Tíminn - 07.12.1966, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.12.1966, Blaðsíða 1
Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið í síma 12323 -------- ... n . 280. tbl. — Miðvikudagur 7. desember 1966 — 50. árg. Auglýsing 1 Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. Framboðslisti Framsóknar- fl. í Reykjaneskjördæmi KJ—Reykjavík, þriðjudag. -:------- EINSTÆTT BRÚÐKAUP Sá merkisatburður skeði á laugardaginn í Vallaneskirkju í S.— Múlasýslu að sóknarpresturinn sr. Ágúst Sigurðsson vigði í heilagt hjónaband þrjá bræður og þrjár systur, og eru þau á myndinni hér fyrir neðan talið f. v.: Bjarni Árnason, Jóna Guðmundsdóttir, Sigurður, Sigvarðína, Einar og Gunnþóra. Bjarni og Sigurður eru tvíburar og urðu 25 ára á brúðkaupsdaginn. Bræðurnir eru frá Litla-Sandfelli í Skriðdal, en systurnar eru frá Holtshjáleigu I Hjaltastaðaþinghá. (Tímamynd Hákon Aðalsteinsson) Verður Rhodesía sett í olíubann? HYLLA JÓSEF STALÍN SEM STRÍÐSLEIÐTOúA NTB—Moskvu, þriðjudag. Á hátíðarfundi kommúnistaieið toga í Kreml í dag í tilefni af þvi að 25 ár voru liðin frá ósigri naz ista við Moskvu í síðasta stríði, var Jósef Stalín ákaft hylltur sem striðsleiðtogi. Þegar formaður kommúnista- itsjev hrósaði Stalín sem miklum flokksins í Moskvu, Nikolaj Jeger leiðtoga í stríðinu, urðu mikil fagnaðarlæti meðal hinna 600 á- heyrenda. Fagnaðarlætin lijöðn- uðu þó fljótt aftur, er tveir kín- verskir sendiráðsmenn yfirgáfu salinn i mótmælaskyni við það, að Jegeritsjev ásakaði Mao Tse-tung fyrir að reka þjóðernislega stór- veldapólitík Allir æðstu stjórnmálamenn So vétríkjanna, að Kosygin þó undan skildum ,sem nú er í heimsókn í Frakklandi, tóku þátt í þessum há tiðarfundi. , Skýrði Jegeritsjev frá „liinni nýju mynd“ af þýðingu bardagans um Moskvu, sem með árunum hef ur breytzt úr því að vera kallað hreint varnarstríð í ein af merki- legustu þáttaskilunum í seinni heimsstyrjöldinni. Jegeritsjev, sem siglir hraðbyri upp í mestu áhrifastöður innan so vézka kommúnistaflokksins kom annars víða við í ræðu sinni og Framhald á bls 15. NTB-Lundúnu*m, þriðjudag. Sú nefnd brczka Samveldisins, sem fjallar um efnahagslegar refsi aðgerðir gegn Rhodesíu hélt tveggja klukkustunda fund í Lund únum í dag og samþykkti meiri liluti nefndarmanna að olía skyldi verða á listanum yfir þær vöru- tegundir, sem féllu undir refsiað- gerðirnar. Samtí'mis bárust þær fréttir frá Salisbury, að Ian Smitih neitaði eindregið fréttatilkynningúm þess A kjördæmisþingi Framsóknarfélaganna í Reykjaneskjör- dæmi sem haldið var í samkomuhúsinu Garðaholti, Garða- hreppi, á sunnudaginn, var framboðslisti Framsóknarflokks- ins í Reykjaneskjördæmi við alþingiskosningarnar, sem fram eiga að fara á næsta ári, ákveðinn. Listinn er þannig skipaður: 1. Jón Skaftason, alþingismaður, Kópavogi. 2. Valtýr Guðjónsson, banka- stjóri, Keflavík. 3. Björn Sveinbjörnsson, hæsta- réttarlögmaður, Hafnarfirði. 4. Teitur Guðmundsson, bóndi, Móum, Kjalarnesi. 5. Jóhann Níelsson, fram- kvæmdastjóri, Garðahrcppi. 6. Óli S. Jónsson skipstjóri, Sandgerði. 7 Hilmar Pétursson. skrifstofu- maður, Keflavík. 8. Jóhanna Bjiarnfreðsdóttir, húsfreyja, Kópavogi. 9. Bogi Hallgrímsson, kennari, Grindavík. 