Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1998, Qupperneq 20
Þrjár einkasýningar verða opnaðar í Nýlistasafninu í dag, laugardaginn 13. júní, kl. 16. HULDA
STEFÁNSDÓTTIR ræðir við listamennina Einar Fal Ingólfsson, Erlu Þórarinsdóttur og Hörpu Árnadóttur og segir
frá fjórðu sýningu safnsir is, e.k. vinnugerningi |: Dar sem Ingólfur Arnarson fjallar um bókverk Dieters Roths í tilefni
ráðstefnu al þjóðlegra listbókasafna, ARLIS/Norden, sem fram fór í Reykjavík í vikunni.
SOGUR AF SJALFUM MER
en hann var einn af stofn-
endum Nýlistasafnsins og
heiðursfélagi þess. „I lista-
verkasafni Nýlistasafnsins
gegna þau listaverk sem
Dieter gaf safninu lykil-
hlutverki og eru Iifandi
vitnisburður um afköst
hans og afrek á sviði mynd-
listar og verður hans
minnst svo lengi sem safnið
Iifir,“ segir m.a. í fréttatil-
kynningu frá Nýlistasafn-
inu.
I tengslum við bókverka-
sýninguna og 20 ára afmæl-
isár safnsins gefur bókafor-
lagið Bjartur út bókina
Smásmíðar eftir Gunnar
Harðarson heimspeking.
Útgáfan er styrkt af
Nýlistasafninu.
Sýningarnar í Nýlista-
safninu eru opnar daglega
nema mánudaga frá kl.
14-18. Þeim lýkur sunnu-
daginn 28. júní. Lokað
verður á þjóðhátíðardaginn
17. júní. Aðgangur er
ókeypis.
SÝNING á bókverkum eftir
svissneska listamanninn Di-
eter Roth verður í Bjarta
sal og Svarta sal. Sýning
þessi er hugsuð sem nokk-
urs konar vinnugerningur
þar sem gestum gefst kost-
ur á að skoða bókverkin,
sem öll eru í eigu safnsins,
um leið og fram fer skrán-
ing og frágangur á verkun-
um til varanlegrar geymslu.
Umsjón er í höndum Ingólfs
Arnarssonar myndlistar-
manns.
Fyrstu bókverk Dieters
Roths voru gefin út í
Reykjavík en Dieter er tal-
inn einn af frumherjum bók-
verkalistar og konkret-ljóð-
listar. Bókverkasýningin
var skipulögð í tengslum við
ráðstefnu alþjóðlegara list-
bókasafna ARLIS/Norden
sem fram fór í Reykjavík
dagana 10.-12. júní. Sýning-
in, sem er með óformlegu
sniði, verður einungis opin
undir leiðsögn Ingólfs Arn-
arssonar á virkum dögum
nema mánudögum frá
14.00-18.00.
Þegar verið var að leggja
lokahönd á skipulag þessar-
ar sýningar barst fregnin af
ótímabæru fráfalli myndlist-
armannsins Dieters Roth,
í FORSAL Nýlistasafnsins
sýnir Einar Falur Ingólfsson
ljósmyndaverkið Ur dagbók:
76 mánuðir. Þetta eru 76
sjálfsmyndir, sú fyrsta frá
því í mars 1992 og síðasta til-
einkuð júnímánuði 1998.
Verkið er brot úr dagbók
Einars Fals þar sem mynda-
vélin hefur tekið við hefð-
bundnu hlutverki pennans í
bókhaldi tímans, - hvort sem
eru upplifanir hversdagsins
eða stórviðburðir.
„Þú treystir ekki dagbók-
inni fyrir öllu,“ segir Einar
Falur. „Og í þessum dagbók-
arbrotum mínum er ákveðið
val. Þetta er einn hluti stærri
heildar sem ég kýs að setja
fram.“ Augljóslega á dagbók-
in sér margar hliðar og á
sýningu sem Einar Falur
hélt í New York fyrir nokkr-
um árum, þar sem hann lauk
mastersnámi í ljósmyndun
frá School of Visual Arts,
sýndi hann einnig dagbókar-
myndir teknar undir ólíkum
kringumstæðum en þá voru
það aðrir „rammar" sem
höfðuðu til hans og verkið
með öðrum svip en nú. „Eg
er að segja sögu og dagbókin
er minn efniviður," segir
Einar Falur.
Undir hverja mynd ritar
listamaðurinn eigin hendi
stund og stað sem undir-
strikar ákveðna tímalínu sem
gengur í gegnum verkið.
