Lesbók Morgunblaðsins - 15.08.1998, Side 16
MÁLARINN SEM SEHI
JÁRNFRÚNA ÚR JAFNVÆGI
'
»
%
V
En Ruskin málaði einnig mikið af myndum af alþýðu-
fólki. Þekktastarþessara mynda eru sennilegaþær sem
lýsa lífinu á hverfiskránni. Re'tt eins og í myndunum af
fyrirfólkinu var honum annt um að draga fram sér-
kenni í andlitumþessa fólks.
Morgunblaðið/Jim Smart
MARY Spear, ekkja portrettmálarans kunna, Ruskin Spear, en opnuð verður sýning á verk-
um hans á Sóloni íslandusi á fimmtudaginn kemur.
BRESKI portrettmálarinn Ru-
skin Spear var kunnur fyrir
glettnar myndir af frægu
fólki úr bresku þjóðlífí, ekki
síst af meðlimum konungs-
fjölskyldunnar og stjórn-
málamönnum. En þótt
myr.dir hans hafi iðulega
hitt í mark hjá listunnendum þá voru fyr-
irmyndir hans ekki alltaf jafnánægðar.
Ruskin málaði til að mynda þrjár myndir
af Margaret Thatcher, fyrrverandi for-
sætisráðherra Bretlands, allar í bláum
tónum. Þegar Thatcher sá eina þeirra á
opnun á sumarsýningu í Royal Academy
í London snerist hún á hæli fussandi og
sveiandi og sagðist ekki vilja horfa á
þessa hræðilegu mynd. Myndin lýsti vel
áliti Ruskin á Thatcher, en hann var
harður vinstrimaður, sumir segja Sta-
linisti. Mynd þessa kallaði hann True
Blue.
Að sögn ekkju Ruskin, Mary Spear,
sem er hér á landi til að opna sýningu á
verkum listamannsins á Sóloni Islandusi,
var það oft ekki ætlun hans að vera ill-
kvittinn í garð fyrirmynda sinna. „Það
var ekkert persónulegt á bak við þessa
mynd af Thatcher. Málið er að Thatcher
hafði engan smekk fyrir góðri myndlist.
En það er rétt að það má oftlega sjá
hvaða álit hann hafði á fyrirmyndinni og
vissulega hafði hann svolítið gaman af
því að gefa hlutina í skyn með þessum
hætti þegar vissar persónur áttu í hlut.
Hann málaði til dæmis mjög svo álits-
þrungna mynd af Enoch Powell, þing-
manni íhaldsflokksins, sem fylgdi öfga-
fullri frjálshyggjustefnu í efnahagsmál-
um og sterkri þjóðernishyggju og hafði
borið fram kröfur um miklar takmarkan-
ir á ijölda þeldökkra innflytjenda til
Bretlands. Myndin hét „Portrait Against
a Black Background" („Portrett gegn
svörtum bakgrunni") og sýndi Powell
gapandi á svörtum bakgrunni, en hann
hafði eimitt haldið fræga kraftmikla
ræðu þar sem hann sagði að ef straumur
þeldökkra innflytjenda yrði ekki stöðv-
aður myndi ekki líða á löngu þar til ár
Bretlands fylltust af blóði. Eins og sjá má
á þessu dæmi lagði Ruskin talsvert mikið
upp úr hnittnum titlum á verkum sín-
um.“
Auga fyrir hinu kómíska
En Ruskin málaði einnig mikið af
myndum af alþýðufólki. Þekktastar þess-
ara mynda eru sennilega þær sem lýsa
lífinu á hverfiskránni. Rétt eins og í
myndunum af fyrirfólkinu var honum
annt um að draga fram sérkenni í andlit-
um þessa fólks. Og iðulega hafði hann
auga fyrir hinu kómíska. Margar þessara
mynda eru af fólki sem hann þekkti.
Hann málaði til að mynda tvö portrett af
manninum sem rak sjoppuna sem seldi
físk og franskar í hverfinu og eina af
konunni i næsta húsi.
Fisksalinn sat fyrir hjá Ruskin, en al-
gengt var að hann málaði eftir ljósmynd-
um sem hann hafði rekist á einhvers
staðar, til að mynda í dagblöðum og
tímaritum. Mary segir að það hafi þó
ekki alltaf verið vel séð.
„Milljarðamæringurinn Nubar Gul-
Skissan af Sir Laurence Olivier í hlutverki
Machbeths.
benkian, scm hafði auðgast mjög á olíu-
viðskiptum, brást illur við þegar hann
uppgötvaði að Ruskin hefði málað stórt
portrett af honum eftir ljósmynd úr dag-
blaði, sagðist aldrei hafa setið fyrir hjá
Ruskin og að hann hefði ekki gefið hon-
um leyfí fyrir að mála sig. En Ruskin
svaraði því til að óteljandi portrett hefðu
verið máluð af Jesú Kristi, samt hefði
hann áreiðanlega aldrei setið fyrir hjá
málara. Nubar hætti við að senda lög-
fræðinginn sinn á Ruskin þegar hann
heyrði þessa röksemd. Það er misskiln-
ingur að málarar megi ekki mála hvern
sem er.“
Á sýningunni, sem opnuð verður á
verkum Ruskin á Sóloni Islandusi á
fimmtudaginn kemur, verður gefið sýnis-
horn af höfundarverki hans. Nokkrar
þekktar myndir verða á sýningunni,
meðal annars skissa af Sir Laurence Oli-
vier í hlutverki Macbeths, en fruminynd-
in að henni er varðveitt í konunglega
Shakespeare-leikhúsinu.
RUSKIN Spear málaði mörg
verk af meðlimum konungsfjöl-
skyldunnar. Verkið til hægri er
eitt af þeim þekktustu og heitir
Kossinn. Fyrir ofan er Ijósmynd,
sem tekin var af Karli Bretaprins
og Díönu prinsesssu á svölum
Buckinghamhallar að hjóna-
vígslu þeirra lokinni..
W
! 1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. ÁGÚST 1998