Tíminn - 21.12.1966, Page 14
JOLAMATUR:
Hangikjöt:
Frampartar
Úrbeinaðar
hangirúllur
Svínakjöt:
Steiknr
Kótelettur
Hamborgara-
hryggur
Léttreykt
læri.
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 21. desember 1966
Happdrætti Fram-
sóknarflokksins
Framsóknarfélögin í Kópavogi
vilja vinsamlegast minna á Happ-
drætti Framsóknarflokksins. Þau
hafa tekið að sér dreifingu og inn
heimtu í Kópavogskaupstað. Nú
eru örfáir dagar þar til dregið
verður.
Vinsamlegast komið og gerið
skil að Neðstutröð 4. Kópavogi. Op
ið frá kl. 5—10 dag hvern fram til
jóla. Sími 41590.
Framsóknarfélögin.
JACKIE
Framtoalts af bls. 1.
kveðinn upp dómur í máli þessu.
Reston segir í grein sinni, að
Jackie Kennedy hafi einungis eitt
í huga með því að reyna að stöðva
útgáfu bókarinnar, og það sé að
viðhalda „glansmyndinni" af eig-
inmanni hennar.
— í Washington telja allir nú,
ef ti'l vill í fyrsta sinn, að Jackie
hafi orðið á mistök, — skrifar Rest
on, — en það er einfaldlega eng-
inn, sem þorir að segja það, ekki
einu sinni Robert Kennedy. sem
einnig hefði helzt kosið, að Jackie
hefði ekki gert tilraun til þess að
reyna að stöðva útgáfu bókarinnar.
Robert notar sjálfur Kennedy-goð
sögnina. Hann reynir líka að kom
ast með aðstoð hennar inn í Hvíta
húsið. Kjarni málsins er. að Ro-
bert Kennedy horfir fram á við,
en Jackie einungis til baka.
Reston lýkur grein sinni með
því að skrifa, að Jacqueline Kenne-
dy þurfi ekki að hafa áhyggjur
af því, hvað Johnson forseti hugsi
um bókina. Johnson á að hafa les
ið þá kafla hennar, sem um hann
fjalla, og honum likar ekki vel við
þá, en Reston telur, að Johnson
geti ekki orðið óvinsælli en hann
er nú þegar, og skipti þetta atriði
litlu máli.
The New York Times birtir á
sunnudaginn viðtöl við tvo menn
,.í bókaiðnaðinum", sem hafi lesið
bók Manehesters. og hefur eftir
þeim, hvemig bókin fjallar bæði
um Johnson forseta og frú Kenne
dy morðdaginn. Nöfn þeirra eru
ekki birt.
Er sagt, að bókin lýsi þvi, að fyr
irlitningin á Johnson meðan hann
var varaforseti, hafi verið svo mik
il að vissir menn Kenedys hefðu
til og með neitað að aka i sama
bíl og hann í bílalestinni í Dallas
hinn örlagaríka nóvemberdag. þeg-
ar morðið var framið
Um frú Kennedy á að vera skrif
að, að hún hafi verið utan við sig
af sorg, móðursjúk og stundum
tryllingsleg. Er sagt, að því sé
lýst, að hún hafi barizt við hjúkrun
arkonu, sem ekki vildi hleypa
henni inn í sjúkraherbergið, þar
sem h'k forsetans lá í Dallas, þar
til læknir að lokum fyrirskipaði
hjúkrunarkonunni að hleypa henni
inn.
Samkv. heimildarmönnum NYT
skýrir bókin frá ýmsum leið-
inlegum atvikum ,sem gerðust eft
ir morðið í Dallas.
Átök á milli Kennedy-liðsins og
Johnson-manna áttu sér stað til
og með áður en flugvélin fór frá
Dallas, þótt Johnsoin reyndi að
vera fullur samúðar við frú Kenne
dy.
Chester B. Clifton, ráðgjafi
Kennedys forseta og síðar John-
sons, reyndi að gefa flugmannin-
um skipun um að hefja sig til
flugs. Aðrir voru á móti því. Að
lokum sagði einhver við Johnson:
— Heyrðu. Kennedy er ekki for-
seti lengur.
Meðan á fluginu stóð, gekk hátt
settur aðstoðanmaðiur Kennedys
fraim eftir flugvélinni — en hann
hafðist við aftur í vélinni eins og
annað KennedyJið — vék sér að
blaðamanni þar og sagði: — Gættu
þess að skrifa, að við vorum aftur
í vélinni við hlið forseta okkar,
en ekki hér fram í hjá honum
fþ.e. Johnson)).
