Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1998, Blaðsíða 17
EITT verka sænska listmálarans Bengts Lindström.
!
H
!
!
j
j
i
GRAFÍKMYNDASERÍA Merju Alettu Ranttila hefur vakið mikla athygli og umtal.
lægra eða ögrun gegn siðakröfum okkar og
almennum smekk.“
Um listamennina
Listakonan Maj-Doris Rimpi frá Porjus
hefur þróað handíðir samískra kvenna langt
út fyrir hefðbundin mörk. Á rauðan bakgrunn
silkisins leggur hún fígúrur og form úr leðri
og dregur upp með silfur- og tauþræði eigin
myndheim byggðan á samískri listskreytinga-
hefð. Svo samofin er hún þessari hefð að í
verkum sínum tekst henni að storka aldar-
gömlum aðferðum með því að gera þær að
sínum eigin. Maj-Doris var fyrsti samíski
listamaðurinn til að brjóta upp landamæri
textfllistar og fagurlista en fleiri þarlendir
listamenn hafa fylgt í kjölfarið.
í þorpinu Norrbotten, þar sem Erling Jo-
hansson ólst upp, þótti guðræknum íbúunum
það syndsamleg gjörð að mála og láta mála af
sér portrett. Erling hefur ferðast víða um
heim og málað mannamyndir, hann kom m.a.
eitt sinn til íslands og vann þá málverk af
Thor Vilhjálmssyni sem verður á sýningunni
nú. Pað hefur verið sagt um málverk hans að
þau séu líkari fyrirmyndum sínum en spegil-
myndir þeirra sjálfra. Einkennandi eru hin
sérkennilega máluðu andlit í kúbískum stfl
með „litum sálarinnar". Hin vandlega unnu
andlit mæta andstæðu sinni í hrátt rissuðum
búknum dregnum léttum pensilstrokum.
Listakonan og rithöfundurinn Rosa Liksom
býr í Helsinki og er þekkt fyrir hispursleysi
og opinskáar yfírlýsingar á borð við: „Lífið er
dauður hundur.“ Fyrstu bókina sendi hún frá
sér árið 1984 og er nú orðin talsvert þekktur
rithöfundur á Norðurlöndum. I innsetningu
sinni á sýningunni, sem nefnist „Lappland in-
stant forever", dregur hún dár að ferða-
mannaiðnaði heimalandsins og ímynd þjóðar-
innar út á við. I anda kitsch-listar hefur hún
safnað saman þjóðbúningadúkkum, póstkort-
um, litlum leikfangadádýrum og snjókúlum
sem hún stillir upp ásamt málverkum sínum.
Enginn boðskapur eða útskýringar fylgja
verkum hennar, - boltinn er hjá áhorfendum.
Einn þekktasti listamaður Svía, Bengt
Lindström, er frá Sundsvall en býr í París.
Verk hans eru unnin samkvæmt gamalli hefð
expressjónismans en sterkar andstæður lita
minna á samískan upprunann.
í list Lars Pirak renna gamli og nýi tíminn
saman í eitt. Hann var lengi vel þekktur fyrir
þróun nýrra aðferða á sviði handíða og hefur
alla tíð verið trúr samískum bakgrunni sínum,
hvort sem er í handverki eða listum.
Merja Aletta Ranttila er frá Ursjoki en býr
MAJ-Doris Rimpi byggir verk sín á gamalli samfskri handíðahefð,
PORTRETT Erlings Johanssons af samísku
jojk-söngkonunni Ingu Juuso, sem syngur
við opnun sýningarinnar.
í Helsinki. Hún er enn eitt dæmið um samísk-
an listamann sem brýst undan hefð heima-
landsins og lærir að nýta sér hana í þágu eigin
listsköpunar. Merja starfaði við myndskreyt-
ingar og hönnun áður en hún vakti fyrst veru-
lega athygli fyrir kraftmiklar grafíkmyndir
sínar, sem lýsa hörmungum Tjernóbflslyssins.
Lena Stenberg er fædd í Kiruna. Líkaminn
er henni hugleikinn og hefur hún unnið jöfn-
um höndum með miðil ljósmynda, skúlptúra,
málverka og innsetninga. Verk sitt á sýning-
unni nefnir hún Maðurinn 9999. Hér er á ferð
framtíðarsýn listakonunnar á hinn samíska
mann. Þá eru samísku konunni gerð skil í
málverkum í anda popp-listarinnar og stjór-
stjörnumynda Andys Warhols.
Sýningin stendur til 22. mars.
„Sýningunni er ekki œtlað að varpa Ijósi á
hejðbundna samíska menningu eða setja
jram jramandi einkenni einangraðrar smá-
þjóðar til andstöðu við hámenningu heims-
borganna. Slíkir jordómar eru alltojríkjandi
ígarðpjóða sem standa utan við miðju
heimsins, Evrópu ogNorður-Ameríku.“
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. FEBRÚAR 1998 1 7