Lesbók Morgunblaðsins - 28.08.1999, Side 8
Horft er vestur ofan eftir efri hluta Seljahjallagils og er áin mest
áberandi, gígur er fyrir miðju gili, bílslóð spillir hér sem víðar.
Endalok árinnar ber rétt yfir hjallann til vinstri, fjær er Grænavatn.
Horft er af Seljahjalla í um 650 m y.s. norður yfir gilið og gígröð-
ina Þrengslaborgir.
Hér fellur áin undir hraunhaft og hér var fært yfir hana.
SEUAHJA
LJÓSMYNDIR OG TEXTI:
BIRKIR FANNDAL HARALDSSON
Horft af Seljahjalla norðaustur yfir gilið, gljúfrið er á miðri myndinni. Fjöll ber við loft frá
vinstri: Hágöng, Jörund, Hvannfeil, Stórahnjúk.
EINN af skoðunarverðum stöð-
um í Mývatnssveit er Selja-
hjallagil, það liggur nyrst í fjall-
garðinum norður frá Bláfjalli og
er lítt áberandi úr fjarlægð, en
sértu kominn í gilið þá verður
það þér því hugstæðara sem þú
skoðar það betur. Um gilið hef-
ur runnið eldhraun fyrir margt Iöngu, þar
hefur síðan orðið eldgos í miðju gilinu fyrir
kannski 2000 árum og þar rennur mikill
vatnsflaumur í vorleysingum þegar snögg-
lega hlánar til fjalla. Við gilkjaftinn er land-
hæð um 350 metrar en innst er gilbotninn í
um 460 m y.s. í vatnsfarinu eru einir 6 um-
talsverðir fossar en flúðir víða þar á milli og
á einum stað fellur áin undir hraunbrú.
Þetta fyrirbrigði hafði lengi freistað mín og
undanfarin vor hef ég reynt að átta mig á
hvenær vorflóðið verður þarna og mesta
rennslið. Þetta tókst loks nú í vor er ég kom
að ánni það mikilli að steinboginn var eina
færa leiðin yfír hana.
Seljahjallagil er ekki langt, eða um 2 km,
og breidd þess 100-200 metrar, hlíðar þess
eru veggbrattar skriður á báðar hendur. Að
norðan er rani, 50-100 metra hár, en að
sunnanverðu er Seljahjallinn sem er 250
metra hár. Þama er nokkur gróður miðað
við landhæð enda skjólgott.
Þegar gengið er upp eftir gilinu verður
brátt á því vinkilbeygja til austurs, þar er
myndarlegur gígur frá nútíma, syðsti gígur-
inn er í Þrengslaborgaröðinni og er frá hon-
um hraunræsi með stömpum. Sunnan við
gíginn er ca 10 m hátt misgengi og þar fellur
Hér steypist áin ofan í gljúfrið. Þessir fossar sjást ekki nema farið sé upp úr dalnum. Efri fossinn ei
metra hár en sá neðri 20-25 metrar.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. ÁGÚST 1999