Tíminn - 30.12.1966, Side 3
FÖSTUDAGUR 30. desemb er 1966
3
TÍMINN
kaupsdögum sínum í borg í £..S
ur-Englandi. Einnig kom fram
í þættinum 33 ára gömul kona
sem komið hafði til Bretlands
frá Ástraliu til þess að deyja
og móðir tvíbura nokkurra, sem
læknar hafa sagt um, að muni
deyja 16 ára að aldri, en þeir
eru nú 15 ára. Stjórnandi þátt
arins sagði, að hann hefði talað
við um það bil 40 persónur sem
biðu eftir dauðanum, og það
hefði verið samdóma álit þeirra
allra, að þau væru ánægð með
að læknarnir hefðu sagt þeim
sannleikann í málinu. Einnig
sagðist hann hafa komiat að því
að þvert á móti því, sem oft
kemur fyrir í skáldsögum. þá
þyti fólkið ekki upp til handa
og fóta og tæki allt sparifé sitt
og eyddi því á skömmum tíma.
Fólk það, sem kom fram í þætt
inum, þjáðist af krabbameini,
alvarlegum blóðsjúkdómi og
fleiri sjúkdómum.
Eftir að hafa gengið hlið við
hlið allan daginn, fær hundur
inn sér blund á baki vinar síns.
★
Viðvaranir hafa birzt í
enskum blöðum um hættuleik
Karate íþróttarinnar, þar segir:
„Viðvaningar í íþróttinni geta
orsakað stórslys og jafnvel bana
andstæðings síns, en þjálfun í
þessari íþrótt krefst mjög
góðra líkamlegra hæfileika, og
áherzlu ber að leggja á, að iðk
endur hennar temji sér kurt
eisi, virðingu og skilning. Flest
slys, sem hafa orðið í þessari
íþrótt hafa verið af völdum
fólks, sem ekki hefur verið með
lirnir í þekktum og viðurkennd
um Karate íþróttafélögum. Kar
ate klúbbar verða að vanda
val sitt á iðkendum iþróttar
innar og ættu að hafa það
sem inntökuskilyrði, að um-
sækjapdinn hafi náð vissri
gráðu í Judo og sé gæddur
sæmilegum gáfum. Karate er
sjálfsvamaríþrótt en sú hætta
er stöðugt fyrir hendi að mis-
indismenn geti notað hana til
árásar." Þessi skrif hafa or-
sakazt af því, að fyrir nokkru
lézt einn maður í Englandi af
völdum Karate.
★
Réttur í Mlanó hefur kveðið
upp þann dóm að neyði eigin
kona eiginmann sinn til þess
að sjá um uppvaskið eða að
þurrka rykið af húsgögnunum
þá teljist það vera „frekleg
móðgun“ og sé jafnvel skiín-
aðarorsök. Rétturinn veitti
Salvino di Feo 45 ára að aldri
skilnað frá konu sinni af þess
um sökum.
★
Bankarán var framið í Erig-
landi fyrir skömmu. Fjórir
vopnaðir menn réðust inn í
eitt útibú Barclay‘s bankans og
höfðu á brott með sér milli
200 og 300 pund.
___ ★
Tveir menn urðu að leggjast
á spítala vegna þess, að átrún-
aðargoðið og dægurlagasöngv
arinn Johnny Holliday fór úr
skyrtunni sinni. Þetta byrjaði
allt saman á gríðarstórum í-
þróttaleikvangi í Toulouse í
Frakklandi, en þar voru saman
Jafnvel eftir að hinn frægi
nautabani Santiago Martin hafði
veitt bolanum banastunguna
tókst hinum síðarnefnda að
reka horn sín í kvið nautaban-
ans. Martin hlaut mikil innvort
is meiðsli, en fékk samt tvö'
eyru fyrir frammistöðuna.
ntínaMí.'omstí
komin 5000 ungmenni til þess
að hlusta á hann syngja. Þeir
æptu og öskruðu og báðu um
meiri söng, en Johnny var gjör
samlega útkeyrður um miðnætt
ið og tók því það ráð að taka af
sér skyrtuna og fleygja henni
út í miðjan sal til þess að
sleppa út. Tveir ungir herrar
náðu taki á skyrtunni eftir
harða baráttu og hlupu með
hana á milli sin, alla í tætlum
út úr byggingunni með allan
lýðinn öskrandi og æpandi á
hælum sér. Þeir gátu síðan forð
að sér inn á lögreglustöð eina
og sluppu svo þaðan nokkru
seinna út um bakdyr. Þe{,ta allt
saman gerði hina táningana svo
æsta og ergilega, að þeir réðust
á vegfarendur. Tveir Alsírbúar
urðu svo illa úti af þessum sök.
um, að fara varð með þá í
sjúkrahús.
\
★
Einn allra. stærsti eiturlyfja-
hringur í heimi, sem hóf feril
sinn fyrir 22 árum leið undir
lok fyrir skömmu á Ítalíu. Fjór
ir höfuðpaura"nir eru í fangelsi
og á meðal þeira eru bræður
tveir, Salvatore og Ugo Can-
ebba, 65 og 66 ára að aldri, en
lögeglan leitar nú ákaft, að 43
undirmönnum þeirra, sem flest
ir eru sagðir vera meðlimir Maf
íunnar. Bræðurnir byrjuðu
starfsemi sína árið 1944 á Pal-
ermo á Sikiley með því að stela
stórum farmi af eiturlyfjum frá
bandaríska hernum, sem ætlað
ur var ítölskum spítölum. Lög-
reglan komst á sporið 1,954 og
allan þann !tíma síðan unnið að
málinu.
