Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Page 3
LESBðK MORGIINBLAÐSINS - MENIMNG USTffl 18. TÖLUBLAÐ - 72. ÁRGANGUR EFNI Konur áttu fáa liðsmenn úr röðum karla í rétt- indabaráttu sinni á 19. öldinni, en einn þeirra var þó Magnús Eiríksson, guð- fræðingur og rithöfundur frá Skinna- lóni, sem settist að í Kaupmannahöfn þar sem bláókunnugar konur leituðu til hans í vandræðum sínum, en hvers manns götu greiddi Magnús af „umburð- arlyndi, blíðlyndi og þolinmæði" og fórnaði öllum jarðneskum gæðum fyrir sannfæringu sína. Um „Gleymda karl- manninn", Magnús Eiríksson, skrifar Jóhanna Þráinsdóttir. Myndlistaskólinn í Reykjavík á fimmtíu ára afmæli um þessar mundir. í þeim skóla hafa töfra- heimar myndlistarinnar opnast fyrir mörgum og þangað hefur almenning- ur, jafnt börn sem fullorðnir, leikir j og lærðir, getað leitað sér fræðslu um myndlist. A vorönninni sem nú er að f ljúka voru nemendur skólans rúmlega 360 talsins, börn og unglingar í dag- deildum og fullorðnir siðdegis og á kvöldin. Babelsturninn í Gamla testamentinu urðu menn að hætta að byggja, því Guð refs- aði þeim fyrir þann hroka að láta hús ná uppúr skýjum. Hann gerir það siður núna og Ameríka er að tapa forustunni með hæstu hús / 1 ly heimsins. Hús af þessu tagi rísa þar sem uppgangur er hvað mestur og brátt verður það hæsta í Kuala Lump- ur, en ekki lengi, því Ástralir eru með eitt enn hærra á teikniborðinu. Um Babelsturna í nútímanum skrifar Gísli Sigurðson. Parísarborg vaknar við raust útigangsmannsins. Á efnisskránni eru sem endranær helstu lög Frank Sinatra og bútar úr þekktum óperuaríum. Hann hefur vart lokið söng sínum þegar morgun- messa hefst og orgeltónar og kór- söngur taka að berast úr ævafomri kirkju. Og áfram líður dagurinn með alls kyns tónlistaviðburðum. Pétur Jónasson fór „á eyrunum" eina hringferð um Parisarborg. Plattar frá dönskum postulínsverksmiðj- um þykja að jafnaði ekki mjög list- rænir gripir, en þeir geta verið safngripir og ekki má gleyma því að Danir gáfu stundum út platta til styrktar íslenzkum málefnum; t.d. voru 5 slíkir gefnir út til styrktar holdsveikraspítalanum í N Laugarnesi, en aðrir plattar tengdust konungskomunni 1907, afmæli Oddfellowreglunnar / o.s.frv. Um þessa dönsku plat- J taútgáfu skrifar Helga Skúla- dóttir. Forsíðumyndin er tekin í kennsiustund í módelteikningu í Ásmundarsal 1976 og birt í tilefni 50 óra afmælis Myndlistaskólans. SIGFÚS DAÐASON ANDLIT Oft hlaut lífmanna bráðan dulbúinn endi eitt kvöld, til dæmis ímarz; vegirog bryggjur og fljótið í tunglskini, fleyta sem berst með straumi allan daginn, slétturþorp ogheiðar sem flýja hraðan um hafþúsunda dægra og langir ískrandi vegir: leiðin til baka og þreyttir fætur og gangstéttir allar þærgötur íborg undir snjónum, hin máðu andlit ísnjónum skírum skírandi sjónum, helgrímurykkar sem renna burt með flaumnum einn dag ímaí en einstaka nótt skein tunglið á ísilagt fljót. Þetta varmannlíf, ótrúlegt eins oghendur og herbergi ígististað hús sem þið funduð aðmorgni íþokunni: það var allt ykkar líf. Horfiðsamt varlega á þetta nýja andlit því eftil vill á hamingjan heima þar. Sigtús Daóason, 1928-1996, var eitt af atómskóldunum sem svo voru nefnd. Ljóðið er úr fyrstu Ijóðabók hans, sem hét „Ljóð 1947-1951“. HRAÐBRAUTA- AKSTUR FYRIR nokkru var ég farþegi í bíl hjá einum færasta hrað- brautarökumanni, sem ég þekki. Hann er ungur að árum og hafði aðeins haft ökupróf í nokkra mánuði þegar hann bauðst til að skutla mér í bæinn á bílnum sínum. Úr Kópavogi er ekið eftir Kringlumýrarbraut og síðan Miklubraut til vesturs. Ég tók eftir því að hann ók ávallt á vinstri akrein eða þeirri í miðið þar sem þær voru þrjár