Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.1998, Síða 2
■ A j ^mmlí 1
1J Æk Jf |
Morgunblaðið/Árni Sæberg
NÝÁRSTÓNLEIKAR Tríós Reykjavíkur verða sannkölluð fiðluveisla. í þau 24 ár sem Guðný Guðmundsdóttir hefur starfað sem konsert-
meistari Sinfóníuhljómsveitar íslands hefur hún kennt fiðluleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og þeir eru orðnir margir fiðluleikararn-
ir sem notið hafa tilsagnar hennar í gegnum árin. Með Guðnýju og nemendum hennar á myndinni eru þeir Peter Máté píanóleikari og
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld.
Nýárstónleikar Tríós Reykjavíkur og Hafnarborgar
FJÖLMENN FIÐLUVEISLA
NÝÁRSTÓNLEIKAR Tríós Reykjavíkur og
menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar,
Hafnarborgar, verða haldnir í Hafnarborg á
morgun, sunnudaginn 4. janúar, kl. 20. I til-
efni af fimmtugsafmæli Guðnýjar Guðmunds-
dóttur fiðluleikara 11. janúar nk. verður sann-
kölluð fíðluveisla í boði á þessum þriðju tón-
leikum tríósins í vetur sem skipað er þeim
Gunnari Kvaran, sellóleikara og Peter Máté,
píanóleikara, ásamt Guðnýju. Gestir verða
fyrrverandi og núverandi nemendur Guðnýj-
ar ásamt fleiri strengjaleikurum. Frumflutt
verður verkið Ljósbogar eftir Þorkel Sigur-
bjömsson og er það fyrsta íslenska tónverkið
sem samið er eingöngu fyrir fiðlur.
Þorkell lýsir verki sínu Ljósbogum sem
einfóldum tónaleik. „Ljósbogar er vinar-
kveðja til Guðnýjar og hennar ágætu nem-
enda og titillinn vísar til allra fiðluboganna.“
Verkið flytja 26 fyrrverandi og núverandi
nemendur Guðnýjar ásamt henni.
Þá verður flutt fúga eftir Bach úr einleiks-
sónötu fyrir fiðlu í g-moll í útsetningu Guðnýj-
ar fyrir fiðlusveit. Þessi einleiksfúga þykir
töluvert erfið og Guðnýju fannst skemmtilegt
að útsetja hana fyrir fiðlusveit og segja má að
með því hafi þolraun fiðluleikarans verið ein-
folduð. Þriðja verkið á efhisskránni er Hol-
bergssvíta Griegs samin fyrir einleikspíanó og
síðar útsett fyrir strengjasveit, á 200 ára dán-
arafmæli Holbergs, árið 1884. Skáldið Hol-
berg hefur oft verið nefndur Moliére norðurs-
ins og í verkinu notast Grieg við form svítunn-
ar og byggir á dönsum frá 17. öld.
Síðast á efnisskrá tónleikanna er konsert
fyrir píanó, fiðlu og strengjasveit eftir
Mendelsohn sem var samin árið 1823 en þá
var tónskáldið 14 ára gamalt og Gunnar segir
að það sé með ólfldndum hversu mikinn
þroska Mendelsohn hafði til að bera svo ung-
ur að aldri. Mendelsohn var undrabam eins
og Mozart og þess þekkjast ekki önnur dæmi
um jafn þroskuð verk tónskálda svo snemma
á ævinni. Verkið gleymdist í meira en 100 ár
en fyrir rúmum 30 ámm fundu hjónin Eugene
List, píanóleikari og Carroll Glenn, fiðluleik-
ari, verkið og hófu til vegs og virðingar á nýj-
an leik. Carol Glenn varð síðar kennari Guð-
nýjar þegar hún var við nám í Bandaríkjun-
um. Einleikarar verksins em Peter Máté og
Guðný. „Verkið er mjög krefjandi fyrir ein-
leikarana en létt og skemmtilegt áheyrnar og
blæbrigði þess minna mjög á Mozart,“ segir
Gunnar.
