Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Page 10
Bærinn á Elliðavatni stendur enn á sínum stað en umhverfi hans hefur tekið stakkaskiptum eftir stækkun vatnsins, sem nú hylur hinar víðáttumiklu Elliðavatnsengjar.
Hvíti gaflinn er á steinhúsi Benedikts Sveinssonar, sem hefur verið járnklætt. í því ogfjósinu til hægri verður innréttuð fræðslustofa.
GREIN OG LJÓSMYNDIR: GÍSLI SIGURÐSSON
Elliðavatn var löngum ein þekktasta [örðin í
nágrenni Rey kjavíkur og höfðingjasetur á tímabili.
Bæjarstæðið er glæsilegt, en umhverfið gerbreyttist
þegar stíflað var vegna vatnsmiðlunar 1924.
Þá stækkaði vatnið um helming, en hinar frægu
Elliðavatnsengjar hurfu. Á þeim tíma stóð enginn
styr ur n þessar umhverfisbreytingar.
/
IReykjavík og næsta nágrenni hafa eðli-
lega orðið stórfelldar umhverfisbreyting-
ar; það fylgir því að byggja borg. Ein-
hverjar mestu umhverfísbreytingar í
borgarlandinu hafa orðið við Elliðavatn,
en ekki vegna bygginga. Jafnframt er
bújörðin Elliðavatn ekki til lengur, hún er
orðin hluti af friðlandinu í Heiðmörk.
Flest nútímafólk hefur enga hugmynd um þær
umhverfisbreytingar sem orðið hafa á bökkum
Elliðavatns, eða hvemig vatnið leit út á fyrsta
fjórðungi 20. aldarinnar. Því þarf að minnsta
kosti ekki að lýsa fyrir fólki sem þekkir til á höf-
uðborgarsvæðinu að vatnið, sem bezt sést af
hæðunum ofan við Vatnsenda, er mikil umhverf-
isprýði og náttúruperla. Ef nauðsynlegt yrði tal-
ið að minnka vatnið verulega vegna einhverra
framkvæmda er hætt við að rekið yrði upp rama-
kvein. Vonandi kemur aldrei til þess. En í ljósi
alls þess sem búið er að segja og skrifa um uppi-
stöðulón á hálendinu er hins vegar er ekki úr vegi
að minnast þess að í aldanna rás og allt fram til
1924 var Elliðavatn miklu minna. Raunar voru
vötnin tvö en tveir mjóir álar tengdu þau saman
eins og sést á korti frá árinu 1916. Vestara vatnið
var kennt við Vatnsenda, en það eystra var nefnt
Vatnsvatn, kennt við bæinn á Elliðavatni, eða á
Vatni eins og sagt var.
Ásamt með beitarlandinu uppi á Elliðavatns-
heiði voru víðáttumiklar og grasgefnar engjar
V\( Rauðavatn
Styggnir i o
Rauðhólar
Helluvatn
% Elliðavatns-
y% engjar
;:Váínsendá-
engjarc*
■ Bœrirw
>. Elliðavatn
Þingnes
Elliðavatn
Kortið er byggt á uppdrætti sem Norsk
Vandbygningskontor gerði af umhverfi Elliðavatns 1916.
Þarna er Elliðavatn merkt með dökkbláum
lit eins og það var áður en stíflað var 1924.
Ljósblái liturinn sýnir vatnið eins og það
varð eftir stíflugerðina.
Einmg sest hvernig áin Dimma
rann úr vatninu og sameinaðist
ekki Bugðu fyrr en niðri við Selás.
1 km
1 O LESBÓK MORGUNBIAÐSINS - MENNING/LISTIR 12. FEBRÚAR 2000