Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1999, Síða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1999, Síða 19
Hnerri dauðs mcmns nefnist Ijóðabók eftir dönsku skóldkonuna Piu Juul. ÖRN OLAFSSON segir að í bók- inni blandist saman óhugn- aður og blíða. Hann fjallar einnig um Sagði ég segi ég, nýjustu bók Piu Juul. PIA Juul heitir dönsk skáldkona sem hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir ljóðabókina Sagði ég segi ég. Það er fimmta ljóðabók hennar síðan 1985, einnig hefur hún sent frá sér skáldsöguna Skaden, 1990. Næsta bók á undan þessari bar það und- arlega nafn Hnerri dauðs manns (En dod mands nys), og blandaðist þar óhugnaður og blíða. Öll ljóðin þar eru titillaus, eins og í nýju bókinni. Lokaljóðið þótti mér einna best í Hnerranum: Kirkjugarðurinn var leikvöllur minn þar lærði ég á barnsaldri aðgangahægt tala lágt gjóa augunum til syrgjendanna dást að þeim sem fengu tré til að vaxa hafa meðaumkun með þeim sem allt óx saman fyrir uppgötva þá sem einhver hafði gleymt mosavaxnir steinar brotinn vængur bak við kapelluna þar sem enginn annar kom það virðist býsna dapurlegt en var það ekki Ég hefði eiginlega ánægju af að læra það allt aftur Öll þessi hegðun þykir til fyrirmyndar í líf- inu, en er þá ekki íhugunarefni að hún skuli lærast af umgengni við dauða? I andstöðu við þær aðstæður er endurtekning orðsins vaxa. Kyrrðarblær ljóðsins kemur ekki aðeins af því að þar eru einungis orð sem tákna hægar hreyfingar og lág hljóð, svo sem lýst er, held- ur líka af einföldum, upptalningarkenndum setningum og setningahlutum. BLÍÐUR ÓHUGNAÐUR Þar sem ljóðin eru án fyrirsagna g stundum reynt nokkuð á ímyndunarafl lesenda og þekkingu, svo sem í eftirfarandi ljóði í nýjustu bók- inni. Miklu meira skiptir þó innlifun í tilfinninguna sem lýst er: Draumlausum svefninum um bjarta nótt var sveipað um mig, ekki hægt að vekja mig, ég gat ekki vaknað sjálf, ég svafþyngdarlaust, það var hlýtt, þaðvarbjört nóttin. Pá heyrðist þothljóð við eyra mitt, ég opnaði augað og sá fuglinn lenda, og fjaðrimar struku kinnar mínar og snertu háls minn, en háls fuglsins var svo langur, og goggurinn lá við hár mitt það þaut um mig og í mér og um mig og inni í faðmi fuglsins var dimmt; þú mikli miskunnsami guð, það var dimmt í faðmi þínum, ég opnaði augun í myrkri þínu og gat ekki séð þig, þú hafðir ekki stjórn á vængjunum, hve undarlegt: svanur sem ekki hefur stjóm á vængjunum. Það þarf ekki neina þekkingu á grískum goðsögum til að skilja að ljóðmælandi er kona sem segir frá samförum sínum við svan. En sú þekking hjálpar til að skilja þetta tal um guð, það var Seifur sem brá sér í svanslíld til að komast yfir konuna Ledu. Þá sögu hefur Þórarinn Eldjárn skrumskælt (eða fært til Pia Juul Reykjavíkur nútímans) í bráðskemmtilegri sónhendu. En hér er eingöngu dvalist við til- finningar konunnar. Hve gagntekin hún er sést á ítrekun orðsins þjóta í mismunandi samhengi, og í upptalningunni: „það þaut um mig/ og í mér og um mig“, og í