Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Qupperneq 14
Ljósmynd: Snorri Snorrason. Hér stendur Magnús Guðmundsson flugmaður við flugvélina TFISL við sandpokaskýli hersins á Melgerðismelum. Bak við hann er BSA-bíll Kristjáns bílakóngs á Akureyri, Plymouth árg. ’42. FLUGIÐ OG FRUMHERJARNIR 2. HLUTI ÞÝSK FLUGVÉL SKOTIN NIÐUR Jóhannes R. Snorrason flugstjóri t.v. og Magnús Guðmundsson standa við Beechcraft-flugvél Flugfélagsins. Magnús var um þetta leyti að byrja hjá Flugfélagi íslands. Þriðji maðurinn, lengst til hægri, er Aðalbjörn Kristbjarnarson, síðar flugstjóri hjá Flugfélaginu, en þarna var hann bíl- stjóri hjá Kristjáni bílakóngi á BSA á Akureyri. Myndin er tekin á Melgerðismelum haustið 1943. Flugstjóri Beechcraft-fiugvélar Flugfélagsins gengur um borð, en í baksýn eru braggar breska hersins. í einum þeirra, sem var einhverskonar flugafgreiðsla, voru hermennirnir búnir að hengja upp fjölmörg módel af ýmsum flugvélum þessa tíma. Síðar voru þesslr braggar notaðir fyrir farþega í innanlandsfiuginu. Þeir brunnu eftir 1950. LJÓSMYNDIR OG TEXTI: SNORRI SNORRASON / AMelgerðismelum í Eyja- fírði var flugvöllur Akur- eyringa og reyndar flestra Norðlendinga frá því um 1942 til ársloka 1955, þeg- ar flugbrautin við Akur- eyri var tekin í notkun. En myndirnar sem hér fylgja eru teknar 1943 og 1944. Flugvél Flugfélags- ins, TF-ISL, var veðurteppt á Melunum, nán- ar í marsmánuði 1944, og áttu flugmennirnir, sem gist höfðu á Akureyri, það erindi inn á Mela að dæla bensíni á geyma flugvélarinnar, en það voru þeir Jóhannes R. Snorrason og Magnús Guðmundsson. Þeir höfðu komið dag- inn áður frá Skógasandi en höfðu orðið að nauðlenda þar niður undir sjó vegna dimm- viðris. í lendingunni sprakk dekkið á öðru að- alhjólinu og voru þeir þar tepptir í tvo daga, en flugvirkjar komu akandi frá Reykjavík til viðgerðar. En svo þegar þeir loks komust af stað frá Skógasandi var veður með þeim hætti $ð þeir urðu að fara norður. Þess ber að geta að Melgerðismelar voru líka herflugvöllur öll stríðsárin, þar höfðu aðsetur orrustuflugvélar Breta og síðar Bandaríkjamanna. Þýsk Junkers JU 88 í apríllok þetta ár, 1944, voru þeir Jóhannes og Aðalbjörn á sama stað í sandpokaskýlinu að fylla bensíngeyma Beechraft-flugvélarinn- ar þegar allt í einu heyrist í flugvél, og úr norðvestri kemur þýsk Junkers JU 88 flugvél á geysilegri ferð rétt yfir þá félaga svo lágt að þeir sáu framan í andlit flugmannanna. Jó- hannes var uppi á væng með trekt og bensín- slönguna en Aðalbjörn við tunnuna og dæluna ;'í'rir neðan. Báðir hentu sér niður í flýti, en flugmenn þýsku flugvélarinnar voru greini- lega að skoða flugvöllinn og þær flugvélar sem þar voru og flugu svo bratt upp til norðurs. Það hefur sennilega verið þennan dag að ég er staddur á skrifstofu Flugfélagsins í Höepfnershúsinu að heyrist í flugvél og ég ásamt Kristni Jónssyni og bandarískum lið- þjálfa þustum út að glugganum sem snýr í suðaustur, þá sjáum við þýska Junkers JU 88 flugvél rétt fyrir utan bryggjumar alveg nið- ur undir sjó þar sem hún velti sér þannig að vel mátti greina merkin á báðum vængjum og stéli, og hún flaug mjög hægt. Ekki heyrðum við neina skothríð að flugvélinni, en hún flaug áfram inn fjörð. Það var alskýjað og hægviðri þennan dag. Önnur þýsk flugvél Skömmu síðar var ég staddur á Ytri brekk- unni á Akureyri í glampandi sólskini og blíðu um miðjan dag þegar ég sá grámálaða tveggja hreyfla flugvél sem flaug alveg niður undir sjávarmáli rétt fyrir utan bryggjurnar á Tanganum. Hún flaug svo lágt að ég sá ofaná bak hennar og þekkti að þar var komin Junk- ers JU 88 flugvél. Hún flaug svo suður yfir Pollinn og fram fjörð. En stuttu síðar þegar ég er kominn heim kemur Junkers flugvélin úr suðri í ca 3.000 feta hæð og er að klifra beint yfir miðjan bæinn. Ég var kominn með kíki og sá vel merkin undir vængjunum. I því byrjaði skothríðin og margir svartir reykjar- bólstrar mynduðust í kring um flugvélina en ekki var hægt að sjá að nein kúla hitti. Fljót- lega sveigði svo flugvélin til austurs og hvarf yfir Vaðlaheiðina. Þá voru gefin loftvarnar- merki. Loftorrusta vi8 Grímsey Frændi minn, sem í áratugi var trillusjó- maður í Grímsey, sagði mér frá því að þýskar flugvélar hefðu mjög oft sést á sveimi þar. Mundi hann vel þann dag þegar tvær orrustu- flugvélar frá Melgerðismelum eltu og skutu niður þýska Focke Wulf Kondor flugvél, sem var fjögurra hreyfla. Veður var gott og marg- ar trillur á sjó þegar þetta atvik gerðist. Þýska flugvélin fór í sjóinn ekki langt frá þeim stað sem frændi minn var og sá hann að eitt- hvað var á sjónum eftir að flugvélin sökk, svo hánn setti á fulla ferð þangað. En þá kom önn- ur orrustuflugvélin, sem var Lightning P38, tveggja hreyfla, að bátnum og bunaði úr vél- byssunum fyrir framan bátinn, og voru þar skýr skilaboð að láta flugmennina afskipta- lausa en þeir voru allir í litlum gúmmíbáti. Seinna um daginn kom skip, sem venjulega var á vakt í mynni Eyjafjarðar, og tók Þjóð- verjana en þeir voru sjö talsins. Man ég eftir mynd af þeim, sem Morgunblaðið birti, þar sem sagt var frá þessum atburði. Höf. er flugmaður og Ijósmyndari. Þriðji hluti birtist í næstu Lesbók. S 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 12. FEBRÚAR 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.