Tíminn - 20.01.1967, Page 16
■
16. tbl. — Föstudagur 20. janúar 1967 — 51. árg7
ÓHUGNANLEGA MIK-
IÐ UM SJÁLFSMORÐ
Níu manns a. m. k. hafa svipt sig lífi á einum mánuði
Öll skipasmíiavinna fer nú
fram innanhúss hjú Stúivík
KJ—Reykjavík/ fimmtudag.
Hjá Stálvík h. f. í GarSa-
hreppi eru nú f smíðum tvö
stálfiskiskip ca. 350 rúmlestir
hvort, og eitt stendur á stokkun
um tilbúið að öðru leyti en þvi
að vélina vantar, en töf hefur
orðið á að þeir í Stálvík fengju
Hana tH niðursetningar. Allar
skipasmíðar fara nú fram inn
anhúss í Stálvík og telja for
svarsmenn fyrirtækisins að það
sé algjör forsenda fyrir skipa
smíSum að hægt sé að vinna að
smíðinni innanhúss.
Skipið sem vélina vantar í er
smíðað fyrir Braga h. f. á Breið
dalsvík 200 rúmlestir að stærð,
en hin tvö eru fyrir Þórð Ósk-
arsson h. f. á Akranesi og Eld
ingu h. f. í Keflavík.
Stálvík h.f. hefur tekið
upp þá aðferð við smíði tveggja
síðasttöldu skipanna að bolur
þeirra er smíðaður í fimm hlut
um á hvolfi, þannig að byrjað
er á þilfarinu og endað á kilin
um. Suðutíminn styttist um allt
að 67% við þessa aðferð, auk
þess sem mun auðveldara er
að vinna, sérstaklega við raf-
suðu á plötum í skut og stefni.
Með þessu fyrirkomulagi er
stigið stórt spor, sem miðar að
aukinni hagræðingu og um leið
er verið að styrkja samkeppnis
aðstöðuna við útlönd. Nýja hús
ið er 10700 rúmmetrar, byggt
úr strengjasteypu frá Steinstólp
um h. f. Suðurendi þess er 13,6
metra hár en norðurendinn, sá
er að sjónurn s::ýr, er rúmlega
15 metra hár. Grunnmál eru
26,6 mx48,3 m fyrir nýja og
eldra húsið. Tveir kranar ganga
á brautum inni í byggingunni,
annar 20 tonna hinn 5 tonna.
Framhald hls. 14.
Rafsuðumenn hjá Stálvík vinna við yfirbyggingu eins af bátunum sem nú eru
smiðum þar.
(Tímamynd K. J.
KJ—Reykjavík fimmtudag.
Miklum óhug hefur slegið á fólk
vegna sífeldra sjálfsmorða nú að
undanfömu, en samkvæmt örugg
um heimildum, sem blaðið hefur
aflað sér, hafa níu manns svipt sig
lífi síðan um miðjan desember, hér
á landi. Skal það tekið fram að
sjálfsmorð þessi hafa ckki öll ver
ið framin í Reykjavík, heldur líka
á öðrum stöðum á landinu, í kaup
stöðum og bæjum.
Tiltölulega ungt fólk er í meiri
hluta og fleiri karlmenn hafa
svipt sig lífi en konur.
Svo sem áður greinir hafa þessi
sjálfsmorð átt sér stað víða um
land, og gætu þau verið fleiri en
níu á þessu tímabili þótt blaðinu
hafi ekki tekizt að afla sér öruggra
heimila um fleiri. Það er ekki
venja blaðanna að greina frá
hverju einstöku sjálfsmorði, þótt
svo að þeim sé kunnugt um þau,
óneitanlega er þetta uggvænleg
talá sjálfsmorða á mánaðartímabili,
og þessvegna er sagt frá því hér.
í opinberum skýrslum er greint
frá tölu sjálfsmorða og má þar til
nefna hagskýrslur, en þar mun
þess getið fyrir árið 1963 að 18
sjálfsmorð hafi verið framin á
því ári. Heildartölur um sjálfs
! • f|ft
morð á sl. ári munu ekki liggja fyr
ir fyrr en á miðju þessu ári.
Akureyringar,
nærsveitamenn
Framsóknarfé-
lögin á Akur-
eyri halda al-
mennan stjórn-
málafund að
Hótel K. E. A.
þriðjudaginn
24. janúar kl.
8,30 e. h. Frum
mælandi verð- Ingvar
ur Ingvar Gíslason, alþm. og ræðir
stjómmálaviðhorfið. Almennar
umræÓur á eftir framsöguerindi.
Akranes
Framsóknarfélag Akraness held
ur skemmtisamkomu í félagsheim
Ui sínu að Sunnubraut 21. sunnu
daginn 22. jan. kl. 8,30, s. d. Til
skemmtunar: Framsóknarvist og
kvikmyndasýning. Öllum heimill
aðgangur.
Aðalfundur Fram.sóknarfélags
Grindavíkur verður haldinn í kven
félagshúsinu sunnudaginn 22, jan.
næst komandi. kl. 2 e.h. Stjórnin.
^affiMíihhiinnn
Kaffiklúbbs-
fundur Fram-
sóknarfélags R-
víkur og FUF
verður næst-
komandi laug-
ardag í Tjarn-
argötu 26 og
hefst kl. 3 síð-
legis. Erlendur
Einarsson,
forstjóri spjallar um samvinnumál
og svarar fyrirspurnum.