þessari upp- hafningu ástarunaðarins skynjar hún nær- veru guðsins. Fyrst þetta ljóð dvelst fyrst og fremst við tilfinningar konunnar, mætti spyrja hvers- vegna hún sé látin vera með svani en ekki bara venjulegum karlmanni. Eg held að al- greymi ástafundarins birtist einmitt í því hve annarlegt þetta er. Annað ljóð sem byggist á álfasögum, tengist greinilega ástarraunum, sviknum fyrirheitum og kvöl, en hér reynir verulega á ímyndunarafl lesenda, til að fá samhengi í textann Afþví: Vilt þú kannski taka þessa veru að hjarta þér? það vilt þú og það vil ég Hversvegna venjast hin þessu ekki þegar nú svo oft er nótt öll þessi læti út af dansi Nú loka þeir helli álfastúlkunnar með nál og þræði og glóandi kolum - því þannig er tilfmningin, hún æpir mest á eftir Hún æpir um nótt Og fær ekki svar Hún hefur, hún hefur vitað það lengi, gættu að þér, stúlka mín, þeir sjá þig en hún gekk í gildruna og gildran hefur lokast Fleiri ljóð eru af þessu blíðutagi, en annað Ijóð er dæmigerðara fyrir bókina, það sýnir til- finningu fyrir tíðindaleysi lífsins, ef svo mætti orða það, eða hve huglæg túlkun þess er. I gær skein sólin í Kaupmannahöfn 1 tíma og 10 mínútur Á meðan það stóð áttaði ég mig það tók einn tíma og tíu mínútur, ég stóð alveg kyrr undir gullregni í lystigarðinum þú hlýtur að vita hve ^ flókið jafnvel hið einfalda er Velti fyrir mér hversvegna þú heldur að það sé létt að kortleggja líf en erfitt að lifa því þegar það er þver öfugt Hvað er hægt að kortleggja? Borgir og vegi? Engi og ár? Pessa lykt? Sársaukann? Bragðið af rauðgraut? Égfékklostúr M rafgirðingunni við lækinn um vor, ég greip um það báðum höndum, til að detta ekki. Málmþruma. I gær skein sólin í Kaupmannahöfn eftir hundrað ár verður allt gleymt TÓIVLIST Sfgildir diskar PROKOFIEV Sergei Prokofiev: Sinfóníurnar 1-7, ásamt Rússneskum forleik og Skýþískri svítu. Fíl- harmóníusveit Lundúna; Sinfóníuhljómsveit Lundúna (sinf. nr. 1, 5 & 7). Stjórnandi: Walter Weller. London 430 782-2. Upptaka: ADD, London, 1974-77. Útgáfuár þessarar útgáfu: 1996. Heildarlengd (4 diskar): 4.49:08. Verð (Skífan): 4.999 kr. GÁRUNGI sagði einhvem tíma um Sergei Prokofiev (1891-1953), að sjaldan hafi fossað annar eins flaumur af lagrænni hljómsveitar- fegurð úr jafn Ijótum haus. Hann reit ein- hverja eftirminnilegustu balletttónlist á 20. öld (Rómeó og Júlía, Öskubusku), og varla er til það tónfirrtur maður að hafi ekki einhvern tíma heyrt a.m.k. glefsu úr Pétri og úlfinum. Það er ekki bara fjöldi viðfangsefna Prokofi- evs úr þjóðsögum og ævintýrum sem setja seiðmagnaðan svip ævintýrsins á margar af- urðir hans, heldur líka óvenjulitrík og frum- leg orkestrun og dálæti hans á óvæntri og jafnvel skringilegri „hljómavindu" (eða ,,prógressjónum“), sem fylgja grunnlögmáli fabúlunnar: hér getur allt gerzt! Nægir að minna á stef Péturs í Pétri og úlfinum, sem eftir aðeins fjóra takta í C-dúr vippar sér skyndilega 120° til vinstri á fimmundar- hringnum í As-dúr, en nær að rata heim rétt í tæka tíð áður