Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1997, Síða 2
MYNDLIST
Sigfúsar
minnst í
Háskólabíói
LIONSKLÚBBURINN Ægir í Reykjavík
gengst fyrir fjáröflunartónleikum í Há-
skólabíói á morgun, sunnudag, kl. 16,
sem helgaðir eru minningu eins félags-
manna, Sigfúsar Halldórssonar tón-
skálds og listmálara.
Fjöldi listamanna kemur fram á tón-
leikunum, svo sem Karlakór Reykjavík-
ur, Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur,
Egill Ólafsson, Jóhanna Linnet, Eiríkur
Hreinn Helgason, Signý Sæmundsdóttir,
Sigurður Marteinsson, Friðbjörn G.
Jónsson og Jónas Ingimundarson, auk
kammersveitar. Sungin og leikin verða
þekkt og minna þekkt tónverk Sigfús-
ar, auk þess sem Friðbjörn og Jónas
munu flytja þijú lög eftir Sigfús, í út-
setningu Þorkels Sigurbjörnssonar, sem
ekki hafa verið flutt opinberlega áður.
Kynnir á tónleikunum verður Omar
Ragnarsson.
SIGFÚS Halldórsson við slaghörpuna.
Tilefni fjáröflunarinnar er 40 ára af-
mæli Lionsklúbbsins Ægis, sem er einn
elsti klúbbur sinnar tegundar á landinu.
Ægir hefur lengi starfað að málum vist-
manna á Sólheimum í Grímsnesi en að
auki liggja til úrlausnar mörg önnur líkn-
arverkefni, sem sinnt er eftir því sem
fjárhagur og aðstæður leyfa.
EINSÖNGUR OG ORGEL
í KLETTAKIRKJUNNI
Morgunblaðið/Golli
SIGURÐUR Bragason barítonsöngvari og Bjarni Þór Jónatansson orgelleikari munu
halda tónleika í Klettakirkjunni i Helsinki.
SAMSYNING SEX MYNDLISTAR-
MANNA í NÝLISTASAFNINU
SIGURÐUR Bragason barítonsöngvari og
Bjami Þór Jónatansson píanóleikari halda
tónleika í Klettakirkjunni í Helsinki í Finn-
landi 27. október nk. Á efnisskrá eru ein-
göngu íslensk verk, allt frá útsetningum á
gömlum sálmalögum til nútímaverka. Kirkj-
an er sprengd inn í klettaborgir í einu af
eldri hverfum Helsinkiborgar og er víðfræg
fyrir einstakan hljómburð.
Sigurður stundaði framhaldsnám í söng
í Mílanó á Ítalíu hjá Pier Miranda Ferraro.
Hann hefur komið víða fram hérlendis og
erlendis. í júní 1995 söng Sigurður annað
aðalhlutverkið í óperu Atla Heimis Sveins-
sonar, Tunglskinseyjunni og haustið 1996
kom hann fram á einsöngstónleikum í
Carnegie Hall í New York.
Að loknu kennaraprófi í píanóleik frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík sótti Bjami
Þór Jónatansson einkatíma í Lundúnum hjá
Philip Jenkins. Hann hefur starfað sem
píanókennari og undirleikari í Reykjavík frá
1980. Á síðustu árum hefur hann lagt fyrir
sig orgelleik og hefur víða komið fram sem
slíkur.
Samstarf þeirra Sigurðar og Bjama hefur
staðið í nokkur ár. Síðast komu þeir fram
á Menningarnótt í Reykjavík í ágúst sl. á
tónleikum í Sjálfstæðishúsinu gamla. Þá var
þeim boðið að halda opnunartónleika á tón-
listarhátíðinni Encuntros í Buenos Aires í
Argentínu fyrir tveimur árum.
Það er finnskur menningarstyrkur sem
gerir þeim Sigurði og Bjarna mögulegt að
halda tónleika í Klettakirkjunni. „Okkur
þótti við hæfi að flytja íslensk trúarleg verk
í þessari frægu kirkju," segir Sigurður.
