Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Side 5
MATTHIAS JOHANNESSEN
VÖTN ÞIN
OG VÆNGUR
En tíminn sé flöktandi ljósbrot af vængjaðri löngun minni
og leiti þar hvíldar sem vatnið er deyjandi iða á grjóti
en vorið það beri ilminn af jarðarangan sinni
að aftanskini sem leikur við straumþungann uppí móti;
að snerting augans við himin sé jörðin í hvítu ljósi
og hvíslandi morgunn vaxi að endurskinslausu kveldi
en tungl fari mjúkum fingrum þann deyjandi dag að ósi
og dauðinn sé snark í glóðum af lúnum kulnandi eldi;
að þú sért sólgylltur vængur hljóðlátra vatna minna
og vorið sem angaði forðum sé blærinn í hjarta þínu
en fölnað laufið það vitji svo aftur vængja sinna
og vaxi með ilm af stjörnum til skuggans í bijósti mínu.
HJARTA
MYRKURSINS
Við sem höfum siglt eftir fljóti
tímans um stríðshrjáðan
huga og gaddavírssárar samvizkur
Sigurbogans, við sem syngjum á götum
og torgum
Með þessu vildi ég aðeins sanna og sýna
að sérhvert líf, það heimtar vorkunn þína
við sem siglum enn með Kurtz inní hjarta
myrkursins og minnumst þess sem Joseph
Conrad sagði er tíminn sinar gleymskumjúku
hendur eins og spanskgrænt skógarmyrkur lagði
á sögu hans og líkn að lokum féll
að lágu hvísli dags sem fjarar út
og hverfur eins og dreggjarnar af stút
og fuglakliður þögn við hinzta hvell, Hann
hvíslaði óp að einhverri mynd, einhverri sýn
hann æpti tvisvar, en ópið var nánast
hvískur - Viðurstyggðin, viðurstyggðin mín(!)
við sem leitum guðs í drekans blóði
við og barnið svart
kviðmikið barn undir vængstórum hrægammi
dauðans.
ÆÐI
Vatnið
er hugur minn.
Komdu hingað
segir hugur minn,
Ég er vatnið þitt,
Ófelía.
1492
Okkur dreymir
óþekkt land í vestri
og hugurinn
fylgir
hafi við segllausan
væng
senn lifir
annað fólk
í martröð
þessa áleitna draums.
Síóasta Ijóóabók Matthíasar, Vötn þín og vængur, kom út ó þessu óri.
Ljósmynd/RAX
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. DESEMBER 1996 5