ÁSTÆÐAN FYRIR SKEMMDUNUM Á NÝJU GÖTUNUM:
SUTLAGIÐ VANTAÐI
Ekki varð anrtað skilið á borgarstjóra í gær en hann ætlaði
að láta setja nýtt slitlag yfir allar skemmdu göturnar í vor,
og láta viðhaldsféð duga!
TK-Reykjavík, fimmtudag.
Er borgarstjóri svaraði fyrir-
spurnum frá Einari Ágústssyni á
borgarstjórnarfundi í kvöld, varð
andi hinar miklu skemmdir á
malbikuðum götum í borginni,
varð ekki unnt að skilja málflutn-
Ing hans á annan veg en þann, að
hann ætlaðl a8 láta leggja nýtt
slitlag á allar skemmdar götur í
borginni með vorinu, bæði gamlar
sem nýjar, og ennfremur og það
sem meira er og eftir var tekið,
hann ætlaði að láta hina almennu
fjárveitingu til gatnaviðhalds á
fjárhagsáætlun duga fyllilega til
þessa mikla verks og taldi enga
ástæðu til að óttast, að þetta yrði
til þess a8 draga úr eða seinka ný-
byggingum gatna með „varanlegu“
slitlagi! Borgarstjórinn sagði, að
ekki þyrfti að óttast msög auk
inn kostnað vegna lagfæringar þess
ara skemmda, þær væru ekki ýkja
meiri en venjulega; hefðu aðcins
komið fyrr fram og það skipti ekki
svo miklu máíi, hvort holurnar
væru fleiri eða færri, þar sem nýtt
slitlag ætti að koma yfir alla göt
una. Þykja þetta tíðindi og fagna
menn að nú skuli eiga að hverfa
frá skóbóta- og holufyllingastefn
unni og auðvitað alveg sjálfsagt
að gera það fyrst borgarstjórinn
j abyrgist að það kosti ekkert meira
j'að leggja nýtt slitlag yfir allar
skcmmdirnar! Nú geta borgarbúar
farið að hlakka til- Það verða mikl
ar gatnaframkvæmdir að sumri
og ,,billegar“!
Borgarstjóri las upp skýrslu er
gatnamálastjóri og borgarverkfræð
ingur höfðu gefið borgarráði um
ástand gatna. í skýrslunni sagði að
orsakir hinna miklu skemmda á
gatnakerfinu væri aukin umferð
og vaxandi fjöldi stórra og þungra
bíla, keðjuakstur og nagladekk
ásamt umhleypingunum. Saltið
væri og slæmt ef það kæmist um
holur í undirlag gatnar ra. Mestar
væru skemmdirnar á götum 10—15
ára og svo og miklar skemmdir á
nýjum götum og stafaði það af
því að slitlag vantaði á göturnar.
Væri aðeins undirlagsmalbik kom
ið á margar þeirra. Þeir töldu
nauðsynlegt að takmarka notkun
keðja og nagladekkja enda væri
það víða gert erlendis. Þeir töldu
að venjulegt viðhaldsfé mundi
duga ef tíðarfar yrði með venju
legum hætti til vors! Engin áætl
un hefði verið gerð hins vegar um
kostnaðinn af lagfæringum
skemmdanna! En ekki þyrfti að
taka fé af nýbyggingarfénu til lag
færingai á skemmdunum!
Einar Ágústsson benti á, að það
gætu varla talizt skynsamleg vinuu
brögð að ganga þannig frá fjölda
Framhald á bls. 14.
Loftleiðamálið í höndum
ríkisstjórnarinnar
Halda fund
meö fulltrú-
um Loftleiða
EJ—Reykjavík, fimmtudag.
Ekki hefur enn verið ákveð
ið hérlendis hvert skuli vera
næsta skrefið í Loftleiðamál
inu svonefnda, en Svo sem
kunnugt er lýsti Per Borten
forsætisráðherra Noregs,
því yfir á dögunum, að hann
vænti þess að málið yrði
rætt aftur á norrænum for
forsætisráðherra- eða utan-
rikisráðherrafundi.
Blaðið hafði í dag sam-
band við utanríkisráðuneytið,
og tjáði Níels P. Sigurðsson
deildarstjóri, blaðinu, að
ákvörðun um framhald máls
ins hefði ekki verið tekin.
Myndi væntanlega verða
haldinn fundur með fulltrú
um Loftleiða um málið ein-
hvern næstu daga, og þá
væntanlega rætt um, hvaða
leið skyldi farin.
Svo sem kunnugt er af
greinargerð samgöngumála-
ráðuneytisins, strandaði mál
i.ð einkum á því, að fuiltrú
ar SAS-ríkjanna kröfðust
þess, að hámarks mismunur
á fargjöldum Loftleiða og
SAS yrði 5%. Loftleiðir hafa
undaúfarið haft 13% mis-
mun á sumrin, og 15% á
vetruin. Alfreð Elíasson.
framkvæmdastjóri Loftleiða
sagði að þessi mismunur
væri alveg lágmark, því það
hefði sýnt sig, að í heild
hefði farþegaflutningar
Loftleiða frá Skandinavíu
frekar minnkað en hitt, og i
bezta falli staðið í stað.