Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Side 9
„Made in heaven". Hin jarðneska paradís Jeff Koons, 1990. 15. aldar Venus í náttúrunni eftir Cranach. Annar fóturinn yfir hinn. Seifur í iíki svans til fundar við Ledu sína. Olíumálverk eftir Rubens frá 17. öld. Frjósemisgyðjan kennd við Villendorf, 30.000 ára gömul formóðir síðari tíma Venusargyðja. myndaflugi mannsins hvorki farið fram né aftur í tímans rás. Auk löggiltra ástarleikja hjóna í svefnherbergjum var mikið um svið- setningar á framhjáhaldi og lauslætissenum ýmiss konar; samkynhneigð, einkum kvenna, var vinsælt myndefni, en einnig tíðkuðust myndraðir sem tóku til sérhæfíngar ástalífs- ins á borð við animalisma, sadó-masókisma, o.s.frv. Ef litið er til táknmáls af saklausara tag- inu, til að mynda í dæmigerðri daðurseríu, þá ræður fótstaða yfirleitt miklu um merkingu verks. Að stíga fram í vinstri fót af auknum þunga andspænis gagnstæðu kyni var ætlað að gefa til kynna lostaþrá á þeim tíma er augnaráð voru dýr. Að vera fjarrænn eða týndur í hugsunum sínum gaf hinsvegar til kynna ófullnægða þrá, þar sem viðkomandi vissi ekki enn hvort það sem hann þráði, yrði hans. Listgildi slíkra verka var yfirleitt ekki sett í öndvegi, markmið þeirra enda fyrst og fremst upplyfting holdsins, að vekja losta og svala losta. Hins vegar geta háttalagsmyndir 18. aldar verið mikill fjársjóður hvað varðar heimilda- gildi, þ.e. upplýsingar um hvers kyns pers- ónuleg smáatriði í umhverfi manna, innan- stokksmuni, klæðnað, þar með talin undirföt, að ógleymdri kynhegðan. Um efnisáherslur slíkra verka gildir að öðru leyti sú megin- regla að því lokaðri sem þjóðfélög eru og því meiri sem bælingin er í siðferðilegum efnum, þess „heitari" verða viðfangsefnin. Gott dæmi um það er Viktoríutíminn í Bretlandi. Pótt nærtækast og einfaldast sé eflaust að tengja erótík nöktum líkama, þá eru mörg dæmi um öfuga virkni nektarmynda, ef svo má segja. Til dæmis má nefna fjölmargar teikningar 16. aldar fjöllistamannsins Leon- ardo da Vinci af líkömum beggja kynja, af kynfærum manns og konu, jafnvel „sneið- mynd“ af samförum manns og konu, verk sem eru miklu fremur af meiði líffræði eða læknisfræði, jafnvel krufningarfræði, en eró- tíkur. Loðinn bolli Það er í raun ekki fyrr en á 20. öld að með- ferð myndlistarmanna á mannslíkamanum breytist á róttækan hátt. Listamaður 20. ald- ar á ekki aðeins erfltt með að tákna sjálfan sig sem miðju tilveru sinnar, heldur á hann líka í erfiðleikum með að tákna eigin líkama í heild sinni. Pess vegna bætast við listasög- una teygðir og togaðir líkamar expressjón- ista, afbakaðir, sundurtættir atómlíkamar Bacon o.fl. eða truflandi amöbulíkamar lista- manna á borð við Arp og ýmissa samtíma- ljósmyndara. Við hinn klassíska kvenlíkama Venusar bætast einnig beinaberir kven- líkamar, eða anorexíur listamanna eins og Schiele, Dix, og Giacometti og gróteskir lík- amar Grosz. Við erótíska efnisnálgun fyrri tíma bætast að auki viðbótarvíddir 20. aldar myndlistar; húmor og kaldhæðni. í erótískum þráhyggjumyndum súrrealista eru það líkamar eða tilteknir líkamshlutar, oftast kynfæri, sem ummyndast í landslög, dýr, blóm, ávexti, minnisvarða, vita, kirkjur, hvaðeina. Líkaminn getur einnig verið mjög nálægur þótt hann sé fjarverandi. Eitt af þekktari erótískum myndlistarverkum frá fyrri hluta aldarinnar er eflaust „Loðinn morgunverður“ Oppenheims frá árinu 1936, sem samanstendur af loðnum bolla, undir- skál og teskeið. Yfirlitssenur fyrri tíma eru að mestu leyti fyrir bí, sjónarhornið er þrengra í nútímalistinni og mikið um abstraksjónir, nærmyndir og yfirstækkanir líkamsparta á borð við varir, sköp, hár, brjóst, augnaráð og fótleggi. Dæmi um það eru almanaksmeyjar, „pin-up girls“ amer- ískra popplistamanna sjöunda áratugarins. Kven- og karlmannstákn í nútímamyndlist eru að öðru leyti af fjölbreyttum toga; turn- ar, hólar, rifur, holur, göt, mikið af götum. Nánast hver einasti hlutur, form, lína og myndræn hugsun getur haft erótíska skír- skotun, þ.e. sett af stað gangverk erótísks ímyndunarafls hjá áhorfanda. Mestu máli skiptir hinn gamli sannleikur um „samheng- ið“ eða þá merkingu sem listamaður kýs að ljá verki sínu. Mörg dæmi eru um það að mikill vöxtur hafi hlaupið í erótíska mynd- gerð listamanna með aldrinum. Picassó var t.d. afkastamestur í gerð slíkra verka um 1970, þ.e. þegar hann er um nírætt, og liggja eftir hann hundruð teikninga frá því tímabili. Flest þeirra eru að vísu