Þó mun bókin skýra frá þvi, að
spennan milli hópanna tveggja
hafi verið mest, þegar Johnson
hafi verið að hringja í allar áttir
til þess að fá nákvæmar upplýs-
ingar um, hvernig og hvar hann
ætti að taka eiðá forseta. íen aðrir jarðskjálftar, sem orð-
Einn ofangreindra heimildar-1 ið hafa í Kaliforníu.
manna segir: — ,,Maður fær á til Hins vegar væri vitað, að smá-
finninguna við lesturinn, að John-! jarðskjálfti getur orsakað eldgos
ÞAKKARAVÖRP
Hjartans þakkir sendi ég ykkur öllum nær og fjær,
sem sýnduð mér vináttu og tryggð með heimsóknum,
gjöfum og skeytum á 70 ára afmælisdegi mínum 19.
okt. síðastliðinn.
Guð blessi ykkur öll.
Lilja Jóhannsdóttir,
son hafi viljað nota Jackie að vissu
leyti, af því að hann vildi hafa
hana á myndinni af eiðtökunni.
LBJ óttaðist hugsanlegt samsæri
og vildi komast út úr Dallas.
Hann var hræddur um árás Rússa.
Hann var frekar hranalegur. Hann
vildi fá það staðfest strax, að hann
væri forseti.”
Kennedy-liðið mun hafa litið á
þetta þannig, að Johnson, sem
hafði óskað sér forsetaembættið
væri nú að hrifsa það til sín í
miklum flýti um leið og tækifæri
gafst.
Heimildamennirnir herma, að í
handritinu sé sagt, að þessi spenna
hafi aðallega byggzt á því, að
Kennedy-liðið hafi ásakað John-
son fyrir að hafa fengið Kennedy
forseta til Dallas Töldu þeir, að
leiðtogi þeirra, John Kennedy,
hefði farið til Texas til þess að
hjálpa Johnson við að jafna deil-
ur, sem hann hefði sjálfur átt að
geta ráðið við.
Heimildarmennimir hafa ekki
sama álit á bókinni. Annar segir,
að hér sé um eina beztu blaða-
mennsku að ræða, sem hann viti
um, en hinn segir, að hún sé að-
eins Kennedy-hlig málsins.
KEÐJUSPRENGINGAR
Framtoals af bls. 1.
á ferðinni keðjuverkun, sem smám
saman væri að byggja upp
spennuástand, sem gæti orðið
hættulegt.
Undanfarin 10 ár hefðu orðið
óvenjumargir og miklir jarðskjálft
ar á Miðjarðarhafssvæðinu. Jarð
skorpan væri alltaf á hreyfingu
og með þeim hægfara hreyfing
um gæti myndast spennuástand,
sem orsakaði það að bergið brysti
skyndilega á einhverjum stað.
Gæti það tekið áratugi fyrir jarð
skorpuna að jafna sig eftir það.
Slíkt skeði ekki nerna eftir jarð
skjálfta með jöfnu tímabili, þann
ig að keðja af kjarnorkusprenging
um, sem væru þó orðnar þetta
sterkar, allt að eitt megatonn, gæti
hæglega myndað slíka spennu í
jarðskorpunni, ag síðar yrði e.tv.
stór jarðskjálfti á þeim slóðum og
væri þetta hættulegast í námunda
við stórar jarðsprungur, eins og
áðumefnda sprungu meðfrem
vesturströnd Bandaríkj anna og
Atlantshafssprunguna.
Ekki sagðist Júlíusi vera kunn
ugt um að hægt hefði verig að
rekja beint orsakasamband milli
einstakrar kjamorkusprengju og
jarðskjálfta, en hins vegar væri
ekkert því tH fyrirstöðu að þama I ■>
e,B verið * mHll. Á J*; ?
hvar sem væri á áðurnefndum
sprungum og öfugt, þ.e. eldgos
valdið jarðskjálfta seinna meir.
Hættan væri mest við sprungu-
svæðin, sem raunar væru um alla
jörðina og væru sprungumar kort
lagðar.
Væri hættan þvi mest frá kjarn
orkusprengingum, sem sprengdar
væm í námunda við sprungurnar.
Frásögn NTB-Fréttastofunnar
af sprengingunni í dag var svo-
hljóðandi:
Bandaríkjamenn framkvæmdu
síðdegis í dag eina kraftmestu
kjarnorkusprengingu neðan jarð-
ar, sem dæmi em um í Banda-
ríkjunum. Var þá sprengd á til-
raunasvæðinu í Nevada-eyðimörk
inni kjamorkusprengja, sem að
styrkleika var milli 10 og 50 sinn-
um öflugri en sprengjan, sem varp
að var á Hiroshima í Japan árið
1945. Sprengingin var framkvæmd
1230 metra undir yfirborði jarð
ar, um 135 km. norð-vestur af
Las Vegas.
Ekki var nákvæmlega gefið upp
hversu öflug sprengjan var, ' en
sagt, að hún hefði verið af „með-
alstyrkleika," sem svarar til mill
200 þúsund og milljón lestum af
TNT-sprengiefni. Hiroshima
sprengjan svaraði til um 20 þús-
und lestum af TNT.
