Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Qupperneq 3
LESBÖK MOIM.l \I5I \I)SI\S - MI \\I\(,/I IS I II! 48. tölublað -71. árgangur EFNI Landmælingar íslands eiga langt starf að baki við kortlagn- ingu landsins og fyrst eftir aldamótin hvíldi það á dönskum mælingamönnum. Agúst Böðvarsson, sem nú er rúmlega áttræður, hefur manna bezta yfirsýn yfir landmæling- arnar og nú stendur hann að veglegri bók um þetta efni. Hér er gripið niður í bókina þar sem segir frá mælingum á Öræfajökli. Dómhús Hæstaréttar er risið við Arnarhól, en Safnahúsið og Þjóðleikhúsið njóta sín sem fyrr, þótt boðað væri að svo yrði ekki þeg- ar þessu húsi var mótmælt. Ungur arki- tekt, Sigurður Pálmi Ásbergsson, hefur gert úttekt á húsinu og telur það vel hann- að hús, sem fari vel á sínum stað. r Irinn Kenneth Branagh er einn atkvæðamesti kvikmynda- gerðarmaður á Bretlands- eyjum um þessar mundir. Jónas Knútsson skoðar í grein glímu hans við verk William Shakespeare á hvíta tjaldinu og ber sam- an við aðrar útgáfur af kvikmyndun verka skáldsins. Myndin Þrettándakvöld (The Twelfth Night) hóf nýlega göngu sína á Bretlandi, en níu bíómyndir eftir verkum WiIIiams Shakespeares hafa verið frum- sýndar nýlega eða eru í smiðum. Ef William Shakespeare væri á lífi gæti hann sagt farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti sín við kvikmyndaheiminn. Samt hafa kvik- myndagerðarmenn sýnt verkum hans meiri áhuga en sögum nokkurs annars höfundar, lífs eða liðins. London er áfangastaður margra íslendinga í des- embermánuði sem endranær. Olafur Elías- son hefur skrifað grein um það, sem á boðstólunum er þar í borg á tónlistarsvið- inu. Þar á meðal leikur Sinfóníuhljómsveit Lundúnaborgar í aðalsal Barbican Center, en hljómsveitin er talin einhver besta sinfó- níuhljómsveit í heimi. GUÐMUNDUR BÖÐVARSSON ÞÓ FARI NÓTT YFIR Er nóttin fór yfír og næddi um ungar greinar nístandi vindur úr hinni bitrustu átt, að trölli varð drangur, að ókindum stakir steinar, að stórveldi hættunnar fjallið myrkvað og grátt. Þá stóðst þú við gluggann og sást út til sólarlagsins, er síðasta dagskíman kvaddi okkur einmana stað, og mæltir af harmi þíns hjarta og barnsást til dagsins: Hver hefur sólina skapað? Segðu mér það. Ég vissi ekki svarið. Hvað vita allar heimsins þjóðir? - Þó varð mér það auðvelt á tungu sem fornkunnugt Ijóð: Guð hefur skapað sólina, sagði mín móðir, og hún sagði alltaf satt, hún mamma mín, vina mín góð. Þú krafðist ei frekara svara, en sökktir þér niður í sefjun gamallar trúar, sem mörgum varð sönn. Og um okkur bæði rann kvöldsins kyrrláti friður, þó koldimmt væri úti og hlæði þar niður fönn. Þó nótt fari yfír og drúpi haustfölir hagar, í hringleikjum stormanna dansi snjóélin hörð, já, hvernig sem er, þá bjarmar og brosir og dagar af barnanna sólást, á hinni skugguðu jörð. Guómundur Böðvarsson, 1904-1974, var Ijóóskóld og bóndi ó Kirkjubóli í Hvítórsíðu. Fyrri Ijóð hans eru flest nýrómantísk, en með tímanum gætir í þeim vaxandi þjóðfélagslegrar óherzlu. Forsíóumyndina tók Einar Falur Ingólfsson af aóventugöngu í Brooklyn, New York. ÞEGAR SMÆÐIN VERÐUR STYRKUR RABB Við höfum dottið í lukkupott- inn. Það er búið að upp- götva okkur, og það á að veðja á okkur. Lykli er snú- ið í ryðbrunnum skrám hins stöðuga íjársveltis og ís- lenskum vísindamönnum hleypt úr prísundinni. ís- lenskur ofurhugi og prófessor við Harvard, einn virtasta háskóla Bandaríkjanna, hefur hrint í framkvæmd draumi margra íslenskra vísindamanna undanfarna áratugi. Þeim draumi að geta nýtt þær einstöku aðstæður sem bjóðast hér á landi til erfðafræðirann- sókna. ísland er einstakt að þessu leyti. Það hafa margir vitað og unnið samkvæmt því. Varið til þess ævi sinni að nýta þau tæki- færi sem ísienska þjóðin gefur