Lesbók Morgunblaðsins - 15.08.1998, Blaðsíða 4
HORFUR I
ORKUMÁLUM
HEIMSINS
EFTIR JAKOB BJORNSSON
Losun koltvísýrings er vandamál, sem aðeins verður
leyst með sameiginlegu átaki alls mannkyns - með
samvinnu iðnríkja og þróunarlanda. Hér er
hugað að stöðu orkumála fram til 2020 með tilliti
til Kyoto-bókunarinnar.
MIKIÐ er nú um stundir
rætt um þann vanda
sem stafar af uppsöfnun
í andrúmsloftinu af svo-
nefndum gróðurhúsa-
lofttegundum sem vald-
ið geta hækkun hita-
stigs í andrúmsloftinu.
Um þennan gróðurhúsavanda var haldin al-
þjóðleg ráðstefna í Kyoto í Japan í desember
1997, sem mikið hefur verið rætt um í fjölmiðl-
um. Mikilvægust þessara lofttegunda er koltví-
sýringur, C02, sem að stærstum hluta stafar
fra brennslu eldsneytis úr jörðu, kola, olíu og
jarðgass, til orkuvinnslu. Hér er ætlunin að
fjalla nokkuð um eina hlið þess máls sem ekki
hefur verið mikið í sviðsljósuinu: Samvinnu
iðnríkja og þróunarlanda á þessu sviði.
2. Úttekt Alþjóðlega orkuróðsins á
orkumálum heimsins
Alþjóðlega orkuráðið (AOR), sem er frjáls
samtök landsnefnda í um 100 löndum, þar á
meðal á íslandi, gekkst í byrjun þessa áratug-
ar fyrir úttekt á horfum í orkumálum heimsins
á 30 ára tímabilinu 1990-2020. Úttekt þessi er
að líkindum umfangsmesta og rækilegasta út-
tektin sem nokkru sinni hefur verið gerð á
orkumálum heimsins í heild. Að henni unnu 9
vinnuhópar á jafnmörgum svæðum sem heim-
inum var skipt í. í hópunum sátu margir þeir
sem fremst hafa staðið í orkumálum á hverju
heimssvæði og unnið að þeim um langa hríð,
sumir áratugum saman, og voru gjörkunnugir
öllum aðstæðum heima fyrir. Sérstakur hópur,
tengdur aðalsk,'ifstofu AOR í London, sá svo
um að sæmræma vinnubrögð svæðishópanna
og niðurstöður þeirra, og undirbúa útgáfu á
þeim. En hann breytti ekki stafkrók í sjálfum
niðurstöðum svæðishópanna.
Niðurstöður úttektarinnar birtust í bók sem
út kom 1993 og nefnist „Energy for Tomor-
row’s World - the Realities, the Real Options
and the Agenda for Achievement“ (Orka fyrir
heim framtíðarinnar - raunveruleikinn, raun-
hæfír kostir í boði og leiðin til árangurs).
Hér er ekki um orkuspá að ræða heldur til-
raun til að gera sér grein fyrir samhenginu
milli orkunotkunar á þessum einstöku svæðum
heimsins annarsvegar og hinsvegar efnahags-
þróunar og losunar á koltvísýringi sem tengist
orkunotkun í framtíðinni. Athuguð voru mis-
munandi tilvik um áherslur í þeim efnum. Eitt
þeirra, tilvik A, gerði ráð fyrir að megináhersl-
an væri lögð á hraða efnahagsþróun, einkum í
þróunarlöndunum. Annað, tilvik C, gerði ráð
fyrir að höfuðáhersla væri lögð á að draga sem
mest úr losun á koltvísýringi. Hið þriðja, tilvik
B, fór bil beggja í þessum efnum, með áherslu
á hagvöxt jafnframt því að reynt væri að draga
úr uppsöfnun koltvísýrings í andrúmsloftinu.
Verulegur munur kom fram í niðurstöðum
hópanna níu. Peir hópar sem einkum náðu til
þróunarlanda lögðu höfuðáherslu á sem hrað-
asta efnahagsþróun. Gróðurhúsavandann töldu
þessir hópar fyrst og fremst vera vandamál
iðnríkjana. Þróunarlöndin hefðu um annað
mikilvægara að hugsa. Iðnríkjahópamir lögðu
aftur margir áherslu á nauðsynina á að hemja
uppsöfnun koltvísýrings.
Hér er ekki rúm til að rekja niðurstöður
þessarar úttektar í einstökum atriðum. I því
sem hér fer á eftir verður, rúmsins vegna, ein-
göngu stuðst við niðurstöður B-íilviksins.
