Tíminn - 21.12.1966, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 21. desember 1966
TIMINN
MINNING
Páll Sigurðsson
verkfræðingur
Páll Sigurðsson, rafmagns-
eftirldtsstjóri rí'kisins, varð bráð-
kvaddur á föstudagskvöldið var,
49 ára gamall, þar sem hann var
staddur á heimili tengdaforeldra
sinna.
Ættingjar og vinir eiga á bak
að sjá ljiúifu prúðmenni, sem yndi
var að umgangasit, og þjóðin öll
hæfum og menntuðum starfs-
manni á miðjum aldri.
Páll var fæddur á Vífilss'tiöðum
24. októher, sonur hinna lands-
Jkunnu merlkii'shjóna Sigurðar
Magnússonar, yfirlæknis, og pró-
fessors og Sigríðar Jónsdóttur,
sem lengi var virkur leiðtogi í
'félagsmálum kvenna. Iíann gekk
í Menntaskólann í Reykjavík og
tók þaðan stúdentspróf 1935, að-
eins 17 ára gamall, enda fróbær
námsmaður. Lagði hann síðan
stund á rafmagnsverkfræði við
tækniháskólaim í Kaupmanna-
höfn og lauk prófi þaðan í janú-
ar 1943. Heim kominn frá námi
starfaði hann um skeið hjá Raf-
magnseftirliti ríkisins, en þegar
stjórn raiforícumálanna var endur-
skipulögð 1947, gerðist hann yfir-
verkfræðingur áætilunardeildar
Raforkumólasitjórnarinmar og
gegndi þeirri stöðu um sjö ára
skeið. Á þeim árum voru unnir
og undirbúnir ýmsir merkir á-
fangar í rafvæðingu landsins. Það
var hlutverk Páls að standa fyrir
áætlanagerð og undirbúningi að
lagningu almenningsveitna og
byggingu rafstöðva og einnig
hafði hann á hendi umsjón með
sumum þessara framkvæmda.
Þann, sem þessar linur skrifar,
skortir þekkingu í einstökum at-
riðum á stönfum Páls á þessu
sviði til þess að geta metáð til
fulls þátt hans í þeim miklu fram-
förum, sem orðið hafa í ■ raforku-
málum á undanförnum tveim ára-
tugum, en vafalaust hefur hann
ekki verið lítill. Þessi störf áttu
vel við hæfileika hans og þekk-
ingu og tnálega var honum ekki
$neð öllu ljúft að láta af þeim,
en það gerði hann 1954, þegar
stéttarfélag hans átti í deilum vi^
ríkisvaldið, enda hafði það verið
ólíkt þonum að skerast úr leik
félaga sinna, þó það kostaði
nokkra fórn.
Síðan starfaði hann um skeið
sem verkfræðingur á Keflavíkur-
flugvelli, en á árunum 1956—61
var hann aftur hjá Raforkumála-
stjórninni, þá sem deildarstjóri
innkaupa- og birgðadeildar Raf-
magnsveitna ríkisins.
í ársbyrjun 1965 fékk Pál'l veit-
ingu fyrir embætti rafmagnseftir-;
litsstjóra ríkisins og hafði þá aft-|
ur fengið starf þar sem hæfileik-
ar hans gátu notið sin til fulls.
Hann hugði líka gott til þessa mik
ilvæga starfs og hefur þau tæp
tvö ár, sem hann fékk að sinna
því, unnið að miklu kappi að und-
'irbúningi margvíslegra umbóta,
'sem hann hafði á prjónunum.
Páll var fjölhæfur gáfumaður.
(Hann var allra manna fljótastur
>að átta sig, en hafði tamið sér
tryfja hvert mál til mergjar
•al alúð og vandvirkni. Eftir hann
'liagja nokkrar ritgerðir um fag-
'leg efni.
Árið 1948 kvæntist Páil Önnu
iSoffíu Steindórsdóttur (Gunnlaugs
sonar. lögfræðings). Þau eignuð-
ust tvo syni: Sigurð, sem nú er
14 ára og Gunnlaug Þór, 9 ára.
Voru þau hjónin samhent um að
búa sér og drengjunum faliegt
heimili, sem einkenndist af fáguð-
um smekk þeirra beggja.
Páll Sigurðsson var glæsilegur
maður, mikill vexti, fríður og
karlmannlegur. Hann var einstakt
prúðmenni og ákaflega nærgæt-
inn við aMa, sem hann umgekkst,
■hæglátur og laus við framhleypni,
en drenglundaður og hjálpfús,
þegar á lá, og vildi allra vanda
leysa. En undir fáguðu yfirborði
átti hahn ríka og viðkvæma
lund, sem mótaðist mjög af sterkri
réttlætiskennd. Það var helzt, ef
henni var misboðið, að hann
heyrðist hækka róminn. Hann var
heiisteyptur maður, sem mat
menn og málefni að verðleikum,
en var frábitinn grunnfærni og
sýndarmennsku.
