Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1997, Blaðsíða 4
Rithöfundasambandió
hefur nú fengió hús
Gunnars Gunnarssonar
skálds á Dyngjuvegi 8
í Reykjavík en leitast
veróur vió aó halda
þessu merka húsi
óbreyttu aó innan
jafnt sem utan.
Nú eru tímamót hjá Rit-
höfundasambandi ís-
lands sem er flutt með
skrifstofur sínar í hús
Gunnars Gunnarssonar
skálds að Dyngjuvegi
8. Hvortveggja er, að
húsið er hátt eins og
myndin sýnir og svo hitt, að það stendur á
afar fögrum útsýnisstað austantil á brún
Laugarássins. Húsið var byggt 1950-52 og
sérhannað fyrir þarfir rithöfundarins. Gunn-
ar hafði byggt yfir sig á Skriðuklaustri þeg-
ar fjölskyldan fluttist til íslands, en það hús
var og er enn ólíkt flestum húsum á Is-
landi, enda byggt eftir fyrirmyndum sunnan
frá meginlandi Evrópu. Það kom því mörg-
um á óvart að Gunnar skyldi leita til Hannes-
ar Kr. Davíðssonar arkitekts þegar hann
hugðist byggja hús í Reykjavík, en Hannes
var þá ungur og róttækur módemisti, en
lítt þekktur. Lausn Hannesar var eins og
við mátti búast að öllu leyti eftir forskrift
módernismans og í listrænu tilliti er húsið
ein af merkustu byggingum okkar frá 6.
áratugnum. Pétur H. Armannsson forstöðu-
maður byggingarlistardeildar að Kjarvals-
stöðum segir á minnisblaði, að einkum sé
það útfærsla stigans og tenging rýmisins
milli hæða sem hafi verið merk nýjung í
íslenzku íbúðarhúsi á þeim tíma. I stað hefð-
bundins, lokaðs stiga í tenglsum við gang
er léttbyggðum, opnum tréstiga skipað niður
í miðri stofu, þar sem hann myndar beina
tengingu milli íverurýma á efri og neðri hæð.
Af öðrum nýmælum má nefna útfærslu
ofanljóss yfir stigaopi, tilhögun og gerð
glugga, sýnilega mótaáferð á steyptum
útveggjum og ýmis frágangsatriði innan-
húss. Af öllu þessu má ljóst vera, segir
Pétur, að húsið hefur mikið varðveizlugildi,
bæði sem heimili Gunnars Gunnarssonar og
Fransisku konu hans og eins sem tímamóta-
verk í íslenzkri húsagerðarsögu.
Það var fyrir frumkvæði Bandalags ís-
lenzkra listamanna og Rithöfundasambands
íslands að Reykjavíkurborg festi kaup á
húsinu 1991. Ætlunin var alltaf að húsið
yrði notað á einhvem hátt í þágu bókmennt-
anna og síðan hefur húsið verið nýtt sem
listamannsíbúð og erlendum listamönnum,
svo og íslenzkum Iistamönnum búsettum
erlendis, hefur verið úthlutaður dvalartími
í húsinu. Nýting hússins í þessa veru þótti
þó ekki vera sem skyldi.
Meginatriði samningsins sem nú hefur
verið gerður er, að borgin afhenti Rithöf-
undasambandinu húsið að Dyngjuvegi 8
ásamt tilheyrandi lóð til afnota frá 1. júní
1997 og til óákveðis tíma. Markmiðið er að
þar verði miðstöð og félagsaðstaða íslenzkra
rithöfunda og að með því verði sérstaklega
heiðruð minning skáldsins Gunnars Gunn-
arssonar. Rithöfundasambandið mun ekki
greiða leigu fyrir húsið, en standa sjálft
undir öllum daglegum rekstrarkostnaði þess.
Húsið verður áfram eign Reykjavíkurborgar
og borgin mun annast viðhald þess.
Þegar Lesbók leit inn í síðustu viku var
Rithöfundasambandið í óða önn að koma
sér fyrir. Formaðurinn Ingibjörg Haralds-
dóttir fær þama skrifstofu, en auk þess er
almenn skrifstofa í fyrrverandi vinnustofu
skáldsins og þar hefur Ragnheiður Tryggva-
dóttir framkvæmdastjóri aðsetur. Nokkrir
gamlir munir úr búi Gunnars skálds og
Fransisku hafa verið fengnir og er að þeim
mikil prýði. Þar á meðal er skrifpúlt Gunn-
ars, dragkista, eða kommóða eins og tíðkað-
ist að nefna slíkar hirzlur, svo og rammger
kista sem stendur næst arninum. Á veggjum
eru myndir eftir Gunnar yngra, son Gunn-
ars og Fransisku; í arinstofunni er stór
myndröð sem hann gerði við Fjallkirkjuna.
GS.
HÚS Gunnars Gunnarssonar skálds á Dyngjuvegi 8.
INGIBJÖRG Haraldsdóttir formaður Rit-
höfundasambandsins við skrifpúlt Gunn-
ars Gunnarssonar.
ARINSTOFUNNI: Kista úr búi Gunnars og Fransisku og teikningar Gunnars yngra við
Fjallkirkjuna.
RAGNHEIÐUR Tryggvadóttir framkvæmda-
stjóri Rithöfundasambandsins á skrifstofunni
þar sem vinnustofa Gunnars skálds var áður.
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. OKTÓBER 1997