Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1997, Síða 2
• •
OFSOTTIR RITHOFUNDAR
SAMEINAST í STRASSBORG
SUÐUR-AFRISKt rithöfundurinn Breyten Breytenbach
heilsar Salman Rushdie í upphafi fundarins í Strassborg.
Ginsberq
dauðvona
New York. Reuter.
BANDARÍSKA ljóðskáldið Allen Gins-
berg er með ólæknandi krabbamein í
lifur og segja læknar hann eiga frá
fjórum mánuðum, upp í eitt ár ólifað.
Ginsberg öðl-
aðist frægð á
6. og 7. ára-
tugnum fyrir
ádrepuljóð sín
sem samin
voru í anda
beat-kynslóð-
arinnar en
hann er nú á
71. aldursári.
Ginsberg
þjáðist um
árabil af
lifrarbólgu af C-stofni sem leiddi til
þess að hann fékk skorpulifur. Tals-
maður Ginsbergs segir að skáldið
dvelji lengstum á heimili sínu við rit-
störf og reyni að fara sér hægt. Daga-
munur sé á líðan Ginsbergs, suma
daga sé hann býsna hress en aðra
daga örmagna.
Arið 1956 kom út fyrsta Ijóðabók
hans, „Howl and Other Poems“, sem
er talið eitt höfuðverka beat-kynslóð-
arinnar. Bókin olli hneykslan margra,
vegna opinskárra kynlífslýsinga og
var höfðað mál á hendur útgefandan-
um, sem hann vann.
Ginsberg varð, ásamt höfundum á
borð við Jack Kerouac, Gregory Corso
og Willam Burroughs eitt af höfuð-
skáldum beat-kynslóðarinnar, sem
réðist á kerfið og hið viðtekna, og
neytti ofskynjunarlyfja óspart til að
víkka hugann.
Á sjöunda áratugnum var Ginsberg
ötull baráttumaður gegn Víetnam-
stríðinu og barðist fyrir réttindum
samkynhneigðra. Hann kenndi lengi
ensku við Brooklyn-menntaskólann og
hefur sent frá sér um 40 ljóðabækur.
Bók hans „Fall of America" hlaut
bandarísku bókmenntaverðlaunin árið
1972.
Alheimsþing rithöfunda var
haldió í Strassborg í síóustu
viku og ÞÓRUNN ÞÓRS~
DÓTTIR fylgdist með því.
Salman Rushdie hefur verið
forseti samtakanna og nób-
elsskóldið Wole Soyinka
tekur við af honum. Höfund-
arnir ræddu kynþáttahatur
og heftingu tjáningarfrelsis
í Ijósi flokksfundar Front
National í borginni.
SALMAN Rushdie var meðal þeirra sem sátu
þriðja alheimsþing rithöfunda í Strassborg
um síðustu helgi. Hann lætur nú af for-
mennsku samtakanna og við tekur nóbels-
skáldið Wole Soyinka frá Nígeríu. Edúard
Glissant frá Martíník er varaforseti samtak-
anna, sem hafa það markmið að aðstoða
höfunda sem hafa verið ofsóttir eða gerðir
burtrækir úr heimalandinu vegna skrifa
sinna. Um tveggja ára skeið hafa „flótta-
mannaborgir" verið meginatriði í starfi sam-
takanna, en griðastaðir fyrir höfunda eru nú
orðnir 25 í Evrópu.
Lokafundur höfundaþingsins var haldinn
kvöldið fýrir mikil mótmæli í Strassborg
vegna samkomu öfgaflokksins Front Nati-
onal og Glissant sagði þetta viðeigandi tilvilj-
un. Harkalega var veist að FN á fundinum,
„flokkurinn er andhverfa þess sem við beij-
umst fyrir; tjáningarfrelsis og bræðralags
sem ekki verður heft af landamærum,“ sagði
Soyinka.
Rushdie sagði fyrir lokafundinn að ,jafn-
vel Le Pen, formaður FN, yrði að fá að tjá
skoðanir sínar“. Tjáningarfrelsi fæli einnig í
sér að menn yrðu að þola það óviðunanlega.
Og þeir hefðu rétt til að gagnrýna það. Fas-
ismi myndi því miður ekki gufa upp þótt einn
stjórnmálaflokkur væri bannaður.
Christian Salmon, framkvæmdastjóri rit-
höfundaþingsins, stjórnaði umræðum höf-
unda frá fimm heimsálfum í Operunni í
Strassborg. Hann hafði verið smeykur við
að fundurinn beitti sér gegn öfgamönnum,
en Soyinka tók af skarið í gagnrýni á FN
og Le Pen. Hert innflytjendalög í Frakklandi
komu líka til tals á fundinum og Rushdie
kvaðst treysta því að almenningur í Frakk-
landi og hvarvetna héldi vöku sinni og herti
baráttu gegn kynþáttafordómum. Þeir væru
af sama meiði og heft tjáningarfrelsi og
kúgun.
