Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2000, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2000, Síða 3
LESBÓK MORGIJNBLAÐSINS - MENNING LISTIR 2 1 .TÖLUBLAÐ - 75. ÁRGANGUR Ásta Sigurðardóttir var þekkt og umtöluð í Reykjavík um miðja öldina, enda storkaði hún viðteknu siðgæði og gerði upprcisn gegn ríkjandi gildum. Nú vekur hinsvegar meiri athygli hvað Ásta var fjölhæfur listamaður. Um hana skrifar Kristín Rósa Ármannsdóttir. Ólga í Evrópu á 19 öld hófst með uppreisn í París 1848 og á næstu áratugum lótu bæði sósialistar og stjómleysingjar til sín taka. Sigurgeir Guð- jónsson hefur tekið saman ísienskan frétta- flutning af þessum atburðum eins og hann birtist í ísafold, Þjóðólfí og Skími. Valhöll í Ameríku Vestur-Islendingurinn Hjörtur Þórðarson auðgaðist á uppfínningum í rafmagnsfræði og notaði þann auð m.a. til þess að byggja sína eigin Valhöll á nesi við Michiganvatn. Hann fékk listamanninn Halldór Einarsson til þess að skera út margar myndir úr nor- rænni goðafræði. Um Valhöll skrifar Kol- beinn Þorleifsson. Af listmólara- fjölskyldu er yfirskrift sýningar á verkum hjónanna Louisu Matthíasdóttur og Lelands Bell og dóttur þeirra Temmu Bell sem opnuð verð- ur í Hafnarborg í dag. Þema sýningarinnar er afar persónulegt því á henni em myndir sem listamennirnir þrír máluðu hver af öðr- um eða af öðmm fjölskyldumeðlimum, auk sjálfsmynda. JÓN HALLSSON ELLIKVÆÐI BROT í æsku in unga kæra uni erindi nokkur beiddi mig, lézt bún vilja læra og lesa fyr þeim, sem bæði sig; skemmra þykir, nær skemmtir nokkur í húmi, eða þá væna veiga gátt um vintrar nátt vakandi liggur í rúmi. Nær á mann stríðir elli, ungirmega þar þenkja á, flesta trú eghún felli, þó fordild nokkur þyki á; augnaráðið, afl, sem heyrn ogminni, skekur hún þetta skötnum frá, en skaparþeim þrá, þögn og þunglegt sinni. í æskunni halrinn hafði hæga sængað liggja upp á, vífið hann að sér vafði, og veitti allt, sem lysti, þá; nú skal sá meðþökkum verða aðþiggja hærusekk oghempu grá, að honum skal ljá í fleti, þar hann fær að liggja. Elli trú egað engi yngismaðurinn forðast kann, lætrhún eftir honum lengi, að lyktum frá eghún pretti hann, þó þykistmann stoltr og sterkr í limum öllum, kann hún flestum aðkoma á hné, þótt karskir sé, jafn vel konum sem köUum. FORSÍÐUMYNDIN er af málverki Louisu Matthíasdóttur, Temma í Maju slopp, 1957, á sýning- unni Af listmálaraf jölskyldu í Haf narborg Jón Hallsson, 1470-1538, var sýslumaður í Rangárþingi og bjó í Næfurholti og Eyvindarmúla. HOLLT AÐ HORFA TILVAX- ANDILANDVERNDAR RABB ✓ Imaímánuði síðastliðnum átti ég þess kost að fara með góðum félögum inní Þórsmörk. Við stöldruðum við í Stakkholtsgjá en hún er ótæmandi heimur ævintýra og ánægju. Við fórum nokkur saman inn syðri gjána (af þeim tveimur sem liggja til austurs) og brutumst alla leið inn að litlum fossi sem þar er að finna. Ganga þessi er alltaf svolítið ævintýraleg. Það er klöngrast, gengið undir vatnsbunur sem leka niður bergið, klofað yfir læki. Sem sagt það þarf að klifra kletta og detta. En un- aðsstundin