Lesbók Morgunblaðsins - 09.11.1996, Side 2
ISLENDINGA SOGUR A
ENSKU VÆNTANLEGAR
Morgunblaóió/Júlíus
BÚIST er við því að ensk útgáfa á íslendinga sögunum komi út í febrúar eða mars.
UNDANFARIN þijú ár hefur rúmlega
þijátíu manna hópur af sjö þjóðernum
frá þremur heimsálfum unnið að því
að þýða íslendinga sögur á ensku og er stefnt
að útgáfu í febrúar eða mars á næsta ári. Að
sögn Jóhanns Sigurðssonar, framkvæmda-
stjóra bókaútgáfunnar Leifs Eiríkssonar, sem
gefur verkið út, hefur fyrirtækið hlotið íjár-
styrk frá Evrópusambandinu sem auðveldað
hefur lokasprettinn. „Við hlutum styrk upp á
6.000.000 íslenskra króna tii þess hluta verk-
efnisins sem lýtur að samræmingu og frá-
gangi þýðinganna. Þetta er samstarfsverkefni
fjölda fræðimanna frá mörgum löndum, þar á
meðal Evrópulöndum, og á eftir að skila mik-
illi þekkingu á sviði þýðingarfræða. Auk þessa
var það einnig forsenda þess að við fengum
styrkinn að Islendinga sögurnar hafa ekki
verið tiltækar á ensku fyrr í samræmdri heild-
arútgáfu. Stefnt er að því að gefa sögurnar
fyrst út í einni heildarútgáfu en svo eru ýmsir
möguleikar fyrir hendi í útgáfu, til dæmis á
því að gefa út rit með úrvali sagna og svo
einstakar sögur í vasabroti."
Still þýóinganna ekki fyrntur
Viðar Hreinsson, sem ritstýrir útgáfunni,
sagðist í samtali við Morgunblaðið vera bjart-
sýnn á að sögurnar kæmu út snemma á næsta
ári. „í rauninni hefur þýðingarstarfið tekið
minni tíma en hefði mátt búast við, en það
er gríðarleg vinna og flókin að samræma þær.
Ritháttur á nöfnum sem koma fyrir í fleiri en
einni sögu þarf að vera algerlega samræmdur.
Við höfum svo reynt að samræma að vissu
marki þýðingar á algengum orðum og ýmiss
konar máltækjum, eins og bóndi og maður er
nefndur en síðan hefur tæknilegt orðafar, eins
og lagamál og heiti á húsa- og skipakosti og
öðru slíku, verið samræmt nákvæmlega. Þetta
hefur auðvitað kostað mikla vinnu en fjöldi
manna, bæði innlendra og erlendra, hefur les-
ið þýðingamar yfir.“
Viðar segir að þýðendunum hafi ekki verið
sett fyrir að þýða í einhveijum ákveðnum stíl,
enda hefði það ekki verið vinnandi vegur.
„Menn hafa ekki verið beðnir um að fyrna
stílinn eða skrifa knappann stíl, eina krafan
sem við höfum gert er að textinn sé vel læsileg-
ur. Þýðendur hafa bara skrifað eins og þeim
er eðlislægt að gera og þótt það verði einhver
munur á stíl í þýðingunum verður hann vart
meiri en munurinn er á stíl frumtextanna. En
með samræmingunni höfum við miðað að því
að þýðingarnar standist nákvæmniskröfur."
Vilum ekki um annaó eins verkefni
Viðar sagðist öðrum þræði líta á styrkinn
frá Evrópusambandinu sem viðurkenningu á
því að hér væri verið að vinna að verkefni sem
hefði einhveija þýðingu í þýðingarfræðum al-
mennnt. „Við vitum ekki til að það hafi verið
ráðist í annað sambærilegt einstakt þýðingar-
verkefni sem er umfangsmeira en þetta í heim-
inum þannig að menn líta svo á að hér séum
við að öðlast reynslu sem má læra af og við
þurfum auðvitað að miðla af í framtíðinni."
