Tíminn - 15.01.1967, Side 14
14
TIMINN
ENGIN FURÐA
ÞETTA ER
3011
2011
25 HA DIESELVEL
35 HA Dl^SELVEL
ER MEÐ FULLKOMNUM UTBUNAÐI
Hin kröffuga dieselvél gerir alla vinno léfta og ónœgjulega. —
Tvöföld kúpling, vökvaiyfta og aflúrtak gefur fjölbreytta mögu-
leika. A- ÓháS aflúrtak (gírskiptingar rjúfa ekki snúning aflúr-
taksöxuls, þannig aS vinnuhreyfingar slóttutœtara, jarStœtara
o. fl. tœkja rofna ekki af gírskiptingu). — ÓhóS vökvadœlu-
kerfi (gírskiptingar rjúfa ekki snúning aflúrtaksöxuls). — Sjólf-
virk ótaksslilling vökvadœlukerfis gefur meSal annars jafnari
vinnsludýpt jarSvinnsIuvéla, jafnari niSursetningu kartaflna og
möguleika til meiri spyrnuófaks viS dróff en fœst meS nokkurri
annarri dróttarvél svippSrar stœrSar — Vökvahemlar. — Yfir-
tengi meS skrúfustilli. — Há og lág Ijós, 2 kastljós framan, T
kastljós aftan, tvö venjuleg afturljós og stefnuljós. — Dekk
550x16 aS framan og 10x24 aS aftan — öll 6 strigalaga. —
Lyftutengdur drátfarkrókur. — Varahlutir og verkfœri til al-
gengustu viSgerSa ásamt smursprautu og tjakk. — Slátfuvél-
ar, moksturstœki eSa önnur fœki getum viS einnig selt meS
'Zetor dráttarvélum.
ER TIL AFGREIÐSLU MEÐ STUTTUM FYRIRVARA
EVEREST TRADING Company
GRÓFIN 1 • Simar*. 10090 10219
Móðir okkar, systir, tengdamóðir og amma.
Krisfín Sveinsdóttir
frá Grímsstöðum i Skagafirði,
andaðisf 13. þessa mánaðar. Jarðarförin auglýst síðar. F. h. Barna
systkina, tengdabarna og barnabarna,
Sigríður Bjarnadóttir.
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, nær og fjær, sem sýndu mér
samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar,
Sigríðar Einarsdóttur
Miðfúni 70
Hannes Stefánsson.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
Jóhanns Kristjánssonar
húsasmíðameisfara,
Auðarstræti 17.
Kristrún Guðmundsdóffir, Helga Bjarnadóttir,
Haukur Jóhannsson, fengdabörn og
Helga Jóhannsdóttir, barnabörn.
Eria Jóhannsdóttir,
Þökkum Innllega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför konu
minnar, móður, systur, fengdamóður og ömmu,
Iðunnar Þorsteinsdóttur
Langhúsum, Fljótsdal.
Sérstakiega þökkum við hjónunum Ingibjiirgu Jónsdóttur og Jón!
Beck Ágústssyni.
Guð blessi ykkur öll.
Þórhallur Ágústsson, börn, systkini,
fengdabörn og barnabörn.
ARMUL I 3 laaBBagBliinimMaMiTBppii SIMI 38500
Ritarastarf
Stúlka vön vélritun og með Verzlunarskólamennt-
un eða aðra hliðstæða, óskast strax ti) starfa.
Upplýsingar gefur Skrifstofuumsión.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
SAMVIN N UTRYGGINGAR
Auglýsið í TlMANUM
ÞAKKARÁVÖRP
Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem sýndu mér vin-
arhug á 70 ára afmæli mínu þ. 19. des. s.l. með heim-
sóknum, gjöfum og heillaóskum.
Gleðilegt nýtt ár, þökk fyrir hið liðna.
Þóra J. Hjartar,
Ákranesi.
SUNNtTDAGUR 15. janúar 1967
AÐALBJÖRG
Framhald af bls. 9
sjálfur. Eftir hálfan mánuS er
hringt til mín frá bandaríska
sendiráðinu hér og sagt að
fyrirtækið hefði beðið sendi-
ráðið að reka sitt erindi við
mig og biðja mig um skýrngu
á þessu háttarlagi. Þetta end-
aði með því að ég gaf sendi-
ráðinu yfirlýsingu um að hér
væri ekki um að ræða upp-
reisn gegn Bandaríkjunum
heldur fyndizt mér þessar
myndir ekki hæfa íslenzkum
börnum og væru dæmdar á
sama hátt og aðTar myndir.
— Hvernig er kvikmynda-
'eftirliti 'háttað á hinum Norð-
'urlöndunum.
— Það er haft eftiriit meb'
'innflutningi kvikmynda og ég
er þeirrar skoðunar að þai
'ætti að taka upp slíkt fyrir-
komulag hér líka. Það á að
stemma á að ósi með því að
þl-eypa því versta ebki inn í
landið. Kvikmyndaeftirlit í
'sinni núverandi mynd er ná-
lega gagnslaust eftir tiikomu
sjónvarpsins, einbum Keflavík
ursjónvarpsins. Það er ekki
nóg með að þorri barna geti
Tiorft á alls bonar ósóma í sjón
varpstækjunum heima iheldur
hafa verið sett upp tæki í
mörgum sjoppum til að laða
bömin þangað. Ég hef stund
uan komið inn í sjoppur, þar
sem börn eru að horfa á verstu
glæpamyndir, alveg sams kon-
ar myndir og ég hef látið
foanna. Maður stendur algjör-
lega máttlaus gagnvart þessu.
Og íslenzka sjónvarpið hefur
þegar sýnt kvikmyndir sem eru
•skaðlegar fyrir böm.
— Það er náttúrlega foreldr
anna að gæta þess hvað böm-
in horfa á í sjónvarpi.
— Foreldranna, segið þér.
Afstaða margra þeirra til þess-
ara mála er alls ekbi jákvæð.
Þau senda börnin í bíó enda
þótt um bannaðar myndir sé
að ræða og áður en hert var
á lögunum fylbtu þau liði með
ung böm á alls konar myndir.
Ék segi enn og aftur, eina
ráðið er að taka upp eftirlit
með innflutningi kvikmynda
bæði fyrir kvikmyndahús og
sjónvarp.
— En það er varla hægt að
bjóða sjónvarpinu upp á að fá
ebki að sýna góðar kvikmyndir
eingöngu vegna þess að for-
eldrar geta ekki gætt barna
sinna?
— Það er heldur ekki hægt
að skipa kvikmyndahúseigend-
um að banna fyrir böm kvik-
myndir sem þau geta horft á
óáreitt í sjónvarpi.
— Hvers konar myndir em
það aðallega sem þér viiduð
banna innflutning á?
■7- Ýmsar af þessum kyn
óramyndum og hryllingsmynd-
um sem örva það versta eða
gera fóik taugaveiklað en það
er einmitt þetta sem svo marg-
ir sækjast eftir. Það er eins
og mannfólkið hneigist meira
og meira að spennu og hryll-
ingi og myndir sem eru til
þess að örva þetta ætti alls
ekki að flytja inn.
— Og að lokum frú Aðaj-
björg. Hefur yður ekki að
mörgu leyti þótt ánægjulegt
að vinna við kvikmyndaeftir-
lit enda þótt það hafi verið
erfitt og oft og táðum van-
þakklátt starf.
— Jú þetta hefur haft ýmsa
kosti og samstarfið við kvik-
myndahúseigendur geKk
snurðulaust. Þeir létu það yfir
leitt afskiptalaust hvaða á-
kvarðanir ég tók.
GÞE.