Ekki var gefið upp, hvers kon-
ar sprengjuhleðsla var notuð, en
í sumum heimildum segir, að um
hydrogen-sprengju hafi verið að
ræða.
Sprengingin átti sér stað um
kl. hálf þrjú í dag að íslenzkum
tíma og í Las Vegas urðu menn
hennar varir um 30 sekúndum síð-
ar. Ljósakrónur hristust lítilshátt-
ar í spilavítum borgarinnar og
meira en ein mínúta leið þangað
til áhrifa sprengingarinnar hætti
að gæta.
Neðanjarðarbyrginu, þar sem
sprengingin var framkvæmd, var
rambyggilega lokað með fleiri
lestum af sandi, möl og stein-
steypu, til að koma í veg fyrir,
að geislavirk efni síuðust út.
Neðanjarðarsprengingar eru
einu kjarnorkusprengjutilraun-
imar, sem leyfilegar em sam-
bvæmt Moskvusáttmálanum frá
1963, um takmarkað bann við
kj arnorkutilraunum.
Síðdegis í dag var tOkynnt, að
umrædd sprenging hafi verið fram
fevæmd í hemaðarlegum tilgangi.
var hún 34. tilraunin, sem fram
fevæmd var á þessu ári, og eins
og áður segir sú langöflugasta.
Útför eiginmanns míns og föSur okkar
Páls Sigurðssonar
rafmagnseftirlitsstióra,
fer fram frá Dómkirkjunni miSvikudaginn 21. þ. m. kl. 10,30 ár-
degis.
Anna Soffía Sfeindórsdóttir,
Sigurður Pálsson, Gunnlaugur Þór Pálsson.
Hjartkær eiginmaður mlnn
Jóhann Kristjánsson,
húsasmíðameistari, Auðarstræti 17,
andaðist á Borgarspítalanum þann 18. þ. m.
Fyrir hönd vandamanna
Kristrún Guðmundsdóttir
Þökkum innilega vinarhug við andlát og útför
Kristínar Guðmundsdóttur
frá Bildsey
Sigríður Eggertsdóttir, Eggert Pétursson,
Sigurlaug Guðmundsdóttir, Gunnar Eggertsson,
Þuríður Eggertsdóttir, Magnús Frímannsson,
Margrét Eggertsdóttir,
og barnabörn.
sama hátt og smærrf jarðskjálftar
gætu orsakað stóran jarðskjálfta
selnma meir, gætu margar spreng
ingar haft sömu áhrif.
Júlíus sagðl, ag sprengja, sem j
væri ekki meira en eitt kílótonn J
ylH jarðskjálfta, sem á Richter- j
skala værl talinn hafa styrkleik!
ann 5.4 og væri slíkux styrkleiki j
skráður sem jarðskjálfti, og myndu i
menn geta skynjað þær jarðhrær
ingar. Þegar sprengja væri orð
in eitt megatonn myndi hún því
valda miklum jarðskjálfta, sem ef
mældur væri, myndi reynast lítið
eitt minni en jarðskjálftínn í
Skagafirði árið 1963.
Þá sagði Júlíus, að Surtsey væri
of langt í burtu til þess, að bein-
línis væri hægt að kenna kjarn
orkusprengingum um jarðhrær-
ingamar þar.
Jarpskjálftar dofnuðu svo fljótt
í jarðlögunum, að yfirleitt gætti
þeirra ekki nema á svona um 100
ferkílómetra svæði í kringum jarð
skjálítamiðjuna.
Hæpið taldi hann, að spreng-
ingar í Nevadaeyðimörkinni gætu
haft áhrif hér á landi, ekki frekar
ástæður lægju þar að baki, s.s.
að innflytjendur hirtu t.d. ekki
um að sœkja varahliuti, sem
þeir hafa pantað en verið bún-
ir að fá fljótar eftir öðrum
leiðum. Sumir hafa hætt verzl-
un þegar varan kemur, og enn
aðrir fá vöru eftir að sölutími
herjnar er útrunninn, svo sem
síðbúinn jólavamingur.
Varningurinn sem boðinn
var upp í dag er allur frá fyrra
ári, enda má ekki bjóða varn-
ing upp fyrr en að ári liðnu
frá hingaðkomu. Vörurnar eru
ekki afhentar nema gegn stað-
greiðslu, og virtist það ekki
hamla þeim kaupendum sem
voru á uppboðunum í gær og
í dag. Mikil fjölibreytni var í
vörutegundum sem boðnar
voru upp — bílar, allskyns véla
varahlutir, vefnaðarvara,. elda
vélar, ísskápar, mláning, lökk,
o.fL
Ekki var búið að taka sam-
an heildarveltuna, en hún hef-
ur sennilega skipt milljónum.
Áætlað er að halda enn eitt
uppboð síðari hluta janúarmán
aðar.