Tíminn - 15.01.1967, Side 11
SUNNUDAGUR 15. janúar 1967
TÍMINN
Hjónabðnd
NotiS tækifærið
og gerið góð
kaup.
þessa viku.
Veitum mikinn
afslátt af
margs Konar
fatnaði.
Föstudaginn 31. des. voru gefin
saman í hjónaband i Hallgrímskirkju
af séra Jóni Aðalsteinssyni, ungfrú
51 ín Guðmundsdóttir og Ásgeir M.
Þorbjörnsson. Heimili þeirra verð
ur að Njálsgötu 30.
'Ljósmyndastofa Sig. Guðm. Skóla-
vörðustíg 30).
Annan joladag voru gefm saman
í hjónaband í Kópavogskirkju af
séra Gunnari Árnasyni, ungfrú Sig-
rún Erla Kristinsdóttir og Reynir
Jónsson. Heimil þeirra er að Kópa
vogsbraut 83, Kópavogi.
(Ljósmyndastofa Þóris, Laugav.
20b sími 13602)
Þann 25. des. voru gefin saman í
Hjónaband ungfrú Steinunn Vil-
hjálmsdóttir og Guðmundur Svein
björnsson. Heimill þelrra er að
Skipasundi 76.
(Studio Guðm. Garðarstræti 8. Rvik
simi 20900).
liti föður hennar. Pazanna var
búlduleitari, andlitsdrættirnir stór
gerðari og nefið breiðara. Ennið
var svipað, en lægra og þrjózku-
legra. En hakan var ólík hans. Hún
bar vott um skapfestu. Pazanna
hefði þótt ófríð, ef ekki hefði ver
ið vegna hinna stóru, dökku augna
þar sem sterkar tiifinningar spegl
uðust. Þó að augnaráðið væri oft
strangt og skipandi, var það opið
og stundum fuHt af blíðu. Það
voru augu föðurins, en báru
hvorki vott um hið heillandi ljúf-
lyndi hans né léttúð. Fólk sagði,
að það væru augu bóndakonunnar,
langömmu hennar. Og þegar hið
hikandi bros hennar lék um var
irnar, varð ólaglega andlitið henn-
ar fagurt. Pazanna átti sínar gleði
stundir.
Hún var enn að hlusta á storm-
inn o,g kenndi ekki vitund í
brjósti um móður sína né systur,
sem þjáðust af völdum hans. Hún
var harðgerð sjálf og hafði enga
þolinmæði með veikgeðja fólki.
Hún mundi hafa elskað föður sinn
ef hann hefði ekki verið auðnu-
leysingi, sem taldi auðnuleysi sitt
merki um styrkleika. Hún þráði
þann tíma, þegar hún yrði frjáls.
Úti tísti fuglinn, órólegri, titrandi
röddu. Enginn þekkti leyndarmál
hans.
Hún heyrði lágt þrusk frammi
á ganginum og settist upp. Var
Biglotte tekin að ráfa um rétt
einu sinni? Aldrei var hægt að
treysta á svefnfrið í þessu gamla
húsi, því að þegar karlmennirnir
*elfur
Laugavegi 38.
ÚTSALA
á Laugaveginum
voru loks gengnir til hvilu, fóru,
vofur á kreik, sveipaðar glugga-
' tjöldum, eða vældu og blóruðu í
1 irðina. Einlhver læddist hægt upp,
nam staðar og blés mæðinni íyi-,
ir utan dyrnar á herberginu henn-
ar. Þá þekkti Pazanna að það var
Ohrétien, fábjáninn, sem var að
snuðra um. Hann var næstum aflt-
af á ferli um nætur.
Hún brosti dapurtega, þegar
hún hugsaði um veslings piltinn,
sem skildi ekki nema fátt af því,
sem fram fór í kringum hann.
