Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.1998, Page 10
MALAVÍSKIR kofar eru strfðhærðir eins og strákarnir.
í Lilongwe er annað sjúukrahús og nýrra
og betur búið og kallað Central Hospital.
Central er með einu bamadeildina í Lilongwe
og var hún einnig heimsótt enda hefur ÞSSI
og nú nýlega Soroptimistar sent hjálpargögn
sem hafa komið að notum þar. Á bamadeild-
inni er opið svæði sem notað er fyrir kennslu-
stofu. ÞSSÍ greiðir laun kennara fyrir yngri
bömin en USAID fyrir kennara eldri bam-
anna. Kennarinn sem vinnur með litlu böm-
unum rekur þama nokkurs konar leikfanga-
safn og hjálpar bömunum að leika sér. Þama
mátti sjá Legó-kubba frá Islandi og auk ýmis
konar leikfanga og dóts sem íslensk böm vom
hætt að nota eða góðhjartað fyrirtæki hafði
gefið okkur til að senda hingað.
Ein af þeim myndum sem sitja í huganum
frá þessari heimsókn er af ungri konu sem
augljóslega var þama að heimsækja litla
bamið sitt sem var mjög lítilfjörlegt. Hins
vegar var þama meðal leikfanganna stór,
þeldökk brúða sem þessi unga kona sat með í
fanginu og lét vel að á meðan litla bamið
hennar komst hvergi að. Litla skinnið var að
reyna að vekja athygli á sér með því að toga í
raömmu sína og skríða upp í fangið á henni.
Hún tók það aðeins upp en eftir örstutta
stund var bamið komið á gólfið og brúðan í
fang mömmunnar. Einhvem veginn læddist
að manni sú hugsun að þessi stúlka hefði
aldrei fengið að leika sér og óneitanlega var
auðveldara að handleika brúðuna en annast
þetta litla veika barn.
Vinafélag sjúkrahússins samanstendur af
litlum hópi fólks sem hefur unnið mikið starf
við mjög erfiðar aðstæður og takmarkaða
möguleika. En áhuginn er mikill og þau em
með verkefnalista og forgangsröð sem þau
vilja vinna eftir. Þar mátti nefna girðingu um-
hverfis Bottom-spítalann svo að hægt væri að
koma í veg fyrir utanaðkomandi umferð um
svæðið, einkum á nóttunni. ÞSSÍ hefur verið í
samstarfi við Vinafélagið og hjálpargögnin
sem Soroptimistar sendu þangað fóru til
Vinafélagsins. Formaður Vinafélagsins, Kate
Armstrong, er ákaflega áhugasöm um fram-
gang hjálparstarfsins og foreldrar hennar,
sem komin era á eftirlaun, fluttu til Malawi
þar sem þau taka bæði virkan þátt í starfi
Vinafélagsins. Faðir Kate var áður fyrr verk-
taki og hefur nú nýlega séð um verklegar
framkvæmdir við spítalann fyrir gjafaféð.
Hann gerir það að sjálfsögðu í sjálfboðavinnu
en hann hefur getað nýtt fjármunina á undra-
verðan hátt og gert ótrúlega mikið fyrir lítið
fé enda fylgist hann með á staðnum að vel sé
að öllu staðið.
Gjaldkeri Vinafélagsins er Malavi, Clement
Ndala. Hann er einnig meðlimur í Lions-
hreyfingunni og er ákaflega áhugasamur um
framfarir í landinu. hann og Lions-klúbbur
hans höfðu milligöngu um að Lions-hreyfing-
in gaf 1,5 milljónir dollara til þess að byggja
blindradeild við Lilongwe Central Hospital og
annaðist Clement fjármálaumsýslu alla. Nú
þegar spítalinn er tilbúinn er verið að reyna
að fá augnlækna frá Suður-Afríku sem komn-
ir eru á eftirlaun til að koma til landsins og
framkvæma skurðaðgerðir ókeypis, því spítal-
inn hefur ekki efni á að borga laun. í staðinn
fá læknarnir aðstöðu og notalegt sumarfrí. Til
þess að gera þetta ennþá hagkvæmara er það
draumur Clements að hægt verði að byggja
litla íbúð eða smáhýsi við sjúkrahúsið til þess
að ekki þurfi að kosta þessa lækna á hótel á
meðal þeir dvelja á Lilongwe. Þegar ég spurði
hvort ekki væri áhugi á að fá lækna t.d. frá
Evrópu var svarið að það væri of dýrt fyrir
Malawi að borga fargjald frá Evrópu en frá
Suður-Afríku er aðeins steinsnar og því meiri
líkur á að hægt væri að fá fólk þaðan.
Vinafélagið hefur um árabil haft basar og
safnað nokkur hundrað krónum sem síðan
hafa verið notaðar til að endurbæta eitthvað
eða kaupa gögn til sjúkrahússins. En þegar
Soroptimistar á Islandi tóku sig til og söfnuðu
og fylltu gám með hjálpargögnum og ÞSSÍ
borgaði undir gáminn, fékk Vinafélagið
vítamínsprautu sem það býr enn að. Flest
hjálpargögnin sem send vora frá íslandi fóra
beint á spítalana en Vinafélagið sá fyrst um
að merkja allt sem þangað fór vel og kirfilega
og síðan var hjálpargögnunum dreift í Htlum
skömmtum til þess að drýgja það sem best.
Notaður fatnaður var hins vegar flokkaður og
seldur á vægu verði en dugði samt tU þess að
Vinafélagið fékk í hendur fjárapphæð sem var
stærri en félagamir höfðu nokkru sinni séð.