Póll var glaðlyndur og skemmti
legur félagi. Sá, sem þetta skrif-
ar, minnist og þakkar nána vin-
áttu, sem hófst á námsárunum í
Iíöfn og efldist í nábýli undan-
farin 15 ár. Á hann hefur engan
skugga borið í meir en aidar-
fjórðung. Vinálta hans var hávaða
laus og traust eins og hann var
sjóllfur.
í raðhúsunum við litlu götuna
við Snekkjuvog býr samvalinn
kunningjahópur. Þar hefur oft
ríkt glaumur og gleði. Nú ríkir
þar hljóðiát sorg í hverju húsi,
þegar einn húsbændanna er svo
óvænt kvaddur. í vinahópnum er
skarð fyrir skildi, sem aldrei verð-
ur fyllt, en minningamar um ijúf-
an og góðan dreng munu jafnan
yija.
Með Önnu Soffíu og drengjun-
um hemnar tveim er einlæg sam-
úð vina og nágranna, sefn óska
þeim styrks til að bera mikla
sorg sína unz tíminn um síðir
græðir hin dýpstu sár.
Helgi Bergs.
Bótagreiðslur almanna-
trygginganna í Reykjavík
Bótagreiðslum almannatrygginga í Reykjavík lýk-
ur á þessu ári á hádegi á aðfangadag og hefjast
ekki aftur fyrr en á venjulegum greiSslutíma bóta
í januar. s
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
LOKAÐ
Skrifstofur Rafmagnseftirlits ríkisins verða lokað-
ar miðvikudaginn 21. þ.m. vegna jarðarfarar
Páls Sigurðssonar
rafmagnseftirlitsstjóra.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS.
Þórhallur BaUviussou
Sólarhóli Seltjarnamesi
I dag er gerð frá Fossvogskirkju
útför Þórhalls Baldvinssonar fra
Sólarhóli á Seltjarnarnesi. áður
bónda að Nesi í Aðaldal, er lézt
að Hrafnistu miðvikud. 14. desem
ber 77 ára að aldri Þegar Þór
hallur var sjötugur skrifaði ég
grein um hann hér í blaðið og
styðst ég við að nokkru.
Þórhallur var fæddur 21, maí
1889 að Núpum i Aðaldal. Foreldr
ar hans voru hjónin Bjidvin Þor
grimsson bóndi þar, síðar lengi
bóndi í Nesi og Halldóra Þórarins
dóttir. Baldvin var sonur Þorgríms
bónda í Nesi, Pétursson-ar bónda
á Stórulaugum. Jónssonar bónda
á Hólmavaði, Magnússonar bónda
þar Jónssonar. Frá Magnúsi er
kölluð Hólmavaðsætt. I-Ialidóra
kona Baldvins var dóttir Þórarins
bónda á Landamóti í Kinn og sið
ar á Núpum, Halldórssonar bónda
og stúdents á Úlfsstöðum í Loð-
mundarfirði, Sigurðssonar prests á
Hálsi í Fnjóskadal, Árnasonar iög.
réttumanns í Sigluvík Hallgríms
sonar af Svalbarðsætt.
Þórhallur fluttist með foreldr-
um sinum að Nesi 13 ára og ólst
þar upp síðan. Hann íór til náms
að Hvanneyri 1911 og útskrifaðist
þaðan 1913. Á Hvanneyri kynntist
Þórhallur konu sinni Pálínu Steina
dóttur frá Narfástöðum í Mela-
sveit.
Pálína Sigríður var fædö 24.
febr. 1891 á Katanesi a Hvalíjaið
arströnd. Foreldrar hennar voru
Steini Björn bóndi þar og síðar
á Narfastöðum í Melasveit Arn-órs
son bónda að Þrándarsióðurn i
Kjós, Björnssonar bónda á V7alda
stöðum Gíslasonar, og kona hans
Steinunn Sigurðardóttir oónda að
Árdal í Andakíl Sigurðssonar.
Þórhallur og Pálína giftust 1.
ágúst 1915. Settust þau að í Nesi
fyrst í húsmennsku, en íengu síð
an þart af jörðinni á mót’ föður
hans er Þorgrímui afi hans hætti
búskap. Þar bjuggu þau síðan til
1922 að þau urðu að hætta bú-
skap sökum vanheilsu Þórhalis.