Ritskoðun á bókasöfnum þar sem öfga-
menn til hægri stjóma var rædd sérstaklega
á rithöfundaþinginu 26. til 28. mars. Hún
var sögð hættulegt form ofsókna í Frakk-
landi því frelsi höfundar til að skrifa væri
um leið frelsi allra til að lesa. Í Barcelona
var nýverið sett á stofn rannsóknarstofa sam-
takanna á ritbanni og ritskoðun og í Caen í
Frakklandi rannsóknarstofa um útrýmingu
tungumála.
„Sums staðar sitja rithöfundar í fangelsi,
annars staðar eru þeir stöðugt í lífshættu.
Þetta eru aðrar hliðar á sama hlut,“ sagði
Rachid Boudjedra frá Alsír. „Morð á rithöf-
undum eru ein tegund hryðjuverka í heimin-
um, í mínu heimalandi getur þekktur rithöf-
undur aldrei verið viss um að lifa daginn,
hann er talinn hættulegur og svartir listar
bókstafstrúarmanna eru langir."
Flóttamannaborgirnar hafa frá árslokum
1994 veitt hátt í tuttugu höfundum og fjöl-
skyldum þeirra hæli í neyðartilvikum, eitt ár
í senn í mesta lagi. „Ekki til að loka okkur
áfram af,“ segir í yfirlýsingu rithöfundanna,
„heldur til að veita okkur tækifæri til að
skrifa og hafa samskipti við lesendur og
starfssystkin." Meðal griðastaða í 10 Evrópu-
löndum eru Strassborg, Berlín, Gautaborg,
Helsinki, Vín, Feneyjar, Bonn, Stavariger,
Barcelona og Amsterdam. Búist er við að
netið nái brátt yfir Atlantshaf til New York,
Montreal og Québec.
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Mótunarárin í list Ásmundar Sveinssonar
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Sýn. á verkum eftir Larry Bell, einnig sýn. á
verkum eftir Kjarval til 11. maí.
ASI - Ásmundarsalur - Freyjugöt.u 41
Kristján Steingrímur sýn. til 13. apríl
Listasafn íslands - Fríkirkjuvegi 7
Sýn. Ný aðföng til 6. apríl.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaðastræti
74
Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím til
loka maímánaðar.
Gallerí Önnur hæð - Laugavegi 37
Sýn. á verkum Eyborgar Guðmundsd. á miðvd.
út mars.
Gallerí Listakot - Laugavegi 70
Dröfn Guðmundsdóttir sýn. til 14. apríl.
Gallerí Hornið
Elín P. Kolka og Sigríður Einarsdóttir sýn. til
16. apríl.
Snegla listhús
Ema Guðmarsdóttir sýn. til 12. apríl.
Skruggusteinn - Hamraborg 20a
Rannveig Jónsdóttir sýnir til 25. apríl.
Mokka - Skólavörðustíg
Maður með mönnum: Þrjátíu sjálfboðaliðar á
aldrinum milli tvítugs og sextugs sýna.
Gerðuberg - Gerðubergi 3-5
Magnús Tómass. sýn. frá 6. apríl til 25. maí.
Sjónarhóll - Hverfisgötu 12
Magnús Tómasson sýnir til 27. apríl.
20m2 - Vesturgötu lOa
Guðrún Hjartardóttir sýn. til 26. apríl.
Galleríkeðjan - Sýnirými
Sýningar í apríl: Gallerí sýnibox: Morten Kilde-
væld Larsen. Gallerí Barmur: Stefán Jónsson,
berandi er Yean Fee Quay. Gallerí Hlust: Flutt
verk eftir Halldór Björn Runólfsson.
Gallerí Smíðar og skart - Skólavörðust. 16a
S. Anna E. Nikulásdóttir, Kristín Pálmadóttir
og Þórdís Eiín Jóelsdóttir sýna til 4. apríl.
Gerðarsafn - Hamraborg 4, Kóp.
Sveinn Bjömsson, Helga Egilsdóttir og Gréta
Mjöll Bjarnadóttir sýn. til 27. apríl.
Listhús 39 - Strandgötu 39, Hf.
Guðrún Benedikta Elíasdóttir sýn. til 7. apríl.
Hafnarborg - Strandgötu 34 Hf.
Sæmundur Valdimarsson sýn. í aðalsal. Sigrún
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
Harðardóttir sýn. í Sverrissal. Elías B. Halldórs-
son sýn. í kaffistofunni. Allar sýningarnar eru
til 7. apríl.
Gallerí Sævars Karls - Bankastræti 9
Páll á Húsafelli sýn. til 16. apríl.
Gallerí List - Skipholti 50b
Þóra Sigurþórsdóttir sýn. til 1. apríl.
Listasafn Siguiýóns - Laugarnestanga 70
Skólasýn. á völdum verkum Siguijóns.