10. Jón Pálmason, skrifstofu- stjóri, Hafnarfirði. Jósef Stalín BRUTUST ÚT Á LITLA-HRAUNI TIL AÐ STELA í HVERAGERÐI HJ-Eyr*arbakka, þriðjudag. Komið er í ljós hverjir ■frömdu þjóf'.ýaðinn í Hvera-) gerði aðfaranótt 17. nóvember s.l. Stolið var þungum peninga skáp úr útibúi Kaupfélags Árnesinga í Hveragerði með hátt á annað hundrað þúsund krónum í peningum og ávísun- um. Þjófarnir voru tveir gæzlu fangar á Litla-Œírauni. Brutust þeir út af Litla-Hrauni um nóttina, stálu bifreið á Eyrar- bakka og fluttu pening-askáp- inn í henni til baka. Skápn- um hentu þeir í Hraunsá, sem rennur milli Stokkseyrar og Eyrarba'kka, og héldu síðan aft ur inn í fangelsið með þýfið og lögðu sig. Þjófarnir tveir gengu svo varlega til verks, að ekki varð uppvíst að þeir hefðu stolið bifreið og ekið henni til Hvera- gerðis og til baka aftur. Þá mun útbrot þeirra úr fangels- inu ekki hafa verið gert með þeim hætti að augljóst væri, að minnsta kosti, var stuldurinn ekki settur í samband við spjöll á húsnæði fanganna. Eftir því sem Timinn hefur , frétt, upplýstist málið með j þeim hætti, að fyrir þremur eða fjórum dögum var einum fanga sleppt lausum af Litla- Framhald á bls. 15. efnis, að stjórn hans væri klofin í afstöðunni til samþykktar samn- ingsti'Uagna Breta um sjálfstæði RJhodesíu. SmitJh sagði 20 blaðamönnum, sem hann hafði viðtal við i dag, að stjórnin hefði staðið einhuga að neitun samningstillagna Breta. — í tilkynningu frá stjórn Rhode- síu í dag segir, að ef gengið hefði verið að samkomulagsskilyrðum Breta hefði það valdið algerri upp lausn ri landinu, sem hæglega hefði getað leiðzt út í blóðsút- IheMingar. Brezka stjórnin varð sammála um í dag, á hvern hátt yrði mögu- legt að tryggja það, að refsiað- gerðir af hálfu aðildaríkja Sþ. gegn stjóm Ian Smith í Rhodesíu, leiddu ekki til þess, að Bretland eitt lenti í hreinu verzlunarstríði við ríki ails suður-Muta Afríku. Er haft eftir áreiðanlegum heim- ildum, að Wilson hafi fundið ráð til þess að Bretar einir geti ráðið því, hversu víðtækar hinar efna- hagslegu refsiaðgerðir verði. í neðri deild brezka þingsins í gærkvöldi gerði Wilson lýðum ljóst að hann sé fastákveðinn í að koma í veg fyrir algert verzlunarstríð við ríki S-Afríku, sem eru þriðji stærsti verzlunaraðili Bretlands. Tilkynnt var í New York í dag, að Öryggisráð S.þ. kæmi saman á fimmtudagskvöld til að ræða kröfu Breta um - efnahagslegar þvingunarráðstafanir gegn minni- hlutastjórn Ian Srnith í Rhodesíu. Fu'lltrúi Breta í ráðinu hefur þegar átt miklar viðræður við aðra fulltrúa ráðsins um fram- kvæmd refsiáætíunarinnar, sem hefur verið gerð í stórum drátt-. um. í kvöld kom brezki utanrífcis- ráðherrann George Brown til New York og var búizt við, að undir- Framhaid a bls. 15. UPPREISN UM BORÐ I SKIPI NTB—Brisbane þriðjudag. Sá óvænti atburður varð í höfnini í Brisbane í Ástr- alíu í dag að yfirmenn holl- lenzks skips Straat Malakkj urðu að beita skotvopnum til að bæla niður uppreisn um borð í skipinu. Áhöfnin sem öll «ar kín- versk gerði tilraun til að brjótast inn í brú skipsins, vopnuð hnífum, öxum og skiptilyklum. Gripu Kínverj arnir til þessara frumstæðu vopna, eftir að skipstjórinn hafði sallað á lögreglu Bris Framhald á bis. 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.