Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1999, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1999, Síða 3
I I SHOK MOIK.I Mtl \l)SI\S - MHXNING LISTIR 19. TÖLUBLAÐ - 74. ÁRGANGUR EFNI Firðir og fólk út er komin Árbók Ferðafélags íslands og fjallar hún um fímm hreppa f Vestur-Isa- fjarðarsýslu. Höfundurinn er Kjartan Ólafs- son. Það er hefð að Lesbók birti kafla úr Ár- bókinni og hefur hluti kaflans um Suðureyr- arhrepp orðið fyrir valinu. Þar er ekki fjall- að um nútíðina, ekki einu sinni um þessa öld, því bókin spannar byggðasöguna frá 900 - 1900. Marseilles er elsta borg Frakklands og nær saga henn- ar aftur til 600 f. Kr. í þesari Miðjarðarhafs- borg býr rúmlega milljón manna, en borgin hefur haft illt orð á sér fýrir glæpi og eitur- lyf. Ástæðan, segir greinarhöfundurinn, Þröstur Geir 'Árnason, er sú að borgin hefur orðið að taka við holskeflum innflyljenda. En hann segir Marseilles að mörgu leyti góða og skemmtilega borg og svo mikla knattspyrnuborg, að sparkfræðin nálgast trúarbrögð. Omar mikli Vínvið fann Leifur en ekki er vínviðarlegt um að litast við Leifsbúðir segir Jóhannes Jóhannesson, tæknifræðingur, sem var á ferð vestra, kannaði aðstæður og tók Ijósmyndir af ber- angri sem minnir á Island. Með þessari myndafrásögn eru birtar sex sjóferðasögur úr Eiríks sögu rauða, sem allar segja frá siglingum vestur á bóginn. skrautlegasta bók sem gerð hefur verið hvarf með Titanic í djúpið 14. aprfl 1912. Nú hafa menn dottið niður á myndir af gerð hennar og séð svart á hvítu, hver dýrgripur þessi Omar var; sérinnbundin útgáfa af Rúbajat eftir Omar Khayyam, gullslegin og skreytt 1.050 eðalsteinum. Freysteinn Jó- hannsson skoðaði sýningu sem snýst um Omar mikla í Barbicanbókasafninu £ London. FORSÍÐUMYNDIN: Ásmundur Sveinsson myndhöggvari vinnur að mynd sinni um Sæmund á selnum. Ljósmynd: Ólafur K. Magnússon. VILHJÁLMUR FRÁ SKÁHOLTI VERALDARUÓÐ Ljóð mitt til þín, heimur, er harmur þess, sem veit að hénist manns er fremur lítils virði. Þú hefir mörgum hitað í hjartans innsta reit og hlegið dátt að þjáning fólks og byrði. Sjá, töfraborgum mínum þú hefir öllum eytt, - til einskis hefí égreist þær upp frá grunni, - og skildir aldrei hjartað, þetta hjarta, sem er þreytt af þrjátíu ára leit að hamingjunni. Með töfraborgum mínum ég týndi því, sem var öll tjáning stríðsins, er ég þráði að heyja. - En þetta er gamla sagan af þeim, er þyrna bar, afþrá, sem fæddist aðeins til að deyja. Afyndi vai-stu snauður - þehri ást, sem gæfu ber, en átth’ nóg af brennivíni og hórum. — Ég leitaði til einskis að mildi, sem var mér þó meira vh'ði en gullið bankastjómm. Ef ég hefði vitað, hve vítamínsnauður þú ert, er \iskan þráir að dafna, líkt og blóm í runni, ég hefði aldrei gist þig, - þitt glys er einskisvert, og gengið af mér dauðum í fæðingunni. Vilhjólmur (Guðmundsson) fró Skóholti, 1907-1963, vor Ijóðskóld í Reykjavík og setti oft svip ó miðbæinn þor sem hann fékkst m.a. við blómasölu og rak verzlun ó tímabili í Aðalstræti með list- og antíkmuni. ( kvæðum sínum er hann gjaman mólsvari lítilmagnans og lýsir örlögum gæfusnauðra einstaklinga sem leita sér lifsnautna ( borginni. Fyrsta Ijóðabók hans kom út 1931 og þrjór gaf hann út