Allar sögurnar eru þýddar, þó aðeins í einni
gerð, og sömuleiðis þættirnir. Robert Kellog,
bókmenntafræðingur, ritar formála að útgáf-
unni og einnig mun fylgja henni ýmislegt ítar-
efni sem gera á hana aðgengilegri fyrir lesend-
ur. Verkið verður að öllum líkindum á mi'li tvö
og þijú þúsund blaðkíður.
INNI f Listasafninu í Málmey.
Listasafnió í Málmey
Bera Nordal nefnd
í sambandi vió stöðu
forstöðumanns
BERA Nordai, forstöðu-
maður Listasafns íslands,
hefur verið nefnd í sam-
bandi við forstöðumanns-
stöðu Listasafnsins í Mál-
mey í Svíþjóð. í frétt í Syds-
venska dagbladet í gær var
sagt frá því að Listasafnið
í Málmey hafí verið að leita
að nýjum forstöðumanni til
að taka við af Sune Nord-
gren og væri Bera að öllum
líkindum efst á óskalistanum þótt enn hefði
það ekki fengist staðfest. Formaður menning-
armálanefndar borgarinnar, Stefan Lindhe,
sagði í samtali við Sydsvenskan í gær að nefnd-
in hefði komið sér saman um eitt nafn en það
væri enn ekki tímabært að gefa það upp.
Sydsvenskan segir að starfsfólk Listasafns-
ins í Málmey hafí ekki sýnt mikinn áhuga á
þeim mönnum sem menningarmálanefndin
hefur lagt til í starf forstöðumanns en hafí
þess í stað „leitað sjálft logandi ljósi um alla
Evrópu að eftirmanni Nordgren. En þótt skoð-
anir starfsfólksins vegi þungt þá er það menn-
ingarmálanefndin sem að endingu ræður hver
verður ráðinn í starfíð."
Bera Nordal viidi ekkert segja um málið
þegar Morgunblaðið hafði samband við hana í
gær.
Guðjón Óskarsson
í Covent Garden
GUÐJÓN Óskarsson bassasöngvari mun
þreyta frumraun sína í hinu nafnkunna óperu-
húsi Covent Garden í Lundúnum 15. nóvember
næstkomandi í óperu Wolfgangs
Amadeusar Mozarts, Don Giovanni.
Mun hann syngja fimm sýningar.
„Þetta leggst vel í mig, enda held
ég að um fína sýningu sé að ræða.
Covent Garden er stórkostlegt hús og
það er virkilega gaman að fá tæki-
færi til að syngja þar,“ segir Guðjón
sem fær að stíga í fyrsta sinn á sviðið
í byrjun næstu viku en æfingar hafa
farið fram í þar til gerðum sölum.
Að mati Guðjóns hafa öll óperuhús
sinn sérstaka svip en Covent Garden
sé í hópi þeirra allra bestu í heimi.
Og ekki skortir söngvarann samanburðinn, því
hann hlaut eldskírn sína á La Scala fyrr á
árinu. „Ætli ég myndi ekki segja að þessi hús
væru í svipuðum flokki."
Guðjón var um fimm ára skeið fastráðinn
við Oslóaróperuna en er nú í tveggja ára launa-
lausu leyfi. „Þetta er leyfi sem ég á rétt á,
þannig að ég ákvað að taka það og sjá hvern-
ig mér myndi vegna sem „freelance"
söngvara."
Greip Guðjón tækifærið og flutti
búferlum til íslands, enda er „best
að vera þar sem ræturnar eru ef
menn eru ekki fastráðnir við ákveðið
hús“. Leggst það vel í hann að búa
heima en starfa erlendis. „Ætli við
Kristinn Sigmundsson séum ekki einu
mennirnir í þessari stöðu sem hafa
þennan háttinn á.“
Söngvarinn hefur í mörg horn að
líta um þessar mundir og er til að
mynda nýkominn úr tónleikaferð með
Sinfóníuhljómsveit Lundúnaborgar til Madríd-
ar og Barceiona en lokatónleikarnir voru í
Barbican Center í Lundúnum. Verða næstu
verkefni hans síðan í Osló, Brussel og Wales
á komandi vori.