Fluttust þau þá á brott úr ættar
sveit hans til Borgarfja-ðar með
tvö börn í æsku, Lilju og Halidór
en elzta barn sitt höfðu þau misst
nýfætt-
Þórhallur og Pálína voru fyrstu
árin á Narfastöðum hjá fóiki
1 Pálínu, en fluttist til Akraness ár-
ið 1925 Þar eignuðust þau fjórða
barnið, stúlku er dó á fyrsta áii.
Á Akranesi áttu þau siðan huinuli
i tæpan aldarfjórðung, eða til
1949 að þau fluttust að Sjonarhóli
á Seltjarnarnesi er vai heimili
þeirra lengst af síðan. A Akranesi
stundaði Þórhallur ýmsa vinnu.
eftir því sem heilsa og aðstæður
leyfðu og eins fyrstu a. beir a á
Sólarhóli.
Börn Þórhalls og Pálínu er upp
komust voru tvö, bæði fædd í
Nesi. Lilja Guðrún, átti Níels B-
Finsen bókhaldara á Akranesi, son
Ólafs læknis Finsen. Lilja dó 17.
sept. 1946 29 ára að Jdri væn
kona og vel látin. Einkasonur
þeirra er Björn við nám við há-
skólann í Edinborg. Annað oarn
Þórhalls og Pálínu er Handór
strætisvagnstjóri í Reykjavík
kvæntur Þórunni Meyvaptsdottu;
umsjónarmanns Sigurðssonar
Börn þeirra eru fjögur á lífi Þór
hallur Páll og Már Elías. báðir
kvæntir, Lilja Hjördís og S.igur-
björn Frímann.
Þórhallur var greindur maður.
Iíann var hinn mesti æringi á
unga aldri með spaug á reiðum
höndum og eftirhermur bar-
lengi á því í fari hans þeg-
ar bjart var í hugskotinu og var
þá fráságnargleði hans rnikil
Gaman hafið hann af kveðskap og
kastaði oft fram stöku. Pálína var
skörp að greind og athöfn allri
orðfær vel og létt í lund og vel
hagmælt. Var hún manni sinum
mikill styrkur í langvinnri og
j og erfiðri vanheilsu. Pálína and-
j aðist 21 ágúst 1960. Voru þau þá
í að mestu flutt til Halídórs sonar
I síns að Eiði við Nesveg. Þórhalli
| var það mikill missii og fór þá
! að halla undan fæti með heilsu
• hans. Var hann ívrst eftir fráfali
konu sinnar landdvölum hjá
tengda- og kunningjafólki upp í
Borgarfirði, en nafði annars at-
hvanf og umönnun hjá Halldóri
syni sínum og Þórunni k jnu hans
á Eiði, þótt lengst af teldi hann
heimili sitt að Sólarhóii. sem er
þar í næsta nágrenni.
Sumarið 1965 fékk Þórhallur
snert af heilablæðingu. Fór hann
þá á hjúkrunardeild Hrafnistu og
dvaldist þar síðan. Hafði hann
nokkra heilsu framan af en á síð
astliðnu sumri fór heilsu hans
hrakandi og lézt hann að kvöldi
þess 14. þ. m. eins og áður getur.
Lífið á marga tilbrevtni ijós og
skugga. eftirlæti og erfiðleika, og
er þar mest um vert hvernig við
metum það og mætum því. Þór-
halli frænda mínum var lífið um
margt erfitt. Síðustu árin allmörg
á Sólarhóli og Eiði' í námunda og
síðar í sambúð vi'ð Ilalldór einka
TIL JÓLAGJAFA
DÖMU snyrtivörur
Dorothy Gray.
, HERRAsnyrtivörur
Old Spice
Ilmvötn í úrvali.
INGÓLFS APÓTEK
TIL SÖLU
Lítil íbúð í timburhúsi í
miðbænum. íbúðin er 3
herb. og eldhús, ný stand-
j sett og laus strax tii íbúðar.
Verð kr. 590.000,00.
Sanngjörn útborgun, sem
má koma í tvennu eða
þrennu lagi.
Hér er gott tækifæri til að
eignast góða íbúð með hag-
stæðum kjörum.
Fasteignaskrifstofa
Guðm. Þorsteinssonar,
Austurstræti 20 sími 19545
HÖGNI JÓNSSON,
Lögfræði- og fasteignastofa
Skólavörðustig 16,
sími 13036
heima 17739.
Jón Grétar Siourðsson
héraðsdómslögmaður
Austurstræti 6-
18783.
son sinn og fjölskyldu hans, veitru
hpnum marga sólskinsstund og
gerðu honum lífið léttara
Vertu sæll og blessaður og guð
og gæfan fylgi þér á ókunnum
leiðum að nýjum Sólarhóii.
Indriði Indriðason.