Tíminn - 15.01.1967, Blaðsíða 8

Tíminn - 15.01.1967, Blaðsíða 8
8 TÍMINN SUNNUDAGUR 15. janúar 1967 Afmælissýning Leikfélags Reykjavíkur: Fjalla-Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson Leikstjóri: Gísli Halldórsson „Og vi5 fslendingar hverfum til hans, iþegar mest skal við !haft, á A'þingisihátíð, við vígslu Þjóð- leikhúss, og nú á sjötugsafmæli Leikfélags Reykjavíkur.“ Með þess um orðum lýkur Steingrímur J. Þorsteinsson, prófessor, snjallrí grein í leikskrá Leikfélags Reykja víkur fyrir afmælissýninguna á Fjalla-Eyvindi, sem fram íór í Iðnó s.i. miðvikudagskvöld. Varla er unnt að segja það skýrar en með þessum einföldu orðum, hvern sess þetta leikrit skipar í íslenzku leikihúsi, og ekki einung- is þar, heldur í skáldskaprheimi þjóðarinnar. Fjalla-Eyvindur er gersemi okkar, er við tökum úr handraðanum á góðum stundum o,g finnum þar jafnan hina sömu fullnægingu, þar sem þjóðin, sag- an, landið og sbáldskapurinn sam- einast í þeim gullstóli, er lyftir okkur hverfulum einstaklingum skammra lífdaga hærra og lengra en önnur töfraklæði. Það er annars sérstök ástæða til að minna á það, að í þessa ieikskrá rita þrír öndvegismenn orðlistar greinar, sem eru satt að segja hver annari snjallari og gera skrána að bókmenntariti, þeir Sigurður Nordal, Ein&r Ól. Sveins- son og Steingrímur J. Þorsteins- son. Hver þessara greina er með sínum brag og blæ, og skal ekki um dæmt, hvora hæst ber. IHér skal heldur ekki rætt um leikritið, heldur aðeins þá sýningu sem efnt var til á þessum tíma- mótum Leikfélagsins. Er skemmst af að segja, að hún var ótviræður menningarviðburður. Þess var gætt að láta ekki afmælisskraut kæfa hana. Salurinn í Iðnó var með venjulegum svip og ekki skreytt- ur, en þegar tjaldið var dregið frá, sást að til ieiktjalda hafði veríð vandað af sérstakri aiúð og hug- bvaamni. í baðstofunni sneri súð- in að og sá til beggja stafna, og þetta svið var í senn ótrúlega eðlilegt og rúmgott, fékk á sig svip breiðtjaldsins, þótt kyn- legt sé á þessu litla sviði. Hið sama mátti segja um sviðsmynd- ir annarra þátta. Það var sem leikmyndahöfundinum, Steinþóri Sigurðssyni tækist að bregða furðulega stóru svip á þetta 'litla hverfi. Klettarnir í nærmynd- inni urðu gerðarmiklir og hrikalegir, jafnvel klungur. Hellis skútinn í síðasta þætti bjó yfir ógn og myrkri hörku, átti sér víddir og myndir, en slútti þó yfir og þrengdi að. Ég held, að þessar leikmyndir í þröngum stakki litla svipsins í Iðnó hljóti að telj- ast afreksverk, þó að ég hafi ekki til samanburðar margar sýningar á Fjalla-Eyv'indi. Hið sama má raunar segja, um gervi, búninga, áhöld og arinað. lAllt var valið af nákvæmni. Leikstjórn Gísla Halldórssonar verður varia fundið nokkuð til lasts en flest til lofs. Hann gætti vel hefðar leiksins en beitti hug- kvæmni fremur til þess að dýpka hana og skýra en að bregða til nýjunga og sá háttur hóf sig yf.ir eftirlíkingu, svo að leikurinn birt- ist ferskur þrátt fyrir gömul og náin kynni. Um leikendurna er það að segja að þar var valinn maður svo að segja í hverju iúmi. Guðfinnu, hina rosknu konu 1 tengslum við Höllu lék Inga Þórð- ardóttir af djúpri innsýn og gerði úr því hlutverki meira en ég hef séð á öðrum sýningum. Arngrám- ur holdsveiki í höndum Gests Páils ifflijW'j sonar varð sannur fulltrúi hins dýpsta umkomuleysis. Björn 'Hreppstjóri var óvenjulega mikil- úðlegur og stórbrotinn f dálítið stirðlegri túlkun Guðmundar Er- 'lendssonar, en framsögn hans var afburðagóð og hreimmikil, og per- sónan varð stórmannlegrí en oft vill verða og vakti meiri samúð en stundum hefur orðið í með- ferð þessa hlutverks. Gaman var að sjá rólega og fumlausa litlu stúlkuna, Margréti