Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1998, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1998, Qupperneq 8
FYRSTA húsið í Gilinu. Rómverskur bogastíll á gluggum. Saltkjötstunnur á planinu framan við. Myndin tekin 1913 eða 1914. MJÓLKURSAMLAGIÐ um 1935. Mjólkurbúð þar sem áður var kjötbúð. Bogalínur horfnar af gluggum. MERKILEGT HUS I GROFARGILI EFTIR ÞÓRARIN HJARTARSON Húsið geymir þroskasögu Kaupfélggs Eyfirðingg ó Akureyri. Það var byggt sem sláturhús 1907, varð síðar Mjólkursam- lagshús og kaffibrennsla með meiru. UPP frá sunnanverðum mið- bænum á Akureyri gengur svonefnt Grófargil. Petta gii varð vettvangur uppbygging- ar Kaupfélags Eyfirðinga á fyrri hluta aldarinnar. Þarna var lengi helsti kjarni at- vinnulífs á Akureyri og svæð- ið þá oft nefnt Kaupfélagsgilið. Síðar hefur starfsemi KEA ýmist hnignað eða hún dreifst á aðra staði. En á seinni árum hafa margar byggingar Gilsins verið yngdar upp í nýju hlutverki og er farið að kalla svæðið Listagil. Þessi nýja notkun umræddra bygginga er afar jákvætt dæmi um mikla breytingu á við- horfum frá því fyrir 2-3 áratugum þegar gömul hús voru einskis virði og verra en það því þau stóðu gjaman fyrir nýjum húsum. Þetta ber vott um aukna virðingu íyrir sögu- legum verðmætum. Til að virða söguleg verð- mæti þarf að þekkja söguna. í því sambandi langar mig að skrifa nokkur orð um hús nokk- urt sem ekki hefur fengið þá athygli og að- hlynningu sem það verðskuldar. Það er gamla HÚSIÐ nú um stundir. ÍSHÚS efst. Sláturhús og Kornvöruhús sambyggð. Gylltur nautshaus og tveir kindahausar yfir innganginum í kjötbúðina. Myndin frá um 1926. Sláturhúsið, síðar Mjólkursamlagið, síðar Kaffibrennslan með meiru, neðsta hús við Kaupangsstræti að norðan. Það er sögulega gagnmerkt hús, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Byggingarsaga hússins Árið 1906, eftir 20 erfið frumbýlingsár Kaupfélags Eyfirðinga, hófst hjá því mikið blómaskeið. Þetta ár var það endurskipulagt, breytt úr pöntunarfélagi í sölufélag og brátt fylgdu önnur kaupfélög fordæmi þess. Húsa- kostur félagsins þetta ár var aðeins eitt lítið hús, pakkhús og verslunarhús í senn, reist 1898 á Torfunefi þar sem nú heitir Hafnar- stræti 90, og þetta sögufræga hús, allmikið stækkað, stendur enn á sínum stað. Öfugt við pöntunarfélag gat sölufélag safn- að arði sem veita mátti annaðhvort til félags- manna eða í stofnsjóð félagsins sjálfs. Með breytingunni fékk KEA fé til uppbyggingar sem nú hófst. Fyrsta skrefið var stigið strax 1907 þegar byggt var sláturhús, eða fyrsti áfangi þess. Þetta hús var byggt í nokkrum áföngum og því breytt í samræmi við breyti- legt hlutverk. Þegar byggingarsaga þess er skoðuð sést hvemig hún endurspeglar í senn þróun Kaupfélags Eyfirðinga og þróun eyfírsks landbúnaðar. Hér á eftir íylgja nokk- ur ártöl úr þeirri byggingar- og breytinga- sögu: 1907. Byggt sláturhús, 19 x 7,5 m, er snéri frá austri til vesturs. Mátti þar slátra 400 kindum á dag. 1911. Þetta hús lengt um 7,5 m og auk þess bætt við það tveimur álmum norður-suður til beggja enda. Húsið nú alls 44,5 m langt og allt úr steinsteypu, segii' í byggingarleyfi (eitt elsta steinsteypta hús á Akureyri). Austur- álman tvflyft. A neðri hæð hennar var nú opn- uð kjötbúð (mynd 1). 1914. Aföst norðan við austurálmu slátur- hússins var steypt stór kornvörugeymsla, að hluta nýtt af sláturhúsinu á haustin (mynd 2). 1928. Húsinu breytt í mjólkursamlag og þess vegna endurskipulagt innan stokks. Hið ytra fólst meginbreyting í nýju risi upp úr miðjum elsta hlutanum (mynd 3). 1949.1 sambandi við byggingu Ketilhússins svokallaða á næstu lóð ofan við var litla vest- urálman frá 1911 klipin af. A þeim tíma var þama til húsa bæði þurrmjólkur- og gos- drykkjagerð. 1971. Brani í gamla Mjólkursamlaginu (7. ágúst). Gert var við húsið án ytri breytinga (mynd 4). 1981. Bruni i Kornvöruhúsinu sem eftir það 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. MARZ 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.