og byggja þann grunn sem síðari rannsóknir munu standa á. Þetta hafa menn gert hver fyrir sig eða nokkrir saman undanfarna áratugi, fyrir það fé sem hægt var að afla hverju sinni. Fjárskorturinn var alltaf það sem hamlaði, menntunin, hugmyndirnar, efnivið- urinn og viljinn voru fyrir hendi, en krónurn- ar ekki. Stundum fékkst heldur stærri styrk- ur, heldur fleiri aurar eitt árið en annað eins og gengur, - en aldrei svo að það lofaði fjárhagsgrunni til frambúðar. Þess vegna hafa orðið kaflaskipti við til- urð fyrirtækis sem nokkrir íslenskir vísinda- menn eiga frumkvæði að. íslensk erfðagrein- ing heitir það og er staðsett í Hálsasveit hinni nýju ofan við Ártúnsbrekkur. Hlutafé er 800 milljónir króna og er að mestu reitt fram af erlendum fjárfestum, sem hafa sann- færst um að fé þeirra verði vel varið. Hvað er það, sem þeir eru að fjárfesta í? Hvað höfum við fram að færa? Það vill svo til, að sjálf hef ég um árabil tekið þátt í rannsóknum áþessu sviði og árið 1980 flutti ég fyrirlestur á heilbrigðisþingi í Alaska, sem ég kallaði When being small is your strength, - eða Þegar smæðin verður styrkur þinn. Þar var fjallað um Island sem land tækifær- anna fyrir erfðarannsóknir og faraldsfræði. Rökin fyrir því að ísland sé einstakt að þessu leyti voru sterk þá og hafa styrkst síðan. íslendingar eru einsleit þjóð hvað erfðir varðar, - einangrun á þessari eyju frá land- námi, svipaður bakgrunnur þeirra sem hing- að komu (sem birtist m.a. í því að menn hafa getað deilt um uppruna Islendinga í áratugi, - en það er kapítuli út af fyrir sig) og töluverð blöndun fólks milli landshluta hefur stuðlað að þeirri tiltölulega einsleitu þjóð, sem hér býr í dag. Áhuga Islendinga á ættum og skyldleika er við brugðið. Þetta veldur því að við getum rakið ættir bæði lóðrétt eða aftur í tímann, og Iárétt til skyldleika meðal samtímamanna okkar í marga liði. Ekki kunna menn þetta allt utan að, en tölvutæknin hefur auðveldað mjög allt starf ættfræðinga. Það er hins vegar ekki nóg að eiga tölvu, menn verða að hafa áreiðanlegar heimildir. Með manntal- inu 1703 er hornsteinninn lagður, Eftir 1800 voru manntöl tekin reglulega, fyrst hvert fimmta en síðar hvert tíunda ár. Kirkjubæk- ur geyma mikinn fróðleik, þótt þær séu ekki óbrigðul heimild um giftingar, skírnir og dánardægur. Síðast en ekki síst hafa áhuga- menn um ættfræði víðs vegar að á landinu rakið einstakar ættir mun lengra aftur en þessar opinberu heimildir ná._ Erfðafræðinefnd Háskóla Islands var stofnuð 1965 með það að markmiði að greiða fyrir erfðafræðirannsóknum með því að skrá- setja og rekja saman ættir. Hún lagði grunn að sínum skrám með því að færa inn á tölv- ur manntalið frá 1910, aftur í tímann rakti hún ættir einstaklinga til manntalsins 1845, og fram í tímann eru ættir raktar ogtengd- ar þjóðskránni frá 1952. Þannig er kominn traustur tölvutekinn grunnur sem spannar um 7 kynslóðir. Erfðir ráða miklu um útlit manna, eins og allir vita. Jens Pálsson prófessor í mannfræði hefur tekið þetta viðfangsefni vísindalegum tökum og rannsakað svipgerð margra tugþús- unda íslendinga, bæði hér heima og erlendis. Við þetta má bæta að Blóðbankinn hefur greint tvo af hveijum þremur íslendingum til blóðflokka, greint vefjagerð margra þús- unda og erfðagerð íjölmargra. Leitin að or- sök arfgengrar heilablæðingar, sem hijáð hefur níu ættir hér á landi var meðal við- fangsefna dugnaðarforksins Ólafs Jenssonar bankastjóra Blóðbankans og samstarfs- manna hans. Á undanförnum mannsaldri hafa um 150 einstaklingar úr þessum ættum orðið fyrir heilablæðingu áður en fimmtugs- aldri var náð. Rannsóknirnar hafa leitt í ljós upphaf meinsins hjá einum sameiginlegum forföður þessara ætta. Þessi ólánsami maður bjó yfir stökkbreyttu geni, sem