„Verkin em allt frá okkar elstu tónsmíðum
til dagsins í dag. Þau elstu eru þjóðlög út-
sett af Jóni Leifs sem nýverið fundust í
Háskólanum í Berlín og enginn vissi að til
væru.“ Frá útsetningum á gömlum sálma-
lögum eins og Lilju í útsetningu Þorkels
Sigurbjömssonar og Himna rós í útsetningu
Ragnars Bjömssonar er horfið til síðróman-
tíkur og áfram til nútímans, yngst er verkið
í Kapernaum eftir Atla Heimi Sveinsson,
samið árið 1996. Faðir vor eftir Jón Leifs
er lítt þekkt en mikið verk að smíðum.
Bjama er til efs að það hafí verið flutt af
baritonsöngvara áður eða yfirleitt flutt á
tónjeikum.
Áður en þeir halda utan ætla Sigurður
og Bjarni að flytja efnisskrá sína í Hall-
grímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
hinn 21. október nk. kl. 21. Síðar í vetur
hyggja þeir á frekari flutning efnisskrárinn-
ar hér á landi, m.a. í mörgum helstu kirkjum
landsins. „Tónleikar í Klettakirkjunni eru
alltaf viðburður og við hlökkum mikið til
að koma fram í þessari hljómfögru kirkju,"
segir Sigurður.
SAMSÝNING sex myndlistarmanna í Ný-
listasafninu við Vatnsstíg 3b verður opnuð
í dag, laugardag, kl. 16. Myndlistarmenn-
irnir eru þrír íslendingar og þrír Finnar.
Þeir eru: Valgerður Guðlaugsdóttir, Pasi
Eerik Kaijula, Antti Keitilá, Elva Dögg
Kristinsdóttir, Kalle Suomi og Þóra Þóris-
dóttir.
Sýningin ber yfirskriftina Aeropause.
Listamennirnir unnu fyrst saman að verk-
efni um umhverfislist í Jokioinen í Finn-
landi árið 1993. Er þessi sýning annað
stefnumót þeirra.
Þorbjörg Höskuldsdóttir er áttundi gestur
Nýlistasafnsins í Setustofunni. Safnið hefur
boðið Félagi íslenskra myndlistarmanna
Setustofuna fram að áramótum og eru lista-
mennirnir valdir af FÍM. Þorbjörg er eins
og fyrri gestir, myndlistarmaður með lang-
an feril að baki sem málari. Hún er einkum
kunn fyrir að byggja upp myndir með geo-
metrískum formum, fjarvíddaráhrifum og
landslagi.
Sýningarnar eru opnar frá kl. 14-18
alla daga nema mánudaga og lýkur þeim
2. nóvember. Aðgangur er ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
Sýningin Kirkja og kirkjuskráð, miðalda-
kirkjan í Noregi og á íslandi. f Bogasal eru
sýndar ljósmvndir úr finnsku búsetulandslagi
til 18. okt._
Listasafn íslands
í öllum sölum safnsins er sýning á verkum
Gunnlaugs Schevings.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41
- Ásmundarsalur
Erla Þórarinsdóttir, málverk. Gryfja: Vil-
hjálmur G. Vilhjálmsson, pastelmyndir. Arin-
stofa: Jóhannes S. Kjarval. Verk úr eigu
safnsins. Til 27. október.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Jóhannes Kjarval í austursal, ljósmyndir eft-
ir 30 erlenda listamenn í vestursal og miðsal.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða-
stræti 74
Kyrralífs- og blómamyndir ásamt myndum
úr Reykjavík og nágrenni. Til febrúarloka.
Norræna húsið - við Hringbraut
Anddyri: Auglýsingaspjöld eftir Tryggva
Magnússon og Jón Kristinsson - Jónda. Til
2. nóv. í ljósaskiptum til 23. nóv. Skartgripa-
sýning til 31. des. tarGet samsýning til 2.
nóv. Tryggvi Ólafsson málverk til 30. nóv.