en tóntegundaferðalagi þessa litla 16 takta stefs lýkur. Um frísklega or- kestrun Prokofievs mætti t.d. nefna Sleða- ferðina (Troika) alkunnu úr svítunni af Kije lautinanti, þar sem þjóðlagakennt stefið er málað sérlega örvandi hljómsveitarlitum, svo hlustandanum finnst hann vera staddur á fljúgandi teppi. Orkestrunargaldra Prokofievs má eflaust að hluta rekja til færra kennara eins og Lja- dov, Gliere og Rimsky-Korsakov. En bæði yndi hans af álfkonufegurð og urrandi grótesku hlið við hlið - dulítið í anda Fríðu og dýrsins - og tilhneigingin til hljómrænna und- FRÍÐA OG DÝRIÐ anbragða, sem kemur svo skýrt fram í að öðru leyti hefðbundnum tónölum stíl hans, eru vísast sér-prokofievsk. Sonur hans á að hafa orðað það þannig, að „fyrst semur pabbi venjulega tónlist. Síðan prokofievar hann hana“. Reyndar skrifaði Prokofiev, sem frá lokum fyrri heimsstyrjaldar dvaldist erlendis - lengst af í París - framan af ekki eingöngu innan hefðbundnu vébanda dúrs og molls. I Parísarútlegðinni gat hann sleppt sér áhyggjulaus, og það gerði hann m.a. í verkum eins og 2. píanókonsertnum (1913), sem gagn- rýnandi nokkur nefndi „kattarbreim í bak- garði“ og í ballettnum Aia og Lolly (Skýþíska svítan) ári síðar. Líkt og Vorblót Stravinskys ári áður var ballettinn saminn fyrir Parísar- hóp Djaghilevs og í sama „barbaríska" anda, enda reið einskonar frumstæðishyggja hús- um í Vestur-Evrópu í kjölfar heimssýningar- innar í París um aldamótin og áhrifanna frá myndlist þriðja heimsins. Skýþíska svítan og hin hvassa „kúbíska" 2. sinfónía (1925) eru dæmi um þetta villta tímabil tónskáldsins, sem nú er kunnast fyrir nýklassísku verk sín, þ.m.t. síðustu sinfóníurnar fimm - auk auðvit- að Klassísku sinfóníunnar (nr. 1., 1916), en hún virðist í bland hafa verið ætluð til að koma nettilega á óvart - miðað við ótuktarorð höfundar, er þótti þegar í tónlistarskóla óstýrilátur í rithætti. Settlegra hljóð kom í strokkinn eftir að Prokofiev sneri aftur heim 1936. Þá var sokkabandsskeiði sósíalismans lokið, tök valdhafa á listamönnum stórum hert, og tón- skáldum gert að laga sig að forsendum al- þýðu. Prokofiev fékk þó fyrst að kenna á ónáð menningarvarðhunda Stalíns fyrir al- vöru 1948, þegar hann, ásamt Sjostakovitsj og fyjöldi annarra sovézkra tónskálda, fékk á sig paríustimpil flokksins fyrir „formalisma“. Of langt mál væri að fara ofan í sérkenni hljómkviða Prokofievs. Hver þeirra á sér ólíka tilurðarsögu - nr. 3 (1928) er t.a.m. unn- in úr óperu, nr. 4 (1929/1946) úr ballettverki, og nr. 7 (1952) var samin fyrir æskuhljóm- sveit - en þrátt fyrir gríðarlega fjölbreytni eru fingrafór Prokofievs alls staðar auðsæ. Walter Weller er kannski ekki meðal þekkt- ustu túlkenda rússneska meistarans, en þó að stjórnendur eins og Abbado og Járvi geti stundum verið snarpari, svíkja skýr handtök Wellers engan, og strengjasveitarmeðferð hans er í sérklassa, sem og almenn spila- mennska LSO og Lundúnafílharmóníunnar. Yfirfærðu upptökurnar frá 8. ái-atug eru fín- ar, burtséð frá