Tíminn - 15.01.1967, Page 16
150-300 tú-
kallar ofþykkir
Fjármálaráðuneytinu hafa borizt
kvartanir um, að í umferð séu 2
kr. peningar af annarri þykkt en
reglur mæla fyrir um og að eigi
sé unnt að nota þeissa peninga í
bifeiðasitöðumæla .
Þegar eftir að kvartanir þessar
bárust, var sendiráð fstands í Lon-
don beðið að ræða málið við Royal
Mint í London sem annast mynt-
sláttu fyrir íslendinga. og upplýsti
myntsláttan, að vegna mistaka
myndu nokkrir 2 kr .peningar í
síðustu sendingu hafa orðið of
þykkir. Vart gæti þó hér verið um
að ræða meira en 150-300 peninga
en samtals var ein milljón 2 kr.
peninga í umræddri sendingu.
Að fengnum upplýsimgum og
skýringum myntsláttunnar á þess
um mistökum, hefur ríkisféhirði
verið falið að reyna að sjá til þess
að fleiri gallaðir peningar fari
fari ekki í umferð.
Ráðuneytið biður þá, sem varir
verða við 'hina gölluðu 2 kr. pen-
ingá- að fá þeim skipt hjá ríkisfé
hirði fyrir ógallaða mynt.
Síðbúnir
KJ-Reykjavík, laugardag.
Þetta er nú kanmski dá-
tlítið síðbúnir jólasveinar
jólasveinar sem Tíminn
birtir hér mynd af, en við
fengum blaðið King sent
frá vini okkar í London
og í desemiber hefti þess
eru átta myndasíður ff
þessum stúlkum, sem blað-
ir segír að séu íslenzkar
frænkur og heiti Heidi og
Sigrún Pálsdóttir (eða Pails
tottir eins og það er skrif-
að í King). Á tveim fyrstu
síðunum eru þær í þessuin
jólasveinalbúningum þá
koma tvær síður þar sem
þær eru umkringdar alls-
konar hlutum t0. jólagjafa
úr verzlunum í London og
að lokum fjórar síður þar
sem stúlkurnar eru sýndar
„léttklæddar.“ Hvort sem
þær eru nú miklar skyttur
eða ekki, þá eru þær með
byssur á næstum öllum
myndunum, og inn á milli
myndanna af stúlkunum
tveim eru byssukyming-
ar og uppskriftir að drykkj
um og dægradvalir.
Uppselt í Leikhús-
ferðina
Uppselt er í Leikhúsferð FUF á
miðvikudaginn, en þeir sem pant-
að hafa miða, eru beðnir að ná í
þá á mánudaginn.
Kaffiklúbburinn
Kaffiklúbbsfundur Framsóknar-
félags Reykjavíkur og FUF verður
næstkomandi laugardag í Tjarnar
götu 26 og hefst kl. 3 síðdegis. Er
lendur Einarsson, framkvæmda.
spjallar um samvinnumál og svar
ar fyrirspurnum.
Keflvíkingar
Fulltrúaráð Framsóknarfélag-
anna í Keflavík boðar til almenns
fundar Framsóknarmanna í Aðal-
veri, Keflavík, þriðjudaginn 17.
jan. n. k. og hefst kl. 20.30. Jón
Skaftason alþingismaður og aðr
ir frambjóðendur á lista Fram-
sóknarmanna í Reykjaneskjördæmi
mæta á fundinum. Fulltrúaráðið.
Framsóknarkonur
Félag Framsóknarkvenna held
ur fund þriðjudaginn 17. janúar
að Tjarnargötu 26 kl. 8.30. Dag-
skrá: Félagsmál, Einar Ágústsson
borgarfulltrúi flytur erindi um
borgai'málefni, Sigriður Thorlae
ius segir frá Noregsferð, Stjómin
í gær kl. 14 var afmælissýning LR „Saga 70 ára" opnuð í Unuhúsi. Myndin er af Magnúsi Pálssyni, leik-
myndateiknara, sem séS hefur um uppsetningu sýningarinnar, og er hann hér a3 hengja upp myndir
frá leiksýningum árið 1959—60. (Tímamyndir GE)
Frá framkvæmdastjórafundi frystihúsa SÍS
HITTAST AFTUR INN-
AN ÞRIGGJA VIKNA
EJ-Reykjavík, laugardag.
Á fundi framkyæmdastjóra
frystihúsa á vegum SÍS, sem hald
inn var 9. og 12. janúar, var ákveð
ið að nýr fundur skyldi lialdinn
innan þriggja vikna, og skyldu
liann taka afstöðu um, hvort mögu
leiki væri á að halda rekstrinum
áfram eða eigi.