hefur valdið mörgum kynslóðum afkomenda hans svo miklum skaða og sorg. Nú hefur genið verið einangrað og ljóst er í hverju skaðinn er fólginn. Fyrsta stóra skrefið til að vinna bug á meinvaldinum er þar með stigið. Þegar leitað er að orsökum sjúkdóma er nauðsynlegt að þekkja útbreiðslu þeirra. Einnig hér stöndum við mjög sterkt að vígi. Menntunarstig almennings er hátt, sem ger- ir samvinnu miklu greiðari en til dæmis þar sem ólæsi er útbreitt. Heilbrigðisþjónusta er á háu stigi og skráning sjúkdómstilfella nánast óbrigðul. Krabbameinsskrár hér á landi eru með þeim bestu sem þekkjast. Skráð hafa verið öll tilfelli krabbameins á landinu frá 1954, og bijóstakrabbameins frá 1911. Skrárnar gefa óvenju áreiðanlegar upplýsingar um tíðni krabbameins ekki að- eins vegna þess að gera má ráð fyrir að sjúklingar komist allir undir læknishendur, heldur einnig vegna þess að greining á mein- gerð æxla er öll framkvæmd á sama stað, hjá Rannsóknarstofu Háskóla íslands í meinafræði. Við það bætist, að krufning lát- inna er mjög algeng, sem veldur því að greina má dulda sjúkdóma, til dæmis æxli, hjá fólki sem hefur látist af öðrum orsökum. Þetta skiptir máli þegar verið er að kanna hvernig sjúkdómar erfast. En við þekkjum ekki aðeins þá sjúku, - fáar þjóðir vita meira um lífshætti hinna heilbrigðu og hvernig hættan á því að veikj- ast byggist upp. Hér á landi hefur gríðarlega umfangsmikil rannsókn verið í gangi í 30 ár sem hefur það að markmiði að draga úr hjarta- og æðasjúkdómum. Hjartavernd hefur mælt ýmsa áhættuþætti þessara sjúkdóma hjá þriðjungi þjóðarinnar, eða um 90 þúsund manns. Þijátíu þúsundum manna hefur verið fylgt eftir frá 1967. Þannig er hægt að fylgj- ast með heilsufari hvers og eins, átta sig betur á sambandinu milli heilbrigðis og lífs- hátta og um Ieið á orsökum sjúkdóma. Menn svara spurningalistum um heilsufar sitt og þannig fær Hjartavernd upplýsingar um út- breiðslu annarra sjúkdóma en þeirra sem tengjast hjarta og æðum. Eftir rannsókn fær hver einstaklingur ráðgjöf í trúnaði, en í allri vinnslu gagna er nafn hans hvergi skráð. Auðvitað er það frumforsenda rannsókna af þessu tagi, að fullur trúnaður ríki um allar upplýsingar og að menn geti treyst því að alger nafnleynd ríki. Það sem ég hef rakið hér að framan er nóg til að gera ísland að landi tækifæranna fyrir vísindamenn á þessum sviðum, - en þar að auki lumum við á bónusvinningi. Brot af íslensku þjóðinni hefur sest að í annarri heimsálfu og meðat Vestur-íslend- inga í Kanada og Bandaríkjunum má finna mikinn fjölda fólks sem er eingöngu af ís- lensku bergi brotinn. Að upplagier það því sambærilegt við ættingja sína á íslandi, - en í þijár til fjórar kynslóðir hefur þessi hópur búið við allt aðrar aðstæður, lífs- hætti, mataræði, og veðurfar, en afkomend- ur hinna, sem eftir urðu heima. Þarna legg- ur íslandssagan okkur í hendur einstakt tækifæri til að greina að áhrif erfða og umhverfis á heilsu manna. Slík rannsókn hefur verið í gangi í bráðum tuttugu ár og vindur sífellt upp á sig. Við eigum fleiri auðlindir en fallvötnin og fískinn í sjónum. Þekking okkar á uppruna og ættum, heilbrigði og sjúkdómum meðal þjóðarinnar er auðlind. Auðlind sem fyrst pg fremst má nýta til að bæta líf og heilsu íslendinga sjálfra, - en sem einnig getur orðið til þess að varpa ljósi á orsakir erfðra sjúkdóma meðal annarra þjóða og auka líkur á lækningu. Við eigum vel menntaða vísinda- menn, sem þegar eru að vinna að nýtingu þessarar auðlindar. Það er fagnaðarefni þeg- ar þeir fá byr undir báða vængi. Ég óska Islenskri erfðagreiningu allra heilla og vona að starf hennar verði langt og farsælt. GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. DESEMBER 1996 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.