Guðjón
Óskarsson
Félag íslenskra myndlistarmanna
Hyggjast kaupa orlofsíbúð
í evrópskri borg
FÉLAG íslenskra myndlistarmanna hefur í
hyggju að fjárfesta í íbúð í evrópskri borg á
næstunni sem yrði orlofsíbúð íslenskra mynd-
listarmanna. Guðbjörg Lind Jónsdóttir, sem
er nýtekin við formennsku í félaginu, sagði í
samtali við Morgunblaðið að verið væri að
kanna íbúðaverð í nokkrum borgum. „Okkur
virðist sem hagkvæmast gæti verið _að kaupa
í Kaupmannahöfn eða í Amsterdam. íbúðaverð
í öðrum stórborgum, eins og París og Barcei-
ona, er mjög hátt. Við erum líka að kanna
hvað hentar best fyrir okkur, borgin þarf auð-
vitað að bjóða upp á fjölbreytni í lista- og
menningarlífi. Það gera bæði Kaupmannahöfn
og Amsterdam."
Guðbjörg sagði að í íbúðinni yrði sennilega
ekki vinnuaðstaða heldur væri hún fyrst og
fremst hugsuð sem orlofsíbúð. „Þetta er spurn-
ing um það hvort við höfum efni á að kaupa
íbúð sem rúmar vinnuaðstöðu. Ég býst ekki
við því. Ætlunin er því að kaupa húsnæði sem
listamenn geta dvalið í um tíma og kynnt sér
það sem er að gerast úti í Evrópu.“
Guðbjörg sagðist áætla að ráðist yrði í íbúð-
arkaupin á næsta ári.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
Ásmundarsafn - Sigtúni
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Sýn. á aðföngum safnsins sl. 5 ár. Sýn. á
verkum Kjarvals til 22. desember.
Listasafn Islands
„Ljósbrigði“. Úr safni Ásgríms Jónss. til 8. des.,
„Á vængjum vinnunnar“ til 19. jan.
Hafnarborg - Strandgötu 34, Hf.
Jón Garðar og Helga Árm. sýna til 11. nóv.
Gerðuberg - Gerðubergi 3-5
Sjónþ. Helga Þorgils til 10. nóv.
Sjónarhóll - Hverfisgötu
Sýn. á verkum Helga Þorgils til 10. nóv.
Mokka - Skólavörðustíg
Jón M. Baldvinsson sýnir.
Gallerí List - Skipholt 50b
Guðrún Indriðad. sýnir út mán.
Listgallerí - Listhúsinu Laugardal
Guðrún Lára Halldórgd. sýnir til 28. nóv.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Pekka Niskanen sýnir til 1. des.
Galleri Listakot - Laugavegi 70
Margrét Guðmundsd. sýnir til 18. nóv.
Norræna húsið - Hringbraut
Margrét Jónsd. sýnir til 10. nóv. Roger
Westerholm sýnir til 24. nóv.
Listhús 39 - Strandg. 39, Hf.
Sigríður Ágústsd. sýnir til 11. nóv.
Gallerí Stöðlakot - við Amtmannstíg
Torfi Jónsson sýnir til 10. nóv.
Listasafn Kóp. - Hamraborg 4
Gunnar Ámas., Hrólfur Sigurðss. og Sigrid
Valting. til 10. nóv.
Hafnarhúsið - við Tryggvagötu
Anna Jóa sýnir til 24. nóv.
Gallerí Fold - Laugavegi 118
Haraldur (Harry) Bilson og Helen Margaret
Haldene sýna til 17. nóv.
Gallerí Hornið - Hafnarstræti 15
Benedikt Kristþórsson sýnir.
Gallerí Tehús - Hlaðvarpanum
Ragna Róbertsdóttir sýnir.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Steingrímur Eyfl./Margrét Sveinsd. til 17. nóv.
