Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1998, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1998, Blaðsíða 13
TILÞRIF í glímunni. Um árabil voru þeir Sigurður Greipsson og Þorgeir Jónsson í Varmadal, síðar í Gufunesi, snjöllustu giímumenn landsins, en í islandsglímunni vann Sigurður félaga sinn þó alltaf. Hér eru þeir á æfingu og það er Sigurður sem vippar sér í vörn. FRUMSTÆÐ sundlaug í nánd við íþróttaskál- ann. Myndin er tekin í ágúst 1928. Hér var aðeins stíflað volgt frárennsli frá hverum, en botninn var mold eða raunar leðja og vatnið varð gruggugt þegar menn syntu í lauginni. Steypt sundlaug kom þó fljótlega. ELZTI íþróttaskálinn á Söndunum við Geysi sumarið 1927. Þar hétu áður Hverasandar. Það var fyrir stórhug og hjálpsemi Jóhann- esar Reykdal í Hafnarfirði að Sigurður gat ráðizt í byggingu íþróttaskálans. TVEIR ÚR TUNGUNUM: Þorsteinn Sigurðs- son á Vatnsleysu t.v. og Sigurður Greipsson í Haukadal á lýðsháskóla í Voss í Noregi. LEIKFIMI í nýja leikfimissalnum, sem tekinn var í notkun 1946. Þetta hús stendur enn og er hluti af Hótel Geysi. sem mest, nýta það að geta farið í laugina og læra sund. „Hann gat verið harður við þá sem voru að læra hjá honum. Hann vildi að menn legðu sig fram.“ Gísli Einarsson í Kjarnholtum er samþykkur þessari umsögn: „Hann var agasamur. Pað komst enginn upp með neitt og hann var auðvitað harður." ... Hafsteinn Þorvaldsson nemandi í íþrótta- skólanum 1945-1946 hefur það beinlínis eftir Sigurði „að hann hefði verið harður við nem- endur sína og sjálfsagt var hann það stund- um. En eins og hann sagði meinti hann gott eitt með því. Hann vildi gjarnan sjá árangur af starfí sínu og mörgum krangalegum ung- lingi breytti hann með líkamsþjálfun sinni á ótrúlega skömmum tíma, en þó því aðeins að nemendur legðu sig fram“. Myndríkust er mergjuð lýsing Þorsteins Einarssonar íþróttafulltrúa á kennslutækni Sigurðar, en í ótöldum heimsóknum Þorsteins í skólann hlýddi hann oft á kennslu Sigurðar. Á kvöldvökunum hélt Sigurður oft fyrirlestra og átti þá óskipta athygli áheyrenda sinna. En lýsing Þorsteins á ræðumennskunni er bæði sannfærandi og næm: „Sigurður byrjaði stundum hugvekjur sínar lágum rómi, næst- um hvíslandi, virtist varfærinn og leitandi, augnaráðið fjarrænt, ræðumaður reistur, oft hnarreistur, háleitur; ekkert hreyfði hann sig úr stað meðan hann talaði, annai- héngu oft- ast slakir með síðum; hann notaði hendurnar til áherslu, ki-eppti þær á bognum önnum framan við sig. Þær hækkuðu eftir því hve honum var mikið innifyrir; stundum lyftist vinstri höndin í höfuðhæð, höndin opin og lóf- inn sneri fram. Allt í einu slæmdi hann hend- inni boginni um úlnlið með fingur bogna inn að lófanum. Kom þetta fyrir er hann benti á eitthvað fjarstætt eða léttvægt, fánýtt og var- hugavert. Rödd Sigurðar var sérkennilega margbreytileg. Bak við hin framsögðu orð var djúpur undirtónn. Er eldmóður tjáningarinn- ar varð sem ákafastur varð undirtónninn eins og brimsúgur. Til átti Sigurður eins og að hlæja við undir flutningi máls síns. Virtist þetta stafa af að hugsunin væri á undan tján- ingunni og eins og hann sækti í sig veðrið til nýrrar atlögu við efnið.“ Höfundur er sagnfræðingur. Kaflarnir, sem hér birt- ast styttir, eru úr bók hans, Sigurður Greipsson og Haukadalsskólinn, sem Héraðssambandið Skarphéð- inn gaf út 1997. MIKIL áherzla var lögð á glímu, en einnig á sund og leikfimi og allar þessar greinar kenndi Sigurður sjálfur. SIGURÐUR Greipsson f ræðustóli á gamla íþróttavellinum að Þjórsártúni, þar sem íþróttamót Héraðssambandsins Skarphéðins fóru fram í langan tíma. Sigurður talaði ævin- lega blaðalaust og gat verið innblásinn ræðumaður. Deyfð og lognmolla voru honum sízt að skapi. TRYGGVI V. LÍNDAL DVOL MIN MEÐAL HVÍTHÖFÐA Það er von þú spyrjir hvað mannfræðingurinn sé að híma þetta hér á meðal Hvíthöfðanna í Dumbshafi; steinsnarfrá hvítabjörnum og eskimóum; svona órafjarri Nýjujórvíkur ströndum: En ég vil nú bara minna þig á fordæmi landkönnuðaiins hans Vilhjálms Stefánssonar; eksimóahundakjassarans fræga; sem hafði dálæti á þessum inn byggjurum þar eð hann taldi sig vera afkom- anda þeirra! Af mér.erþað að segja að mannfræðilegir tilburðir mínir við að herma eftir þessum eyja skeggjum þykja nú löngu vera orðnir ósann færandi eftir svona langt rannsóknarleyfi; og trúverðugleiki minn, efeinhver var, fyrh' bí. (Ég held það hafi gert útslagið þegar ein Hvíthöfðastúlkan tók til við að lúra ofaná mér!). Reyndar er ég herfilega misskilinn hérna: Frásagnir mínar af sérhæfðum maurasamfélögum eru teknar sem vögguvísur (eðajafnvel stórbrotnar skröksögur í stíl við ættföður þeirra, Snorra; sem rakti sig til Trójumanna og guða). Ég tala nú ekki um ef ég minnist á forfeður okkar apana, eða efast um framhaldstilvistina! Þessir „Þýlingar“ einsog þeir kalla sig líka (nafnið er dregið af Ultima Thule), eru jafnvel famir að setja mig á stall sem einn af sínum stærstu lyga- laupum; svo að mér leyfist nú næstum hvað sem er sem ginnheilögu skáldmenni. Mín bíða nú víst örlög flóttamannanna frægu til Jóm- frúreyjanna sem fundust loks aftw í nefsvip af- komenda sinna! Kæri gamli skólafélagi úr mann- fræðinni: Næst sendi ég þér tölvupósts- kveðju héðan frá Þýleyjaklasanum! Höfundurinn er þjóðfélagsfræðingur og skóld í Reykjavík. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 13. JÚNÍ 1998 1 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.