynn Wilson.
Aukalónleikar
Efnt verður til nokkurra aukatónleika á
starfsárinu og eru þeir af ýmsum toga. Fyrst
ber að nefna Upphafstónleikana, hátíðartón-
leika í byijun starfárs. Verða þeir þrennir að
þessu sinni, 12.-14. september, og verður tón-
sprotinn í höndum Japanans Takuo Yuasa en
einleikarar Hafsteinn Guðmundsson og Rúnar
Vilbergsson fagottleikarar. Norrænir músíkdag-
ar verða haldnir í lok september og af því til-
efni mun Sinfóníuhljómsveitin leika á tvennum
tónleikum undir stjórn Anne Manson. Tónvak-
inn, tónleikar í samvinnu við RÚV, verða í
október og jólatónleikar SÍ verða að þessu sinni
haidnir í Langholtskirkju. Hljómsveitarstjóri
verður GuiIIermo Figueroa, sem einnig mun
leika einleik á fiðlu í árstíðum Vivaldis. Tónleik-
ar með útskriftarnemum tónlistarskóla er hefð-
bundið viðfangsefni í febrúar og næstkomandi
vor mun hljómsveitin taka þátt í Kirkjulistaviku
í Akureyrarkirkju og Kirkjulistahátíð í Reykja-
vík en síðar eru fyrirhugaðir sameiginlegir tón-
leikar SÍ og Sinfóníuhljómsyeitar Norðurlands
undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.
Starfsárinu lýkur á tónleikum með hinum ást-
sæla söngvara Kristni Sigmundssyni í júní, þar
sem fluttar verða óperuaríur.
Enn eru ótaldir tónleikar sem SÍ heldur fyr-
ir æsku landsins. Fyrst ber að nefna Tónlist
fyrir alla, sem eru skóla- og almennir tónleik-
ar sem hljómsveitin heldur í samvinnu við
nokkur bæjarfélög. Þá eru tónleikar sérstak-
lega skipulagðir fyrir elstu bekki leikskóla og
yngri bekki grunnskóla. í ár mun Guðni Franz-
son bera hitann og þungann af þeim tónleik-
um. Einnig verða tónleikar fyrir eldri nema
grunnskóla svo og framhaldsskóla. í desember
mun hljómsveitin síðan skipta liði og heim-
sækja sjúkrahús og stofnanir.
Samningur vió Naxos
Af öðrum verkefnum Sinfóníuhljómsveitar
íslands á starfsárinu 1996-97 ber geislaplötu-
upptökur hátt. Fyrr á þessu ári undirritaði
hljómsveitin samning við hljómplötufyrirtækið
Naxos, sem er eitt hið stærsta sinnar tegundar
í heiminum. Fyrsta kastið mun SÍ hljóðrita
mörg af þekktustu hljómsveitarverkum Jean
Sibelius, til dæmis allar sinfóníur hans. Segir
Runólfur Birgir þar um að ræða mjög ögrandi
og spennandi verkefni. „Hljóðritanir sem þess-
ar eru mjög þýðingarmiklar fyrir hljómsveit-
ina, því með þeim fær hún alþjóðlegan saman-
burð og kynningu. í framtíðinni er gert ráð
fyrir að hljóðrita íslenska tónlist fyrir Naxos
og Marco Polo, dótturfyrirtæki þess. Með
samningnum við Naxos mun útbreiðsla á efni
með hljómsveitinni verða margföld á við það
sem hingað til hefur þekkst. Sinfóníuhljóm-
sveitin hljóðritar einnig með innlendum hljóm-
plötufyrirtækjum og hefur meðal annars gefið
út nokkrar geislaplötur með Skífunni," segir
Runólfur Birgir.
Aukinheldur hefur SÍ hljóðritað tvær geisla-
plötur fyrir BIS, Sögusinfóníuna eftir Jón Leifs
og aðra plötu með verkum eftir sama tónskáld
sem er óútkomin. Vegna anna verða engar
hljóðritanir gerðar á vegum BIS í vetur, segir
Runólfur Birgir, en síðar verður þráðurinn tek-
inn upp á ný og verður áherslan þá áfram á
Jón Leifs og fleiri íslensk tónskáld. Loks ligg-
ur fyrir að SI og Kristinn Sigmundsson muni
sameina krafta sína við upptökur á óperuaríum
í vor, en Runólfur Birgir segir ekki enn Ijóst
hver komi til með að annast útgáfuna, það
verði þó íslenskur aðili.
Tónleikaferðir eru öllum sinfóníuhljómsveit-
um mikilvægar, eins og glöggt kom á daginn
í fyrra. Á þessu starfsári mun Sinfóníuhljóm-
sveit íslands fara í eina slíka, til Grænlands,
þar sem hún mun leika á nokkrum tónleikum
í tengslum við vígslu nýs tónlistarhúss í Nuuk,
sem er 13.000 manna bær, í febrúar. Þá er
hljómsveitin að leggja drög að næstu tónleika-
ferð til Bandaríkjanna árið 2000, en Runólfur
Birgir segir að henni hafi jafnframt boðist að
l'eika víðar, til dæmis í Þýskalandi og á Norður-
löndum.
SAKARI SNÝR AFTUR
FINNINN Petri Sakari hefur verið ráðinn
aðalhljómsveitarstjóri Sinfóniuhljómsveitar
Islands til næstu tveggja ára en hann gegndi
starfmu á árunum 1988-93. Mun Sakari
jafnframt stjórna hljómsveitinni í öllum
upptökum á vegum Naxos á sama tímabili.
Runólfur Birgir Leifsson, framkvæmda-
stjóri SI, kveðst fagna endurkomu Sakaris
sem átt hafi drjúgan þátt í uppbyggingu
hljómsveitarinnar á liðnum misserum. „List-
rænn árangur hljómsveitarinnar síðasta
vetur er ekki einangrað fyrirbrigði, heldur
árangur margra ára vinnu við uppbyggingu
hennar. Þar á Petri ekki minnstan hlut að
rnáli," segir Runólfur Birgir og bætir við
að hljóðfæraleikararnir séu ekki síður
ánægðir með að fá tækifæri til að end-
urnýja kynnin við Sakari en ákvörðunin um
ráðningu hans hafí vitaskuld verið tekin í
samráði við þá.
Petri Sakari fæddist
í Tampere í Finnlandi
árið 1958 og hóf þar
tónlistarnám níu ára
gamall. Var fiðlan hans
aðalhljóðfæri í fyrstu en
fjórtán ára gamall hóf
hann nám í hljómsveit-
arstjórn. Sakari stund-
aði framhaldsnám hjá
Jorma Panula við Sibel-
iusarakademíuna í
Helsinki og brautskráð-
ist þaðan með hæstu
einkunn árið 1981. Hann stjórnar reglulega
fremstu hljómsveitum á Norðurlöndum,
auk þess sem hann hefur komið víðar fram,
svo sem í Englandi, Þýskalandi, Hollandi,
Ungverjalandi, Rúmeníu og Bandaríkjun-
um.
^ 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. SEPTEMBER 1996