★
Brezka sjónvarpið bauð upp
á mjög sérstakan þátt á dög-
unum. Nýgiftur rnaður, sem
hafði verið tilkynnt af læknum,
að hann ætti aðeins eftir þrjá
mánuði ólifað, kom fram í
sjónvarpinu. Hin 30 ára
maður. en nafn hans var gefið
upp í þættinum, eyðir nú brúð
Tveir enskir læknar hafa
fundið aðferð til þess að vinna
á mígrænu, og er þetta talið
vera mikilvægt skref í barátt-
unni gegn þessum algenga sjúk
dómi. Við rannsókn á spítala
einum í London komust þeir
að því, að 6 manneskjur af
hverjum 12, sem voru án fæðu
í 19 klst. fengu snert af mí-
grænu. Þrír aðrir fengu höfuð-
verki nokkru seinna. Læknarn-
ir halda þvi fram, að í þessu
tilfelli hafi migrænan stafað
af lágu blóðsykur^nagni, sem
varð vegna hungursins.
★
Bráðlega verður haldið frí-
merkjauppboð í Frankfurt, þar
sem upp verður boðin örk af
hinu fræga „Sachsen Dreier“
merki. Þetta er eina örkin. sem
til er af þessu merki og er hún
metin á rúmar 6 milljónir
króna. Ef örkin verður seld á
þessu verði, þá er það hæsta
verð, sem gefið hefur verið fyr
ir frímerki í heiminum fyrr og
síðar.
Ri
Á VlÐAVANGI
I Þá urðu þeir sammála
f Bæði Staksteinahöfundur
f Morgunblaðsins og Austri Þjóð
J viljans gera að umtalsefni
l grein þá. er Tómas Karlsson
skrifaði í Tímann í tilefni af
50 ára afmæli Framsóknar-
flokksins. Báðir eru sammála
um að skoðanir Tómasar Karls
sonar eigi ekki erindi til ungs
fólks en eins og vænta mátti
rökstyðja þeir það hvor með
sínum hætti. f grein sinni
komst Tómas m. a. svo að orði:
„Það er allt annað og óskylt
að eiga eðlileg og náin sam-
skipti og samvinnu við aðrar
þjóðir og þá innan þeirra
marka, að það þjóni hagsmun
I' um okkar í hvívetna sem sjálf-
stæðrar þjóðar, en gefast upp
| og leggja okkar ráð öll í hend
| ur hinni alþjóðiegu auðhyggju
* — því ef við missum úrslita-
tökin á atvinnumáium okkar er
nær víst, að menningarlegt-
sjálfstæði fer forgörðum líka.
Þeir menn eru æði grunnhyggn
ir, sem halda, að um hina fá-
mennu íslenzku þjóð og henn
ar atvinnuvegi gUdi að öllu
leyti sömu lögmál í þessu sam
bandi og hjá þjóð, sem telja
tugi og hundruð milljóna
manna.“
Aukin áhrif ungs fólks
Ennfremur sagði Tómas;
„Til að bæta farsællega úr
þeim ágöllum, sem eru á ísl.
þjóðfélagi ungu fólki í hag
jafnframt því, að staðinn er ár-
vakur vörður um þjóðerni 0g
sjálfstæði, þarf ekki aðeins ný
viðhorf heldur einnig aukin
áhrif ungs fólks í æðstu stjórn
þjóðfélagsins. Þetta skilur ungt
Ifólk og veit að það er mikið í
húfi og það verða teknar örlaga
ríkar ákvarðanir um framtíð
þjóðarinnar á næstu misserum.
Vandamálin verða ekki leyst
eftir leiðum núverandi stjórnar
flokka og ekki heldur eftir leið
um kreddu og bókstafstrúar-
flokka. Þar þarf einmitt sú
þekking, sem unga fólkið ræð
ur nú yfir í vaxandi mæli að
fá að njóta sín til fulls. Unga
fólkið þarf að fá meiri áhrif
5 um mótun þcirra úrræða. sem
beitt verður — og slík áhrif
getur það fengið innan Fram-
sóknarflokksins.“
Bjargið heiminum
Mbl. segir, að þessar skoðan
ir Tómasar Karlssonar séu
fjarri hugsunarhætti Ungs
fólks á fslandi og segir m. a.:
í breyttum heimi þurfa 1
íslendingar alveg eins og aðrir
að hafa djörfung og kjark til
þess að feta nýjar slóðir og að- ,
laga sig breyttum aðstæðum.
Við lifum í hcimi sívaxandi
samskipta þjóða á öllum
sviðum, alþjóðahyggjan er ríkj
andi og mennirnir hafa komizt
að raun um að einmitt nánari
samskipti á öllum hugsanlcgum
sviðum eru líklegust til þess
að forða því að aftur komi til
styrjalda á borð við þær, sem
hrjáð hafa heiminn og þá sér
staklega Evrópuríkin tvisvar
sinnum á þessari öld.“
Eins og tilvitnanir í grein
Tómasar Karlssonar hér að
framan sýna er liann síður svo
að amast við þátttöku íslands
í alþjóðlegu samstarfi en bend
ir á, að sérstaka varfærni þurfi
að sýna á næstu árum vcgna
Framhald á bls. 15.
————