Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1998, Blaðsíða 16
Morgunblaðið/Jim Smart
KÓRSÖNGUR æfður í kirkju.
GÓÐAR ÁSTRÍÐU R OG ANDLEG
UPPLYFTING í SKÁLHOLTI
Haukur
Guðlaugsson
Kristín
Axelsdóttir
Guðmundur
Sigurðsson
Nýlega var haldið árlegt kóra- og organistanámskeið
sem Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar stendur fyrir.
GEIR SVANSSON fór á vettvang og ræddi við
þátttakendur og stjórnanda.
K'óra- og organistanámskeið var
haldið í 24. sinn dagana 13. til
16. ágúst í Skálholti í Biskups-
tungum. Námskeiðið er yfirleitt
haldið í Skálholti en hefur einnig
verið haldið á Hólum og í
Reykjavík. Um tuttugu org-
anistar og ríflega 200 félagar úr
kirkjukórum landsins mættu til leiks að þessu
sinni.
Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, Haukur
Guðlaugsson, telur starfið sem felst m.a. í
kóra- og organistanámskeiðunum afar mikil-
vægt öllu kirkju- og kórastarfi í landinu. Pyrsti
Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar var Sigurður
Birkis en embætti Söngmálastjóra var stofnað
árið 1941. „Hann lagði ætíð mikið upp úr starfi
kóranna, ferðaðist á milli þeirra og stofnaði þá
í raun. Sigurður gegndi þessu starfi fram til
1961 þegar doktor Róbert Abraham Óttósson
tók við. Ég tók svo við árið 1974 og er því sá
þriðji sem gegnir embættinu. Hver okkar hef-
ur auðvitað farið að einhverju leyti sínar eigin
leiðir. Ég er búinn að vera í þessu í 24 ár.“
Með námskeiðunum og aðdragandanum að
þeim eru kórar landsins og starfsemi þeirra
sæmræmd. „Það fer mikill tími í undirbúning.
Efnið fyrir þetta námskeið var sent út í vetur
til allra þátttakenda. Núna leggjum við m.a.
áherslu á verkefni eftir Kodály, Fauré, Passíu-
sálmana og raddsetningar eftir Bach. En þetta
er nú ekki allt á þungu nótunum. Við erum
alltaf með skemmtun í Ai-atungu þar sem við
getum fengið útrás fyrir veraldlegt efni.“
Starf Söngmálastjóra einskorðast ekki við
námskeiðin. Tónskóli Þjóðkirkjunnar er á hans
vegum og svo stendur hann að þó nokkuð viða-
mikilli útgáfustarfsemi á nótna- og söngvabók-
um. Þá er orgelleikurinn Hauki hugleikinn en
hann telur að upp á vanti að nægilega margir
leggi stund á orgelnám. „Stór þáttur í starfmu
felst í því að hitta kórana og halda svona nám-
skeið eins og þetta. En þar skipti orgelleikur-
inn ekki sístu máli. Ég á mér reyndar draum.
Það eru yfirleitt um 50 nemendur í orgelleik á
ári en árið 2000 stefni ég að því að þeir verði
orðnir 200. Til stendur að halda annað nám-
skeið í sambandi við „orgelskólann" minn sem
ég kalla svo en það er kennslubók í orgelleik
sem ég er núna að leggja lokahöndina á.
Orgelleikari í tveimur sóknum
Segja má að fólk á öllum aldri, frá táningum
upp í fólk á áttræðisaldri, sæki kóra- og orgel-
námskeiðin. Af góðri stemmningu í mann-
skapnum er greinilegt að kynslóðabil háir eng-
um. Aldursforsetinn að þessu sinni er Kristín
Axelsdóttir orgelleikari. Hún hefur sótt nám-
skeið söngmálastjóra frá því 1963. „Ég fór til
Róberts Abrahams þegar hann hélt fyrsta org-
elleikaranámskeiðið sitt.“ Kristín er fædd og
uppalin á Ási í Kelduhverfi en flutti í Gríms-
staði 1948 og hefur verið þar síðan. Var fyrst
bóndakona en rekur núna ferðaþjónustu
bænda á sumrum en býr á Egilsstöðum yfir
vetrartímann.
„Ég hef spilað i kirkjunum okkar þarna á
Fjöllum. I Möðrudal síðan kirkjan var byggð
1949 og í Víðifellskirkju sem er kirkjan okkar á
Grímsstöðum. Möðrudalskirkja er í Múlasýslu
en okkar í Norður-Þingeyjarsýslu. Ég nýt því
þeirra hlunninda að fá að vera bæði með fólki í
Múlaprófastsdæmi og Þingeyjarsýslu! Það er
mjög gaman.“
Kristín segist hafa byrjað snemma að læra.