síðar. RABB ISL-ENSKA? En syndin er lævís og lipur og lætur ei standa á sér,“ orti Steinn Steinarr í kvæðinu um Jón Kristófer kadett í Hern- um. Nú um stundir er það eins með enska tungu gagnvart ís- lensku og syndina gagnvart Jóni Kristófer að hún er bæði lævís og lipur og lætur ei standa á sér. Nú er það svo að sá sem þetta skrifar hefur ekkert á móti enskri tungu, nema síður sé. Hefur raunar dálæti á því ágæta máli en vill umfram allt halda tungumál- unum ensku og íslensku aðskildum, þótt skyld séu. Enskan sækir á úr öllum áttum. A fjórða tug ára höfum við horft og hlýtt á sjónvarp þar sem enska er meginmálið og engilsaxneskt efni ráðandi, - að visu með íslenskum textum. Textað efni sjónvarps- ins hefur verið áhrifamikill tungumála- kennari. En það er að hætta sér út á hálan ís að ræða um mál og málfar. Margt er þar smekkbundið og fátt óyggjandi. Þó skal það gert. Á dögunum las ég kynningarbækling frá einkaskóla eða stofnun sem fæst við að kenna fólki tungumál. Þar eru allmargir útlendingar við störf og þeim hrósað í há- stert. Þess var getið að þeir töluðu „full- komna íslensku". Mér hnykkti við. Gaman væri að kynnast þessu fólki. Eg þekki ekki nokkurn mann, sem talar fullkomna ís- lensku. Hér er auðvitað á ferðinni hrá þýð- ing úr ensku. Þar er tekið svona til orða ef menn eru vel talandi á ensku. Raunar er það sagt um ensku að hún sé auðveldasta mál í heimi að tala illa en heimsins erfið- asta mál að tala vel. Ekki dreg ég í efa að erlendu kennararnir við umræddan mála- skóla tali bærilega, jafnvel prýðilega ís- lensku. Það er hinsvegar af og frá að þeir tali fullkomna íslensku. Raunar var líka sagt í þessari auglýsingu um einhvem kennaranna: „Hans móðurmál er... „ þar hefði átt að standa: „Móðurmál hans er...“ Meðal þess sem veður uppi í fjölmiðlum, og hefur raunar gert nokkuð lengi, er að segja að hitt og þetta sé „komið til að vera“. Hrá ensk þýðing. Nýlega mátti lesa í Morgunblaðinu: „Það virðist því ljóst að þessar ferðir á hundasleðum um ísland eru komnar til að vera.“ Af hverju má ekki segja, að nú gefist mönnum kostur á að ferðast á hundasleðum á Islandi? „Our love is here to stay“ segir í gömlum banda- rískum dægurflugutexta. Það er gott og gilt á ensku en ekki hægt að hráþýða á ís- lensku. Annað hrátt úr ensku sem sífellt glymur í eyrum er „í gegnum". Ferðamenn koma heim frá útlöndum „í gegnum Kaup- mannahöfn" eða „í gegnum London". Áf hverju nægir ekki að segja „um Kaup- mannahöfn", eða „um London“? Flug- menn eru sem betur fer að mestu hættir að segja farþegum: „Við erum nú að hækka flugið í gegnum 18 þúsund fet á leið í 35 þúsund fet sem verður flughæð okkar til Kaupmannahafnar í dag.“ Og segja nú oftar en ekki: „Við erum í 18 þús- und feta hæð og að hækka flugið upp í 35 þúsund fet...