örlitlu suði á hljóðlátustu stöð- um við fullan magnarastyrk. Bæklingspistla- höfundarnir fimm eru óvenjuvel að sér um viðfangsefnin, og miðað við fremur hagstætt verð er í heild óhætt að mæla með þessum ágæta sinfóníupakka frá London/Decca Collector’s Edition. PURCELL Henry Purcell: Di'do og Eneas. Líbrettú eftir Nahum Tate. Anne Sofie von Otter (Dídó), Stephen Varcoe (Eneas), Lynne Dawson (Belinda), Nigel Rogers (seiðkerling/farmaður); Elisbeth Priday & Carol Hall (nornir), Sarah Leonard (kona), Kym Amps (andi). Kór og hfiómsveit The English Concert u. stj. Trevors Pinnocks frá sembalnum. Archiv 427 624-2. Upptaka: DDD, Henry Wood Hall, London, 7/1988. Útgáfuár: 1989. Lengd: 53:56. Verð (Skífan): 2.999 kr. ENN er margt á huldu um einu alsungnu óperu Henrys Purcells (1659-95) um döpur örlög Karþagódrottningar, sem frumflutt var í heimavistarskóla Josiah Priests „fyrir ung- ar hefðarkonur" í Chelsea 1689. Það þykir t.d. með ólíkindum, að verk eftir þáverandi virtasta tónskáld Breta við texta eftir síðar lárviðarskáld þeirra skyldi ekki hafa verið flutt við hirð hins nýkrýnda Vilhjálms III af Óraníu, enda þykjast sérffæðingar geta fundið ýmsar allegórískar tilhöfðanir í verk- inu til Vilhjálms og Maríu drottningar. Af framansögðu leiðir einnig, að karlahlutverk hljóta upphaflega að hafa verið fleiri en kem- ur fram af elztu varðveittu handritsútgáf- unni, enda má spyrja hvernig stúlknafansinn í Chelsea hafi getað fyllt tenór- og bass- araddir kórsins, auk hlutverks Eneasar, far- mannsins og hugsanlega fleiri. Um það er ít- arlega fjallað í fróðlegum disksbæklingi þess- arar myndarlegu þriggja alda afmælisútgáfu frá 1989. En mestu skiptir auðvitað flutningurinn, og hann er hvað kór og hljómsveit varðar frá- bær. Sama má segja um flesta einsöngvar- ana, nema hvað Stephen Varcoe í fremur óþakklátu hlutverki Eneasar hreif mig ekki alla leið upp úr skónum, og seiðskratti Nigels Rogers er heldur litlaus. Lynne Dawson er hins vegar yndisleg Belinda, og þó að Sofie von Otter mætti kannski vera aðeins dramat- ískari, fer hún vel með hlutverk Dídóar, burt- 4 séð frá örlitíð óskýrum framburði. Þar fyrir utan er gott að losna við hefðbundna viðrina- ski’æki í þórðargleði nornanna (Elisabeth Priday, Carol Hall), og í heild er uppruna- túlkun Pinnocks næm og merkilega tiktúru- lítil. Hljóðritunin er, eins og vænta má af Archiv-liðinu, fyrsta flokks. Það var tími til kominn að fjalla um e.t.v. mesta meistaraverk enskrar barokkóperu, þótt stutt sé, því þó að ítalskar óperur Hándels séu viðameiri, hefur Dídó og Eneas tvímælalaust vinninginn í dramatískri hnit- miðun. Fyrir utan frægan harmsöng Dídóar í lokin setur hinn ferski heildarsvipur af brim- söltu sjávarroki sem svífur yfir Miðjarðarhafi ** sögusviðsins (les: Ermarsund) í dönsum og kórum óaftnáanlegt mark sitt á hvern sem hlustar á þennan brezka gimstein. Ríkarður Ö. Pálsson LESBÓK MORGUNBIAÐSINS -r MENNING/LISTIR 22. MAÍ 1999 19

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.