Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2000, Síða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 03.06.2000, Síða 20
SJÁLFUR MOZART ER STJORNANDINN í kvöld frumsýnir Þjóðarbrúðuleikhús Tékklands ó Listahátíð í Reykjavík í Islensku óperunni, hina sígildu óperu Mozarts, Don Giovanni. Sýningin hefur verið sýnd ríflega 2000 sinnum oq farið víða um þekktra söngvara á hljóðupptökunni sem notuð er í sýningunni er Kristinn Sigmundsson. [istaUtiíí í Reifkjai/iL^SÍ). skáld áttu þar jafnmikilli velgengni að fagna og Vínarbúinn Wolfgang Amadeus Mozart, sérstaklega eftir að ópera hans Brúðkaup Fígarós var fyrst sett þar á fjalirnar í des- ember árið 1786, sjö mánuðum eftir frumsýningu hennar í Vínarborg. Tónskáld- inu var samstundis boðið til Prag og kom hann ásamt eiginkonu sinni Konstönzu til borgarinnar þann 11. janúar 1787. Þar urðu þau hjónin vitni að því er kalla mátti nánast Fígaró-æði og Mozart lýsir í bréfi til vinar síns, barónsins Gottfrieds von Jacquin dag- settu þann 15 janúar 1787; „...en ég fylgdist hugfanginn með því hvernig dansfólkið hoppaði gáskafullt eftir tónunum úr honum Fígaró mínum sem breytt hafði verið í kont- radansa og þýzka (valsa); - því að hér er ekki um annað talað en Fígaró; ekki annað leikið, blásið, sungið eða blístrað en Fígaró. Hér vilja menn ekki sjá aðrar óperur en Fígaró, sí og æ Fígaró; vissulega mikill heiður fyrir mig.“ í kjölfar velgengni óper- unnar bað Pasquale Bondini, stjórnandi ít- alska óperufélagsins, sem sýndi í Nostic leikhúsinu í hjarta borgarinnar, Mozart um nýja óperu fyrir næsta starfsár leikhússins. Mozart, sem var orðinn jafn hrifinn af Prag og Prag af honum, tók þeirri bón afar vel og jafnskjótt og hann kom aftur til Vínarborgar hafði hann samband við textahöfund Fígar- ós, Lorenzo da Ponte, sem stakk uppá sög- unni um Don Juan sem viðfangsefni. Að átta mánuðum liðnum, eða þann 1. október, lögðu Mozart og Konstanza aftur land undir fót og komu til Prag þremur dögum síðar. Stærsti hluti óperunnar um Don Giovanni var þá fullgerður en Mozart átti eftir að leggja síðustu hönd á verkið. Frumsýningin var fyrirhuguð 14. október en ekki varð af því og þess í stað stjórnaði Mozart sérstakri hátíðarsýningu á Fígaró, til heiðurs Maríu Theresíu erkihertogafrú. Fullsannað þykir að Mozart hafi ekki lokið við forleik óper- unnar fyrr en tveimur dögum fyrir frumsýn- i.ngu, sem á endanum varð þann 29. október. I byrjun nóvember birtist grein í Prager Oberpostamtszeitung þar sem sagði m.a. : „Mánudaginn þann 29. frumsýndi ítalska óp- erufélagið Don Giovanni eða Steingestinn eftir óperumeistarann Mozart sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu. Kunnáttu- og tónlistarmenn fullyrða að önn- ur eins ópera hafi aldrei verið sýnd í Prag. Herra Mozart stjórnaði sjálfur og þegar hann gekk í hljómsveitargryfjuna var hon- um heilsað með þreföldu húrrahrópi og hann síðan kvaddur með sama hætti þegar hann gekk út.“ Brúðurnar sem notaðar eru í sýningunni eru listaverk hver fyrir sig. BRÚÐUGERÐARLIST á sér langa og glæsilega sögu í Tékklandi þar sem aldagömul hefð er fyrir brúðuleikhúsi og hafa Tékkar verið leiðandi í þeirri list um langt skeið. Tékkneska þjóðarbrúðuleik- húsið var stofnað árið 1991 í kjölfar þeirra miklu umbreytinga sem áttu sér stað í landinu á þessum tíma og var markmiðið með stofnun þess að styrkja þessa gömlu hefð sem hafði ekki fengið að njóta sín sem skyldi í langan tíma. Fyrsta verkið sem sett var upp var Don Giovanni, sem að margra mati er einhver best heppn- aða ópera allra tíma, en sýningin hefur gengið óslitið síðan og slegið öll aðsóknar- met. Sýningin Don Giovanni hefur auk þess farið sigurför um Evrópu og hvarvetna hlot- ið frábæra dóma. Sýningin er nú hluti af 'Prag menningarborg Evrópu árið 2000 og fór tvöþúsundasta sýningin fram þann 1. apríl síðastliðinn. I sýningunni eru notaðar um eins metra háar brúður sem fara með öll aðalhlutverkin og Mozart sjálfur stjórnar. Óperan er ekki í fullri lengd en aðstandend- ur sýningarinnar hafa stytt hana án þess þó að missa sjónar á aðalatriðunum. Hljóðritunin sem notuð er í sýningunni var gerð í Stokkhólmi dagana 13.