Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Qupperneq 16
Eitt af því frumlegra sem liggur eftir Renzo Piano eru þessar byggingar í Nýju Kaledóníu. Þar tekur hann mid af gamalli byggingarhefð á staðnum, fyrirmyndin er strákofar frumbyggjanna, en í þessum húsum, sem mætti ímynda sér að þyldu illa hvassviðri, eru menningarmiðstöð og ráðstefnusalir. „FRAMTÍÐIN ER ÞAÐ SEM OKKUR BYÐST" UM ARKITEKTINN RENZO PIANO Síðan Renzo Piano teiknaði Pompidou-listamið- stöðina ásamt Richard Rogers, hefur ferill hans verið óslitin sigurganga, en verkefni hans eru um allan heim og nú nýlega í Berlín. RENZO Piano er ítalskur arkitekt frá Genúa sem er eftirsóttur um allan heim. í verkum sínum tengir hann saman hátækni og umhverfi. Verk hans hafa risið í Osaka, Nýju-Kaledoníu, Potsdamer Platz í Berlín, Amsterdam og síðast en ekki síst Centre Pompidou í París. Hann og félagi hans Richard Rogers unnu til fyrstu verðlauna fyrir uppdrátt og líkan að Centre Pompidou 1971, en keppendurnir voru 681. Sú bygging er SÚ einn af merkustu áföngum í sögu byggingar- nstarinnar á 20. öld. Byggingunni hefur verið lýst sem gífurlegum gámi, þar sem það, sem venja var, og er, að hylja innan veggja, var sett utan á, öllum sýni- legt. Jámabindingar, rörlagnir, leiðslur, gang- verk rúllutrappanna, allt þetta var í sterkum lit- um og myndaði stórkostlegt grindverk sem veggirnir héngu á. Byggingin stakk í stúf við umhverfið. Húsið líkist furðuverki úr öðru sól- kerfi, þetta mikla „menningarhús" varð sívirk sprengja. Innra borðið varð ytra borð. Með þessari sprengju varð Piano heimsfrægur. Byggingin var öðrum þræði stríðsyfirlýsing gegn sögulegum forsendum byggingarlistar- ^fenar, gegn hefðbundnum feluleik með grunn- bita og stálstoðir og járnabindingar sem halda byggingum saman. Sagt hefur verið að Pompi- dou-safnið sé röntgenmynd, þar sem ekkert hylur, allt er gegnsætt. Vinnustofa hans er staðsett í brattri kletta- hlíð, Ponta Nave, þaðan sem sér yfir hafið, vest- an við Genúa. Vinnustofan er ekki ýkja stór, en byggingin er meðal áhrifamestu hugsmíða höf- undarins. Eitt einkenni Piano er að hann mótar hverja byggingu í samræmi við umhverfi henn- ar og helstu einkenni þess. Því eru verk hans mjög sundurleit, byggingamar líkjast ekki hver annarri, en þó einkennast þær af nákvæmni og næmi, útsjónarsemi í gerð byggingarinnar og léttleika. Verk hans eru mótuð af frjósömu ímyndunarafli og hámákvæmni hins fullkomna jafnvægis. Af svölum vinnustofunnar blasir óendanleiki hafsins við. Á sólbjörtum degi, þegar hitinn í skugga nær 40 stigum, ríkir þægilegur hiti í vinnustofunni, einnig hæfileg birta. Sjálfvirk tæki til temprunar halda úti ofhita og birtu. Renzo Piano finnst hann byggja heim og haf og í Ponta Nave ríkir kyrrð, friður og sú ró, sem er grundvöllur einbeitingar. Þegar vinna að ákveðnum verkefnum stend- ur yfir er friðurinn úti, hann ráðgast við sam- starfsmenn sína, tölvumar veita nauðsynlegar upplýsingar og allt er á fullu. Sendimaður kem- ur til þess að bera byggingarmeistaranum skilaboð um vinnuna og áætlanir um Postda- mer Platz í Berlín. Síminn, faxið og Netið tengja Ponta Nave byggingarframkvæmdum Piano í Þýskalandi, Frakklandi, Ítalíu, Ameríku og Japan og einnig í Ástralíu og á Suðurhaf- seyjum. Frá Ponta Nave streyma svör miðstýr- ingar og yfírstjómar framkvæmdanna og fyrir- mæli um allt sem að framkvæmdunum lýtur. Renzo Piano var elnn þeirra stjörnuarkitekta sem til var leitað við uppbyggingu hins nýja mið- hluta Berlínar. Þar teiknaði hann m.a. þessa skrifstofubyggingu sem speglast í vatni. I 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 12. FEBRÚAR 2000 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.