þegar inneftir er komið er mögn- uð. Eftir nestisbita í Langadal örkuðum við nokkur upp á Valahnúk. Það er vissulega engin Everestganga en svolítið á fótinn þó. Þar uppi var undarlegt að vera því á örfáum mínútum breyttist veðrið úr hlýju logni í rign- ingarsudda, haglél og loks í þykka snjókomu. Allt í einu varð sjóndeildarhringurinn mæld- ur í örfáum metrum. Og svo, jafnskyndilega, datt allt í dúnalogn og útsýnið opnaðist til austurs. Hvannárgilið, Réttarfellið ofan við Álfakirkjuna og Krossáraurarnar inn á milli Þórsmerkurtungunnar og Goðalandsins opn- uðust næstum austurúr en þó ekki alveg. Og allt í einu fór ég að hugsa um það hve gott það væri að Hvanná og Krossá væru ekki vatnsmeiri en raun ber vitni. Á meðan svo er dettur engum í hug að reisa steinþil þarna yfir og sökkva öllu til að búa til lón sem seinni tíma menn gætu dáðst að svona eins og búið er að gera upp með Þórisvatni, Þjórsá og Blöndu svo nokkuð sé nefnt. Þegar ég rifja upp svona kringumstæður er vitanlega ekkert annað að gera en verða rómantískur. Þá hugsa ég um sóun og lélega nýtingu. T.d. það að þegar ég fer í bygginga- vöruverslun og ætla að kaupa mér nokkrai' skrúfur þá er mér seldur poki með tuttugu eða fimmtíu. Eða að það sem verið sé að henda í endurvinnslustöðvum sé oft lítið not- að eða hálfnotað eins og sagt var í eina tíð. Nú ætla ég ekki að fara í djúpa skilgrein- ingu á örbirgð síðustu aldar eða haftatímum þessarar. Ekki heldur um tímana áður en gjaldeyrissala varð frjáls, bjór komst á al- mennan markað eða helgarskreppur til Glas- gow urðu til. Þó svo sóunin sé yfirgengileg þá er hæpið að nokkur vilji hverfa til nauðhyggju fyrri tíma. Það er engu að síður ljóst að einn- ota stefnan, umbúðageggjunin og úreldingar- hyggjan eru verulega óviðkunnanleg fyrir- bæri. Sóunarhugsunin verður til þess að hráefn- um er fargað í stórum stíl sem hálfnotaðri eða líttnotaðri afurð. Kannski kemur það fram- leiðandanum vel en hafa ber í huga að víða í okkar heimi er fatalítið fólk og fátækt. Auk þess sem hráefnisframleiðandinn ber minnst úr býtum allra í söluferlinu eins og nútíma- hagfræði kallar það. Síðustu tvær aldirnar hefur mannkynið gengið ógnar nærri jörðinni í hráefnagræðgi sinni. Fyrir um 15 árum höfðu menn mokað burtu um 25% af yfirborði Jamaíku í leit að báxíti. Þegar land er ofræktað fer það í auðn en einhver auðsæjustu dæmi þess má sjá m.a. á jaðri Sahara eyðimerkurinnar. Hafsvæði eru að verða rúin fiski. Sífellt fleiri þjóðir leita leiða til að takmarka fisk- veiðar. Fréttaritið Time segir að 40% fisk- veiðiflota heimsins sé ofaukið. Þá er ekki tek- ið tillit til báta smáveiðimanna og frumbyggja. Nýlega mátti lesa í blöðum að mannskepn- an noti um 54% af vatnsbirgðum jarðar. I sumum hlutum Kína og Miðausturlanda er þegar orðinn vatnsskortur. Þar sem vatnsnotkunin er mest fullnýta menn ár og læki áður en þau ná til sjávar sem aftur þýðir að annað lífríki missir vatnsforða með augljósum afleiðingum. Og þannig má halda áfram. Mikið af landi er í notkun vegna landbúnaðar og mikið af því landi er