Alþýðublaðið - 01.05.1984, Qupperneq 1
alþýöu
blaöiö
/ • ->
Þriðjudagur 1. maí 1984
83. tbl. 65. árg
Allir á baráttufundina
Alþýðublaðið minnir launafólk á baráttufund Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna i Reykjavík, BSRB
og Iðnnemasambandsins að Lækartorgi í dag.
Safnast verður saman að Hlemmi kl. 13.30 og þaðan lagt af stað kl. 14. Á Lækjartorgi verða ræður
og ávörp flutt, Bergþóra Árnadóttir flytur lög og sýndur verður leikþátturinn „Ódýrt vinnuafl á upp-
boði“. Því miður verður ekkert úr því að Oscar Villegas verkalýðsforingi frá E1 Salvador komist til Is-
lands. Áætlanir stóðust ekki með flug frá Evrópu og þegar hann ætlaði að koma frá Bandaríkjunum
stóð á vegabréfsáritun.
Við minnum einnig á aðra baráttufundi um land allt.
Fylkjum liði og sýnum styrk! -
A Iþýðuflokkurinn sendir verkalýðs-
hreyfingunni baráttukveðjur L maí
l.maí
ávarp
— frá1936
„í dag vill Alþýðuflokkurinn
með þessu litla riti ná til vina
sinna og velunnara um allt
land. Tilgangurinn er sá, að
alþýöan sameinist um allt
land, minnist og fagni yfir unn-
um sigrum, dragi lærdóma af
reynzlunni og safni kröftum til
nýrra átaka.
Þennan hátíðisdag erskorin
upp herör um allt land, meðal
alþýðufólksins, ekki til þess
að óeirðir eða bardagar hljót-
ist af heldurtil að eflasamhug
og einingu meirihluta þjóðar-
innar, samhug um dægurkröf-
urnar og einingu í baráttunni
fyrir velferðarmálunum.
Við minnumst sigra alþýðu-
samtakanna, ekki sem loka-
sigra, heldur sem nýrra áfanga
á leið þeirra að settu marki.
Við lítum á það sem mistekist
hefir, ekki til að láta hugfallast,
eða til að viðurkenna vopna-
burð andstæðinganna, heldur
til að brýna okkar eigin vopn
og mæta allri andstöðu með
styrku skipulögðu starfi.
Alþýðuflokkurinn óskar allri
alþýðu til hamingju með bar-
áttu- og hátíðisdag hennar 1.
maí. Hann er þess fullviss, að
beri alþýðan gæfu til að
standa saman í einni órofinni,
skipulagðri fylkingu, Alþýðu-
sambandi íslands, þá muni al-
þýðunni vel farnast.“
Þetta ávarp er í fullu gildi, og
hvert orð getur átt við daginn í
dag. Þó eru liðin tæplega 50 ár frá
því það var birt í myndarlegu riti,
sem Alþýðuflokkurinn gaf út 1.
maí árið 1936.
Öryggi og
friður
Karl Steinar Guðnason skrifar:
Bls. 12
•
„Að halda niðri
kaupinu og
jafnvel
lækka þacf“
punktar úr sögu
alþýðunnar og
verkalýðs-
hreyfingarinnar
Bls. 6—8.
•
Sameinaðir
stöndum vér —
sundraðir
föllum vér
sjá ritstjórnargrein
Bls. 2