Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Page 2
Búið að ráða í
hlutverk í kátu
ekkjunni
ÍSLENSKA óperan hefur gengið frá ráðningum í hlutverk í stærsta
viðfangsefni vetrarins, Kátu ekkjuna eftir Franz Lehár, sem frum-
sýnd verður í febrúar. Hefur óperetta þessi um langt árabil verið
eitt vinsælasta verk sinnar tegundar í heiminum en íslenska óperan
tekur hana nú í fyrsta sinn upp á sína arma.
Titilhlutverkið, káta ekkjan eða Anna Glawari, verður í höndum
Signýjar Sæmundsdóttur. Sigurður Björnsson mun syngja Mirko
Zeta, barón, Marta G. Halldórsdóttir Valencienne, konu hans, og
Garðar Cortes verður Danilo, greifi. Hlutverk Camille de Rosillion
kemur í hlut Þorgeirs J. Andréssonar, Jón Þorsteinsson syngur
Cascada og Stefán H. Stefánsson St. Brioche. „Gömlu brýnin“ Guð-
mundur Jónsson, Magnús Jónsson og Kristinn Hallsson fara jafn-
framt með hlutverk í óperettunni, auk Árna Tryggvasonar og Sieg-
linde Kahmann.
Leikstjóri verður Andrés Sigurvinsson og hljómsveitarstjóri Páll
P. Pálsson en leikmynd gerir Stígur Steinþórsson. Búningar verða
sóttir í smiðju til Huldu Kristínar Magnúsdóttur, lýsingu annast Björn
B. Guðnason og danshöfundurinn Ástrós Gunnarsdóttir leggur jafn-
framt hönd á plóginn. Þorsteinn Gylfason þýðir söngva en Flosi Ólafs-
son snýr tali yfir á íslensku.
Sigurður
Björnsson
Guðmundur
Jónsson
Signý
Sæmundsdóttir
Garðar
Cortes
Kristinn
Hallsson
Magnús
Jónsson
Kuml og
haugfé
í nýrri útgáfu
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að verja 2,5
millj. kr. til að styrkja undirbúningsstarf og
rannsóknir vegna endurútgáfu ritsins Kuml
og haugfé doktorsritgerðar Kristjáns Eld-
járns fyrrverandi forseta Islands í tilefni af
því að áttatíu ár voru í gær liðin frá fæðingu
hans. Vonir standa
til að ný útgáfa
ritsins líti dagsins
ljós árið 1999.
í tilkynningu
ríkisstjórnarinnar
segir, að fyrri út-
gáfa ritsins hafi
komið út árið
1956. Meginþáttur
verksins er kumla-
tal, heildarskrá
allra heiðinna
greftrunarstaða
(246) sem þekktir
voru það ár, með
lýsingum á legu
þeirra, gerð og greiningu á forngripum sem
í þeim hafa fundist. Auk haugfjár er í ritinu
fjallað um silfursjóði og lausafundi frá vík-
ingaöld. Bókin gefur því heildaryfirlit yfir
alla forngripi frá þessu tímaskeiði að frátöld-
um þeim gripum sem fundist hafa við rann-
sóknir á fornbæjum. Þar eð ritið var ætlað
jafnt fræðimönnum sem almenningi, er auk
kumlatals gefið yfirlit um vitnisburð forn-
leifafræðinnar um fund íslands og upphaf
byggðar sem og um norræna stílþróun á
sögugjöld. Áhugi almennings á þessu verki
var mjög mikill.
Frá því er Kuml og haugfé kom út hefur
eitt kuml fundist á ári að meðaltali. Um hluta
af þessum 40 kumlum hafa verið gerðar stak-
ar skýrslur og skrifaði Kristján um helming
nýfundinna kumla. Þar eð sú vinna sem ligg-
ur í verkum Kristjáns um þetta efni er svo
viðamikil, gefst öðrum fræðimönnum ekki
mikið svigrúm til að gera hliðstætt verk.
Þykir því ákjósanlegt að gefa út á ný ritverk
Kristjáns með viðbótum og endurskoðun á
efni þess í ljósi nýrra funda og viðhorfa.
í nýrri útgáfu Kuml og haugfjár verður
meginþáttur verksins, kumlatal, með sama
fyrirkomulagi og Kristján viðhafði við fyrstu
útgáfu. Við skrána verður bætt sams konar
samantektum um kuml sem fundist hafa eft-
ir árið 1956. Nýir fundir kunna að raska lítil-
lega þeim ályktunum sem dregnar voru af
því efni sem tiltækt var á sínum tíma. Því
mun þurfa að endurskoða umfjöllun Kristjáns
og fella túlkun hans að þeim fræðilegu við-
horfum sem nú eru ríkjandi. Bókina prýðir
fjöldi ljósmynda og uppdrátta. Verður allt
myndefnið unnið á ný, kort og uppdrættir
bætt svo sem kostur er.