lélegt land sem ýtir undir uppblástur, flóð o.fl. Einnig beita menn ýmsum efnum til að knýja fram vöxt eða veija afurðirnar fyrir af- ætum náttúrunnar - skordýrum, nagdýrum og fuglum. Þessi efni berast í vistkerfið. Skóglendi er að hverfa í Norður-Evrópu og víðar. Skógar eru mikilvægt hráefni, m.a. í pappír. Pappír er mikilvægur þáttur í efna- hagsuppgangi undanfarins áratugar. Rýrn- andi skógar þýða minna skjól - meiri upp- blástur, röskun á vistkerfmu og margt annað. F ólksfjöldaspár gera ýmist ráð fyrir því að íbúum jarðar fjölgi ekki hratt (upp í um 7 milljarða á næstu 50 árum) eða að fólki íjölgi mjög hratt (í liðlega 10 milljarða á sama tíma). Það er því ekki skrýtið að margir bendi á það að náttúra landsins sé kannski það sem við höfum helst fram að færa ef það rætist sem menn óttast, nefnilega að fiskafli bregð- ist og byggingarlönd fari að þrjóta. Þá kunni að verða erfitt ef þungaiðnaður verði búinn að færa stór svæði lands í kaf, - beint eða óbeint. Þannig virðist að náttúrukynning kunni að verða mikilvæg. Það er þegar íbúar milljóna- borga uppgötva að það er orðinn alvarlegur hörgull einmitt á hreinu lofti, ósnortinni nátt- úru og æpandi íslenskri háfjallaþögn. Það verður að gæta að þessum svæðum. Umgengnina þarf að bæta svo að við eyðum þeim ekki með hjólförum og kæfum þau ekki í rusli nú þegar við vöðum um allt á góðæris- jeppunum. Það er erfitt að sýna slíka forsjálni. Það er margsannað að það er erfitt að halda uppi umræðu um hvað kunni að gerast einhvem tíma. Við viljum hafa lífskjörin á hreinu í dag og það er erfitt að sannfæra fólk um að það sé betra að bíða og sjá til og kannski muni ein- hvern tíma rætast úr öllu saman. Þegar verið er að tala um vemd náttúrann- ar þá sýnast mér vera að mótast þversagnir í umræðunni. Annars vegar standa þeir sem vilja friða en hinsvegar þeir sem vilja nýta. Landnýtingarmenn telja sóun að láta allt þetta háfjallavatn renna niður heiðar og dali án þess að það sé notað til að framleiða nokk- ur volt á leiðinni. Landverndarmenn vilja verja þessar heiðar. Og ég held satt að segja með þeim. Á hinn bóginn vh-ðist sem þeir sem styðji verndarstefnua búi fremur í þéttbýlinu hér suðvestast. Líklega má einnig færa til þess rök að á þessu horni fari fram meiri sóun en í hinum dreifðu byggðum eins og sagt er. Hér er neytendamarkaðurinn sem allt miðast við í versluninni. I þessu felst viss þversögn. Við sem búum á malbikinu viljum friða náttúrana sem fólkið á Austfjörðum telur sig geta notað til að skapa sér atvinnu. Og hvor skyldi nú eiga helgari málstað? Báðir þessir hópar þurfa að skoða sín mál af framsýni. Okkur er hollt að horfa til sívaxandi landverndar. En það er einnig mikilvægt að gæta þess að drekkja ekki náttúruauðlindunum í rasli. Loks þurfum við að skilja að þegar landi hefur verið sökkt hvort heldur sem er undir vatn, sorp eða byggingar, þá verður ekki aft- ur snúið. Snúið, ekki satt? MAGNÚS ÞORKELSSON LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 3. JÚNl 2000 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.