Alþýðublaðið - 01.05.1984, Side 5
Þriðjudagur 1. maí 1984
5
1. maí ávarp Húsnœðissamvinnufélagsins Búseta:
Alþýðufólk langþreytt
á aðgerðaleysi í húsnœðismálum
Húsnæðissamvinnufélagið
Búseti í Reykjavík hvetur alla
félagsmenn sína til þess að taka
þátt í 1. maí aðgerðum verkalýðs-
félaganna og fylkja sér undir
kröfur félagsins.
í tilefni baráttudags verkalýðs-
ins minnir Búseti á þá höfuðkröfu
íslenskrar alþýðu að öllum þjóð-
félagsþegnum sé gert kleift að
eiga kost á öruggu húsnæði.
Meginþorri félaga í Búseta eru
verkafólk sem eftir kjaraskerðing-
ar undangenginna missera hefur
enga möguleika á því að eignast
húsnæði með þeim hætti sem
ríkjandi húsnæðismálastefna ger-
ir kröfu um.
Húsnæðissamvinnufélagið
Búseti er stofnað af þeim sökum
að alþýðufólk í Reykjavík er orðið
langþreytt á aðgerðarleysi ráðandi
afla í húsnæðismálum. Um þetta
vitnar sömuleiðis ör útbreiðsla
Búsetahreyfingarinnar um allt
landi, en félagatala húsnæðissam-
vinnufélaganna er nú um 2700
manns á öllu landinu og fjölgar
enn ört.
Á baráttudegi verkalýðsins 1.
maí minnir Húsnæðissamvinnu-
félagið Búseti á eftirtaldar kröfur
er snerta úrbætur í húsnæðismál-
um:
1. Alþingi tryggi ótvíræðan rétt
húsnæðissamvinnufélaganna
rétt til lána úr hinum félagslega
byggingarsjóði.
2. Lán til íbúða í verkamanna-
bústöðum, leiguíbúða sveitar-
félaga og leiguíbúða með bú-
seturétti á vegum húsnæðis-
samvinnufélaga nemi a.m.k.
90% af byggingarkostnaði til
a.m.k. 43 ára.
3. Nú þegar verði tryggt nægilegt
fjármagn til félagslegra íbúða-
bygginga þannig að hið allra
fyrsta verði náð því yfirlýsta
markmiði húsnæðislöggjafar-
innar að a.m.k. þriðjungur
allra íbúðabygginga í landinu
skuli vera á félagslegum grund-
velli.
1. maí ávarp Sjálfsbjargar:_
Manngildi
allra er jafnt
Úr yfirlýsingu Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðra.
„Fatlaðir eiga rétt á fjárhags-
legu og félagslegu öryggi og
mannsæmandi lífskjörum. Þeir
eiga rétt á, eftir því sem hæfileikar
þeirra leyfa, að fá atvinnu og
halda henni eða taka þátt í nyt-
samlegu, frjóu og arðgefandi
starfi og ganga í verkalýðsfélag.
Fatlaðir eiga kröfu á að tekið
verði tillit til sérþarfa þeirra á öll-
um stigum fjárhagslegrar og
félagslegrar skipulagningar.“
Yfirlýsing Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi fatlaðra er okkar
krafa.
Á hátíðisdegi verkalýðsins
fylkjum við liði og tökum þátt í
kröfugöngu og útifundi með
verkalýðshreyfingunni undir
kröfum um vinnuvernd, jafnrétti
til náms og starfs. Við bendum á
réttindamál sem við berjumst fyr-
ir og viljum skýra fyrir almenn-
ingi.
Okkar kröfur eru:
Við Ieggjum áherslu á að fatl-
aðir eigi kost á vinnu á almennum
vinnumarkaði og/eða starfi á
vernduðum vinnustað í sinni
heimabyggð. Við krefjumst þess
að allt fatlað fólk, sem vinnur á
vernduðum vinnustöðum og á
almennum vinnumarkaði njóti
þess lagaréttar að eiga í raun aðild
að verkalýðsfélögum með fullum
félagsskyldum og réttindum.
Við krefjumst þess að veitt
verði lán og /eða styrkur til að
breyta almennum vinnustöðum,
sem jafni aðstöðu fatlaðra á
vinnumarkaðinum.
Við leggjum áherslu á að aukin
verði endurhæfing og vinnu-
miðlun.
Við krefjumst, að fötluðu fólki
sé gert kleift að eignast og reka
bifreið.
Við krefju'mst þess að þeir, sem
dveljast lengur en einn mánuð á
stofnun, þar sem sjúkratrygging-
ar greiða dvalarkostnað þeirra, fái
sjálfir greitt 50% iágmarksbóta.
Við krefjumst þess, að fatlaðir
njóti mannsæmandi lífeyris.
Við hvetjum verkalýðsfélög til
að vera vakandi fyrir rétti
fatlaðra.
Manngildiallraer jafnt. Félags-
legur jöfnuður er markmið okkar
allra.
ytur launafólki
um land allt
báráttukveöjur