Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1997, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1997, Qupperneq 11
2. Norn Þegar lýkur þessum styr, þjóðin tap og sigur spyr. 3. Norn Sól mun eigi setjast fyr. Ekki verður annað sagt en báðum takist vel til. Samanburður frumtextans og þýð- inganna sýnir vel hvað við er að etja. Is- lensku textarnir eru að mínu viti fegurri en sá enski, þeir eru með stuðlum og höfuð- stöfum auk endaríms,en sá enski styðst aðeins við endarím. Það kann að vera fá- nýtt að velta fyrir sér hvor fer nær frum- textanum hér. En lítum þó á málið. Shakespeare lætur 1. norn spyija: „Hvenær eigum við þrjár að hittast aftur?“ íslensku þýðingarnar láta hana hins vegar spyrja um hvenær þær skuli til þings, stefnu. Á þessu er sá munur að áhorfendur gætu skilið það svo, að þær ætluðu að hitta fleiri nornir. Af orðum nornarinnar er líka ljóst að þær hafa átt fund áður. Þessu nær Helgi með orðunum á ný, en Matthías slepp- ir þessu enda má deila um nauðsyn þessa atriðis. Hvorugur getur þess að þær ætla að hittast þrjár. En talan þrír virðist hafa eitthvert dulúðugt gildi þegar nornir eru annars vegar. Þetta kemur aftur og aftur fram, til dæmis í þreföldu ávarpi þeirra og þreföld tignarheiti Macbeths bergmála gegnum leikritið, Thane of Glamis, Thane of Cawdor, king hereafter. Megineinkenni á skapferli Macbeths er hversu hugsýn hans getur tekið völdin og raunveruleikinn hverfur honum. ímyndun hugans verður veruleikinn. Þetta er einn af allra sterkustu þáttum leikritsins. Eftir að nornirnar hafa boðað Macbeth þá tign sem hann á í vændum, segir Banquo: „Good sir, why do you start, and seem to fear.“ Og þýðingin er: Helgi: „Herra, hví bregður yður, sem þér óttist ...“ Matthías: „Því brá þér, vin sem hræddist þú....“ Það er sektarkenndin sem veldur því að Macbeth bregður, enda hefur hann hugleitt að myrða konunginn eins og síðar kemur fram. Og Banquo heldur áfram: „My noble partner you greet with present grace, and great prediction of noþle having and of royal hope, that he seems rapt withal." Þetta síðasta er í þýðingunni: Helgi: ,,..svo hann hrífst af...“ Matthías: ,,..svo hann er hrifinn: Orðið rapt kemur oftar fyrir. Mér virðist hér vera fremur átt við „niðursokkinn í hugsanir sínar“, steinilostinn, en hrifinn. Enda er fyrr komið fram að Macbeth brá eins og hann óttaðist. Báðir þýðendur halda þó áfram eins og hann sé hrifinn. Litlu síð- ar segir Banquo: „Look, how our partner’s rapt. „Hér þýðir Helgi rapt sem snortinn, en Matthías sem frá sér numinn. Mér virð- ist Shakespeare vera hér að búa áhorfand- ann undir þau skapgerðareinkenni Mac- beths, að hugur hans tekur auðveldlega völdin og allt annað hverfur honum. Hann er utan gátta. Kona hans segir við hann síðar í leikritinu: „Be not lost so poorly in your thoughts. „Þetta er eitt af einkennum leikritsins. Shakespeare nær miklum áhrifum með leik að orðum. Endurtekning orða eða orð- stofna þjónar ákveðnum tilgangi. Þannig skiptast orðin do, done og deed á og eru endurtekin hvað eftir annað þegar fjallað er um hinn hroðalega verknað Macbeths. Athyglisvert er að skoða hvernig þýðend- urnir taka á þessu atriði. Ég gríp hér niður í nokkrar setningar. Macbeth: „If it were done when ’t is done, then ’t were well it were done quickly." Helgi: „Ef lokið væri um leið og gert er, mætti það gerast skjótt.“ Matthías: „Ef búið væri búið, væri vel, það væri þegar búið.“ Lady Macbeth: „And ’t is not done: - the attempt, and not the deed, confounds us.“ Helgi: „...og verkið ógert! Högg sem ekki hæfir, glatar oss.“ Matthías: ,,..og allt sé ógjört; tilraunin er tjón, en ekki verkið.“ Macbeth: „I have done the deed.“ Helgi: „Ég framdi verkið." Matthías: „Þar er ég búinn.“ Lady Macbeth: „What’s done cannot be undone." Helgi: „Gert verður ekki aftur tekið.“ Matthías: „Gjört verður aldrei ógjört.“ Athugunin sýnir að hvorugur þýðand- inn samræmir orðaval í þessum tilvikum. Vel má velta fyrir sér livort slík samræm- ing hefur nokkurt gildi. En við lestur enska textans finnst mér eins og þessi orð hamrist inn í hugann. Helgi talar hér um að höggið glati oss. Merkingin að glata sem að tortíma er svo sjaldan notuð að hætt er við að hún fari framhjá áhorfend- um. Meðal þess sem hefur vakið umhugsun mína er þýðingin á orðum Macbeths: „Thou sure and firm-set earth. Hear not my steps, which way they walk, for fear tby very stones prate of my where-about, and take the present horror from the time, which now suits with it.“ Helgi: „Þú styrk og staðföst jörð, heyr ekki fótatak mitt, hvert það hneigist, svo hjali steinar þínir ekki um spor mín og svipti þessa stund þeim hugar-hrolli sem við á.