Tíminn - 15.01.1967, Qupperneq 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið i síma 12323.
Auglýsing i Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
T2- fW. — Sunnudagur 15. janúar 1967 — 51. árg.
MYNT
ÍSTAÐ
SEDLA
EJ-Reykjavík, laugardag.
Undanfarin ár hefur oft
verið um það rætt, að nauð
synlegt væri aS Iáta slá nýja
íslenzka mynt, sem væri
hærri að verðgildi en
tveggja krónu peningarnir,
sem nú eru í umferð. Ein
hver skriður er nú kominn á
þetta mál og farið að ræða
við ensku myntsláttuna um
gerð nýrrar myntar, en eng
in ákvörðun hcfur verið tek
in um verðgildi myntarinnar.
Má búast við að einhver ný
mynt komist í notkun seint
á þessu ári eða £ byrjun
næsta árs-
Svo sem kunnugt er hefur
Seðlabankinn undanfarið,
og Landsbankinn áður, haft
m°ð að gera seðlaútgáfu en
ríkissjóður hefur séð um
myntina upp í tvær krónur.
En í aprílbyrjun tekur Seðla
bankinn einnig við myntinni.
Blaðið átti tal við Jón
Framhald á bls. 2.
Mao Tse-tung
CSiiang Chicng
Lin Piao
Liu Shao-chi
Róttæk hreinsun boðuð í
kínverska hernum
NTB—Hongkong og Tókíó,
laugardag.
Hið opinbera málgagn kín-
verska hersins, Blað frelsis-
hersins, lagði í dag til, að
framkvæmdar yrðu róttækar
hreinsanir í forustu hersins.
í grein, sem lesin var upp í
Peking-útvarpinu, segir m.a.,
að innan hersins séu nokkrir
leiðtogar, sem fylgi kapítal-
ískri stefnu í andstöðu við á-
ætlun Maos formanns.
Ekki hafa verið nefnd nein nöfn í
þessu sambandi ennþá, en með
þessum boðuðu aðgerðum er talinn
hefjast nýr þáttur í menningarbylt
ingunni. sá þriðji. Er talið, að
Mao formaður hyggist taka öll
spil innan hersins á sína hönd og
styrkir þá skoðun skipun eigin
konu hans, Chiang Ghien, í stöðu
ráðgjafa hinnar nýju byltingar-
Frumvarp til laga um skipun prestakalla:
Heimilar ekki tvo
presta í prestakalli
EJ—Reykjavík, laugardag.
í lagafrumvarpi því, sem nú
liggur fyrir Alþingi um nýskipan
prestakalla, er gert ráð fyrir, að
einungis einn prestur verði í
hverju prestakalli. Hér í Reykja
vík eru nokkur tvímenningspresta
köll og hefur því vaknað sú spum
ing, hvort þeim verði skipt er frum
varpið verður aS lögum. Blaðið
ræddi í dag við biskupinn yfir ís-
landi, hr. Sigurbjöm Einarsson,
um málið, og sagði hann, að það
væri frekar ólíklegt, að breyting
yrði þar á, enda myndi slík breyt
ins vafalaust mæta einhverrj and
stöðu safnaSa.
Biskup sagði, að ákvæði um
þe"a atriði væri í annarri grein,
fyrsta tölulið lagafrumvarpsins,
en þar segði: — Skal skipting mið
ug vig það, að einn prestur sé
í hverju prestakalli.
í gömlu lögunum mun sagt, að
skinfingin skulj „að jafnaði" vera
þannig, að einn prestur sé í hverju
i'-~ 'akalli, og leyfði slíkt fráhvarf
f beirri megin reglu. Enda hef
i‘ verið svo í framkvæmd í
I 'avík, að nokkur tvímennings
pre-taköll hafa verig mynduð.
Biskup sagði, að Prestastefnan
h°fðí samþykkt alveg ákveðið, að
tt imenningsprestaköllunum skyldi
skipt, og kirkjuþing hafi staðfest
þá niðurstöðu, en mildað hana þó
ofurlítið til þess að það væru ein
hverjar útgöngudyr í sambandi
við tvímenningsprestaköll. Enda
hefði það verið þannig í fram
kvæmd, ag nokkur tvímennings-
prestaköll hafi verið mynduð, og
„það er hæpið, að það verði veru
leg breyting á því. Það er eigin
lega frekar ólíklegt“, sagði biskup.
Biskup sagði, að það hefði mætt
dálítilli andstöðu, að draga úr tví-
menningsprestaköllum. Þegar síð
Framhald á bls. 2.
nefndar, sem mynduð hefur verið
innan hersins.
