Lesbók Morgunblaðsins - 09.12.2000, Blaðsíða 11
V-
ti og horft yfir Öskjuvatn til Heröubreiöar.
/
Rafn ákvað þess í stað að snúa sér að Netinu,
þar sem allir geta skoðað myndimar ókeypis.
En ljósmyndarinn; hefur hann þá ekkert upp
úr krafsinu? Ekki er það útilokað. Með þessu
móti er gert út á þá von, að einhver geti notað
myndimar og ekki hefur staðið á því. I því sam-
bandi er ferðaþjónustan stórtækust, bæði hér og
erlendis.
A vefslóðina ieelandphotos.com hefur Rafn nú
sett 370 ljósmyndir og hann mun halda áfram að
bæta við. Þær em í 16 efnisflokkum, sem hægt er
að smella á og velja til dæmis fossa, fjöll, bygg-
ingar, mannlíf, stangveiði, Reykjavík og ferða-
lög. I öðram flokki eru svæði. Þar er hægt að
finna myndir eftir landsvæðum og ekki má
gleyma miðhálendinu, sem flokkað er sér. Þá er
ótalinn sá flokkur sem Rafni þykir sjálfum vænst
um. Hann heitir smámótíf-natural art - og hef-
ur eins og nafnið gefur til kynna fremur listrænt
gildi en heimiidagildi. Þetta er sú fegurð sem er
við fætur manns, en flestum sést yfir.
GÍSLI SIGURÐSSON
Ljósmyndir/Rafn Hafnfjörð
Magnaðar andstæður: Annarsvegar hverasvæðið og leirhverirnir við Leirhnjúk, skammt frá Kröflu,
en hinsvegar hraunið sem rann í síðasta Kröflugosi.
Hvítserkur við Húsavík eystri. Eitt af sérkennilegri fjöllum landsins. Hvítserkur er úr Ijósu ingnímbriti (líparítösku), en dökkir berggangar skerast þvers
og kruss í gegnum fjallið. Til þess að sjá það sem best verður að leggja á sig ferðalag yflr Húsavíkurheiði. Þá er farið frá Borgarfirði eystra til suðurs,
áleiðis til Loðmundarflarðar. Það er fært á venjulegum fólksbíl, sé farið varlega. Pálmi Hannesson rektor taldi Hvítserk fallegasta fjall á íslandi.
Eyjabakkar og Eyjabakkajökull. Myndln er tekin úr lofti. Um þetta svæði má segja að þjóðin hafi skiptst í fylkingar eftir því hvort menn vildu sætta slg
við að Eyjabökkum yrðl sökkt í sklptum fyrir raforku. Á þetta fagra og margumrædda svæði hafa þó tiltölulega fálr íslendingar komið.
h
—............... ......................................»
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 9. DESEMBER 2000 1 1