meira í ætt við stíl- æfingar en sjálfstæð sköpunarverk, þar sem sama mótífið er unnið upp aftur og aftur,. ákveðin atriði dregin fram og stílfærð, mögn- uð upp, stækkuð og endurtekin í þaula. Samfara tilkomu óhlutbundinna - eða abstraktverka má merkja hraðfara þróun frá holdinu. Erótík í nútímamyndlist getur þann- ig birst í fullkomlega „líkamslausum“ verk- um, líkt og til að mynda í togstreitu eða spennu milli andstæðra krafta í byggingu verks, sbr. samspil láréttra og lóðréttra lína - táknmynda kven- og karleiginleika - en einnig í því hvernig form skarast, fléttast saman og ganga hvert inn í annað líkt og í mörgum verka bandarísku abstrakt- -expressjónistanna, Matta, Rouen, o.fl. Gljáður postulínslíkami Tungumál og merkingarheimur myndlistar hefur breyst mikið á síðustu fjórum ára- tugum, m.a. með tilkomu hreyfingar, hljóðs og texta inn í greinina. Myndlistin er ekki lengur hin þögla listgrein, hún er heldur ekki kyrrstæð og jafnvel ekki lyktarlaus, hvorki í eiginlegri né óeiginlegri merkingu. í stuttu máli má segja að sjónlist samtímans liggi á mörkum mun fleiri listgreina en eldri list gerði. Þannig birtist erótík í nútímalist ekki einungis í fullkomlega líkamslausum verkum, heldur einnig í myndlausum verkum. Mynd- mál er þó eftir sem áður sérstakt tungumál, ólíkt t.d. ritmáli, tónlist eða leiklist og gildir einu þótt um textaverk, hljóðverk eða gjörn- ing sé að ræða. Þótt ekki séu öll mynd- listarverk jafn margbrotin, merkingarlega séð, þá er afar sjaldgæft að táknheimur verks bjóði eingöngu upp á erótískan lestur. I raun skiptir erótísk túlkun sjaldan sköpum fyrir listgildi samtímaverks. Gott dæmi um samtímalistamann sem mörgum dettur fyrst í hug í sambandi við erótíska list, en gerir sjálfur lítið með þá túlkun verka sinna, er bandaríkjamaðurinn Jeff Koons. Koons, sem er mikið eftirlæti listmarkað- arins um þessar mundir og líklega einn af dýrustu listamönnum heims, hefur verið upp- tekinn af því að vinna með mörk svokallaðrar hámenningar og lágmenningar í verkum sín- um síðustu ár, með skilgreiningu á viður- kenndri safnalist og þeirri smekkleysu al- þýðumenningar sem kennd er við „kitsj“ og notið hefur mikilla vinsælda í myndlistar- heiminum síðastliðinn áratug. Með því að setja postulínsdýr og aðrar klisjur lágmenn- ingar á stall með æðri list er Koons í raun arftaki popplistamanna sjöunda áratugarins. í því hugmyndalega samhengi ber að skoða „kitsj“-skúlptúra hans í fullri líkamsstærð, þar sem hann setur sjálfan sig á svið í ásta- leik með fyrrverandi eiginkonu sinni, ítölsku þingkonunni og klámstjörnunni Cicciolinu. Gljáð yfirborð postulínslíkamans er þó að- eins ein hliðin á samtímalist. Það er lýsandi fyrir afstöðu samtímalistamannsins til líkam- ans að hann stendur að sumu leyti nær ana- tómískri krufningu 16. aldar en nokkum tí- mann fyrr á öldinni. Yfirborð mannslíkamans nægir ekki lengur til að gera veruleikanum skil, stefnan er tvímælalaust inn á við, sem hefur leitt til vaxandi fagurfræðilegs áhuga á innyflum, hjörtum, nýrum og blóði. Þjóðleg náttúra Ein algengasta klisja myndlistarsögunnar er að tefla saman nekt og náttúru, samsama erótíska náttúru líkamans náttúruöflunum sjálfum, t.d. hvitfyssandi öldum, svo vísað sé í kunnuglegt minni, bæði í bókmenntum og myndlist. I framhaldi af því og í tilefni sýn- ingarinnar „LOSTI 2000/ORGASM 2000“ norðan heiða, mætti ef til vill velta því fyrir sér hvort til sé þjóðleg erótík í myndlist, hvort íslensk myndlistarerótík sé ef til vilí náttúrutengdari en erótík annarra þjóða. Svörin við því er eflaust að finna á sýning- unni í Listasafninu á Akureyri, en í bili dett- ur mér ekkert frumlegra í hug í því sam- bandi en nýlegur ljósmyndaþáttur í tímaritinu Bleikt og blátt. Myndirnar eru settar á svið í fallegri, tímalausri, íslenskri sumarnáttúru við engjaslátt og er íslensk skotthúfa m.a. notuð til að staðsetja senuna i tíma, þ.e. fyrir einni öld eða svo. Skotthúfan fær enn afdráttarlausari merkingu fyrir það að vera eina flíkin sem fyrirsætan klæðist. Það kann hins vegar að vera táknrænt fyrir það hversu erfitt er að höndla þjóðleg hugtök í fjölþjóðlegu menningarsamfélagi samtím- ans, að í hlutverki íslenskrar heimasætu sem verður fyrir truflun í engjaslætti miðjum, er erlend nektardansmey með tímabundið dval- arleyfi. Höfundurinn er listfræðingur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 12. FEBRÚAR 2000 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.