-24. júlí ár- ið 1989 á vegum DECCA útgáfufyrirtækis- ins. Það er kór og hljómsveit Drottning- holms-leikhússins sem flytja undir stjórn Arnolds Östmans en í helstu hlutverkum eru:Don Giovanni: Hákan Hagegárd, Lepor- ello: Gilles Cachemaille, Donna Anna: Ar- leen Auger, Höfuðsmaður: Kristinn Sigmundsson, Don Ottavio: Nico van der 'Meel, Donna Elvira: Della Jones, Zerlina: Barbara Bonney, Masetto: Bryn Terfel. Fremstu brúðuleik- húsmenn Tékklands Daniel Dvorák er annar aðalfrumkvöðull sýningarinnar og höfundur handrits og sviðsmyndar. Hann stundaði nám í leik- myndahönnun hjá Josef Svoboda við Há- skóla hagnýtra lista 1974-1980 og hjá Lois Egg við Myndlistarháskólann í Vínarborg á árunum 1980-1981. Dvorák hefur hannað um 150 sviðsmyndir fyrir leikhús, kvikmyndir og sjónvarp og má þar telja Macbeth, II Trovatore. Lucia di Lammermoor og fyrir söngleikinn Drakúla, sem náði miklum vin- sældum í Prag árið 1995. Jan Dvorák er hinn frumkvöðull sýningar- innar og jafnframt stjórnandi Þjóðarbrúðu- leikhússins. Hann lagði stund á bókmennta- og kvikmyndafræði við heimspekideild Há- skólans í Olomouc 1970-1975. Á árunum 1975-80 starfaði hann við Leiklistarstofnun- ina í Prag og frá 1980 starfaði hann sem rit- stjóri tímaritsins „Scéna“. Dvorák er eigandi útgáfufyrirtækisins „Prazská Scéna“ sem leggur áherslu á tékkneskt samtímaleikhús. Karel Brozek er stjórnandi sýningarinnar. Hann var einna fyrstur til að útskrifast í brúðuleikstjórn frá Leiklistarháskólanum í Prag (DAMU) en síðan 1959 hefur hann starfað við fjölmörg brúðuleikhús og lagt grunninn að mörgum þeirra. Af mikilvæg- ustu sýningum hans má nefna Dauða Tintagiles árið 1969 og Faust árið 1996. Brozek heldur einnig reglulega fyrirlestra við brúðuleikhúsdeild Leiklistarháskólans í Prag. Uppsetning þessarar sýningar er sam- vinnuverkefni Islensku óperunnar, Listahá- tíðar í Reykjavík og Reykjavíkur - menn- ingarborgar Evrópu árið 2000. Sérstakur styrktaraðili er Landssíminn. Hinn óprúttni flagari Uppruni sögunnar um Don Juan, hinn óp- rúttna flagara sem svíkur og táldregur sak- lausar stúlkur en hlýtur að lokum makleg málagjöld fyrir tilstilli steinstyttu, er ekki ljós, en það bókmenntaverk sem aðrir hafa byggt á um aldir var skrifað af spænskum presti sem tók sér höfundarnafnið Tirso de Molina og var það gefið út árið 1630 undir nafninu E1 burlador de Sevilla y convidado de piedra eða Svikarinn frá Sevilla og steingesturinn. Da Ponte, textahöfundur óp- erunnar, hafði einnig við höndina verk Mol- iéres, Don Juan ou le Festin de Pierre og li- bretto Giovannis Bertatis sem Giovanni Gazzaniga hafði samið tónlist við og var sú ópera frumflutt í Feneyjum í febrúar 1786. Upprunalegur titill óperu Mozarts er: II dis- soluto punito, ossia II Don Giovanni, dramma giocoso eða Siðleysingjanum refsað eða Don Giovanni, gamansamur harmleikur í tveimur þáttum. íbúar Prag dáðu Mozart „Allir Bæheimsbúar eru tónlistarmenn" var viðkvæði á síðari hluta 17. aldar. Enski tónlistarfræðingurinn Charles Burnley, sem ferðaðist um Bæheim árið 1772, var svo hrif- inn af almennri tónlistarkunnáttu íbúa landsins að hann kallaði það Konservatoríu Evrópu og var Prag vagga hennar. Fá tón- Stjórnendur hinnar rómuðu sýningar á Don Giovanni með brúðurnar. Fremstur er hljómsveitarstjórinn, Mozart sjálfur. f*o LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 3. JÚNÍ 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.