Það voru nokkrir eins og hann
í héraðinu Marais, og stonminum
var kennt um það. Ekki þurfti
annað en að vindurinn hvini og
ýlfraði kringum barnsvöggu, og
ef barnið hafði ekki nógu sterk-
byggt höfuð, sturlaðist það. Big-
lotte hafði alið Ohrétien upp, en
ekki tekizt að koma honum tU
þroska, hann var fáviti eftir sem
áður. Pazanna var sú eina í Alte-
fersfjölskyldunni, sem bar um-
hyggju fyrir honum, bæði vegna
þess að henni þótti vænt um
Ohristophere frænda sinn og var
hlýtt til Chrétiens sjélfs. Fjöl-
skylda hennar henti gaman að
þessari vináttu. — Langar þig til
þess að hafa hann í eftirdragi aUa
ævi? kveinaði móðir Pazönnu, ef
hún á annað borð gaf sér tíma til
að hugsa um framtíð hennar. Hve-
nær sem Christophe sá Ohrétien,
reiddi hann upp hnefann, því' að
honum þótti gaman, að einhver
væri hræddur við hann. — Hann
er bjáni eins og faðir hans, var
viðkvæðið hjá honum.
Þó að Lucie hefði áhyggjur út
af framtíð Ohristjönu, kveið Paz-
anna engu vegna Chrétiens. Hún
sætti sig við, að það vært hlut-
skipti hans í lífinu að vera svona,
og hann yrði þess vegna alltaf að
hafa einhvern hjá sér. Hann hafði,
sem stóð, bæði Pazönnu og föður
sinn, og Pazanna ætlaði að ganga
honum bæði í móður og systur
stað, þegar faðir hans væri dáinn.
Hún hafði tekið þessa ákvörðun
án þess að hugsa um sína eigin
framtíð, því að henni fannst það
•eðlilegt. Hún fyrirleit skoðun
fjölskyldunnar. Henni kom þetta
ekki við. En þegar hún tók að
velta þessu fyrir sér, varð henni
órótt. Hún þekkti mann, sem var
þetta ekki óviðkomandi. Það var
Sylvain PréfaiUes. Hann var tal-
inn unnusti Pazönnu. Hún lét það
gott heita, enda hafði fjölskyldan
ákveðið ráðahaginn fyrir löngu.
Þau voru bernskuvinir, svo að lik
legt var, að vel færi á með þeim.
Silvain vissi um ákvörðun henn-
ar, en henni var ekki alveg ljóst,
hvernig hann leit á málið. Paz-
anna flýtti sér að hrinda frá sér
hugsuninni um Sylvain. Hún rifj-
aði upp fyrir sér í huganum það,
sem hún ætlaði að gera daginn
eftir. Hún ætlaði að fara niður á
láglendið, sem hafði verið hrifsað
úr greipum hafsins. Þetta merski
land fannst henni fegursti staður
í heimi.
Blóðið var farið að ólga í æð-
um hennar. Það krafðist þess að
brími þess yrði slökktur. Hún
hafði eitt sinn haldið, að landið,
sem hún hafði heimt úr greip-
um hafsins, mundi fullnægja
starfslönkun hennar og frelsisþrá.
Hún sökkti sér niður í þessar
hugsanir, og á meðan hélt storm-
urinn áfram að hvina, og tístið
veitingahú s i ð
ASKUR
jiV'DUK
YÐUR
SMURT
BRAUÐ
& SNITTUR
ASICUR
suðurlandshrawt 14
sími 38550
pauKi/
kjtíkkcn
P SIGURÐSSON S/f
SKÚLAGÓTU 63 Simi 19133
u
í fuglinum þagnaði. Frammi á
ganginum skreið Ohrétien og gelti
eins og hundur.
3.
Á heimili Altefers var m’ðdeg-
isverður klukkan eitt. Christophe
fannst þetta ágætur siður, enda
var þá morgundrykkjunni á vín-
kránum lokið. Honum þótti
ÚTVARPIÐ ,
Sunnudagur 15. janúar
8,30 Létt morgunlög 8,55 Fré*t
ir 9,10 Veðurfregnir. 9,25 Morg
untónleikar. 11.00 Messa í Nes-
kirkju. Prest-
ur: Séra Jón
Thorarensen.