Kristján
Eldjarn
Morgon4»li
Rithöfundar á
ferð og flugi
Vopnafirði. Morgunblaðið.
RITHÖFUNDAR eru nú á ferð og flugi
að kynna landsmönnum bækur sínar. Að
venju hefur bókmenntahátíðin Einstök
bók verið haldin í Félagsheimilinu Mikla-
garði á Vopnafirði. Að þessu sinni lásu
þar eftirtaldir höfundar úr verkum sínum;
Andri Snær Magnason úr Engar smá sög-
ur, Einar Kárason úr Þættir af einkenni-
legum mönnum, Elin Pálmadóttir úr Með
fortíðina í farteskinu, Gerður Kristný úr
Regnbojga í póstinum, Vigdís Grímsdóttir
úr Z - Astarsögu og Þórarinn Eldjárn
úr Brotahöfði. Auk þeirra las Harpa
Hólmgrímsdóttir úr bókinni Þjóðsögur
Jóns Múla Árnasonar. Sönghópurinn
VSOP flutti nokkur lög. Fjölmenni var á
hátíðinni og var gerður góður rómur að
lestri rithöfundanna sem á myndinni eru
í Félagsheimilinu Miklagarði á Vopna-
firði.
Tveggja ára samningur
við Volksoper í Vín
BJARNI THOR Kristinsson
bassasöngvari hefur skrifað
undir tveggja ára samning við
Volksoper í Vínarborg. Bjarni
hafði gert óformiegan samning
við óperuna í Bonn fyrr í haust
eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu og átti aðeins eftir að
skrifa undir; „en síðan bauðst
mér betri samningur við Volk-
soper í Vín sem er líka betra
hús“, sagði Bjarni í samtali við
Morgunblaðið, „þetta er mjög
stórt hús, má segja að það sé
á heimsmælikvarða og tekur
1500 gesti. Það er sýnt í þessu
húsi á hveijum degi fyrir utan
tvo mánuði á sumrin en samn-
ingur minn tekur gildi haustið 1997. Ég
mun þó syngja sem gestasöngvari í húsinu
í maí á næsta ári.“
Volksoper er annað tveggja óperuhúsa í
Vín og heitir hitt Staatsoper, eða Ríkisóper-
an, en það tekur meira en 2000 gesti.
Bæði húsin eru ríkisrekin og segir Bjarni
að hann muni einnig syngja í Ríkisóper-
unni. „Ég hef ekki enn fengið
að sjá endanlegan hlutverka-
lista en ég er ráðinn til Volkso-
per í aðalhlutverk. Ef mér geng-
ur vel í þessu húsi þá þarf ég
ekki að hafa áhyggjur af fram-
tíðinni.“
Bjarni er nýútskrifaður úr
söngnámi í Vín og því segir
hann það hafa komið sér meira
á óvart en ella að hafa þegar
fengið svo góðan samning hjá
þessu húsi. Aðspurður hveiju
hann eigi þetta að þakka sagði
hann að sér hefði gengið vel í
náminu og að húsin í borginni
fylgist vel með ungu fólki í
henni. „Ég var líka heppinn með
kennara, bæði heima og hér úti. Þetta er
auðvitað líka spurning um að vera á réttum
stað á réttum tíma; það vantar söngvara á
mínu raddsviði einmitt núna. Þetta er því
kannski fyrst og fremst heppni. Og auðvit-
að var það líka heppni að ég skyldi ekki
vera búinn að skrifa undir í Bonn þegar
mér var boðið að syngja fyrir hér í Vín.“
BJARIMI THOR
Kristinsson
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Sýn. á aðföngum safnsins sl. 5 ár. Sýn. á verk-
um Kjarvals til 22. desember.
Listasafn Islands
„yósbrigði". Úr safni Ásgríms Jónss. til 8. des.,
„A vængjum vinnunnar" til 19. jan.
Gallerí List — Skipholt 50b
Guðrún Indriðad. sýnir út mán.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti
Ósk Vilhjálmsd. sýnir til 5. jan.
Hafnarborg - Strandg. 34. Ilf.
Jón Óskar og Eggert Magnúss. sýna til 9. des.
Listasafn Kóp. - Hamraborg 4
Afmælissýn. Ljósmyndaraf. Ísl./Guðbjörg
Pálsd./Alistair Maclntyre/til 15. des.
Listhús 39 - Strandgötu 39 Hf.
Samsýningin „Dýr-Gripir“ til 24. des.
Gallerí Fold - Laugavegi 118
Samsýning 48 listamanna til 8. des.
Ófeigur - Skólavörðustíg 5
Frank Reitenspiess sýnir til 23. des.
Gallcrí Hornið - Hafnarstræti 15
Elínrós Eyjólfsd. sýnir til 11. des.
Mokka - Skólavörðustíg
Ari Alexander Ergis sýnir til 6. jan.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Finnur Amar, Ingileif Thorlacius og Guðrún Hall-
dóra Sigurðard. sýna til 8. des.