Vegna þess jafnvægis í áherslum sem það
byggir á er það af flestum talið raunhæfasta
matið á orkuframtíð heimsins.
Þessar niðurstöður eru, í mjög grófum drátt-
um, sýndar með súluritum á 1. mynd (sjá skýr-
ingar við myndina). Tölurnar tákna árlega
orkunotkun í einingum sem nefnast exajúl,
skammstafað EJ1. Exajúl er mjög stór eining
sem oft er notuð um heildarorkunotkun landa
og heimsins í heild. Öll orkunotkun Islendinga
er í kringum 0,1 EJ á ári.
Myndin sýnir að heildarnotkun orku í heim-
inum vex samkvæmt B-tilvikinu úr 370 EJ
1990 í 561 EJ 2020. Vöxturinn verður að þrem-
ur fjórðu hlutum í þróunarlöndunum en aðeins
að einum fjórða í iðnríkjunum. Þetta er afar
mikilvægt að hafa í huga.
Alkunna er að náið samhengi er milli orku-
notkunar í einhverju landi og efnahags þess
rr -'V-S-Sí<5?-
ViNDBU í Kaliforníu. Orkuframleiðslan er um 100 GWh á ári.
Heildarorka
Exajúl (EJ) 501
Eldsneyti
Exajúl (EJ) á ári
aari
370
251
107
283
310
411
1990 2020
Mynd 1:
Notkun frumorku í heiminum
1990 og 2020 samkvæmt
B-tilviki í úttekt Alþjóðlega
orkuráðsins frá 1993
Af töflunni sést að hlutdeild eldsneytis
verður yfirgnæfandi í orkubúskap heimsins
næstu áratugi, í kringum þrír fjórðu.
Einnig sést að aukningin í orkunotkun
á þessu 30 ára tímabili verður þrisvar
sinnum meiri í þróunarlöndunum en í
iðnríkjunum. Þetta hvorttveggja skiptir
sköpum fyrir alla umræðu um
gróðurhúsvandann.
Þróunarlönd
Iðnríki
Fmm- 1990 orku- notkun iheild Eldsneyti EJ EJ % Frum- 2020 orku- notkun íheild Eldsneyti EJ EJ % Aukning 1990-2020 Frumorku- notkun í heild Eldsneyti EJ % EJ %
lönríki Þróunarlönd 263 218 82,9 107 68 63,6 310 237 76,5 251 174 69,3 47 17,9 19 8,7 144 134,6 106 155,9
Samtals 370 286 77,7 561 411 73,3 191 51,6 125 43,7
eins og hann mælist á kvarða vergrar lands-
framleiðslu. Hlutfallið þama á milli, orkunotk-
un á hverja einingu vergrar landsframleiðslu,
er mælikvarði á það hversu orkukræf fram-
leiðslan er og það er því oft nefnt orkukræfni
hennar (energy intensity á enska tungu). Þetta
samhengi má þó ekki taka of bókstaflega því að
fleira ræður orkunotkun en landsframleiðslan
ein, svo sem samsetning hennar, einkum það,
hvaða hlut orku-frekar atvinnugreinar eiga í
henni, en einnig loftslag, sem ræður orkuþörf-
inni til hitunar og kælingar húsa. 2. mynd sýnir
orkukræfnina 1990 og hvað búist er við að hún
verði 2020 samkvæmt B-tilvikinu.
3. Losun koltvisýrings 2020 og
Kyoto-bókunin
3. mynd sýnir þá losun koltvísýrings í heim-
inum sem rekja má til vinnslu, umbreytingar
og notkunar á orku í heiminum 1990 og hvað
búist er við að hún verði mikil 2020 samkvæmt
B-tilvikinu Losunin 1990 nam 16,2 milljörðum
tonna af koltvísýringi -í iðnríkjunum og 5,5
milljörðum tonna í þróunarlöndum, eða alls
21,7 milljörðum tonna af koltvísýringi. Búist er
við að losun í iðnríkjunum verði 17,0 milljarðar
tonna árið 2020, þ.e. að hún hafí vaxið um 0,8
milljarða eða 5%, 13,4 miiljarðar tonna í þróun-
arlöndunum, eða 144% meiri en 1990, eða alls
30,4 milljarðar tonna, sem er 40% meira en
1990.
í hinni fornu höfuðborg Japans, Kyoto, náð-
ist í desember 1997, eftir langvinnar umræður,
samkomulag um bókun við Rammasamning
Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.