samliggjandi. Ég hafði orð á þessu við hann og spurði hvort honum hefði ekki verið kennt að á íslandi væri hægri umferð og því ætti mað- ur að jafnaði að halda sig hægra megin. Hann varð hálfhissa og sagði að ökukennar- inn hefði aðallega lagt áherslu á að hann gætti sín á því að láta málmhlemmana yfir ræsunum alltaf lenda milli hjólanna á bíln- um. Nú varð ég ekki lítið undrandi en jafn- framt kviknaði á skilningstírunni í hausnum á mér: þarna var þá komin skýringin á því hversvegna íslenskir ökumenn haga sér oft- ast eins og skíðamenn í svigi á fjölreina akvegum: þeir sikksakka milli reina eins og til að sýna hvað þeir eru klárir. Og þá klárir í þvi að láta ræsalokin lenda milli hjólbarð- anna á bílum sínum. En hversvegna í ósköp- unum er það svona mikilvægt - og mikilvæg- ara en að halda almennar reglur og sýna tillitssemi í umferðinni? Ekki hef ég enn fengið svar við því en hver veit nema ein- hver lesandi gæti frætt mig á því? Af ásettu ráði sagði ég í upphafi máls míns að hann væri einn færasti hraðbrautar- ökumaður sem ég þekki. Ég tók það þó ekki fram en geri það núna að hér á ég við upplýsingahraðbrautina. Vegi veraldarvefs- ins, sem eru sennilega að verða órannsakan- legir, eins og vegir guðs. Þar er þessi ungi maður eins og heima hjá sér: þekkir alla stíga og brautir, hliðargötur, heimtraðir og „ábótana“ internetsins eða alnetsins. Það er svo einkennilegt hvað margir spá- dómar, sem sagðir eru í kjölfar nýrra upp- finninga, reynast rangir þegar fram líða stundir. Einn spámaður spáði því að með alneti fækkaði ferðum fólks um götur og stræti, vegna þess að það gæti gert svo margt í krafti þessarar tækni: setið heima og unnið vinnu sína gegnum símkerfið með aðstoð tölvu og lyklaborðs. Hér langar mig að vitna í Geoffrey nokk- urn Vasiliauskas, sem er Lithái og sérfræð- ingur í stjórnmálum. Hann skrifar inn á umræðulista um Eystrasaltslöndin 4. apríl sl. og takið eftir að þetta er ekki umræðu- listi um bókasafnsmál heldur stórpólitík: Hann segir ma.: „Ég hef séð framtíðina, og lítilvæg funda- höldin í Helsinki... fölna í samanburði. Framtíðin er bókasafnsfræðin. Þegar alnetið kom dag einn, sögðu sporgöngumenn þess: „Þið bókasafnsfræðingar! Farið í fríið! Búið ykkur undir að verða óþarfir! Við þurfum ekki á ykkur að halda lengur!" Nú éta þeir þetta oní sig. Netið er orðið að skrýmsli, endalaust, án ríms, án skynsemi, án skipu- lags. Bókasafnsfræðin er lykillinn að þessari óreiðu og lykillinn að framtíð okkar.“ Og hann heldur áfram: „Langi þig að vita eitthvað í Litháen, gefðu þig þá að bóka- safnsfræðingum. Þeir stjórna þekkingar- flæðinu ... Upplýsingarnar eru í höndum þeirra, sem kunna að vista og finna þær.“ Og það er líkt með spádómum og trú manna að ekki er alltaf treystandi á að hlut- irnir gangi eftir. Lengi hafa menn trúað á upplýsingu og upplýsingar sem forsendu þekkingar, mennt- unar og framfara. Ríkisstjórnin okkar hefur haft fyrir því að setja nokkrar nefndir til að móta framtíðarstefnu íslands í upplýs- ingamálum til framtíðar, til 21. aldarinnar. í tillögum nefndanna er fjálglega talað um að bókasöfnin séu mikilvægir hlekkir í keðju þeirri, sem á að halda utan um þróunina, skapa grundvöll til frekari framfara og vera þungamiðjan í því að efla þátttöku almenn- ings í lýðræðislegri framvindu. Flestir eru sammála um að bókasöfn séu þær þekking- armiðstöðvar, sem best eru fallnar til að tryggja öllum óheftan aðgang að upplýsing- um og gera öllurn þegnum landsins kleift að nýta sér nýja tækni til náms, endurnáms og sjálfseflingar. En þegar kemur að því að gera ráðstafan- ir til að gera söfnin fær um að gegna þessu mikilvæga hlutverki, sérstaklega með tilliti