Tíminn - 29.11.1966, Síða 6
6
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 29. nóvember 1966
Scð yfír þingsalinn í Lídó, en þar var Alþýðusaimbandsþingið báð.
1
E
■V' " i"ií j: 'i
rr-
L 1 lllte I
Að loknu Alþýðusamb.þingi
Rætt við nokkra fulltrúa á þinginu
Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir var full
trúi Iðju á Akureyri, einhvers
stærsta verkalýðsfélags úti á
landi.
— Við erum ekki meðlim-
ir í landssambandi og mér var
ekki kunnugt um fyrr en á
þingið kom, að ýmsir forustu-
menn samtakanna ætluðu sér
að fá landssamböndin endan-
lega viðurkennd, sem allsherj-
ar skipulag alþjóðasamtak.nnna.
Mikil andstaða við þessa stefnu
kom fram á þinginu, cnda
telja fjölmargir félagsmenn
víða um land, að mjög hæp-
inn ávinningur sé af sumum
landssamböndunum og litiu
verkalýðsfélögin út um land
munu frekar veikjast en styrkj
ast við þátttöku í þeim. Við
á Akureyri viljum halda okk-
ar samningsrétti og ég tei vafa
samt, hvort við munum nokk-
urn tímann fela landssambanöi
undir forystu Iðju hér í Reykja
vík að semja um okkar kar.p
og kjör.
Þetta var fyrsta þing Alþýðu
sambandsins, sem ég sic og
fannst mér þinghaldið ganga
frekar vel fyrir sig ag vera
lygnt á yfirborðinu, að minnsta
kosti allt þar til Hannibal
Valdimarsson flutti tillög'.i sína'
um fjölgun í miðstjór-iinni
gagngert til að gefa ríkisstjórn
arflokkunum nokkur sæti í
henni. Þessi tillaga kom mjög
flatt upp á allan þorra fuil-
trúanna og vissu margiv Ai-
þýðubandalagsmennimir ekki
hvaðan á þá stóð veðrið þar
eð þeir höfðu í einlægni ósk-
að eftir áframhaldandi sam-
starfi við Framsóknarflokkinn
einan.
★
Skarphéðinn Ámason frá
Akranesi er formaður verka-
mannadeildar félagsins þar
— Fyrir um áratug skiptum
við félaginu okkar þ"jár
deildir: verkamanna, sjómanna
og bílstjóra, og svo sérstaka
kvennadeild. Þessi skipting hef
ur gefizt mjög vel og engir
teljandi árekstrar verið milli
deildanna, yfirleitt ríkt mikið
og gott samstarf. Hver deild
sinnir hagsmunamálum síns
hóps. Við erum í Verkamanna-
sambandinu og óttumst ekkert
að slík þátttaka dragi mátt úr
Skarphéðin Árnason
starfi félagsins. Hins vegar
munu mörg minni féiaganna
hræðast þátttöku í slíkum stór-
um samböndum og telja væn-
legra að halda sínu.
Þetta var fyrsta þing, sem
ég sit og voru áhrifin önnur
en ég bjóst við. Þetta var að
mestu amen og halelúja sam-
koma í þingsalnum, en átökin
fóru fram bak við tjöldm. Þó
gerðust ýmis tíðindi í þinglok,
eins og viðbrögð Sverris Her-
mannssonar við framboði Guð-
mundar H. Garðarssonar og
orðaskipti miUi þeirra félaga.
Hefði ég ekki viljað eiga siíka
menn, sem fulltrúa frá sama
félagi. Einnig átti ég bágt með
að skilja þann skort i félags-
þroska, sem fram kom hjá Jóni
Sigurðssyni við sama tækifæri.
Jón mætti minnast þeirra ára,
þegar hann hafði aðeins sina
pólitísku félaga til að stjórna
ALþýðusambandsþingum.
★
Gústaf Halldórsson frá
Hvammstanga var fmltrúi
verkalýðsfélagsins Hvatar
— Ég hef setið þrjú þing og
finnst mér áberandi, hve fyigi
Framsóknarflokksins innan
verkalýðshreyfingarinnar hefur
farið vaxandi. Þeir fuL'.trúar á
þinginu sem fylgja fbkknum
að málum eru lang stærsti hóp
ur Framsóknarmanna, se.m þar
hefur setið. Áberandi var eink
um, hve þessi hópur va*- sam-
stæður í samanburði við hin-
ar flokksfylkingarnar, sem sátu
þingið. Meðal Alþýðubandalags
manna var hver höndii uppi
á móti annarri og þurftu þeir
oft að halda sérfundi til að
jafna deilurnar og tókst þó
ekki, eins og atkvæðagreiðs'an
um fjölgunartillögu Hannibals
bar með sér, en í henni srier-
ust um 90 Alþýðubandaiags-
menn á móti þessu ríkisstjórn
ardaðri foringja síns. Allmarg-
ir munu sjá Alþýðubandalagið
í nýju Ijósi eftir þetta þing
og finnast bera meira a skugga
hliðum í þeirra hegðan en áð-
ur. Ég talaði við marga full
trúa, sem hafa fylgt Alþýðu-
bandalaginu að málum, og þeir
áttu ekki nægilega sterk orð
til að lýsa andúð sinni á þessu
brölti foringjanna. Meðal ann
arra sögðu tveir gamalreyndir
fulltrúar frá Siglufirði og Ak-
ureyri, að þeir teldu sig lán-
sama að taka ekki þátt þessu
vesini. Sambræðsiuáform
Hannibals, sem þegar komu
fram í setningarræðu hans,
komu öllum fulltrúunum utan
af landi mjög á óvart og sló
óhug á marga, sem strengdu
þess heit að koma í veg fyrir
allt slíkt
★
Guðrún Ágústsdóttir frá
Sauðárkróki, fulltrúi Öldunn-
ar, kvað óánægju með stjórn
Sjálfstæðisflokksins i kaup-
staðnum undanfarin 8 ára hafa
verið aðalorsökina fyrir sigri
Framsóknarflokksins þar s.l.
vor. Einnig hefði hinn mikli
sigur flokksins í þeirri kosn-
ingu verið að þakka mikium
\
Gústaf Halldórsson
fjölda launþega, sem tók virk-
an þátt í baráttunni.
Þetta er 10. þingið, sem ég
sit og um leið eitt hið sér-
kennilegasta. Viðhori sumra
forystumannanna voru al't önn
ur en við höfðum búizt við,
þegar við lögðum af s*að á
þingið. Við töldum útilokað, að
forseti Alþýðusambar.dsins
stæði í slíku samkrut'i við
stjórnarflokkana eins og kom
á daginn. Við töldum alveg
víst, að launþegafiokkarnir,
sem stjórnað hafa Alþýðusam-
bandinu undanfarin ár myndu
gera svo áfram. Mér er óhætl
að fullyrða, að þorri Alþýðu
bandalagsfulltrúanna varð yfir
sig hissa og undrandi á fram-
komu foringja sinna.
Kjaramálin voru mikið rædd
á þinginu og áherzla lögð á
að skapa launþegum þau kjör.
að dagvinna nægði fyrir vjð-
eigandi lífsviðurværi. Það c-r
einhver almennasta krafa Jau.u
þega um allt land að hægt sé
að framfleyta sér og sinum ai
átta stunda dagvinnu. Það verð
ur að nást meira jafnvægi mi.li
launa og verðlags, svo að verð-
hækkanir eyði ekki kjarabót-’m
jafnharðan aftur.