MENNING/
USTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Þjóðminjasafn íslands
í Bogasal: Allir fá þá eitthvað fallegt. Jóla-
sýning, til 5. janúar.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýning vetrarins, Svífandi form. Verk Sig-
urjóns Olafsson. Safnið verður opið sam-
kvæmt samkomulagi í janúar.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Asmundar Sveins-
sonar.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Jóhannes Kjarval í austursal. Sýning á að-
fóngum safnsins árið 1997 í vestursal og
miðrými. Á sýningarvegg í austursal eru
sýndar húsateikningar.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða-
stræti 74
Kyrralífs- og blómamyndir ásamt myndum
úr Reykjavík og nágrenni. Til febrúarloka.
Þjóðarbókhlaðan
„Verð ég þá gleymd" - og búin saga. Brot
úr sögu íslenskra skáldkvenna. Sýning á
ritum og munum úr Kvennasögusafni. Til
31. jan.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6
Snorri Ásmundsson. Til 19. jan.
Gallerí Listakot
„Gnægtarborðið", samsýning til. 3. jan.
Galleríkeðjan Sýnirými
Sýnibox: André Tribbensee.
Gallerí Barmur: Ráðhildm- Ingadóttir.
Galierí Hlust: Gunnar Magnús Andrésson.
Síminn er 551 4348.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Haraldur Jónsson sýnir til 11. jan.
Listhús 39
Strandgötu 39, Hafnaríírði
Samsýning 14 listamanna.
Gerðuberg
Valdimar Bjarnfreðsson. Til 18. janúar.
Laugardagur 3. janúar
Seltjarnarneskirkja: Kristján Eldjárn
heldur gítartónleika kl. 16.
Sunnudagur 4. janúar
Glerárkirkja, Akureyri: Sinfóníuhljómsveit
Akureyrar heldur tónl. kl. 17.
Hafnarborg: Nýárstónleikai'. Fiðluveisla
kl. 20.
Fimmtudagur 8. janúar
Háskólabíó: SÍ. Vínartónleikar. Einsöngv-
ari Sólrún Bragadóttir.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Hamlet, sun. 4., fim. 8., fös. 9. jan.
Grandavegur 7, lau. 3. jan.
Borgarleikhúsið
Feður og synir, frums. fös. 9. jan.
Galdrakarlinn í Oz, sun. 4. jan.
Augun þín blá, sun. 4. jan.
Njála, fós. 9. jan.
Loftkastalinn
Fjögur hjörtu, fós. 9. jan.
Listaverkið, lau. 3. jan.
SINFÓNÍAN
SEMUR UM
LAUNAHÆKKUN
ÁRNI RÚNAR
í GALLERÍ
HORNINU
ÁRNI Rúnar Sverrisson opnar sýningu á
nýjum verkum í Gallerí Hominu, Hafnar-
stræti 15 í dag kl. 15-17.
Ámi Rúnar lauk
sveinsprófi í húsasmíði
1977 og stundaði eftir
það nám við Myndlista-
skólann í Reykjavík og
Myndlista- og handíða-
skóla íslands. Hann hef-
ur haldið nokkrar einka-
sýningar á verkum sín-
um.
Sýningin verður opin
alla daga kl. 11-23.30,
en sérinngangur er opinn
kl. 14-18. Sýningin stendur til 21. janúar.
GÍTARTÓNLEIKAR
KRISTJÁNS
ELDJÁRNS
KRISTJÁN Eldjám gítarleikari heldur tón-
leika í Seltjarnarneskirkju í dag, laugardag
kl. 16.
Á efnisskrá em verk eftir J.S. Bach, Fem-
ando Sor, Leo Brouwer og Einojuhani Rauta-
vaara.
