Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2000, Síða 17

Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2000, Síða 17
Morgunblaðið/Þorkell „Andlegt feróalag“, Ijósaverk eftir Gunnar Örn. Morgunblaðið/Þorkell „Grímsnes og Laugardalur“, verk Grétu Mjallar Bjarnadóttur. Skírskotun í þá nátt- úruauðlegð sem við eigum i vatninu JÓHANNA Þórðardóttir er ein þeirra sem valin var til að taka þátt í þessu verkefni, en hennar verk er utan á virkjuninni, tutt- ugu og átta metra langt og liggur á milli glugga á vegg. Að sögn Jóhönnu er hug- myndin að verkinu beinlinis byggð á vatn- inu sjálfu, “en verkinu fylgir texti sem er upptalning á orðum tengdum vatni,“ segir hún. „Skirskotun textans er í þá náttúru- legu auðlegð sem við eigum í fallvötnum okkar og hverfist um hvernig við nýt.um þessa orku og í hvers þágu. Eg hef meiri trú á náttúruvænni nýtingu hálendisins hcldur en að nýta það i þágu álsins, sem ég held að sé rangt ef horft er til framtíð- ar. Mér finnst mikilvægt að það sé ákveðið jafnvægi í samspili orkunýtingar og nátt- úruverndarsjónarmiða og það er eiginlega út frá þessum hugleiðingum sem verkið er unnið,“ segir Jóhanna. „Sem myndlistarmaður vinn ég frekar óhlutbundið og minar myndir hafa aldrei haft ncina pólitiska skírskotun, en aftur á móti er ég mikill náttúrusinni. Á hálendinu er mikið af gróðri sem á eftir að rannsaka og af því við cigum þetta hreina fagra land er kannski meira vit í því að virkja þann hreinleika þegar allt er að fara á kaf í mengun annars staðar í Evrópu. Myndina á veggnum reyndi ég því að hafa eins tæra og ég gat og eina skirskotunin í textanum til vatns sem mannshöndin kemur nálægt er „vígt vatn“. Eg velti því lengi fyrir mér hvort ég ætti að leyfa því að vera með og ákvað að gera það af því mér fannst felast í því ákveðin hclgun. Það að virkja er auð- vitað mjög jákvætt hugtak og full ástæða til að viðurkcnna allt það góða sem af virkjunum leiðir, þó ég vilji kannski ekki endilega virkja í áli. Það er líka hægt að virkja hugvitið og mannauðinn," sagði Jó- hanna Þórðardóttir. Hringferð um sveitirnar í kringum Ljósafoss GRÉTA Mjöll Bjarnadóttir á verk á sýn- ingunni sem er nátengt sveitunum í kring- um Ljósafossvirkjun. Verkið samanstcndur af mörgum loftmyndum af svæðinu og býð- ur upp á einskonar hringferð um sveitina. „Ég er ættuð þarna úr Grímsnesi og Laug- ardalnum", segir Gréta Mjöll, „og það er kannski ástæðan fyrir því að ég vel þessa leið, þó ég hafi einnig verið að velta fyrir mér loftmyndum i öðrum verkum. Loft- myndirnar eru mjög fallegar, en þær eru teknar 1998 en síðan nota ég þær grafískt og þrykki á pappir með nýrri tækni. Þær virka því svolitið eins og gamlar myndir.“ Myndirnar eru á kössum, en undir ein- um þeirra er tölva sem gefur verkinu óvænta dýpt. og tengir það sveitinni enn sterkari böndum. „Ég tók viðtöl við fólk sem býr þarna,“ segir Gréta Mjöll, „og það verður hægt að kvcikja á tölvunni og hlusta á sögur sem tengjast landinu. Sumir segja þjóðsögur, aðrir frá bcrnskuminni- ngum sinum, eða landsháttum og enn aðrir grípa til íslandssögunnar. Fólki var það al- veg í sjálfsvald sett frá hverju það sagði.“ Gréta Mjöll segir það hafa verið skemmtilega og merkilega rcynslu að fá að taka þátt i þcssu þvi hún hafi hitt fólk á bæjum sem hún hafði ekki heimsótt frá barnsaldri. Morgunblaðið/Þorkell „Hverfili, - allt er í heiminum hverfult", eftir Eyjólf Einarsson. Morgunblaðið/Þorkell Verk Jóhönnu Þórðardóttur á vegg Ljósafossvirkjunar. LESBÓK MORGUNBIAÐSINS - MENNING/USTIR 3. JÚNÍ 2000 1 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.