Hafnarborg
Gjaldmiðlar og gamlir munir til 27. okt.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði
v/Suðurgötu
Handritasýning til 19. des.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Valgerður Guðlaugsdóttir, Pasi Eerik Kaij-
ula, Antti Keitilá, Elva Dögg Kristinsdóttir,
Kalle Suomi og Þóra Þórisdóttir sýna til 2.
nóv. Gestur safnsins í setustofu er Þorbjörg
Höskuldsdóttir.
Gallerí Fold
Ingibjörg Hauksdóttir og Ása Kristín Odds-
dóttir sýna til 19. okt.
Gallerí Hornið
Berglind Bjömsdóttir og Fríða Jónsdóttir
sýna ljósmyndir til 22. okt.
Galleríkeðjan Sýnirými
Sýnibox og Gallerí Hlust: William S. Burr-
oughs.
Gallerí Barmur: Tumi Magnússon.
Gallerí 20m! Pétur Örn Friðriksson til 1. nóv.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Daniel Þ. Magnússon sýnir til 16. nóvember.
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Eggert Pétursson, Helgi Þorgils Friðjónsson
og Kristinn G. Harðarson sýna til 2. nóvem-
ber.
Gallerí Stöðlakot
Sigríður Anna E. Nikulásdóttir sýnir til 19.
okt.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9
Fjóla Hilmarsdóttir sýnir listprjón til. 22. okt.
Sjóminjasafn íslands við Vesturgötu i Hf.
Almenn sýning og sýning á olíumyndum
Bjarna Jónssonar.
Listaskálinn í Hveragerði
Haukur Dór og Gunnar Örn sýna til 26. okt.
Laugardagur 18. október
Langholtskirkja: Óperutónleikar. Tito Beltr-
án, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Anna Guðný
Guðmundsdóttir halda tónl. kl. 20.30.
Sunnudagur 19. október
Listasafn íslands: Tónleikar Kammer-
sveitar Reykjavíkur kl. 20.30.
Norræna húsið: Lelo Nika heldur harmóníku-
tónl. kl. 20.30.
Langholtskirkja: Óperutónleikar. Tito
Beltrán, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Anna
Guðný Guðmundsdóttir halda tónl. kl. 17.
Þriðjudagur
Norræna húsið: Eydís Franzdóttir, Kristín
Mjöll Jakobsdóttir og Unnur Vilhelmsdóttir
halda tónl. kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Þtjár systur, sun. 19., fim. 23., föst. 24. okt.
Fiðlarinn á þakinu, lau. 18. okt.
Listaverkið, lau. 18, mið. 22. okt.
Kvöldstund með Ghitu Nörb, mánud. 20. okt.
Borgarlcikhúsið
Galdrakarlinn í Oz, lau. 18., sun. 19. okt.
Hár og hitt, lau. 18. okt.
Ástarsaga, fim. 23. okt.
Loftkastalinn
Áfram Latibær, sun. 19. okt.
Bein útsending, sun. 19., föst. 24. okt.
Veðmálið, föst. 24. okt.
Leikfélag Kópavogs
Með kveðju frá Yalta, lau. 18. okt.
Hafnarfjarðarleikhúsið
Draumsólir vekja mig, lau. 18., sun. 19. okt.
Möguleikhúsið
Búkolla, sun. 19. okt.
Kaffileikhúsið
Revían í den, frums. sun 19. okt. Föst. 24.
okt.
íslenska óperan
Cosi Fan Tutte, lau. 18., fös. 24. okt.
Hafnarfjarðarleikhúsiö
Draumsólir vekja mig, frums. lau. 11. okt.
Sun. 12. okt.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða að
hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðviku-
dögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/Iistir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsend-
ir: 569 1181. Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. OKTÓBER 1997