12.15 Hádegisútvarp 13.05 Úr
sögu 19. aldar Haraldur Sigurðs
son bókavörður talar um rann
sóknir á íslandi. 14.00 Miðdegis
tónleikar og erindi: „Ödipus
konungur í Þebu“ Kristján
Árnason flytur erindi. 15.20
Endurtekið efni. a- Ófeigur J.
Ófeigssoi. læknir flytur er-
indi um vatnskælingu vuf
bruna. b. Ruth Little Magnús
son, Liljukórinn og Sinfóníuhlj.
ísl. flytja kantötuna „Gleðileg
||| jól!“ eftir Kari O. Runólfsson.
16.00 Veðurfregnir. Guðsþjón
usta í Aðventkirkjunni í Reykja
vík 17.00 Barnatími: Anna
Snorradóttír kynnir. 18.00 Lög
eftir Fritz Kreisler. 18.20 Veð
urfregnir. 18.30 Tilkynningar
18.55 Dagskrá kvöldsins og veð
urfr. 19.00 Fréttir 19.30 Ljóð-
skáldið Stefán Hörður Gríms-
son les úr ljóðum sinum. 19 45
Svipmyndir fyrir píanó eftir Pál
íslólfsson. Jómnn Viðar leikur.
20.15 „Systir Helena“, smásaga
eftír séra Sigurð Einarsson. Höf
flytur. 20-45 Einsöngur Joan
Baez syngur þjóðlög frá
Ameríku. 2100 Fréttir, íþrótta
S spjall og veðurfregnir. 21.30
i Söngur og sunnudagsgrín. Þátt
P ur undir stjórn Magnúsar Ingi
'4 marssonar. 22.20 Danslög. 23-
; 25 Fréttir í stuttu máli. Dag-
skrárlok.
Á morgun
Mánudagur 16. janar
7.00 Morgunútvarp. 12.00 Há-
degisútvarp.
13.15 Bún-
aðarþáttur.
Sveinn Einarsson veiðistj. tal
ar um eyðingu refa og minka-
13.35 Við vinnuna: Tónleikar.
14.40 Við, sem heima sitjum.
Edda Kvaran les framhalds-
söguna „Fortíðin gengur aftur“
eftir Margot Bennett í þýðingu
Kristjáns Bersa Ólafssonar (4).
15.00 Miðdegisútvarp. 16.00 Síð
degisútvarp. 17.00 Fréttir. I!ið
aftanstónleikar. 17.40 Börnin
skrifa. Séra Bjarni Sigurðsson
á Mosfelli les bréf xrá ungum
hlustendum. 17.00 Fréttir. 18.
00 Tilkynningar. 18.55 Dag-
skrá kvöldsins og veðurfregnir
19.00 Fréttir. 19.20 Tilkynn-
ingar. 19.30 Um daginn og
veginn. Séra_ Gunar Árnason
talar. 19.50 íþróttir. Sigurður
Sigurðsson segir frá. 20.00
„Heiðbláa fjólan mín fríða“.
20.20 Athafnamenn. Magnús
Þórðarson blaðamaður ræðir
við Axel Kristjánsson forstj.
21.00 Fréttir og veðurfregnir.
21.30 íslenzkt mál. Jón Að-
alsteinn Jónsson cand. mag.
flytur þáttinn. 21.45 Sónata
fyrir fjögur hljóðfæri eftir
Tartini. 22.00 ,Jlemingway“
ævisögukaflar eftir Hotrtienar.
Þórður Örn Sigurðsson mennta
skólakennari les þýðingu sína.
22.20 Hljómplötusafnið. 23.10
Fréttir í stuttu máli. Bridge
þáttur. Hallur Símonars. 23.35
Dagskrárlok.