Sólon íslandus - við Bankastræti
Guðbjörg Lind Jónsdóttir sýnir til 11. nóv.
Gallerí Sævars Karls - Bankastræti 9
Sigrún Ólafsdóttir sýnir.
Gallerí Smíðar & Skart - Skólav.stíg
Þóra Guðbjartsd. sýnir til 28. nóv.
Önnur hæð - Laugavegi 37
Japanski listamaðurinn On Kawara sýnir.
Gallerí Umbra - Amtmannsstíg 1
Sari Tervaniemi sýnir.
Gallerí Greip - Hverfisgötu 82
„Hinsta sýningin“ 64 sýnendur, til 17. nóv.
Listasafn Sigurjóns - Laugarnest. 70
Valin verk Siguijóns Ólafssonar.
Studio Bubbi - Hringbraut 119
Guðbjöm Gunnarss./Chris Sayer/Jóhann G. og
Sigurður Vilhjálmss. sýna til 10. nóv.
Gallerí Míró - Fákafeni 9
Ingó sýnir ljósm. til 16. nóv.
Galleríkeðjan - Sýnirými
Sýn. í nóv.: í sýniboxi: Victor G. Cilia. I barmi:
Haraldur Jónss. Berandi: Valgerður Matthíasd.
Hlust: 5514348: Maigrét Lóa Jónsd.
Ljósmyndast. Myndás - Laugarásv. 1
Sigríður Kristín sýnir til 29. nóv.
Laugardagur 9. nóvember
Barokktónl. í Dómkirkjunni kl. 17. Hörður
Torfa í Norræna húsinu kl. 21. Elísabet F.
Eiríksd. og Elín Guðmundsd. í Félagsh.
Tjarnarborg Ólafsfirði kl. 17.
Sunnudagur 10. nóvember
Elísabet F. Eiríksd. og Elín Guðmundsd. í
Safnaðarh. Akureyrarkirkju kl. 17. Söngh.
Sólarmegin á Sóloni Islandus kl. 20.30. Tón-
listarsaga Dómkirkjunnar í tali og tónum
kl. 17.
Þriðjudagur 12. nóvember
Söngh. Sólarmegin í Hafnarborg kl. 20.30
LEIKLIST
Nanna systir lau. 9. nóv., fim.
í hvítu myrkri sun. 10. nóv., fös., lau.
Kardimommubærinn sun. 10. nóv.
Hamingjuránið sun. 10. nóv., fös.
Þrek og tár lau. 16. nóv.
Leitt hún skyldi vera skækja iau. 9. nóv., fim.
BorgarleikhúsiðEf ég væri gullfiskur lau.
9. nóv., lau. Largo desolato sun. 10. nóv., lau.
BarPar á Leynibarnum lau. 9. nóv., fös.
Stone Free fös. 15. nóv. Svanurinn lau. 9.
nóv., fim. fös. Trúðaskólinn lau. 9. nóv.,
sun., lau.
Leikfélag Akureyrar Sigrún Ástrós lau.
9. nóv., lau. Dýrin í Hálsaskógi lau. 2 nóv.,
sun., lau.
Loftkastalinn Á sama tíma að ári sun. 10.
nóv., iau. Delerium Búbónis lau. 9. nóv., fim.
Sirkus Skara Skrípó lau. 16. nóv.
Hermóður og Háðvör Birtingur lau. 9.
nóv., þri., mið., fös., lau.
Kaffileikhúsið Spænsk kvöld Iau. 9. nóv.,
sun., mið., fim., fös., lau.
Möguleikhúsið Mjallhvít sun. 10. nóv.
Einstök uppgötvun lau. 9. nóv.
Leikfélag Hafnarfjarðar Stalín er ekki hér
sun. 10. nóv.
Hafnarborg Grísk veisla, lau. 9. nóv., fös.
Skemmtihúsið Ormstunga sun. 10. nóv.,
fös.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 9. NÓVEMBER 1996