Hlaðvarpinn - Vesturgötu 3
Ragnhildur Stefánsdóttir sýn. til 20. apríl.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
„Tiltekt". Sýning á verkum í eigu Nýlistasafns-
ins stendur til 26. mars.
Listþjónustan - Hverfisgötu 105
Bragi Ásgeirsson sýn. til 5. apríl.
Norræna húsið - við Hringbraut.
Sigurður Þórir Sigurðsson sýn. til 13. apríl.
Gallerí Ófeigs - Skólavörðustíg 5
Sigurður Þórir Sigurðsson sýn. til 13. apríl.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Þorvaldur Þorsteinsson sýn. til 27. apríl.
Gallerí Stöðlakot - Bókhlöðustíg 6
Kristín Schmidhauser Jónsd. sýn. til 23. mars.
Undir pari - Smiðjustíg 3
íris Ósk Albertsdóttir sýn. til 23. mars.
Úrbanía - Laugavegi 37
Steingrímur Eyfiörð sýn. til 5. apríl.
Þjóðmiivjasafn Islands - Hringbraut
Sýn. í Bogasal „Fyrmm átti ég falleg gull“.
Gallerí Fold - við Rauðarárstíg
Daði Guðbjörnsson sýn. til 20. apríl. Klaus Krets-
er sýn. Ijósmyndir í kynningarhorni.
Hallgrímskirkja - Skólavörðuholti
Magnús Tómasson sýn. til 11. maí.
TÓNLIST
Laugardagur 5. apríl.
Langholtskirkja: Söngsveitin Fílharmónía kl. 17.
Laugarneskirkja: Drengjakór Crosfields skólans
í Reading í Englandi kl. 16.
Sunnudagur 6. apríl.
Langholtskirkja: Söngsveitin Fílharmónía kl. 17.
Norræna húsið: Kammertríó Þórshafnar kl.
20.30.
Þriðjudagur 8. apríl.
Langholtskirkja: Karlakórinn Fóstbræður kl.
20.30.
Miðvikudagur 9. apríl.
Langholtskirkja: Karlakórinn Fóstbræður kl.
20.30.
Fimmtudagur 10. apríl.
Langholtskirkja: Karlakórinn Fóstbræður kl.
20.30. Listasafn Islands: Burtfararpróf Gunnars
Benediktssonar óbóleikara
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Leitt hún skyldi vera skækja lau. 5. apríl.
Köttur á heitu blikkþaki, sun. 6. og fim. 10. apríl.
Litli Kláus og Stóri Kláus, sun. 6. apríl.
Villiöndin lau. 5. apríl.
Þrek og tár fös. 11. apríl.
Borgarleikhúsið
Völundarhús lau. 5. og fös. 11. apríl.
BarPar lau. 5. apríl.
Dómínó sun. 6. og fím. 10. apríl.
Svanurinn fim. 10. aprfl.
Krókar & kimar, ævintýraferð um leikhús-
geymsluna frá kl. 13-18 alla daga og til kl. 22
sýningardaga.
íslenska óperan
Káta ekkjan lau. 5. aprfl.
Loftkastalinn
Áfram Latibær sun. 6. apríl, tvær sýn.
Skemmtihúsið
Ormstunga mið. 9. apríl.
Kaffileikhúsið
Vinnukonurnar frums. fim. 10. apríl, fös. 11.
apríl.
Tjarnarbíó
Embættismannahvörfin lau. 5. og sun. 6. apríl.
Möguleikhúsið
Snillingar í Snotraskógi lau. 5. apríl tvær sýn.,
sun. 6. apríl.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir
að birtar verði í þessum dálki verða að hafa
borist bréflega fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, Menning/listir, Kringl-
unni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691181.
John Sveinbjörg
Sveinbjörg
og John í
New York
JOHN Speight, söngvari og tónskáld, og
Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir Speight píanó-
leikari koma fram á tónleikum á vegum
The American Scandinavian Foundation
í Norsku sjómannakirkjunni í New York
23. apríl næstkomandi. Á tónleikunum
verður nýr lagaflokkur Johns, The Lady
in White, frumfluttur en hann er saminn
við ljóð eftir Emily Dickinson. Aukinheld-
ur verða á efnisskránni lög eftir Svein-
björn Sveinbjörnsson, Þórarin Guðmunds-
son og Edvard Grieg, auk breskra þjóð-
laga í útsetningum Brittens.
Sveinbjörg og John dveljast um þessar
mundir í nágrenni Princeton, New Jers-
ey, en Sveinbjörg er gestakennari við
Westminster Choir College. Hefur John,
sem er á listamannalaunum frá íslenska
ríkinu, lokið við Þriðju sinfóníu sína og
fyrrnefndan lagaflokk meðan á dvöl
þeirra hefur staðið.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 5. APRÍL1997