Pétursdóttur, en þó finnst mér sem enn hafi farið sem oftast fyrr í sýningum á Fjalla-Eyvindi, að barnið lokka- bjart og fagurgreitt í fínum fötum, hafi lítinn svip útilegubarns og birtist því á sviðinu fremur sem fagur draumur útilegukonunnar en raunveruleiki. Má raunar vera að sú líking nái alla leið inn í leikritið frá höfundarins hendi, og hann birti í þeirri svipmynd hyldýpi hinna meinlegu örlaga. Arnes útileguþjófur var leik- inn af ágætum tilþrifum af Pétri Einarssyni, og honum tókst bezt þar sem mest reyndi á. Óþarfi er að geta þess, að Har- aldur Björnsson brá upp áhrifa- ríkri mynd af Jóni bónda, en lék ef til vill heldur sterkt, eins og hendir oft mikla leikara, sem vanastir eru stórum hlutverkum, er þeir fara með smáhlutverk, og hann stal senunni um of meðan hann var á sviðinu en miklu lífi blés hann i réttardags- myndina. Annað ágætt leikfólk, svo sem Þóra Borg, Guðmundur Pálsson, Bjarni Steingrímsson, Margrét Magnúsdóttir, Helga Hjörvar og Guðný Halldórsdóttir leysti sín hlutverk með heiðri af hendi. Þó kann ég aldrei sæmi- lega hvað þá vel við ungar stúlk- ur í hlutverkum gelgjustráka og Eyvindur og Halla — Helgi Skúlason og Helga Bachmann. imér finnst þar oftast eitthvað vanta á. Þá er loks að geta aðalleikend- anna, hjónanna, Helgu Bachmann í gervi Höllu, og Helga Skúlasonar sem Kára. Helga var gervileg ís- lenzk Halla og skipar sér með j prýði við hlið þeirra leikkvenna, ! sem farið hafa með það hlutverk. Hún átti til þau hamskipti, sem ! þar eiga að vera, þó að þau væru misjafnlega gagnger. Hún birtist I fyrst mild og sterk, hæfilega lokuð , en þó örlar á því, sem undir býr, 1 og hinar réttu eigindir koma síð- RéttarfóUc á sviöinu. Fremst kona Jóns bónda — Þóra Borg — þá Jón bóndi — Haraldur Björnsson. Fjóröa í röðinni Guðfinna — Inga Þórðardóttir. an eðlilega fram í viðbrögðum þegar að sverfur. Mestri reisn og dýpstum leik fannst mér hún ná í fyrra þætti útilegunnar og í skipt unum við Arnes, og einnig í rétt- arjþættinum. Það verður heldur ekki annað sagt, en hún skilaði lokaþættinum með góðri reisn, þó að grimmd örvæntingarinnar og hungursins ætti ekki þá djúpýðgi, sem bezt hefur sézt. Helgi gerði samræmdari per- sónu úr Kára en títt er. Hann fómaði ef til vill nokkru af þeim glæsibrag, sem leikritið gefur færi á, en túlkaði því betur það mann lega veiklyndi hans, sem er að verulegu leyti rót þeirra öriaga. sem í leiknum verða, og á vand- Iförnastu einstigum hlutvarksins <var næmleiki hans og öryggi að- 'dáunarvert. í lokaatriðinu virtist ■hann forðast of sterk tilþrif en sýna bugunina því betur. Raunar má það segja um samleik þeirra Ihjóna í þessu úrslitaatriði, að hvor !Ugt þeirra lék með þeim ham- förum sem oftast er, og það vant- aði altaf örlítið á, að þau gengju úr mannlegum ham, og á vald ör- væntingaræðis, og þráðurinn á milli þeirra slitnaði aldrei. En •stef harmleiksins átti sér ef til vill því meira dýpi. Þau munu fá, lokastef leikríts, •og ekki til í öðru íslenzku, sem krefjast átaka, er ganga nær leik andanum sjálfum en þetta, kref jast hans sjálfs skilyrðislaust í leikinn bg þetta atriði verður leikandinn ’í raun og veru að lifa en ekki 'leika. Það mun og staðreynd, að samleikur Höllu og Eyvindar hafi ærið oft tengt persónuleg bönd milli leikendanna, náð inn 'úr gervunum. Vera má, að þar sé einnig að finna skýringu á því, að hjónum geti reynzt örðugt að brjótast í gegn í lokaatriðinu í Fjalla-Eyvindi. Slíkt er áhrifavald þessa verks. Leiksýningunni var afburða vel tekið á frumsýning- unni sem verðugt var, og þessa leiksýningu skyfdu menn ekki láta 'fram hjá sér fara. AK.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.