“ Húrra fyrir Flugleiðum! I snilldarþýðingu Matthíasar Jochum- sonar á sálmi Ingemanns segir: „Kynslóð- ir koma, kynslóðir fara,“ og allir skilja hvað við er átt. Auglýsendur eru í vaxandi mæli farnir að nota orðið kynslóð um nýj- ar vörugerðir. í auglýsingablaði var ný- lega talað um nýja kynslóð af skóm. Við notum skó til að koma og fara. En það er varla hægt að tala um kynslóðir í því sam- bandi. Líka er talað um nýjar tölvukyn- slóðir. Enn er þýtt beint úr ensku. Er ekki nóg að segja nýjar tölvur eða nýjar tölvu- gerðir? Þetta kemur kynslóðum ekkert við. En auðvitað má líka halda því fram að ekkert sé á móti því að gefa orðinu kyn- slóð útfærða merkingu með þessum hætti. Rótgróin íhaldssemi mín í þessum efnum leyfir mér hinsvegar ekki að nota kynslóð um skó eða tölvur. En mér þótti þó taka steininn úr er í fyrirsögn heilsíðuauglýs- ingar bílasala nú snemmsumars stóð „Generation Golf Engin tilraun til þýð- ingar. Golf-kynslóðin. Vond auglýsing fyr- ir annars sjálfsagt ágætan bíl. í upphafi þessarar málsgreinar nefndi ég Matthías og Ingemann. Ég nefni þá aftur. Sálmur Ingemanns, sem allir þekkja, byrjar á orðunum: „Dejlig er jor- den“. Matthías segir: „Fögur er foldin“. Verður betur gert? Varla. Gaman er að lesa auglýsingar og velta fyi'ir sér málfari. Sérkennilegt er að sjá auglýsta fótlaga skó. Seint mundi ég kaupa mér skó, sem ekki væru fótlaga. Raunar geri ég ráð fyrir að allir skór séu fótlaga. Rétt eins og allir hanskar eru handlaga. Mér hefur þó fundist auglýs- ingamönnum vaxa fiskur um hrygg að undanförnu. Oft tekst þeim að beita orða- leikjum með eftirminnilegum hætti enda eiga auglýsingar að vera eftirminnilegar. Þegar safnað var skóm til að senda til þró- unarlanda var fólk hvatt til að láta gamla skó „ganga aftur“. Vel orðað. Stórverslun auglýsir undir orðunum „Fyrir alla muni“. Framleiðandi sjálfblekunga segir „Beittur penni“. „Láttu símann ekki vefjast fyiár þér“ segir í auglýsingu um þráðlausa síma. Ymislegt fleira vel orðað mætti tína til. Stundum mistekst slagorðasmíð herfi- lega. Einhverntíma sá ég málað á bíl: „Naut er okkar fag“. Ég var næstum bú- inn að valda árekstri, þegar ég marglas þetta og það rann upp fyrir mér að þetta var auglýsing frá fyrirtæki sem seldi nautakjöt. Nýlega sá ég á flettispjaldi við alfaraleið: „Frístundir þínar - okkar fag“. Afkáralegar málleysur að ekki sé meira sagt. Rétt eins og þegar sagt er að kaffi- tegund „setji brag á sérhvern dag“. Og af hverju halda bílasalar að menn kaupi frek- ar bíla ef þeim er ekið í sjónvarpsauglýs- ingum gegnum eld eða með offorsi yfir lækjarsprænu þannig að vatn gusast í all- ar áttir? Hin hallærislega kveðja „Eigðu góðan dag“, „Have a nice day“, heyrist æ oftar. Bandaríski rithöfundurinn Bill Bryson segir í einni ágætra bóka sinna, að þegar þetta sé sagt við hann sé freistingin næst- um ómótstæðileg að svara: „Ég hafði nú ætlað mér annað.“ I staðinn fyrir að segja „eigðu góða helgi“, er þá ekki einfaldara að segja „hafðu það gott um helgina?“ Og við þurfum ekki að segja „bless, bless“ þótt enskumælandi segi gjarnan bye bye, sem orðabók Websters segir raunar vera bai’namál. Á sínum tíma tókst að bægja burt dönskuslettum og margvíslegum dönskum áhrifum úr töluðu og rituðu máli. Menn voru á varðbergi gagnvart dönskuslettum. Nú þarf að skera upp herör gegn ísmeygni enskunnar. Hún má ekki leika okkur eins og syndin í kvæði Steins Steinarrs: „Hún situr um mannanna sálir og sigur af hólmi hún ber.“ Við verðum að sjá til þess að svo fari ekki. EIÐUR GUÐNASON SENDIHERRA LESBÓK MORGUNBLAÐSINS " > MENNING/L1ST1R-22. MAÍ1999

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.