Á frundinum 9. janúar voru
fyrst og fremst rædd afkoma hús-
anna árið 1966 ug rekstursmögu-
leikar 1967. Heildaruppgjör á
rekstri frystihúsanna 1966 benti
til þess að um alvarlegt tap hefði
verið að ræða hjá iðnaðinum það
ár. Með hliðsjón af þessu og
vegna stórhækkaðs verðlags inn-
anlands og mjög alvarlegar verð-
lækkunar á erlendum mörkuðum,
samþykkti fundurinn eftirfarandi
tillögu:
„Fundur framkvæmdastjóra
frystihúsa á vegum SÍiS, haldinn
í Reykjavík 9. janúar, ályktar eft-
irfarandi:
Þar sem mikið verðfall hefur
orðið á erlendum mör>kuðum á
frystum afurðum, samhliða aukn-
um kostnaði innanlands og með
hliðsjón af rekstrarerfiðleikum árs
ins 1966, telur fundurinn að stöðv
un á rekstri frystihúsanna sé ó-
hjákvæmileg, nema til komi veru-
legar breytingar á rekstrargrund-
velli nú þegar.“
Ennfremur var samþykkt að
kjósa fulltrúa til þess að fara á
fund ríkisstjórnarinnar og ræða
framtíðarmöguleika iðnaðarins.
Á fundinum 12. janúar voru
rædd ýmis önnur mál, meðal ann-
ars greiðslufyrirkomuleg uppbóta
ríkissjóðs til útvegsins og með-
ferð hagræðingarfjárs og sam-
þykkti fundurinn eftirfarandi á-
lyktanir:
1. Gneiðslufyrirkomulag upp-
Vélarhúsið við Skíðaskál-
ann í Hveradölum brann
KJ—Reykjavík, laugardag.
f morgun klukkan hálf-ellefu
varð fólkíð í Skíðaskálanum í
Hveradölum vart við, að eldur var
iaus í vélarhúsinu, sem stendur
j skammt frá skálanum á hlaðinu.
j Var strax kallað á aðstoð frá
I Slökkviliðinu í Reykjavík. sem brá
! skjótt við, þótt austur í Árnessýslu
; væri að fara, ©n er á staðinn var
I komið, var allt brunnið, sem brtmn
ið gat, og slökkviliðið gerði ekki
annað en slökkva í glæðum. fjar-
lægja olíutunnur og ganga þannig
frá brunastaðnum, að ekki stafaði
hætta af.
f vélarhúsinu voru ljósavélar,
eða vél fyrir Skíðaskálann og hafa
þær sjálfsagt gjöreyðilagzt. Þrátt
fyrir brunann verður hægt að fá
veitingar í skálanum um helgina.
þar sem gas er notað til eldunar.
bóta ríkissjóðs til útvegsins.
„Fundur framkvæmdastjóra
frystihúsa á vegum SÍS, haldinn í
Reykjavík 12. janúar 1967, lítur
svo á að greiðslur uppbóta þeirra
Framhald á bis. 15.
U
Nemendum vísað úr
skóla um stundar-
sakir til að uppræta
„sjoppugang
EJ—Reykjavák. laugardag.
Það hefur lengi reynzt vanda-
mál að halda skólanemendum frá
„sjoppunum“ svokölhiðu í frímín-
útum. Sumir sfcólar hafa ákveönar
reglur í þessu siambandi, eins og
t.d. Vogaskóli, sem er í næsta ná
grenni við eina ,,sjoppuna“. Er
nemendum þar bannað að fara út
fyrtr skólalóðina. Stundum brjóta
nemendur þó þessa reglu, og til
þess að uppræta þann ósið var
hópi nemenda, sem slíkt gerði í
vikunni, vísað úr skólanum fram
að helgi. Fá þeir að koma í skól-
ann á mánudegi.
Margs konar erfiðleikar eru sam
fara því að nemendiur farl í „sjopp
ur“ í frímínútum. m.a. koma þeir
þá oft of seint í tírna einkum þeir
sem lengi eru að fá afgreiðslu í
,,sjoppu” þeirri, sem um ræðir
hverju sinni.
EGILSSTAÐASJÚKRASNJÓ-
BÍLLINN REYNIST VEL
IIA-iEgilsstöðum, laugardag.
Síðast liðinn sunnudag fór
Iæknirinn á Egilsstöðum í
sjúkrávitjun á Borgarfjörð
eystri. Vaf til farinnar notað-
ur snjóbíll sá, er keyptur var
til héraðsins fyrir lækna og
til sjúkraflutninga, þegar öðr-
um tækjum er ekki fært vegna
snjóa. var farið í svokölluð
Sandaskörð ok komið niður að
Ilólalandi, sem er innsti bær
í Borgarfirði, að vestan verðu.
Ferðin gekk mjög vel og tók
2 klst. og 45 mín., frá Egils-
stöðum og að Hólalandi. Eins
og víðar er læknislaust á Borg-
arfirði eystra og þarf að sækja
lækni til Egilsstaða, ef veik-
indi ber að höndum. Það er því
mikið öryggi fyrir Borg-
firðinga, að greið leið skuli
vera fyrir snjóbíl, þegar aðrir
bílar komast ekki vegna snjóa.
Vegurinn til Borgarfjarðar
liggur um Vatnsskarð, sem
teppist venjulega snemma vetr
ar vegna snjóa, og um Njarð-
víkurskriður, sem geta orðið
Framhald á bls 15
r
isé