Kristján lauk burtfararprófi í djassgítar-
leik frá Tónlistarskóla
FÍH vorið 1995 og burt-
fararprófi í klassískum
gítarleik frá Tónskóla
Sigursveins vorið 1996
þar sem hann naut leið-
sagnar Einars Kristjáns
Einarssonar. Kristján
stundar nú nám við tón-
listarháskólann í Turku í
Finnlandi, kennari hans
þar er Timo Korhonen.
NÝÁRSTÓNLEIK-
AR í SELTJARN-
ARNESKIRKJU
SELKÓRINN á Seltjamarnesi efnir til
nýárstónleika í Seltjamameskirkju sunnu-
daginn 4. janúar kl. 20.30.
A efnisskrá eru íslensk og erlend tónverk,
m.a. eftir Þorkel Sigurbjömsson, Bám
Grímsdóttur, raddsetningar Jóns Þórarins-
sonar, J.S. Bach, Berlioz og Mendeissohn.
Tónlistin er að mestu tengd jólum.
Einsöng með kómum syngur Þuríður G.
Sigurðardóttir við píanóundirleik Amdísar
Ingu Sverrisdóttur. Karen Jóhannsdóttir og
Berglind Sveinsdóttir leika á þverflautu í
einu laganna.
Þessir tónleikar marka upphaf 30. afmælis-
árs Selkórsins. Stjómandi er Jón Karl Ein-
arsson.
SAMKOMULAG náðist á gamlársdag í kjara-
viðræðum hljóðfæraleikara í Sinfóníuhljóm-
sveit Islands við samninganefnd ríkisins og
framkvæmdastjórn Sinfóniunnar. Nýir kjara-
samningar hljóða upp á 25-30% launahækkun.
Gengið var að kröfu hljóðfæraleikara um
breyttan vinnutíma. Samningurinn verður
borinn undir atkvæði hljóðfæraleikara SÍ í
byrjun næstu viku.
Kostnaðarhækkun vegna samningsins í
heild er 30%. Þá hefur samninganefnd ríkis-
ins gengið að kröfu hljóðfæraleikara um eina
fasta tónleika í viku og 6 tónleika á laugardög-
um á ári en aðrir tónleikar verða greiddir í yf-
irvinnu. Vinnuskylda hljóðfæraleikaranna á
sviði eru 22 tímar á viku og að viðbættri
heimavinnu hljóða vikulegir vinnutímar upp á
40 stundir.
Runólfur Birgir Leifsson, framkvæmda-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands, lýsir
ánægju sinni með að samningar skuli hafa
náðst um bætt kjör hljóðfæraleikara SÍ. „Ég
er mjög ánægður með þær launahækkanir
sem hljóðfæraleikararnir hafa fengið þótt ég
hefði engu að síður viljað sjá meiri sveigjan-
leika í samningnum," segir Runólfur Birgir.
„En það þýðir ekki annað en vera ánægður
þegar búið er að semja.“ Hann segir að eins
og fjárhagsstaða Sinfóníunnar sé í dag standi
hún ekki undir greiðslum fyrir fleiri en 5-6
aukatónleikum á ári. „Samningurinn dregur
úr möguleikum á endurteknum tónleikum því
að kostnaður við hverja aukatónleika verður
meiri en áður.“
Hlíf Sigurjónsdóttir, formaður starfs-
mannafélags SÍ, vill lítið tjá sig um nýja
kjarasamninginn fyrr en hann hefur verið
kynntur félagsmönnum. „Okkur þótti samn-
ingurinn þó koma það mikið til móts við okkar
kröfur að við samþykktum hann svo félags-
menn okkur fengju sjálfir að dæma um,“ segir
Hlíf. „Þessi tillaga sáttasemjara hjó á stóran
hnút varðandi vinnutímaskilgi'eininguna og
mér þykir ekki ósennilegt að félagsmenn
gangi að þessu samkomulagi úr því að við gát-
um fellt okkur við það.“
Kristián Eldjám
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 3. JANÚAR 1998