Verkefnin era næg. Bottom-spítalinn er ekki
endumýjaður eða við haldið af opinbera fé og
það notað sem afsökun að fljótlega eigi að
byggja nýjan. Á meðan leita hundrað sjúk-
linga þangað.
Það era margar og blendnar tilfinningar
sem bærast með manni við dvöl í þessu landi.
Helst er það fátæktin sem er svo almenn og
aðstöðuleysið mikil sem veldur íslendingnum
vanlíðan enda er ekki sjáanlegt að neinna úr-
bóta sé að vænta fyrir almenning. Það er
staðreynd að með svo mikilli fólksfjölgun sem
raun ber vitni er ómögulegt að landið geti náð
nokkram efnahagsbata í fyrirsjánlegri fram-
tíð enda auðHndir fáar og fólkið illa undir það
búið að breyta um lífsháttu. Núna er verið að
búast við ekki rigni á þeim tíma sem uppsker-
an þarfnast vatns vegna þess að hafstraumur-
inn E1 Ninjo hefur breytt um farveg. Ef ekki
rignir og uppskeran bregst, getur ekkert ann-
að beðið stórs hóps fólks en hungursneyð.
Hér era engin forðabúr til að fæða allar þær
milljónir manna sem treysta á maísuppskera
hvers árs.
Fólkið er hins vegar mjög hlýlegt, vingjarn-
legt og þakklátt fyrir það sem að því er rétt.
Þau hjálpargögn sem Islendingar hafa sent til
þessa lands af allsnægtum sínum hafa komið
að ótrúlega miklu gagni og það er mjög
ánægjulegt að sjá að hjálparstarf sést á jafn
áberandi hátt og þarna í tengslum við sjúkra-
húsið, þar sem sjá má gífurlegan mun þar
sem búið er að lagfæra aðstöðu sjúklinganna
og gera þeim lífið kannski ofurlítið bærilegra
en ella.
Það hjálparstarf sem ÞSSÍ og Soroptimist-
ar hafa unnið hér í samvinnu við Vinafélagið
hefur skilað ótrúlega miklum árangri og á eft-
ir að halda áfram að skila árangri verði fram-
hald á sendingum á hjálpargögnum sem safn-
að er á Islandi og send í gámi til Malawi. Það
er kannski erfitt fyrir Islendinga að skilja
nema sjá það með eigin augum hversu lítil-
fjörlegt dót getur verið mikils virði þar sem
ekkert er til og engir peningar til að kaupa
fyrir.
Um það leyti sem þessi grein er skrifuð er
annar gámur á leiðinni til Malawi með hjálp-
argögn sem Soroptimistar hafa safnað. Inni-
hald gámsins fer í hendur Vinafélagsins, en
gáminn á að gera að bókasafni í einu af út-
hverfum Lilongwe! Samskip og Þróunarsam-
vinnustofnun Islands kostuðu flutninginn á
gámnum og gerðu þessa aðstoð þannig mögu-
lega. Einnig eiga öll þau fyrirtæki og stofnan-
ir sem til var leitað þakkir skildar fyrir að-
stoðina. Það er vel þess virði að styðja við
bakið á sjálfboðaUðum á borð við Vinafélagið
sem era í beinum tengslum við þær stofnanir
sem verið er að styðja og þar sem er tryggt að
allt er nýtt sem best. Þegar íslenska
allsnægtasamfélagið fleygir lítið notuðum
hlutum mætti vel leiða hugann að því hversu
mikið gagn hafa má af Htlu í þessu fátæka
landi.
Höfundur er prófessor við Hóskóla ísbnds og með-
limur í Soroptimistoklúbbi Reykjavíkur.
ÓAAAR
SIGURJÓNSSON
(DÖGUN
Hendurnar byrgja náfölt
andlit
þvöl augnhárin vísa
í allar áttir
vot rúmklæðin vafin
um kreppta fætur
hversdagslegt hljóð
vekur litla athygli
en þó
kannski bréfíð sé að koma
sem ég aldrei sendi.
Nætur sorgarinnar
geyma sólsetur
sem aldrei tekur enda
og í hinu dýpsta myrkri
byltir gleðin sér
um hálfíuktar dyr
eitt andartak
ífáleitum gráma
dagsins.
KÆRI FRESTUR
Ég ákæri syndina
hún gefurgert mig
sekan
ég ákæri viðbrögðin
þegar mér var litið
undan
dómgreindin ætlar
að áfrýja.
Höfundurinn er múrari.
BERGSTEINN
BIRGISSON
VÍSA UM
VORIÐ
Ég gæti sett upp gáfusvip og
sagt:
„vorið er blekidng,
hugarburður byggður á sammannlegri
trú
á að eitthvað betra taki við“
en ömmu minni myndi ekki líka það
hún kemur frá snjóþungu svæði
vorið hefur lengi haldið Ufínu í gömlu
konunni
þrátt fyrir kenningu mína
LIUUR
Það eru alltaf liljur
í nánd við veginn þinn
þar sem þú ferð og öll þín verund
komin í þröng og skrefín þungu
þyngri en himinninn
þá kveða þær hvatningsstefíð
með ástæðulausri angan sinni
með bænhvítri birtu sinni
beint í sárleik hjartans
og gatan er góð og ný
Höfundurinn stundor M.A.-nóm ( bókmennt-
um við Hóskóla íslands.
•10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 3. JANÚAR 1998
+