„Tíu ára gömul lagði ég það á mig að fara með
skipi frá Kópaskeri til Þórshafnar. Þar bjó
móðursystir mín sem vildi gjarna kenna mér á
orgel. Svo bara hélt ég áfram þegar ég komst í
tæri við einhverja kennara. Ég fór tvo vetur
þarna á milli og var í þrjá mánuði í senn. Ég
fór svo til Akureyrar og komst þar í kynni við
Sigurgeir Jónsson gamlan organista við Akur-
eyrarkirkju og lærði af honum. í hvert sinn
sem ég komst í návist við einhverja sem gátu
kennt, þá greip ég tækifærið, alltafi
Það er alveg sérstakt að vera hérna í Skál-
holti. Þetta gefur manni svo mikið; söngurinn,
kennararnir og staðurinn. Ekki síst staðurinn.
Haukur er frábær sem kennari og hann er sál-
fræðingur held ég líka! Hann hefur líka alltaf
valið með sér framúrskarandi kennara. Maður
kemur endurnærður frá námskeiðunum hérna
og eiginlega ekki hægt að lýsa því hvað þetta
er mikil upplyfting. Jónas Ingimundar var nú
kennarinn okkar hérna einu sinni og hann
sagði að tónlistin væri drottning allra lista og
ekkei't gæfi manni eins mikið og að vera með í
músík. Þetta gildir fyrir alla. Þetta er ástríða
eins og margt annað. Góð ástríða, held ég.“
Organisti i afleysingum
Guðmundur Sigurðsson telst í yngri kanti
námskeiðsgesta. Hann er Reykvíkingur, fædd-
ur 1972. Hann leggur stund á orgelleik og hef-
ur sungið í kórum. „Ég byrjaði í píanóleik 8 ára
gamall og lauk því námi 16 ára. Fór líka í gegn-
um þetta hefðbundna nám og lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð árið
1994. í Tónskóla þjóðkirkjunnar hóf ég nám í
orgelleik 1990 en Cantosprófi eða kirkjutón-
listarprófi lauk ég þaðan árið 1996.“
Þessa dagana er Guðmundur organisti í af-
leysingum en það segist hann hafa gert alla tíð,
jafnframt náminu. Hann hyggur á frekara nám
og stefnir til útlanda eftir áramót. Ekki þó á
„hefðbundnar" slóðir organista. „Ég ætla að
brjóta út af venjunni og fara til Bandaríkjanna.
Ég veit ekki um neinn Islending sem hefur far-
ið þangað í kirkjumúsík, kórstjórn og því um
líkt. Ég ætla að prófa þetta og sjá hvað setur.
Skólinn heitir Westminster Choir College í
Princeton í New Jersey. Ég var þar í einka-
námi síðasta haust en fer inn 1 skólann núna.
Námið sjálft er tvö ár en ég reikna með að
verða þrjú. Að því loknu stefni ég að því að
komast að í kirkju hér heima.“
Guðmundur var að þessu sinni aðstoðarmað-
ur Söngmálastjóra. Hann hefur áður aðstoðað
við kennslu en gegndi núna viðameira hlut-
verki. „Þetta er í íyrsta sinn sem ég er með
Hauki í skipulaginu, við að undirbúa námskeið-
ið. Þó hann velji verkefnin þá er ýmislegt sem
þarf að sýsla í kringum þetta.“ Guðmundur vai-
í hópi þeirra organista sem kenndu verkin.
„Við skiptum okkur niður í svona raddkennslu-
stöðvar, sópraninn kannski í kirkjunni, altinn
kannski einhvers staðar allt annars staðar, ten-
ór og bassi á sínum stöðum. Við tókum s.s. að
okkur eina rödd hver fyrir sig og kenndum
ákveðin verk. Síðan voru samæfingar sem
stjórnendur verkanna sáu um sjálfir."
Níður aldanna, grátur bernskunnar
Guðmundur hefur sótt fjögur sumarnám-
skeið, öll skiptin nema eitt í Skálholti. „Nám-
skeiðin eru einkum skemmtileg vegna þess að
hérna koma saman kirkjukórar frá öllum
landshlutum. Yfir tvöhundruð manns! Ef það
næst upp góð stemmning í svona hóp þá er
þetta ofboðslega skemmtilegt. Hérna mætast
allar kynslóðh-. Maður heyrir nið aldanna í
sumum og grát bernskunnar hjá öðrum. Allur
skalinn mættur!
Ég tel að námskeiðin séu mjög mikils virði
fyrir hinn almenna kirkjukórsmeðlim á Islandi.
Þetta hristir upp í fólki, það kynnist nýjum
verkefnum, nýjum stjórnendum og vinnu-
brögðum. Síðast en ekki síst þá er þetta bara
svo hvetjandi fyrir fólk að koma saman og fá að
vita að aðrir eru að gera svipaða hluti í þjón-
ustu fyrir kirkjuna. Þannig hafa þessi nám-
skeið á vegum Söngmálastjóra verið mikil lyfti-
stöng fyrir kirkjukóralíf á íslandi.
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 29. ÁGÚST 1998