“ Matthías: „Trygga, trausta jörð, ó tak ei eftir fótaburði mínum, að steinarnir ei hrópi, hvert ég ætli, og ræni þessa regin- dimmu stundu þeim rama fælu-hjúp, er henni sæmir.“ Hér er Macbeth á leiðinni að fremja morðið. Hann óttast að fótatak sitt heyrist og komi upp um sig. Báðir þýðendur telja að hann vilji ekki að ógnin, hugarhrollurinn sé tekinn frá stundinni. En hví skyldi honum vera umhugað um það? Að mínu viti er „present horror“ hér morðið og hann vill ekki skilja það frá þessari stund þ. e. láta koma í veg fyrir að það verði framið. Mér finnst því vera hér um misskilning að ræða í þýðingunum. Dæmi um hvernig sama hugsun er sett fram með mismunandi myndum. Macbeth: „But here upon this bank and shoal of time, We’d jump the life to come.“ Helgi: „...og hér, á þessum skemli í skóla tímans hlaupum vér yfir annað líf.“ Matthías: „...ég tala um hér á heimsins - flæðiskeri, vér metum þá ei mikils lífið hitt,..“ Líking Shakespeares er að lífið sé eins og mjótt rif í eilífðarhafi tímans og við ákvörðunina um morðið muni Macbeth vís- ; vitandi taka afleiðingunum af gjörðum sín- um i öðru lífi. Helgi lýsir þessu sem setu í skóla tímans og tengir það næstu línum, en Matthías talar um heimsins flæðisker. -«r Vatnaskil eru í leikritinu eftir morðið, þegar Macbeth segir: „Wake Duncan with thy knocking: I would thou couldst!" Þetta er eins og neyðaróp, samviskubit- ið hefur tekið völdin, örvæntingin er augljós. Helgi: „Vektu þá Dúnkan ! ó að þú gæt- ir það!“ Matthías: „Ber þú, uns Duncan vaknar. Ó, það vild’eg!" Éins og menn sjá er blæmunur á þessum þýðingum. Mér hefði fundist fara best á að nota fyrri hlutann frá Matthíasi og seinni hlutann frá Helga. Orðaleikir Shakespeares geta verið erfið- ir viðfangs. Hann notar til dæmis orðið lie, sem getur annars vegar þýtt að ljúga eða lygi og hins vegar að liggja. Ég gríp hér niður í samtal dyravarðarins við Macduff, þar sem dyravörðurinn talar um áhrif vínsins, drykkjarins. Porter: ,,....and, giving him the lie, leaves him.“ Mér virðist dyravörðurinn vera að segja að drykkurinn hafi slegið hann til jarðar og yfirgefið hann, en orðtakið getur einnig þýtt að saka hann um að ljúga. Helgi tekur þá merkingu og segir. „...með því að ljúga hann fullan." og slepp- ir því að drykkurinn yfirgefi hann. Matthías: ...gjörir honum skömm til og • | skilur svo við hann.“ Þama tekur Helgi afstöðu, en Matthías ; fer á hlið við vandamálið. Macduff: „I believe drink gave thee the lie last night.“ Hér finnst mér átt við, að drykkurinn hafi slegið hann til jarðar. Helgi: „Drykkurinn, held ég, laug þig fullan líka.“ Matthías: „Þú hefur víst fengið skömm af drykknum í nótt.“ Porter: „That it did, Sir, i’the very thro- at o’me; but I requited him for his lie; and, * I think, being too strong for him, though he took up my legs sometime, yet I made a shift to cast him....“ Dyravörðurinn virðist nú fyrst skilja það svo að umræðan snýst um að drykkurinn hafi sakað hann um lygi, samanber orðtak- ið „You lie in your throat“, þ.e. um leið og talað er. Síðan virðist hann aftur fara yfir í merkinguna að sér hafi verið varpað til jarðar og segist sterkari en drykkurinn eins og um áflog sé að ræða. Helgi: „Það gerði hann, herra, alveg uppí kok; en ég launaði honum lygina, því ég var, held ég, sterkari en hann; og þó hann hafi kippt undan mér fótunum stöku sinnum, þá kunni ég bragð til að kasta honum af mér.“ Matthíac: „Jú, drykkskömmin gekk reyndar upp í hálsinn á mér, herra góður, en ég galt líku líkt.því þó hann linaði mig í leggjunum, þá varð ég það yfirsterkari, að ég kom á bann hnykk og kastaði honum.“ Matthías víkur sér enn undan orðaleikn- um og víkur um leið dálitið frá merking- unni. Helgi heldur sig við merkinguna um lygina og fellir inn orðaleik um að ljúga fullan. Svipað dæmi er að finna í Hamlet, þeg- ar Hamlet spyr grafarann um hvers gröfin sé. Grípum niður í samtalið. Hamlet: „Whose gi-ave’s this, sirrah?“ Gravedigger: „Mine, sir. Hamlet: „I think it be thine, indeed; for thou liest in’t.“ , Gravedigger: „you lie out on’t, sir, and therefore it is not yours. For my part, I do not lie in’t, and yet it is mine.“ Hamlet: „Thou dost lie in’t, to be in’t, and say it is thine. ’Tis for the dead, not for the quick; therefore thou liest.“ Gravedigger: „’Tis a quick lie, sir, ’twill away again, from me to you.“ Hér er ekki auðvelt að þýða, en lítum á hvemig meistararnir taka á þessu. Helgi: Hamlet: „..Heyrðu, hver á þessa gröf?“ Grafari: „Ég, herra.“ Hamlet: „Já, það mun vera þín gröf, því j ekki gastu logið þig útúr henni.“ Grafari: „Og allt yðar góss er utan við hana, svo ekkert eigið þér í henni; en ég ' LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 18. OKTÓBER 1997 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.