SoHo, Staðarskáli og Noosa í
Astralíu eiga sameiginlegt
andlitið í forgrunni mynd-
anna. Þetta er ferðasaga ein-
farans. Ljósmyndir sem
staðfesta tilvist þessa andlits,
ferðir og upplifanir einstak-
lingsins, - og eflaust líka ótal
Morgunblaðið/Jim Smart
„ÉG HEF að vissu leiti misst trúna á hinni fullkomnu Ijósmynd sem fagurfræðilegum
hlut,“ segir Einar Falur Ingólfsson sem sýnir brot úr dagbók í forsal.
minningar þó um það getum
við ekkert vitað.
Einar Falur játar á sig
ríka skrásetningarþörf, það
sem heillar hann meðal ann-
ars við sjálfsmyndimar er
stjómleysi þess þegar ljós-
myndarinn horfir ekki leng-
ur í gegnum linsuna heldur
er í senn gerandi og við-
fangsefni verksins. Hann
segir að miðill verksins, -
ljósmyndavélin, sé algert
aukaatriði og það er í sjálfu
sér á skjön við bakgrunn
hans í ljósmyndun. „Mér
finnst það vanta mjög mikið
hér á landi að menn leyfi sér
að vinna með ljósmyndina
sem tjáningarform," segir
Einar Falur. „Sjálfur hef ég
að vissu leiti misst trúna á
hinni fullkomnu ljósmynd
sem fagurfræðilegum hlut.“
EINS OG ÞÖGN
MILLI ORÐA
HARPA Amadóttir sýnir málverk í SÚM-sal. Þetta eru óræð
verk sem velta upp spurningum um hægfara og orðlaust ferli
sjónar og tíma. Hér er það málverkið sjálft, þessi dularfulli
aldagamli miðOl lérefts, dufts og líms sem verið er að skoða.
„Þetta hefur verið orðalaust ferli við gerð verkanna og því
erfitt að finna orð yfir þau nú,“ segir Harpa. Hún líkir málverk-
unum við þögn milli orða, segir að þau fjalli allt eins um and-
rúmsloftið og umhverfi sitt og eigin eigindi. „Eg velti fyrir mér
sjóninni, tímanum og þessu hægfara ferli og vil halda þeim opn-
um þegar ég mála, þannig að augun festist ekki við ákveðinn
punkt innan verksins heldur leiti bæði innan þess og utan,“ seg-
ir Harpa. „Eins og birtan varpar ljósi á verkin geta verkin varp-
að ljósi á birtuna.“
Harpa lauk framhaldsnámi í myndlist við Listaháskólann í
Ulautaborg þar sem hún býr og starfar. Hún hefur áður sýnt á
Mokka-kaffi og í setustofu Nýlistasafnsins sumarið 1995. Síðast-
liðinn vetur var hún í hópi 30 listamanna sem falin var gerð úti-
listaverka á þríhliða auglýsingaskilti í Stokkhólmi í tilefni þess
að borgin er menningarborg Evrópu þetta árið.
LEITAÐ TIL UPPRUNANS
SÝNING Erlu Þórarinsdóttur í Gryfju ber heitið Oxídasjónii-.
"*Þar eru málverk unnin úr blaðsilfri og olíu og er sýningin nú ná-
skyld þeirri sem Erla hélt í Asmundarsal fyrr í vetur og nefndist
Staðir.
„Ég er komin í frum-frumið,“ segir Erla og hlær. Annars vegar
eru það arkaísku formin; staðir, dyngja, skál og skeið, hins vegar
hologröm af höndum og fótum látinna og lifandi ástvina. Fram-
hald af dýrlingamyndunum í Asmundarsal segir hún, „því amma
og afi voru sannarlega dýrlingar“.
Það glampar á blaðsilfrið sem tekur hægfara breytingum með
tímanum, oxast, dökknar og gyllist. Blái liturinn, sá Erlu-blái, er
enn til staðar og nú kemur einnig bleiki liturinn við sögu en hann
hefur Erla reyndar einnig notað áður. „Ég fann að hann varð að
koma aftur núna,“ segir Erla. Ummyndanir blaðsilfursins,
^oxídasjónin, eru henni hugleiknar og það hefur hún lært af fyrri
reynslu að efnið verður að fá að ráða sér sjálft. „Blaðsilfrið verður
að fá að standa óvarið fyrir umhverfinu, - lifa í sínum eigin tíma,“
segir Erla.
Morgunblaðið/Jim Smart
HARPA Árnadóttir sýnir málverk í SÚM-sal þar sem eigindi
þessa aldagamla miðils eru könnuð.
Morgunblaðið/Jim Smart
ERLA Þórarinsdóttir sýnir málverk unnin með
blaðsilfri og olíu í Gryfju.
BÓKVERK DIETERS ROTHS
30 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 13. JÚNÍ1998