Undir pari - Smiðjustíg 3
Sólveig Þorbergsd. sýnir til 14. des.
Gallerí Smíðar & skart - Skólavörðustíg
Englaveisla, samsýning til 20. des.
Sólon Íslandus - við Bankastræti
Guðmunda Andrésd. sýnir til 8. des.
Gallerí Sævars Karls - Bankastræti 9
Harpa Kristjánsd. sýnir til 12. des.
Önnur hæð - Laugavegi 37
Lawrence Weiner sýnir til áramóta.
Gallerí Stöðlakot - Bókhlöðustig 6
Verk eftir Gunnlaug Scheving til 8. des.
Listþjónustan - Hverfisgötu 105
Gunnar Örn sýnir til 23. des.
Sjónarhóll - Hverfisgötu
Guðrún Kristjánsdóttir sýnir til 15. des.
Gerðuberg - Gerðubergi 3-5
Sjónþing Guðrúnar Kristjánsd. til 15. des.
Galierí Listakot - Laugavegi 70
13 listakonur sýna verk sin.
Galleríkeðjan - Sýnirými
Sýn. I des.: f sýniboxi: Lýður Siguiðsson. í barmi:
Vilhjálmur Vilhjálmsson. Berandi: Gera Lyn Stytz-
el. Hlust: 5514348: Haraldur Jónsson.
Laugardagur 7. desember
Aðventutónl. Kvennak. Reykjav. í Hallgríms-
kirkju kl. 17. Björn Steinar Sólbergsson org-
anisti í Akureyrarkirkju kl. 12. Jótatónl. söngsm.
I Fríkirkjunni kl. 16. Jólatónl. Tónlistai-sk. í
Grafarv. í Grafarvogskirkju kl. 10, 11 og 14.
Tónl. forskólad. Tónlistarsk. Sigursveins D. í
Langholtskirkju kl. 14.
Sunnudagur 8. desember
Aðventukvöld Kórs Hjallakirkju í Hjallakirkju
kl. 20.30. Aðventusamk. Kórs Atthagaf. Strand-
am. í Bústaðakirkju kl. 16.30. Nína Margrét
Grímsd. heidur kynn. á geisladisk sínum í Gerðu-
bergi kl. 15. Aðventutónl. Kvennak. Reykjav. í
Hallgrímskirkju kl. 17. Tónl. Suzukid. Tónlist-
arsk. Sigursveins D. í Langholtskirkju kl. 14 I
Fella- og Hólakirkju. Aðventutónl. Söngsv. Fíl-
harmóníu í Grensáskirkju kl. 20.30.
Mánudagur 9. desember
Aðventutónl. Söngsv. Fílharmóníu í tírensás-
kirkju kl. 20.30.
Þriðjudagur 10. dosember
Kór Óldutúnssk. heldur aðventu- og minningar-
tónl. í Víðistaðakirkju kl. 20. Aðventutónl. I
Bessastaðakirkju kl. 20.30. Söngkvartettinn
Rúdolf í Listas. Kóp. kl. 20.30.
Miðvikudagur 11. desember
Aðventutónl. Söngsv. Fílharmóníu í Grensás-
kirkju kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Kennarar óskast sun. 8. des. Nanna systir lau.
7. des. I hvítu myrkri lau. 7. des. Kardimommu-
bærinn sun. 8. des. Leitt hún skyldi vera skækja
sun. 8. des.
Borgarleikhúsið Largo desolato fös. 6. des.
BarPar á Leynibarnum lau. 7. des. Stone Free
lau. 7. des. Svanurinn sun. 8. des. Trúðaskólinn
sun. 8. des.
Loflkastalinn
Áfram Latibær sun. 8. des. Á sama tima að
ári sun. 8. des. Sirkus Skara Skrípó fös. 13.
des. Deleríum Búbónis fim. 12. des.
Dálvaldurinn Terry Rance lau. 7. des., sun.
íslenska óperan
Master Class sun. 8. des. Jólatónleikar lau. 7. des.
Hermóður og Háðvör
Birtingur iau. 7. des.
Kaffileikhúsið
Hinar kýrnar 7. des. 101 Reykjavík fös. 13. des.
Leikfélag Akureyrar
Dýrin í Hálsaskógi lau. 7. des., sun.
Skcmmtihúsið
Ormstunga lau. 7. des.
Hátún 12
Gullna hliðið sun. 8. des. kl. 15 og 20.30.
Höfðaborgin
Rúi og Stúi lau. 6. des., sun. Gefin fyrir drama
þessi dama lau. 7. des., fim.
Kópavogsleikhúsið
Gullna hliðið í félagsh. Kóp. sun. 8. des.
Furðuleikhúsið
Jólin hennar ömmu sun. 8. des., lau.
Gerðuberg
10 fingur sýnir „Jólaleik11 kl. 14. á sun.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. DESEMBER 1996