Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1997, Síða 17
4
Ef menn eru ánægðir með sig komast þeir
áreiðanlega ekki lengra, þá staðna þeir og
stöðnun í málaralist er dauði. Listin er leit.
Maður nær aldrei takmarkinu, sama hve
langt lífið er.“
Þad málar held ég
enginn eins og ég
Sveinn segir að málaralistin hafi verið sér *’
eins konar fíkn í gegnum tíðina. „Ég bara
get ekki hætt að mála. Það er alltaf eitt-
hvað sem rekur mann áfram. Stundum hef-
ur þetta verið erfitt. Maður var með heimili
og annað, þurfti að láta enda ná saman og
koma sonunum til mennta. Ég eyddi því
stórum hluta ævinnar í að vinna hjá rann-
sóknarlögreglunni. Sjálfur fór ég ekki í skóla
að ráði. Er nánast sjálflærður í listinni. Ég
var eitt ár í akademíunni í Kaupmannahöfn.
Byijaði reyndar á því að fara í Sjómanna-
skólann og lærði að vera skipstjóri. Var svo
til sjós í mörg ár. Hef sjálfsagt lært af því.
Að minnsta kosti málaði ég mikið af sjávar- v.
myndum. Síðan fór ég að mála fantasíur,
örugglega í tuttugu ár. En svo sá ég að
þetta þýddi ekki lengur, ég yrði að fara að
móta mér einhvern stíl, persónulegan stíl.
Það skiptir öllu núna að skera sig úr. Og
ég held að það hafi tekist; það málar held
ég enginn eins og ég.“
- Hvað varð af fantasíunni?
„Ja, hún hvarf. Hún kemur stundum fram
þegar ég teikna. Annars fór hún bara.“
- Og þú saknar hennar ekkert?
„Nei, ekki neitt. Er glaður yfir því að
hafa farið út í eitthvað nýtt.“
Sannleikurinn er i listinni
Sveinn agnúast mikið út í nýlistinaj seg-
ist ekki hafa mikið álit á henni. „Ég er ^
málari og hef lítið gaman af þessari hug-
myndalist og mínimalisma og hvað það heit-
ir nú. Ég er að vona að málaralistin sé að
ná sér á strik núna; mér finnst ég hafa séð
nokkur merki þess að undanförnu. Annars
sleppa ungir myndlistarmenn alveg við mál-
verkið nú til dags, það er ekki litið svo á
að menn þurfi að kynna sér málun til að
verða myndlistarmenn.
Ég skrifaði einhvern tímann um þetta og
það féll í vondan jarðveg. Maður má ekki
segja meiningu sína hér á íslandi. Maður
þarf helst alltaf að vera að ljúga. Það er ^
furðulegt. Það er alls staðar verið að ljúga.
En kannski er þetta bara eitthvað í mér,
kannski er það bara arfur úr lögreglunni
að vera upptekinn af sannleikanum.“
- En þú leitar sannleikans í listinni líka
eins og menn hafa gert í gegnum tíðina.
Kannski er hann hvergi annars staðar?
„Hann gæti verið þar.“
- Menn geta ekki logið í listinni.
„Nei, þar veigra menn sér að minnsta
kosti við því. í listinni sýna menn sig líka
opinberlega. Jú, sennilega er sannleikun'nn
í listinni og hvergi annars staðar.“
SVEINM Bjömsson Morgunblaði4/RAX
LISTIN ER LEIT
í dag veróur opnuó sýnincj á nýjum verkum Sveins
Björnssonar listmálara í Listasafni Kópavogs,
Geróarsafni. í samtali vió ÞRÖST HELGASON seg-
ist Sveinn alltaf hafa verió leitandi í listinni. Hann
segist raunar aldrei hafa verió ánægóur meó þaó
sem hann hafi verió aó gera enda sé sá sem þaó
sé dauóur úr öllum æðum. Listin er leit.
ÉG HEF verið að móta nýjan stíl með þess-
um strokum, grófu láréttu strokum. Ég er
mjög grófur, vil ekki hafa þetta mjög fínt,“
segir Sveinn Björnsson þegar ég spyr hann
um áberandi einkenni á myndum sýningar-
innar í Gerðarsafni. Og hann heldur áfram.
„Þessar strokur eru einhver della, eitthvað
sem maður kemur sér upp. Þær eru ekki
svona vegna þess að ég vilji vera láréttur
sjálfur, mér þykir þær bara þægilegri og
skemmtilegri en hinar lóðréttu."
- Það er líka mikið af sterkum litum í
myndunum?
„Ég elska liti, sterka liti. Ég er þannig
maður; vil lifa sterkt í öllu sem ég geri.“
Sveinn Björnsson á fjörutíu ára feril að
baki sem málari og segist hafa gengið í
gegnum ýmsa stíla og stílbrigði. Aðspurður
segist hann líta á listina sem leit, leit að
aðfet’ð og sannleika.
„Ég hef alltaf verið leitandi í listinni. Hef
eiginlega aldrei verið ánægður. Ég álít að
ef málari er ánægður með það sem hann
er að gera sé hann dauður úr öllum æðum.