Samkvæmt henni er langflestum ríkjum í svo-
nefndum Viðauka B við bókunina, iðnríkjum,
eða 33 af 39 sem talin eru í bókuninni, ætlað að
hafa á árabilinu 2008-2012 dregið úr losun
sinni á gróðurhúsalofttegundum um 7-8% frá
því sem hún var 1990, þremur er ætlað að
halda henni óbreyttri, en öðrum þremur leyfíst
að auka hana lítillega; íslandi mest, um 10%.
Hér er að vísu ekki verið að tala um koltvísýr-
ing einan og heldur ekki einvörðungu um orku-
tengda losun hans, þannig að bókunin er ekki
alveg sambærileg við niðurstöður Orkuráðsins.
En með tillitti til þess að koltvísýringur er
lang-mikilvægasta gróðurhúsalofttegundin og
þess, að yfirgnæfandi hluti af losun hans teng-
ist orku, er engu að síður ástæða til að horfa á
þetta tvennt í samhengi: Samdrátt um 7-8% frá
1990 fram til 2008-2012 samkvæmt bókuninni
en 5% aukningu fram til 2020 hinsvegar sam-
kvæmt úttekt Alþjóðlega orkuráðsins.
I ljósi úttektar Orkuráðsins, sem, eins og
fyrr segir, er líklega hin viðamesta og ítarleg-
asta sem nokkru sinni hefur verið gerð á orku-
málum heimsins, og þar sem sjónarmið þróun-
arlandanna koma betur til skila en í fyrri út-
tektum, vaknar óhjákvæmilega sú spurning
hvort Kyoto-bókunin geti yfirleitt talist raun-
hæf. Hvort menn séu ekki þar að setja sér
markmið sem lítil, jafnvel engin, von sé til að
náist. Árangur af fyrri samþykktum innan
ramma loftslagssamningsins dregur ekki úr
efasemdum í þessu efni. Alþjóðlega orkuráðið
hefur líka haft uppi efasemdir um þær og bent
á að vænlegra sé að setja sér hófsamari mark-
mið og ná þeim heldur en að keppast við að
hafa markmiðin sem metnaðarfyllst en ná þeim
svo ekki.
Annað er þó alvarlegra. Hvort heldur losun
iðnríkjanna dregst saman um 7-8% fram til
2008-2012 eða vex um 5% fram til 2020 þá
bendir úttektin til að losun þróunarlandanna
vaxi um 144% frá 1990 til 2020. Og þótt losun
þeirra sé enn nokkru minni en iðnríkjanna árið
2020 þá dregur óðum saman með þessum ríkja-
hópum. Þróunarlöndin munu með sama áfram-
haldi fara fram úr iðnríkjunum skömmu eftir
2020. Heimurinn er einn. Andrúmsloft jarðar
er eitt. Það gerir engan greinarmun á því hvort
koltvísýringur kemur frá iðnríki eða þróunar-
landi. Ahrifin eru þau sömu fyrir alla jarðar-
búa. Losun alls heimsins á koltvísýringi frá
orkuumsvifum vex um 40% samkvæmt úttekt
Alþjóðlega orkuráðsins. Til hvers er þá að
þrasa um nokkur prósent til eða frá fyrir iðn-
ríkin ein sem strax á fyrri hluta næstu aldar og
úr því munu hvort eð er losa minnihlutann af
þeim koltvísýringi sem þá fer út í andrúmsloft-
ið?
4. Nauðsyn á nýjum
hugsunarhættc
Þetta undirstrikar grundvallarveilu í öllum
viðbrögðum hingað til við gróðurhúsavand-an-
um Allir viðurkenna að hann er hnattrænt
vandamál. Samt hyggjast menn leysa hann
hver í sínu homi. Hvert iðnríki er spurt: Hvað
hefur þú gert til að hemja losun koltvísýrings
heima hjá þér í stað þess að vera spurt: Hvað
hefur þú gert til að hemja losun koltvísýrings í
heiminum sem heild. Hér eru menn á villigöt-
um sem bjóða upp á hókus-pókus lausnir í stað
raunhæfra lausna. Bandaríkin gætu hægt á los-
un sinni með því að reisa eldsneytiskyntar raf-
stöðvar í Mexíkó, sem ekki er í Viðauka B, og
flytja rafínagnið til Bandaríkjanna, eða með því
að flytja þangað hluta af orkufrekum iðnaði sín-
um. Norðmenn gætu látið vera að reisa
gasorkuver í Noregi, sem mikil andstaða er við,
en selt gasið í þess stað til Þýskalands og flutt
rafmagn inn þaðan. Hvorugt dregur úr losun í
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. ÁGÚST1998