Eins og kunnugt er, er Lin
Piao, varnarmálaráðherra, einn
nánasti samstarfsmaður Maos, for
manns og talinn líklegasti eftir-
maður hans. Hann er einn af fáum
háttsettum mönnum innan her-
stjórnarinnar, sem ekki hefur feng
ið einhverjar ákúrur frá Rauðu
varðliðunum.
í áðurnefndri blaðagrein segir,
að alvarlegt ástand geti skapazt
innan hersins, ef endurskoðunar-
sinnarnir þar haldi áfram völdum
sínum. Boðar blaðið harðar gagn
aðgerðir til þess að uppræta þessi
öfl og ekki skirrst við hinar rót-
tækustu aðgerðir til að ná tak-
markinu. Biður blaðið hinar ýmsu
deildir hersins að taka hlýlega
áskorunum Maos, um að draga rök
réttar ályktanir af reynslunni,
sem fékkst í Shanghai, þar sem
andstaðan gegn menningarbylting
unni kom bezt í Ijós.
Fréttastofan Nýja Kína segir
í dag, að herinn líti á það sem
framtíðarhlutverk sitt að vera
uppeldisstofnun til sköpunar nýrr
ar manngerðar.
Liu Shao-chi, forseti Kína, sem
hefur sætt harðri gagnrýni Rauðu
varðliðanna, dró í dag til baka
fyrri sjálfsgagnrýni sína, að því
Framhald á bls. 2.
Mótmæla
stöðvun
dagblaða
EJ-Reykjavík, laukardag.
Alþjóðasamband blaðaananna
hefur sent stjórninni í Saigon,
Suður-Vietnam mótmæli vegna
þess, að stjórnin liefur, þrótt
fyrir yfirlýsingar um afnám
ritskoðunar, stöðvað útgáfu
tveggja blaða í Saigon, „Viet-
nam Guardian“ og „Saigon
post“, sem bæði eru prentuð
á ensku.
Vietnam Gaurdian var bann
aður um óákveðinn tíma fyrir
að prenta myndir og upplýsing
ar í sambandi við fólk, sem
varð vitni að, eða flækt í, morð
ið á stjórnmálamanni í S-
Vietnam, Tran Van Van. Sai-
gon Post var bönnuð útgáfa í
viku fyrlr að birta í heild for-
ystugrein, sem ritskoðendur
höfðu tekið kafla úr.
í skeyti, sem Alþjóða-
sambandið sendi stjórninni í
Saigon, segir, að þrátt fyrir
yfirlýsingu stjórnarinnar í S-
Vietnam um, að ritskoðun
blaða yrði afnumin 26. ágúst
1966, hefðu þessi tvö blöð ver-
ið bönnuð. Er þessum aðgerð-
Framhald á 2. sfðu.
20 milljóna ára gamall
forfaöir manna fundinn
NTB-Nairobi ,laugardag.
Hinn þekkti mannfræðingur,
dr. Louis Leakey fullyrti í dag,
að hann hefði fundið leifar
elzta forföður mannsins. Telur
huim, að steingervingur þessi
sé um 20 milljóna ára gamall.
Forföðurinn nefnir dr. Lea-
key „Kenyapithecus African-
ingi eldri en „Kenvapitherus
us“ ok telur hann a. m. k. helm
inn telur sig áður hafa fundið
Wickery“, sem vísindamaður
leifar af og hingað til hefur
verið álitin elzta vera, sem lík-
ist manni.
Hinn nýja steingerving fann
dr. Leakey við uppgröft á Rus-
ingaeyju í Victoriu-vatni
skammt frá Kisumu, sem er
um 480 km. vestur af Nairobi.
Sýndi hann hinar fundnu leif-
ar á blaðamannafundi í Nair-
obi, en lýsing á fundinum er
birt samtímis í brezka vísinda-
ritinu Nature.
Hér er um að ræða 11 beina-
leifar af níu mismunandi ein-
staklingum, mönnum, konum
og börnum. Aldursákvörðun,
framkvæmdu þrír sérfræðing-
ar á mannfræðisviðinu, dr.
Jack Miller við háskólann í Cam
bridge, prófessor Garniss Surt
is og dr. Jack Eveinden. Telja
þeir beingervinginn 19—20
milljón ára gamlan.
Samtímis lakði bandaríski
steingervingasérfræðingurinn
prófessor Brian Patterson .'. am
til sýnis leifar af upphandleggs
beini af veru, sem líktist
manni. Hafði sá steingerving
ur fundizt við fornleifagröft i
Kenya, nánar tiltekið í Rud-
olf-vatni. Steingervingurinn er
talinn 2—3 milljóna ára gam
all. Mögulegt er, að leifar þess
ar tilheyrí tegundinni ..Austr
alopitheeus". æm talinn er
milliliður milli mannapa og
manna. Patterson er prófessor
við Harvard-háskólann í Band?
rfkjunum.