GRÉTA Mjöll Bjarnadóttir
ingar á búsetu og samfélagi þjóðarinnar,
flutning af mold á möl.
Kveikjan að ættartölumyndunum voru
reflar á Þjóðminjasafni með myndum úr
Iífi fyrirmanna. Ættartölurnar eru hins
vegar sagnfræði almennings og með því
að setja þær fram í myndrænu formi
túlka ég líf almennings á þessum tíma
sem svo lítil skil eru gerð í eldri mynd-
list þótt skrifaðar heimildir um það séu
miklar.“
Þetta er fimmta einkasýning Grétu
Mjallar. Hún útskrifaðist úr grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskólans árið 1987.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 27. apríl.
Hún er opin alla daga nema mánudaga
frá 12-18.
almennings
GRÉTA Mjöll Bjarnadóttir myndlistar-
kona opnar sýningu í Listasafni Kópa-
vogs, Gerðarsafni, í dag á sex stórum
koparætingum sem allar eru unnar á
þessu ári. Ættartölur eru viðfangsefni
listakonunnar að þessu sinni. Líta má á
þær sem framhald af fyrri verkum sem
unnin voru út frá æviminningum gamals
fólks og minningargreinum.
„Ég hef fengist við að skrifa lífssögur
fólks, safna heimildum um sagnfræði al-
mennings. Þetta verkefni kemur í fram-
haldi af þeirri vinnu en ég er að vinna
með ættartölur mínar. Þetta er leit. Það
er lítið til af myndmáli um sögu almenn-
ings og þetta er kannski tilraun til að
bæta úr því. Úr ættartölum má lesa breyt-
HELGA Egilsdóttir
Horft inn í
IDAG verður opnuð sýning á verkum
Helgu Egilsdóttur listmálara í Listasafni
Kópavogs, Gerðarsafni. A henni eru tólf
stór olíumálverk unnin á síðasta ári.
Þótt Helga máli abstrakt eru verkin á
sýningunni undir sterkum áhrifum frá
íslenskri náttúru þar sem veturinn ríkir
og vindarnir blása. Þessar vetrarstemmn-
ingar túlkar listakonan með köldum litum
sem leika á mildum og djúpum undirtón-
um. Yfirskrift sýningarinnar er „Horft
inn í“ og heiti sumra verkanna benda þó
jafnframt til að samspil forma og lita i
myndfletinum endurspegli umbrot og
átök í innra og ytra lífi.
Þetta er áttunda einkasýning Helgu.
Hún stundaði nám hér heima og í Dan-
mörku en lauk myndlistarmenntun sinni
við listaskóla í San Fancisco. Sýningin
stendur til sunnudagsins 27. apríl og er
opin alla daga nema mánudaga frá kl.
12-18.
„Portmyndir“
MYNDLISTARSÝNING „Portmyndir"
við Laugaveg og Bankastræti hefst í dag.
Markmið sýningarinnar er að fara út
úr hefðbundnum sýningarsölum og
tengja listina annríki dagsins. Staðsetn-
ing verkanna verður í undirgöngum og
stundum við Laugaveg og Bankastræti.
Um er að ræða sýningu á innsetningum,
listaverkum sem eru unnin sérstaklega
inn í ákveðin valin port.
12 myndlistarmenn taka þátt í sýning-
unni, sem styrkt er af Reykjavíkurborg
og menntamálaráðuneyti. Uppistaðan í
hópnum eru myndlistarmenn sem hafa <
verið virkir á þessum vettvangi síðastlið-
in tíu ár. Þátttakendur verða: Alda Sig-
urðardóttir, Arnfinnur Einarsson, Asta
Ólafsdóttir, Elsa D. Gísladóttir, Eygló
Harðardóttir, Hlynur Helgason, Krist-
bergur Ó. Pétursson, Kristín Reynisdótt-
ir, Magnús S. Guðmundsson, Pétur Örn
Friðriksson, Ragnhildur Stefánsdóttir og
Þóra Sigurðardóttir.
Leiðarkort um sýninguna fær fólk í
hendurnar í verslunum við Laugaveginn.
Meðan á sýningunni stendur kemur út
sýningarskrá sem liggja mun frammi á
kaffihúsum og á listasöfnum.
Sigurður Þórir -
framlengir
MÁLVERK ASÝNIN GAR Sigurðar Þóris
í Norræna húsinu og í Galleríi Ófeigs,
Skólavörðustíg 5, verða frainlengdar til
sunnudagsins 13. apríl. Sýningin í Nor-
ræna húsinu er opin daglega frá kl. 14.00
til 19.00 en hjá Ófeigi á afgreiðslutíma
verslunar. Sigurður Þórir er fæddur og
uppalinn í Reykjavík og stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla Islands 1968
til 1970, en eftir það fór hann til náms »
við Konunglegu listakademíuna í Kaup-
mannahöfn 1974 og var þar við nám tii
1978. Sigurður Þórir hefur haldið fjölda
einkasýninga hér heima og erlendis og
tekið þátt í fjölda samsýninga.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 5. APRÍL 1997 17