til fjárveitinga til þeirra, þá flytja menn sig yfir á vinstri kantinn og vilja ekki kannast við neitt, hvorki spádóma né heita trú! Þetta þykir mér undarlegt aksturslag. Ég hef nokkrum sinnum reynt að koma á framfæri þeirri trú minni að lestur sé íþrótt, í því augnamiði m.a. að bókasöfn verði talin til íþróttamannvirkja. Tilgangurinn er að sjálfsögðu sá, að með því móti væri mögu- legt að sækja í Gullnámu- og Lottósjóði þjóð- arinnar með fjárveitingar til eflingar bóka- safnanna, bygginga nýrra safna og útibúa. Bretar hafa skilning á þessu og þar á bæ hafa bókasöfn fengið formúur úr slíkum sjóðum. Bókasöfn í Bretlandi tilheyra mála- flokki sem kallast „Þjóðararfur11, á ensku National Heritage og eru þar með flokkuð í sjóðakerfinu líkt og kastalar, hallir og minjasöfn ýmiss konar. Ekki hefur þessi áróður minn náð eyrum þeirra sem ráða fjármálum þjóðarinnar hing- að til, enda ek ég að jafnaði alltaf á hægri akrein. Nú væri e.t.v. ráð að snúa þessum áróðri upp á vegamálin og aka hratt vinstra megin. Þá myndu rök bókavarða fyrir aukn- um fjárveitingum til byggingar bókasafna hljóma eitthvað á þessa leið: „Mikið umferðaröngþveiti hefur nú skap- ast á upplýsingahraðbrautum landsins og sjá menn vart til 21. aldarinnar fyrir almenn- um glannaskap á Veraldarvegum þekkingar- innar. Því samþykkir Alþingi Islendinga að beina því til samgönguráðuneytisins að þeg- ar búið verður að bora undir Hvalfjörðinn verði borar og bormenn Islands notaðir til að bora stórt gat á ríkissjóð með öðru opinu sem næst okkur í tíma en hitt opnist fram í upphafi 21. aldarinnar, inni á miðju gólfi í anddyri alnetsins með heimaslóðum til allra átta. Byggð verði sýndarveruleikabókasöfn í hveijum landsfjórðungi allt eftir því hvort fólk búi þar enn eða ekki og þau opin almenn- ingi sem leiktæki og lestraríþróttamiðstöðvar til eigin afnota. Þar fari fram þolraunir ýmiss konar og þrekæfingar andans til eflingar almennri geðheilsu og þar fái menn leiðsögn í að aka á hægri akreinum eftir upplýsingahraðbraut- um heimsins." Frá blautu barnsbeini er mér minnisstætt að hafa svo oft heyrt stjómmálamenn tala um bókaþjóðina og lengi framan af trúði ég því að til væri eitthvað sem væri bókaþjóðin íslenska. Nú hefur smám saman runnið af mér þessi barnatrú og mér er orðið ljóst að þetta gaspur þeirra er eitthvað sem þeir hafa tekið í arf frá frammámönnum 19. ald- arinnar, Jóni Sig. og kó. Engum dettur held- ur lengur í hug að trúa orði af því sem stjórnmálamennirnir segja - fólk brosir helst í kampinn þegar þeir taka upp í sig gamlar lummur, en svo er skrýtnast af öllu skrýtnu að það virðist nákvæmlega sama hvað þess- ir menn segja þarna á þinginu, alltaf eru þeir kosnir aftur og aftur, allavega eru það að því er virðist alltaf sömu mennirnir sem sitja þarna í sölunum og setja upp landsföð- ur - og nú upp á síðkastið landsmóðursvip, þegar þeir stíga í pontu og segja eitthvað svo gasalega alvarlegt og þjóðlegt að manni liggur við að æla. Og þjóðin heldur áfram að aka bara á vinstri kanti, eða miðakrein ef svo ber und- ir, eins og henni komi ekki við að fyrir mörgum árum voru sett ný umferðarlög sem ætlað var að fá menn til að aka hægra megin. Spurningin er því sú hvort ríkisstjórn- in sé yfirleitt úti að aka, eða sé bara utan vegar, sbr. ljóðlínur sem mér detta svo oft í hug, eftir Eirík Einarsson frá Hæli og heitir Aumlegt fulltrúaráð: ... og mér virtist þjá þá ef það var nefnt sem á lá, skaust þá hver á ská frá, skefldur sem af váspá. En hundaskít sem hjá lá, horfðu þeir á í smásjá. HRAFN A. HARÐARSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. MAÍ 1997 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.